Helgarpósturinn - 22.08.1980, Page 27
27
__helgarpástl irinn Föstudagur 22.ágúst 1980
Þannig hafa meginlöndin hreyfst.
Fyrir 200 m. árum Fyrir 135 m. árum Fyrir 65 m. árum I dag.
Af hverju er Hekla aö gjósa? Af
hverju kemur heitt vatn uppúr
jöröinni? Af hverju skelfur hún
stundum? Þessar spurningar, og
aörar álika, hafa eflaust heyrst
hér á landi frá upphafi byggöar.
Svörin hafa lika áreiöanlega
veriö mismunandi — til aö byrja
meö hefur Þór efiaust veriö gerö-
ur ábyrgur, sföan Satan sjálfur,
og nú er þaö landrekiö.
Landrekskenningin svokallaöa
er ekki ykja gömul I núverandi
mynd. Þaö var ekki fyrr en fyrir
um þaö bil 20 árum aö jaröfræö-
ingar fóru aö lita á hana sem eitt-
hvaö annaö en hugarfóstur sér-
vitringa. En á þessum tuttugu
árum hefur henni vaxiö svo fiskur
um hrygg, aö nú eru allflestir
orönir sammála um aö hún sé
rétt. Svo langt hefur meira aö
segja veriö gengiö aö segja aö
hún sé fyrir jarðfræöina þaö sem
kenningar Darwins voru fyrir
náttúrufræöina, og þaö sem af-
stæöiskenning Einsteins var fyrir
eölisfræöina.
En hvernig er þessi landreks-
kenning? Guömundur Pálmason
jaröfræöingur hjá Orkustofnun
lýsti henni þannig i samtali viö
Helgarpóstinn: „Þeir sem aöhyll-
ast kenninguna lita á hina föstu
jaröskorpu sem fleka, sem fljóta
ofan á hálf bráönu bergi. Þessi
fasta jaröskorpa myndar all-
marga fleka, sem hreyfast hver
miöaö viö annan, meö nokkurra
sentimetra hraöa á ári. Þar sem
flekamir liggja hver aö öörum,
höfum viö siöan fyrirbæri, eins og
jaröskjálfta, eldgos, jaröhita-
svæöi, myndun fjallgaröa og
fleira slikt.”
Viö tslendingar búum sem
kunnugt er á Mið-Atlantshafs-
hryggnum, en hann er eitt af
þessum „landamærum” milli
tveggja fleka. Alls eru flekamir
um þaö bil tiu talsins. (Skilin em
ekki alls staöar fullkomlega ljós)
og skilin milli þeirra eru tvenns
konar. Annars vegar er um aö
ræöa gliðnun, en hins vegar
árekstur. Atlantshafshryggurinn
er gliönunarbelti, en utan viö
vesturströnd Suöur- og Miö-
Ameriku er t.d. samrunabelti.
Þar rekast tveir flekar saman, og
samkvæmt kenningupni hnoöast
þar jaröskorpan niöur, hundruö
kllómetra leiö, þar til hún bein-
linis bráönar i hitanum. A hinn
bóginn opnar gliönunin leiö fyrir
fljótandi kviku. Þannig er jöröin,
ofurhægt, aö endurnýja yfirborö
sitt. Eldsumbrotin á Kröflusvæö-
inu, og f Heklu, eöa annars staöar
á Islandi eru því ekkert sér is-
lenskt fyrirbæri, heldur em þau
hluti af allsherjar keöjuverkun.
Ennþá vantar mikiö i vitneskju
visindamanna um jöröina fyrir
milljónum ára, og mikiö er um
vangaveltur og getgátur. En þó
hefur veriö dregin upp býsna ná-
kvæm mynd af þvi sem veriö
hefur aö gerast á yfirborðinu á
siöustu tvö hundruö milljónum
ára.
Þá er taliö aö mestur hluti
noröurhvels jaröar hafi veriö
undir sjó, og núverandi megin-
lönd legiö saman. í noröri vom
Noröúr-Amerika, Evrópa og
Asía, en f suöri Suöur-Amerika,
Afrika, Indland, Suöurskauts-
landiö og Astralia. Fyrir 160 til
180 milljónum ára er taliö aö
hræringar hafi oröiö á þeim stöö-
um þar sem jaröskorpan var ekki
sterk fyrir, og þetta risastóra
meginland byrjað aö brotna f
sundur. Þá myndaöist Atlants-
hafiö og Indlandshafið. Fyrir um
125 miiljónum ára skildu síöan
leiöir hjá Afriku og Suöur-
Ameriku. 80 milljónir ára eru
siöan Grænland losnaöi frá
Noröur-Ameriku, og um 45
milljónir ára síöan Astralia losn-
aöi frá Suöurskautslandinu, og
Indland fóraörekastá meginland
Asfu. Aö lokum eru svo 20
milljónir ára siöan Arabfuskag-
inn losnaöi frá Afriku.
Þessi kenning kann aö virðast
heldur ótrúleg, en hún varpar
ljósi á margt sem veriö hefur vis-
indamönnum huiin ráögáta. Til
dæmis má nefna aö um nokkurt
skeiö hefur veriö vitaö aö hitastig
var hærra á jöröinni fyrir 100 til
200milljónum ára en nú. Þaö var
uppgötvaö meö jarövegssýnis-
hornum. Nú hafa tilraunir meö
nákvæm lfkön sýnt aö hreyfing
meginlanda i átt til þess sem var
— hefur þær afleiöingar aö yfir-
boröshiti jaröarinnar fer hækk-
andi.
Á sama hátt hefur þaö veriö
nokkur ráögáta hvers vegna lif-
rikiö hefur oröiö miklum mun
flóknara en þaö var áöur. Af
hverju? Vlsindamenn benda á aö
þegar meginlöndin rak i sundur,
sköpuöust mismunandi aöstæöur
og margskonar loftslag — sem
allt lff varö aö laga sig aö.
Og siöast en ekki sist þá er
landrekiö góö ábending um hvar
málma er aö finna, og önnur
verömæti úr jöröu, svo sem oliu
og gas. Þaö þarf t.d. ekki annaö
enaöltta á heimskort tilaö sjá aö
öll helstu námasvæöi heims eru
viö skilin milli flekanna. Þar er
hinn nauösynlega hita aö finna.
„Hér á Islandi erum viö á mót-
um tveggja fleka’,’ sagöi Guö-
mundur Pálmason ennfremur.
„Hins svokallaöa Noröur-
Amerlku fleka til vesturs og
Evrópu-Asiu fleka til austurs.
Þeir hreyfast hægt hvor i sfna átt-
ina, og fjarlægjast um tvo senti-
metra á ári aö meöaltali. Gos-
beltiö á Islandi er, samkvæmt
landrekskenningunni, á þessu
gliönunarbelti. Þaö er óreglulegt,
og á Suöurlandi skiptist þaö f
vestra gosbelti, sem tengist viö
Reykjaneshrygginn suövestur af
landinu — ogeystra gosbelti, sem
á eru m.a. Hekla og Katla. A
Norðurlandi tengist gosbeltiö
Kolbeinseyjarhryggnum, eld-
gosa- og jaröskjálftasvæöi, sem
heldur áfram langt noröur i
Ishaf”
Aösögn Guömundarer mikiö af
eldgosum á Islandi i beinu sam-
bandi viö gliðnunina. Hann benti
til dæmis á Kröflusvæöiö — þar
hreyfist jaröskorpan f rykkjum
oguppkemur kvikan sem nánast
fyllir uppi þaö rúm sem myndast
viö gliönunina. ,,Hins vegar virö-
ast ekki öll eldfjöll vera á þvi
svæöi þar sem gliðnunin á sér
staö” sagöi hann. „Sem dæmi
má nefna öræfajökul og Snæfells-
jökul.
I þeim tilvikum er annarrar
skýringar þörf. Þaö er til dæmis
athyglisvert aö utan gliönunar-
beltanna viröast eldfjöll hlaöast
upp i meiri hæö en innan þeirra,
sem bendir til þess aö kvikan
komi af meira dýpi, Þetta viröist i
all góöu samræmi viö landreks-
kenninguna, því aö á gliönunar-
beltinu er ástæöa til aö búast viö
kviku á minna dýpi en utan þess.
Kvika innan gliönunarbeltisins
kemur af um eöa innan viö 10 km
dýpi.en utan þess af 10 til 20 km
dýpi”
Aö sögn Guömundar er ekki
hægt aö tala um aö aukning hafi
oröiö á eldvirkni hérna — ef litiö
er til lengri tíma. ,,A meöan
skorpan gliönar meö jöfnum
hraða, hljóta efnistilfærslur aö
veröa meö nokkuö jöfnum hraöa.
Þá skiptir ekki máli hvort þaö
þarf til þess fimm gos eöa tiu gos.
Eitt gos getur jafnast á viö tvö
INNLEND
YFIRSÝN
litil. Þaö er hins vegar nokkur
ráögáta aö á siðustu árþúsundum
viiöist eldvirknin eingöngu hafa
oröiö á eystra gosbeltinu hér
sunnanlands. Engin gos hafa orö-
iö á Reykjanesinu i langan tima.
Þó vitum viö aö þar hefur gosiö
siöan á fsöld, vegna þess aö þaö er
allt þakiö hrauni. Þar er náttúru-
lega mest i húfi vegna þéttbýlis-
ins. Þaö gæti oröiö mikill skaöi ef
gysi á óheppilegum staö,”
Guömundur tók aö lokum fram
aö þótt hann og flestir kollegar
hans væru fylgismenn landreks-
kenningarinnar, væru til jarö-
fræöingar sem ekki væru á sömu
skoöun. Og i grein i The Econom-
ist, sem þessi samantekt er aö
nokkru byggö á, er bent á aö
mörgum spurningum 1 sambandi
viö hana sé enn ósvaraö, Af
hverju meginlöndin hreyfast mis-
jafnlega hratt og hvaö stjómar
hreyfingunum er dæmi um
grundvallarspurningu sem enner
ósvaraö.
En samt sem áöur má gera sér
grein fyrir þvi hvernig jöröin
kemur til meö aö lita út eftir um
þaö bil 50 milljónir ára. Miö-
jaröarhafiö veröur horfiö. Hluti
Noröaustur-Afriku hefur brotnaö
af. Astralía hefur fariö noröur á
bóginn og veröur sennilega komin
aö ströndum Suöaustur Asiu. Og
Bandarikin og Suöur-Amerika
munhafa nálgast Japansstrendur
mjög.
Hvort Island veröur enn á sín-
um staö veit vlst enginn.
eftir
Æ Guöjón
flR Arngrims-
___________son
Heklugos og gliðnun
Verkamannauppreisnir i Pól-
landi árin 1956 og 1970 uröu til
þess, aö skipt var um forustu i
rlkisstjórn og valdaflokki. Enn
hefur soöiö upp úr í pólskum
borgum. Eins og 1978 sverfur til
stáls I hafnarborgunum viö
Eystrasalt. Þá uröu þar blóðugir
bardagar, þar sem tala fallinna
skipti tugum ef ekki hundruðum,
. ritskoöunin hefur séö um aö
heildarmynd af þvisem geröist er
ekki til. Til sliks hefur ekki komiö
enn aö þessu sinni. flokksforing-
inn Edward Gierek, sem komst til
Pólverjar
steins og
valda 1970 eftir fall Widadisiavs
Gomuika, þess sem uppreisnin
1956 lyfti á valdastól, reynir aö
komast út úr vandanum á svipaö-
an hátt og 1976, þegar samskonar
atburöir ógnuöu stööu flokksfor-
ustu og rfkisstjórnar.
Þá eins og 1970 og nú i sumar
eru þaö ákvaröanir um stórhækk-
aö verö á kjöti sem orðiö hafa til-
efni til hættuástands i Póllandi.
Framboö og verö á kjöti var oröiö
ráöandi atriði i skiptum almenn-
ings og yfirvalda i landinu. Meö-
an stjórnvöld, sem réttlæta til-
veru sina meö tilvlsun til ná-
grennis viö Sovétrikin og vilja
valdhafa I Moskvu en hafa ekkert
raunverulegt umboö til aö stjórna
frá pólsku þjóöinni, sjá um aö
daglegar nauösynjar, og þá fyrst
og fremst kjöt, séu fáanlegar viö
skaplegu verði, eru þau liöin.
Vegna þessa hefur pólska rikiö
steypt sér I fjárhagslega óreiöu til
þess eins aö halda uppi óstjórn-
lega háum niöurgreiöslum á kjöt-
veröi á almennum markaöi. Eins
og æviniega viö niöurgreiðslu-
kerfi hefur þaö smátt og smátt
grafiö undan sjálfu sér. Kjöt hef-
ur horfiö af almennum markaöi,
þar sem þaö var selt langt undir
raunviröi, og lent á svörtum
markaöi, sem i Póllandi eins og
öörum Austur-Evrópulöndum
fylgir miöstýröu valdstjórnar-
hagkerfi eins og skuggi. Þegar.svo
rlkisstjórnin reynir I senn aö létta
milli
sleggju
óbærilega niöurgreiöslubyröi'
rikissjóös og færa verðlag fjær
heimi ævmtýranna og nær raun-
veruleikanum meö tilskipun um
veröhækkanir, fær hún yfir sig
fordæmingu og virka andstööu.
Astæöur fyrir klofningnum
milli rlkisstjórnarog þjóöar I Pól-
landi eru aö nokkru raktar i
skýrsiu sem hópur pólskra
menntamanna sendi frá sér I vor.
Höfundarskýrslunnareru jöfnum
höndum úr rööum Sameinaöa
pólska verkamannaflokksins,
sem meö völdin fer, og óflokks-
bundnir. Þeir rekja ófremdar-
ástandiö I pólsku stjórnarfari og
efnahagsmálum fyrst og fremst
til þess trúnaðarbrests sem rikir
milli stjórnvalda og almennings.
Siöustu árin hefur pólska
stjórnin reynt aö koma atvinnullfi
á skriö meö iönvæöingu, sem aö
verulegu leyti er f jármögnuö meö
Babiuch forsætisráöherra.
lánum teknum á alþjóölegum
peningamarkaöi. Greiöa átti lán-
in meö afurðum hins nýja iönaö-
ar. Aætlanagerð og framkvæmd
iönvæöingarinnar hafa veriö meö
slíkum misbrestum, að útflutn-
ingur á afuröum hennar hefur
oröiö langt undir settu marki. Er
nú svo komiö aö afborganir af er-
lendum skuldum gleypa mestall-
ar útflutningstekjur Póllands, og
heföbundinn útflutningur á bú-
vörum, þar á meðal kjöti, veröur
aö bera uppi Utflutninginn aö
langtum stærri hluta en til stóö.
Jafnframt hafa stjórnvöld haldiö
uppteknum hætti aö þrengja kosti
sjálfseignarbænda og draga taum
illa rekinna rikisbúa.
Ritskoöun hefur séö um aö
draga upp fyrir almenningi fegr-
aöa mynd af ástandinu, mistök-
um og erfiðleikum er leynt. Þegar
svo gripiö er til neyöarúrræöa,
eins og veröhækkunarinnar á
neysluvörum, fyrst og fremst
kjöti, i júllbyrjun, koma afleið-
ingarnar i ljós. Meö skæruverk-
föllum hefur hver starfshópurinn
af öörum I borgum Póllands knúiö
fram kauphækkanir, sem stjóm-
völd hafa fallist á til aö kaupa sér
friö I bili, þótt þær eigi sér engar
ERLEND
efnahagslegar forsendur og hljóti
þvi aö renna út I sandinn fyrr en
varir.
Enn er sama aöferö viöhöfö i
verkföllunum sem nú rikja i hafn-
arborgunum. Reynt er aö semja
um launahækkanir viö starfs-
menn i hverju fyrirtæki um sig,
en ganga fram hjá sameiginlegu
verkfallsnefndinni, sem aðsetur
hefur I Lenin-skipasmíöastööinni
I i Gdansk. Astæöan er aö sú nefnd
hefur ekki látið viö þaö sitja aö
bera fram efnahagslegar kröfur,
heldur hefur hún sett á oddinn
pólitiskar kröfur, sem eru mjög I
anda skýrslu menntamanna-
nefndarinnar frá þvi I vor. Verk-
fallsnefndin krefst þess aö verka-
menn sjálfir en ekki valdaflokk-
urinn ráöi stjórn og starfi stéttar-
félaga. Hún krefst afnáms rit-
skoðunar og aögangs aö rikisfjöl-
miölum á jafnréttisgrundvelli
fyrir aðila óháöa rikisvaldinu eins
og kaþólsku kirkjuna. Verkfalls-
menn krefjast einnig afnáms sér-
stakra verslana forréttindahóp-
anna I flokksforustu og rikiskerfi,
þar sem varningi sem skortur er
á er beint til fárra útvaldra og
verölag er þar aö auki langtum
hagstæöara en þaö sem almenn-
ingur veröur aö sæta.
Nú hafa pólsk stjórnvöld gripið
til þess ráös, aö handtaka fjórtán
forustumenn I Nefnd félagslegrar
sjálfsvarnar i Varsjá, en þau
samtök hafa undanfarna mánuöi
leitast viö aö halda uppi frétta-
flutningi af atburöum og þróun i
Póllandi meö fjölritaútgáfu og
sambandi viö fréttamenn frá öör-
um löndum, Babiuch forsætisráö-
herra og Gierek flokksleiötogi
höföu áöur komiö fram i sjón-
varpi og lýst yfir aö pólitiskum
kröfum verkfallsnefndarinnar I
eftir
Magnús
Torfa
ólafsson.
Gdansk yröi I engu sinnt. Visuðu
báöir undir rós til þess, aö hver
sem þjóðarvilji Pólverja væri,
yröi stjórnarfar I landinu aö hald-
ast innan þeirra marka sem
sovéska flokksforustan setur
bandamönnum sinum og áskilur
sér rétt til aö framfylgja meö her-
valdi i löndum þeirra, þegar svo
býöur viö aö horfa.
Sovétstjórnin hefur tjáö á sinn
hátt áhyggjurnar sem hún hefur
af áhrifum atburöanna I Póllandi
á sovéskan almenning. I fyrsta
skipti i sjö ár, allt frá því Hels-
inkiráöstefnan sat á rökstólum,
er útvarpstruflanakerfi Sovét-
ríkjanna sett I gang af fullum
krafti til aö hindra aö fregnir af
baráttu og kröfum pólskra verka-
manna berist sovéskum útvarps-
hlustendum. Sendingar BBC,
Voice of America og Deutsche
Welle á rússnesku og málum fleiri
þjóöa I Sovétrlkjunum eru trufl-
aöar af fremsta megni, Vitaö er
aö á þessu sumri hrjáir matvæla-
skortur sovéska borgarbua um-
fram þaö sem vant er þar l landi.
Fregnir bárust i vor af stórverk-
föllum af þessum sökum i heistu
bllaverksmiöjum Sovétrikjanna.
Samkvæmt jýeim lögöu hundruö
þúsunda manna I borgunum Tolj-
atti og Gorki niöur vinnu I nokkra
daga, til að mótmæla skorti á
matvælum, einkum kjöti.
Og I sovésku borgunum eins og I
Póllandi er ein undirrót ókyrröar-
innar almenn vitneskja um aö
flokksgæöingar geta gengiö aö
hörgulvarningi á vildarkjörum i
sérverslunum forréttindafólks-
ins.