Helgarpósturinn - 30.01.1981, Page 3

Helgarpósturinn - 30.01.1981, Page 3
3 frá Amen l vnatiTin örstutt fréttainnskot fæöist í sjonvarpsstööinni TV-4. ingar flest þau aukastörf sem gefast þar, svo atvinnumöguleik- ar eiginkvennanna eru ekki mikl- ir. Hún segist fara á fætur á eftir eiginmanninum4einhverntima á tiunda timanum, og fer svo meö eldri dótturina á barnaheimiliö, þar sem hún er tvo tima á dag. Seinniparturinn fer i heföbundin hússtörf — hreingerningar, mat- seld og svo framvegis. Jeannine tekur einnig þátt i félagsstörfum, en langtum minna en maöur hennar. Og bæöi eru sammála um aö sjónvarpiö taki drýgri skerf af tima þeirra hérna, en heima i Bandarikjunum. „Sennilega eru þaö löngu vetrarnæturnar sem þar eru aö verki”, sögöu þau. Annaö slagiö bregöa þau hjónin sér út aö boröa, en allnokkur fjöldi matsölustaöa er á Vellin- um.Flestir eru i raun mötuneyti, en aö minnsta kosti einn eöa tveir bjóöa uppá þjónustu á borðin, kertaljós og huggulegheit. Að sögn Sundin er þónokkuð um samkvæmi af öllu tagi, einkum yfir sumarmánuöina þegar meiri hreyfing er á fólkinu. Þá eru haldin halló og bless parti nánast um hverja helgi, þvi um leið og fólk fer af landinu, kemur annaö i staöinn. Menn verða vist aö kunna að halda á glasi til að komast klakklaust i gegnum þaö timabil. Sundin taldi þó drykkju ekki vera verulegt vandamál meðal hermannanna. Alltaf væru einhverjir sem réðu ekkert viö sig, en það væri ekki algengara á vellinum en annarsstaöar. Að öll- um likindum á það sama við um önnur fýknilyf. Bandariski herinn er reyndar þekktur fyrir það hve mikil útbreyðsla slikra efna er innan hans, en likast til er slikt i minna mæli hér en viða annars- staðar, vegna þess hve flókið þaö er að smygla efnunum hingað. Þegar Mel Sundin var spurður hvað vantaði uppá til aö Völlurinn yröi dæmigerður bandariskur smábær, varö fátt um svör. ,,t rauninni er fáu hér ábótavant. Þaö væri helst að verslanir yröu langtum fleiri en hér, og vöru- úrval meira. Og svo væri eflaust MacDonalds eða Burger King, eöa Kentucky Fried Chicken staöur i eöa viö bæinn”, sagöi hann. Liklega leikur matur stærra hlutverk i daglegu lifi bandrikja- manna en okkar. Þeim finnst gott aö boröa. Á Vellinum eru lika glettilega margir með þungan bossa og i þröngri skyrtu, þrátt fyrir likamsræktaráhuga. Okkur tslendingunum finnst þeir lika hallærislegir i klæöaburði og hárgreiöslu. Buxurnar eru of stuttar, og of köflóttar, háriö er snöggklippt og yfirskeggið sömu- leiöis. Bandarikjamaöur sker sig oftast greiölega úr á götu i Reykjavik. A Vellinum er þessu öfugt farið — þar sker Islending- urinn sig úr. Ekki bara vegna útlitsins, heldur einnig vegna framkomu. Miðað við tslendinga eru Bandarikjamenn óhemju vingjarnlegir, brosmildir og þakklátir. „Nice too see you”, „glad too meet you” og hið óhjákvæmilega, „Have a nice day” hljómaði viða i kringum okkur þegar viö dvöldum eina dagstund i vikunni suðurfrá. Það tekur tima aö venjast þvi. Hinn heföbundni Bandarikja- maöur, ekki bara á Vellinum heldur hvar sem hann skýtur upp kollinum, er lika ánægður meö sjálfan sig (aö sjá) og það aö vera frá The States. A Vellinum fær hann lika aö heyra að hann og þjóðin séu aldeilis fyrirtak. Otvarpið gengur 24 tima á sólar- hring og á milli rokksins og countrisins gefur að heyra snögg- soðnar auglýsingar og tilkynn- ingar sem allar gefa hiö sama i skyn. Amerika is greit. Gott og vel, sennilega lumar útvarp Reykjavik ómeövitað á álika áróðri um lsland. A Vellinum er einnig sjónvarp, sem sendir út i tólf tima aö meðaltali á dag. Nú er dagskráin send út i gegnum kapal, og á stundum á fjórum rásum i einu. Rás 1: Almenn dagskrá, að lang- mestu leyti aðsend amerisk skemmtiprógrömm og kvik- myndir. Rás 2. Veðurupplýsing- ar, einkum hugsað fyrir flug- menn. Rás 3: Almennar upplýs- ingar og auglýsingar um lifið i bænum. Rás 4: Skólasjónvarp og fræðslusjónvarp fyrir herinn. Þessi rás er ekki stöðugt i notkun. Þaö er mikiö horft á imbann á Vellinum, jafnvel þótt framhalds- þættir séu langt á eftir. Fréttir og einstaka viðtalsþættir eru teknir upp i Keflavik og þá oftast sjónvarpað beint, en að ööru leyti er dagskráin úrval vinsælla þátta að vestan. Nóg um það. Allar venjulegar þjónustustofn- anir er að finna á Vellinum: Strætó ekur vitt og breytt um Mel Sundin. almannatengsla- maöurinn. svæðið og færir fólk til og frá. Kirkja er til staðar fyrir hina trúuðu, og margskonar félags- starfsemi af hreinna taginu. USO er stór bygging meö alls- konar þjónustu, matsölu, leik- tækjum, tónlistarherbergi, sim- um, ferðaskrifstofu og fleiru. Sjúkrahús er i einni af nýrri byggingunum, og aðeins alvariegustu tilfelli eru send til Reykjavikur. Þarna fæöast nýir Bandarikjamenn, nokkrir á mánuði. Hvíti Fálkinn heitir vikublaðiö sem gefið er út á Vellinum og flytur fréttir af hinu og þessu, til dæmis fæðingum. Bankinner útibú frá stórbanka i Texas og gerir skyldu sina. Skóli er þarna hinn fegursti. Þar lesa um 750 krakkar á aldrin- um til 14 ára lexiurnar sinar. Lesefnið er algjörlega á amerlsk- an máta. Fuilorðinsfræðsla er mikið stunduð. Urmull af námskeiðum er i boði. Barnaheimili er opið fyrir alla á aldrinum hálfs til sex ára. Mini-Mart heitir minniháttar verslun sem opin er lengi á kvöld- in. Fegrunarstofa og Rakarinn sem frægur er af verkum sinum, hafa nóg að gera. Commissary er aðal matvöru- verslunin, og hún selur dósamat, frosinn mat, og kældan mat, allan sendan frá Ameriku. Navy Exchange er stórverslun staðarins — Hagkaup Vallarins. tþróttirer hægt að stunda i vel búnu iþróttahúsi og sundlaug. Kvikmyndir eru sýndar i Andrews húsinu, tvær til þrjár á dag. Auk þessa er fullt af klúbbum (Offiseraklúbburinn, Top of the Rock, eru nöfn sem annað hvert mannsbarn á suðvesturhorni landsins þekkir.) og annarskonar þjónustu og tónstundamöguleikar eru fyrir hendir. Og peninga viröist ekki vanta á Vellinum. Það er sennilega vegna þess að þar er allt svo ódýrt. Að lokum: Af hverju er oftast dregið fyrir alla glugga ibúðanna á Vellinum? Þeir sem vita svarið eru vinsamlega beðnir að senda það Helgarpóstinum. 1 boði eru góð verðlaun, m.a. einn dagur á Eftir: Guðjón Arngrímsson Myndir: Jim Smart ------—--- S Upphítuð öryggishús fyrir allar gerðir véla Hvert kerfi hannað efitir aðstœðum Effirfitskafi Fyrir: Verslanir, verksmiðjur, fisk vinnslustöðvar, fiskisldp, útisvæði o.fl. 14 gerðir sjónvarpsvéla fyrir mismunandi aóstœður SP 1820 þarf 90 lux lýsingu, vinnur vel við dagsbirtu SP 1920 þarf 0,9 lux, fyrir lítið Ijós, t.d. skemmtistaði/útisvæði Einnig til 15" og 19" monitorar fyrir tölvur LL 779/AX-ISIT þarf 5,4x104 lux VM-9CX 9H monitor LL 779/AX þarf 0,1 lux. mjög litla lýsingu ^Rgdíóstofan hf Þórsgötu 14 ■ Sími 14131:11314

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.