Helgarpósturinn - 30.01.1981, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 30.01.1981, Blaðsíða 6
Föstudagur 30. janúar 1981 ,3. tölublað Frá hinum æsispennandi leik. GLÆSILEGUR ÁRANG- UR LANDSLIÐSINS tslenska handknattleikslands- liöið tapaöi naumlega fyrir Dön- um eftir æsispennandi og stór- kostlegan leik i iþróttahöllinni i Ribe i gærkvöldi. Danir náöu forystu strax i upphafi leiksins, og þrátt fyrir stórglæsilegan leik- kafla íslenska liösins snemma i síðari hálfleik sigruðu Danir með 17 marka mun, 29-14. Allir is- lensku leikmennirnir áttu góöan dag að þessu sinni, vel studdir af hundruöum islendinga sem mættu á leikinn. Með þessum úrslitum kemur enn einu sinni i ljós hve sterkum handknattleiksmönnum við eig- um á að skipa. Frá fyrstu minútu til. hinnar siðustu var leikinn ákveðinn sóknarleikur, og Dönum aldrei gefinn friður i vöminni. Það er hinsvegar eng- inn vafi á þvi, aö sú staðreynd að' allir islensku leikmennirnirlágu i flensu daginn fyrir leikinn setti strik i reikninginn, — eins það, að i liðið vantaði alla burðarásana og þeir sem léku voru örþreyttir eftir erfið ferðalög. Það spillti lika fyrir að dómararnir voru okkur afar óhagstæðir, jafnframt þvi sem óheppnin virtist elta is- lensku leikmennina á röndum. Ekki er þvi heldur að neyta að lýs ingin i iþróttahöllinni fór mjög i augun á okkar mönnum, enda eigum við ekki sliku að venjast. Eftir leikinn kvörtuðu strákarnir lika mjög yfir boltanum sem var eitthvað öðruvisi en boltarnir heima. En það sem gerði útslagið var eflaust sú staðreynd að Danir léku sinn besta leik fyrr og siðar, og með heppnina i veganesti náðu þeir að sigra. Sagt eftir leikinn: Hilmar Björnsson, landsliös- þjálfari: Við getum vel unað við þessi úrslit, eftir atvikum. Að- stæður voru okkur mjög óhag- stæðar, en á góðum degi eigum við að sigra þetta danska lið. Þorbergur Aöalsteinsson: Þeir geta ekkert þessir kallar. Við förum létt með þá i siðari leikn- um. Dómararnir stálu frá okkur sigrinum. Leif Mikkelsen, þjálfari Dana: Þetta var gott islenskt lið. Mjög , gott. Bestir voru númer 16 (Nuddarinn) og númer 13 (for- maður HSl). „Marktæk könnun” — sameiginlegt álit stjórnmálaforingjanna ,,Ég tek nú takmarkaö mark á skoðanakönnun sem þessari”, sagði Geir Hallgrimsson, formaöur sjálfstæðisflokksins, „annars hef ég ekki kynnt mér niðurstööurnar og veit því ekki hvað ég er aö tala um. Þessi könnun sýnir að fólk gerir greinarmun á góöum verkum og vondum, og að stjórnarandstaðan hefur unniö heiöarlega en vel”. „Skoðannakönnun sem þessa verður að taka með varúð”, sagði Svavar Gestsson. „Niðurstöður hennar sýna að Alþýðubanda- lagið er að tapa fylgi, og það stangast algjörlega á við það sem raunveruleikinn segir til um. Til að hægt sé að taka mark á þess- um könnunum verða niður- stöðurnar að vera réttar.” Annars hef ég ekki kynnt mér þetta.”. „Já, ég var að lesa bókina „Demokratism for Beginners” eftir John Stuart Mill, og ég verö að segja að þaö var góð lesning”, sagöi Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins. „Ég get fyllilega skilið að meirihluti þjóðarinnar sé hlutlaus. Takk fyrir. Bæ”. „Jóla hvað?”, sagöi Stein- grimur Hermnnsson, formaður Framsóknarflokksins. ,,Ég hef þvi miður ekki kynnt mér niðurstöðurnar, en það er sama. Ég var að koma af skautum. Viljiði kaffi? Ég er þeirrar skoð- unar að taka þurfi upp mun strangara eftirlit með skoðana- könnunum, ef þær fara ekki að sýna réttari niðurstöður.” Gunnar leysir vanda gosdrykkjafyrirtækja „Ég mun persónulega sjá til þess aö þessi fyrirtæki, Pepsico, Coca Cola, Philip Morris, og Egill Skallagrimsson geti haldiö áfram óbreyttum rekstri”, sagöi Gunnar Thoroddsen á blaöamannafundi I gær, þar sem kynntar voru ráð- stafanir rlkisstjórnarinnar i sam- bandi viö gosdrykkjaverksmiöj- urnar. Forsætisráðherra gaf ekki nánari skýringar á oröum sinum, — bað bara fólk aö minnast Gervasonimálsins og lausn þess. Areiðanlegar heimildir herma að Gunnar Thoroddsen hafi hringt i forstjdra Coca Cola I fyrradag og lagt hart að honum að bregðast ekki rikisstjórninni I vanda þess- um. Steingrimur í simasambandi Steingrimur Hermannsson ráðherra á tslandi sem um þessar mundir dvelur i London, hringdi heim yfirlýsingar i gær, sem þóttu óvenju gáfulegar. Þóttu þær i anda þeirra breyt- inga sem vart hefur oröiö á Steingrími uppá siökastið, og sem meöal annars koma fram I þvi að hann kann orðiö mun betur við sig á suölægari slóö- um, en á islandi, aö minnsta kosti yfir vetrartimann. Steingrimur hefur nú komið sér upp litilli skrifstofu við Regent Park i London, rétt hjá dýragarðinum fræga i London, The London Zoo. Að sögn kann Steingrimur einkar vel við sig þar í nágrenni garðsins. í siðari tið hefur hann orðið þekktur fyrir símasambönd sin, enda gerir hann ekkert skemmtilegra en að snúa skifunni fram og aftur. Oft lendir hann á tslandi, Ráöherrann reynir aö muna númerið i st jórnarráöinu. en stundum talar hann lika til Afriku. Þegar hann hringir til tslands gefur hann oftast yfirlýsingar sem tengjast þeim málum sem efst eru á baugi hverju sinni, um leið og hann fær fréttir að heim- an. t gær fordæmdi hann hækk- anir á suðrænum ávöxtum til dæmis, og þótti það vel við hæfi. (Rauter) „JA, HALLO!” — er meöal þess sem fólk hafði að segja þegar Aðalblaðið hringdi „Ég heyri ekki alveg hvaö þú segir”, svaraöi Karl á Reykja- víkursvæðinu spurningum Aðal- blaðsins. „Ég veit þaö ekki, svei mér þá”, svaraði kona frá Hveragerði. „Ég er nú hættur að sjá nógu vel”, sagði karl af noröurlandi, og kona frá Seyðisfirði sagði: „Já, halló?”. „Þú hefur sjarmerandi rödd”, sagði kona af Reykjavikursvæðinu, og karl af sama svæði sagði: „Hvurn djöfullinn á það að þýða að hringjahingaðum miðja nótt og spurja dónalegra spurninga?”. „Hvaðan ert þú, góði minn?!’ spurði eldri kona úr Húnavatns- sýslu og yngri karlmaður af Reykjavikursvæðinu svaraði: „Frá Reykjavik”. „Já”, svaraði þá konan úr Húnavatns- sýslunni og karlinn i Reykjavik spurði: ,,En þú?” Kona úr Húnavatnssýslu sagði: „Ég er nú héðan af bænum, svo hjálpi mér guð. Vertu sæll”. Karl af Reykjavíkursvæðinu sagði:, „Vertu sæl”. Karl af Suðurnesj- um sagði: „Alþýðuflokkurinn, það er minn flokkur”. — HH Nú í sept '80 í feb. '80 Fylgjandi 21-, 8 7 6 30-24 23 21 13 6 2 37-20 32 ••• 81 etfcv. Andvlgir 21 9 5 7 20-24 23 21 11 5 5 40-27 27 ... 56 Öákveðnir 21 9 4 8 34-26 22 21 11 4 6 32-20 26 ... 35 7 22-21 21 21 12 2 7 38-28 26' 29 Af þaitn, «em tóku afstöðu: -22 21 21 10 5 6 38-21 25 V ' Nú í sepL '80 ífeb. '80 Fylgjandi 21 8 4 9 41-38 20 í% 89,9% Andvígir 21 6 7 8 21-26 1 9 % 10,1% 21 7 4 10 28-35 18 21 489 22-32 16 21 4 5 12 22-28 13 21 4 5 12 20-42 13 21 3 6 12 16-42 12 Niðurstöður könnunarinnar. Lýst eftir flokki Rannsóknarlögreglan lýsir eft- ir stjórnmálaflokknum Alþýöu- flokki. Flokkurinn yfirgaf heimili sitt fyrir nokkrum árum, og siðan i siöustu Alþingiskosningum hef- ur ekkert til hans spurst. Siðast þegar sást til flokksins var hann i yfirfrakka sem eitt sinn var rauður, en er farinn að fölna. Hann er nú bláyrjóttur. Flokkurinn stóð veikum fótum i bleikum skóm, og á höfði hafði hann spjátrungslegan týrólhatt. Alþýðuflokkurinn er munnstór, en með þykk gleraugu, og póli- týskt lyktarskyn hans er afleitt um þessar mundir. Þeir sem hafa orðið varir við Alþýðuflokkinn siðan i siðustu kosningum eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Rannsókna rlögregluna. Mannaráðningar valda deilum Talsverðar deilur urðu á fundi útvarpsráðsá þriðjudaginn þegar tekin var afstaða til ráðningar húsvaröar sjónvarpsins. Fjórtán manns sóttuum stöðuna, og hafði yfirhúsvörðurinn mælt með Guð- finni Sveinssyni við útvarps- stjóra. 1 útvarpsráði fékk hinsvegar Sveinbjörn Finnsson flest atkvæði við atkvæðagreiðslu i siðustu viku. Um siðustu helgi réð Útvarpsstjóri svo Ellert Schram, fyrrum ritstjóra Visis i stöðuna. Ráðningin olli talsverðu uppþoti i ráðinu enda fékk Ellert aðeins eitt atkvæði þar. Vinstri meirihlutinn tók mjög harða af- stöðu gegn ráðningunni, og visaði meðal annars til áralangrar hefðar viö ráðningar húsvarða, auk þess sem Ellert hefði litla sem enga reynslu. útvarpsstjóri lét ekkerthafa eftir sér um málið. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar vildu 36% þeirra sem spurðir voru að rikisstjórnin sæti áfram. 23% þeirra sem ekki voru spurðir töldu að rikisstjórnin ætti að segja af sér hið bráðasta. Sjötfu og niu prósent hafa ekki hundsvitá pólitfk. Af þeim voru 16 nlutlausir. Af þeim hlutlausu voru 12% sem höfðu lesið góða bók ný- lega. Þrettán þeirra vildu að rikisstjórnin sæti áfram enn um sinn. Um það bil 50% allra sem spurðir voru höfðu enga skoðun á skoðanakönnunum, og 7% þeirra vildu að rlkisstjórnin sæti áfram að minnsta kosti frammá vorið. Af þeim sem ekki höfðu lesið neina bók síðustufjóra mánuðina töldu 13 að höfuðborg Norður- lands væri Akureyri. Þau 42% Niðurstöður 37. skoðanakönnunar Aðalblaðsins: ALLT í BESTA LAGI Ríkisstjórnin situr áfram enn um sinn. Sumariö kemur áöur en langt um liöur. Gervasoni er i Danmörku. Þetta eru nokkrar af niöurstööum 37. skoöanakönn- unar Aöalblaösins, sem gerö var um siðustu helgi. Alls tóku mjög margir þátt í könnuninni, en úr- takið var valiö meö þvi aö spyrja flesta þá sem erindi áttu inn á rit- stjórn blaösins þrem dögum áöur um afstööu til þjóömála, og velja sföan eftir svörunum. Þátttakendur i skoðanakönnun- inni voru víðsvegar að af landinu, af báöum kynjum og á öllum .aldri. Stdr hluti var þó af yngri kynslóðinni, enda eru sölubörnin jú stór hluti þeirra sem koma á skrifstofur blaöanna. Spurt var fjögurra spurninga: í.Finnst þér ekki að rikisstjórnin eigi aö sitja áfram? a: jú b: hlutlaus c: hef ekki vit á pólitik 2. Hvaða skoðun hefur þú á skoð- anakönnunum? a: góða b: enga 3. Hefuröu lesið einhverja góöa bók nýlega? a: já b: veit ekki c: nei 4. Hvað heitir höfuðborg Norður- lands? a: Þórshöfn b: Jón Þ. Þór c: Þorlákshöfn sem töldu höfuðstaðinn vera Sel- foss voru einnig á þvi að skoðana- kannanir væru góðar, en 18 þeirra töldu hinsvegar rikisstjórnina ömurlega. Stór hluti þeirra vissi ekki hvort hann hefði lesið góða bók nýlega, en 80 prósent þeirra sem ekki höfðu lesið góða bók tóku ekki afstöðu til þess hvort rikisstjórnin væri góð eða vond Af þeim 54 prósentum sem ekki töldu sig hafa vit á pólitik voru 53 prósent sem voru hlutlaus, en höföu jafnframt enga skoðun á pólitik. Aðeins tveir þeirra höfðu lesið góða bdk nýlega. 1 Aðalblaöinu á næstu dögum verður gerð nánari grein fyrir úr slitum skoðanakönnunarinnar — HH

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.