Helgarpósturinn - 03.10.1980, Blaðsíða 28
Vií sög&um frá þvi i siðasta
Helgarpósti að nokkrar svipting-
ar hafi orðið varðandi skipan
undirbúningsnefndar kvik-
myndahátiðar og hafi Thor Vii-
hjálmsson, rithöfundur sem átt
hefur sæti i nefndinni frá upphafi
mótmælt þvi við menntamálaráð-
herra að honum hafi verið ýtt út
úr hinni nýju undirbúningsnefnd.
1 nefndinni sitja nú þeir örnólfur
Arnason, Þorsteinn Jónssonog
Þórhaliur Sigurðsson, sem allir
eru helstu aðstandendur kvik-
myndunar Punktur punktur
komma strik. Fyrir hönd Félags
kvikmyndagerðarmanna sátu i
nefndinni þeir Snorri Þórisson og
Þiráinn Bertelsson. Fyrir
nokkrum dögum sagði Snorri sig
úr nefndinni. Mælti hann með þvi
að eftirmaður sinn yrði Sigurður
Jón óiafsson. Sá sem hins vegar
varð fyrir valinu, er Viðar
Vikingsson, sem svo vill til að er
einmitt klippari við Punktinn um
þessar mundir ...
___ht=>!rjF=irpn<=;tl irinn Föstudagur 3. október 1980.
0 Þrir reykviskir borgarfull-
trúar, Björgvin Guðmundsson,
Birgir isl. Gunnarsson og Sigur-
jón Pétursson fóru sem kunnugt
er i frækilega ferð til Kina fyrir
skömmu að kynna sér gang mála
þar um slóðir. Albert Guðmunds-
son, borgarfulltrúi og alþingis-
maður var spurður að þvi um
daginn hvort hann langaði ekki til
að feta i fótspor þeirra þremenn-
inga og fara lika i heimsókn til
Kina. „Nei”, svaraði Albert, ,,ég
hef ekki áhuga á þvi. Ég er
heimavinnandi borgarfulltrúi!”
#Tvennter það i islenskri menn-
ingu sem virðist timgast af nán-
ast ótakmarkaðri frjósemi um
þessar mundir, og hefur Helgar-
pósturinn haft af þvi tiðar fréttir.
Þetta eru annars vegar nýir mat-
sölu- og veitingastaðir, og hins
vegar ný blöð. Og nú höfum við
haft spurnir af enn einu blaðinu
sem i bigerð er. Þetta er nýtt
tiskublað. Að þessu blaði munu
standa tv«ir fyrrverandi starfs-
menn tiskublaðsins Lif, — Hildur
Kinarsdóttir, ritstjóri og Birna
Sigurðardóttir, auglýsingastjóri,
en einnig hefur heyrst að bróðir
Hildar, Asmundur Einarsson,
sem er gamalreyndur blaða-
maður, sé viðriðinn þessa nýju
útgáfu. Undirbúningur að efnis-
öflun og auglýsingasöfnun er haf-
inn og stefnt að fyrsta útkomu-
degi i nóvember. Aðstandendur
blaðsins eru sagðir hafa i hyggju
að prenta það á dagblaðapappir,
alls um 80 blaðsiður hvert tölu-
blað. Segja gárungarnir að fóstrið
kallist „Betra Lif”, — minnugir
þess að Dagblaðsmenn kölluðu
sitt barn til að byrja með „Nýr
Visir að óháðu dagblaði”, eða þar
til lögbann var lagt á það nafn af
hálfu Visis. Hins vegar munu for-
svarsmenn Frjáls framtaks sem
gefur út Lif ekki hafa miklar
áhyggjur af þessu nýja blaði, en
óneitanlega viröast margir telja
svona blaðaútgáfu Lif—vænlega
% Félag islenskra bókaútgef-
enda sprakk eins og menn muna
fyrr á þessu ári vegna deilna um
umsókn Hagkaups um bóksölu-
leyfi. Nú eru á ný blikur á lofti
vegna þessa Hagkaupsmáls.
Hagkaup hefur sótt um þetta leyfi
i þriðja sinn og hyggst nú láta
sverfa til stáls ef félagið synjar
eina feröina enn. Formaður þess
er nú Oliver Steinn i Hafnarfirði,
og þykir hann gæta fyrst og
fremst hagsmuna bóksala, enda
sjálfur með bókabúö. A stjórnar-
fundi i Félagi bókaútgefenda i
byrjun siðustu viku átti að taka
umsókn Hagkaups til meðferðar
að nýju, og hafði fyrirtækinu
verið gefið fyrirheit um úrlausn á
næstunni. Hins vegar virtist ljóst
á þessum stjórnarfundi að málið
yrði þæft þannig að Hagkaup
fengi að minnsta kosti ekki leyfið
fyrir jól. Hagkaup hyggst afturá-
móti sækja þetta mál fast, og visa
m.a. til þess að þessi útilokun
fyrirtækisins frá bóksölu varði
. *•..
Om og Orlygur
Síöumúla11,Sími 84866
BÆKUR
FYRIR
FERMINGAR-
FÓL KIÐ
Frömuðir
landafunda
7 bindi á
kr. 44.957-
/slandsleiðangur
Stan/eys
1789 á
kr. 40.138-
Ferðabók
Eggerts og
Bjarna á
kr. 39.300-
við lög um hringamyndanir. Er
Hagkaup sagt reiðubúið að reka
mál sitt fyrir dómstólum, auk
þess sem fleiri hernaðaráætlanir
eru i undirbúningi, eins og eigin
bókaútgáfa Hagkaups o.fl...
#Næstu daga verður gengið
formlega frá stofnun Ferðaskrif-
stofu stúdenta. Félagsstofnun
stúdenta hóf rekstur ferðaþjón-
ustu fyrir stúdenta siðastliöið
sumar og gekkst þá fyrir
nokkrum leiguflugum til Kaup-
mannahafnar. Sigríður Magnús-
dóttir, sem áður starfaði hjá
Samvinnuferðum, . veitti ferða-
þjónustunni forstöðu, en hún
hefur nú verið ráöin forstöðu-
maður Ferðaskrifstofunnar.
Verkefni Ferðaskrifstofu stúd-
enta verður að greiða fyrir ferð-
um stúdenta og starfsfólks Há-
skólans innan lands og utan, ým-
ist með Flugleiðum eða leigu-
vélum. Þegar hefur verið gengið
frá samningi við Flugleiðir um
millilandaferðir um jólin.
Reiknað er með þvi, að næsta
sumar náist einnig samningar við
Flugleiðir um hagstæð fargjöld
fyrir stúdenta. Siðastliðið sumar
voru stúdentar með leiguflug á
eigin vegum og seldu um eitt-
þúsund farmiða i þær. Munar um
minna fyrir Flugleiðir ef þeir fá
þessa flutninga aftur. En það ger-
ist varla nema samningar náist
um hagstæðari fargjöld en takist
hefur hingað til, en stúdentar er-
lendis hafa um árabil verið ó-
ánægðir með þau kjör sem þeir
hafa fengið hjá félaginu og náð
mun hagstæðari kjörum hjá er-
lendum leiguflugfélögum ....
i #Miklar deilur eru enn vegna
uppgjörs á Listahátið. Enn eru
ógreiddir reikningar vegna
hátiðarinnar og mun GIsli Sveinn
Loftsson sem hafði með höndum
lýsingar i Laugardalshöllinni á
Listahátiðinni t.d. sett lögmann i
innheimtu fyrir sig. Reikningur
Gisla hljóðar upp á 3,1 milljón
króna, en forsvarsmenn
Listahátiöar þráast við að greiða.
Báru þeir þvi fyrst fyrir sig, að
Gisli Sveinn hafi i raun aldrei
verið ráðinn til starfa fyrir Lista-
hátið, en siðan hafa þeir reynt að
koma þessari upphæð niður og
boðið 1,5 milljón. Gisli Sveinn
mun þó lítið ætla að gefa eftir i
þessari rimmu og vill sitt fé
refjalaust. Það er þvi ekki útséð
um niðurstöðutölur af Listahátið
oggætitapiöafhátiðinni þvi orðið
enn hærra en mönnum hefur
sýnst til þessa...
Breytingar eru i vændum á VIsi
einhvern tima fljótlega. Verið er
að stokka upp efnisskipun blaðs-
ins og breyta um alla hausa
innanblaðs. Ekki eru nema um
tvö ár siðan breytingar voru sið-
ast geröar á Visi og varið veru-
legum fjármunum til að láta aug-
lýsingaskrifstofu annast það
verk. Nú er hins vegar unnið að
breytingunum af innanhúss-
mönnum....
# Mannabreytingar eru einnig
að eiga sér stað á Visi þessa dag-
ana. Sigmundur ó. Steinarsson,
iþróttafréttamaður Timans hefur
verið ráðinn til að taka við
iþróttafréttum Visis en Gylfi
Kristjánsson, sem séð hefur um
iþróttirnar fyrir Visi um árabil,
flyst i almennar fréttir að eigin
ósk. Við iþróttafréttunum á Tim-
anum tekur Ragnar örn Péturs-
son, framreiðslumaður sem vann
við iþróttirnar á Visi i afleysing-
um i sumar. Þá hefur einnig
heyrst að Þórunn Gestsdóttir,
Vikulokamaður, hafi ráðið sig til
Visis sem blaðamaður...
% Og meira um Visi . Reykja-
prent hf., útgáfufyrirtæki Visis,
mun vera að selja húseign i Siðu-
múlanum, þar sem verið hefur
sýningarsalur Heklu hf. Er þetta
talið til marks um erfiða fjár-
hagsstöðu blaðsins um þessar
mundir...
% Þingfréttaritarastaða sjón-
varpsins hefur verið auglýst laus
til umsóknar. Ingvi Hrafn
Jónsson sem gegndi þessu starfi
sl. vetur, mun þó hafa fullan hug
á að gegna starfinu áfram en
útvarpsráösmenn munu hafa
viljað kanna hvort fleiri væru um
hituna og þvi auglýst stöðuna.
Heyrst hefur að helsti keppinaut-
ur Ingva um stöðuna sé Einar örn
Stefánsson blaðamaður
Þjóðviljans og útvarpsþulur I
afleysingum...
Vigdls Kinnbogadóttir, forseti tslands sæmdi i fyrradag Jón Laxdal,.
leikara riddarakrossi hinnar fslensku fálkaor&u fyrir leiklistarstörf og
fór athöfnin l'ram i Hamborg, þar sem frumsýnd var í vikunni sjón-
varpskvikmyndin Paradisarheimt eftir skáldsögu Halldórs Laxness.
Jón l.axdal fer einmitt með hlutverk Steinars bónda. A þessari mynd
sem lekin var við athöfnina, sést Jón Laxdal, t.v. taka viö orðunni úr
hendi forseta lslands, en í miðið er Rolf Há'drich, leikstjóri Paradisar-
heimtar.