Helgarpósturinn - 30.01.1981, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 30.01.1981, Blaðsíða 14
Lamba- smásteik LAGOSTINA Rannveig Pálmadóttir húsmæörakennari fræöir um útlenda matar gerðarlist. Helgarrétturinn aö þessu sinni kemur frá Úlfari Eysteins- syni matreiöslumeistara f Lauga-ási. Réttinn kallar hann lambasmásteik LAGO-STINA. Hráefni: 1200 gr. súpukjöt tveir laukar, ein paprika, (rauö eöa græn), einn hvitlauksgeiri, 200 gr. sveppir, fjórar mat- skeiöar af tómatmauki, hálf te- skeið oregano. Kjötbitarnir skornir niður i litla bitaog kryddaðir með salti, pipar og paprikudufti. Brúnaðir i potti ásamt laukunum og vatni eða kjötsoði bætt i. Soðið i 40 miniítur við lágan hita ásamt sveppunum, paprikunni, tómat- maukinu og kryddi. Jafnað með smjörbollu eða hveitijafningi. Þetta er siðan borið fram með kartmauki. Drykkjarföng að eigin vali. Úlfar Eysteinsson matreiðslu- meistari i Lauga-ási. Sýnikennsla í Asíumatreiðslu Lausn fyrir hina feitu? heilsuræktarinnar. Þar er boöið upp á góða aðstöðu i tækjum til likamsþjálfunar og megrunar. Og Finnur Karlsson einn eig- anda Apollo, segir þetta vettvang fyrir alla. Bæði þá sem þjást af fitu vegna hreyfingarleysis og einnig þá sem eru i góðir æfingu en vilja auka enn við þrekið. „Þetta er að sjálfsögðu opið fyrir bæði kynin”, sagði Finnur, ,,og fyrir einstaklinga, starfs- mannafélög, iþróttafélög og klúbba”. Þá er ekkert annað fyrir fólk aö gera en lyfta simtólinu og hringja i 22224 og panta tima, þ.e. ef fólk hefur áhuga á þvi að losa sig við aukakilóin, fituna á lærunum og mjöðmunum, istruna, undirhök- una og allt hitt. Og Apollomenn lofa því aö eftir stund hjá þeim verði fólk hressara til muna, bæði á lfkama og sál. Er maginn á þér fran-.stæöur, ertu meö „björgunarhring”, vildir þu hafa fallegri axlir, um fanr,s>meiri upphandleggi og sterkara bak? Og allir svara aö sjálfsögöu I kór: Já, já. En þá er þaö stóraspurningin, hvernig á aö fara að þessu? í njfrri heilsuræktarstöð i Brautarholti 4, sem fengið hefur nafnið Apollo eru leiðir lausnar, Finnur Karlsson á fullu — oe aukakilóin það segja að minnsta láta undan siga. kosti aðstandendur Allir vakandi með Vöku í Sjallanum 1 næstu mánuöi mun fremur ný- lega stofnuö hljómsveit er hlotiö hefurnafniö Vaka skemmta þeim fjölmörgu er leggja leiö sina í Sjálfstæöishúsiö á Akureyri. Tföindamaöur Helgarpóstsins átti fyrir nokkru þess kost aö hlýöa á leikhennar á æfingu sem fram fór f bilskúr einum I hinum gamla og rómantiska Innbæ á Akureyri, sem stundum er líka kallaöur Fjaran. Hljómsveitin Vaka er þannig skipuð: Guö- mundur Meldal, trommur, Gunnar Sveinsson, bassi og söngur Leó Torfason, gitar, söngur, Viðar Eövarösson, blástur (saxafónn og klarinett) Dagmann Ingvason, hljómborð og Erla Stefánsdóttir söngur. Erla Stefánsdóttir kemur nú fram opinberlega á nýjan leik eftir nokkurt hlé og hún er ekki með öliu ókunnug á sviði Sjálf- stæðishússins. Erla vakti fyrst at- hylgi á sér er hún söng meö hljómsveitinni Póló sem mikilla vinsælda naut á Akureyri á sinum tima. Siðan réöst hún til Ingimars Eydal sem þá lék fyrir dansi i Sjallanum og þá löngu lands- kunnur. Er ekki aö orðlengja það að Erla skipaði sér þegar i hóp bestudægurlagasöngkvenna á Is- landi, og söng hún á þessum árum inn á nokkrar piötur sem oft heyrðust í óskalagaþáttum Út- varpsins. Ef dæma má eftir frammistöðu hennar á umræddri æfingu viröist hún litlu hafa gleymt i sinu fagi og ef til vill aldrei verið betri en einmitt nú. Félagar hennar i Vöku hafa flestir leikið með ýmsum hljóm- sveitum á Akureyri. Aðspurðir segjast Vökumenn munu leitast við að leika danstón- list við sem flestra hæfi, enda slikt nauðsynlegt á stað sem hefureins mislitan hóp viðskipta- vina sem Sjálfstæðishúsið. Meðal þeirra listamanna sem i áliti eru hjá þeim má finna eins ólika aðila og Dire Straits, Stevie Wonder og Santana. Einnig hafa þau tals- verðan áhuga á jassi og „Fusion”, eða bræðslutónlist. Og Viðar ledkur viðhvern sinn fingur á klarinettið i gömludönsunum. Það má þvi gera ráð fyrir aö flestir Sjallagestir finni eitthvaö við sitt hæfi I tónlistarlegu tilliti. — RA r I hálkunni: Galdrakarlar Diskótek Veitingahúsiö í GLÆSIBÆ „Undirtektir uröu mjög góöar og námskeiöið fylltist strax sama daginn og ég auglýsti”, sagöi Rannveig Pálmadóttir hús- mæörakennari, en hún er nú að fara af stað með sýnikennslu I Asíumatreiðslu. „Ég bjó i sex ár I Bandaríkjunum og kynntist þá Filippseyingum, Kinverjum og Japönuin og jafnframt mat- reiðsluhefðum þeirra”. Rannveig sagði þetta námskeið eiga að standa i mánuð og væri kennt einu sinni i viku, 3—4 kennslustundir I hvert skipti. Námsskeiðsgjald er 400 krónur. Þetta er ekki i fyrsta sinn sem Rannveig Pálmadóttir fer i gang með námskeið i matreiðslu „Ég hef verið með kennslu I ameriskri matreiðslu s.l. 11 ár”, sagði hún. Borða- pantanir Sími 86220 85660 „Ég auglýsti slikt námskeið fyrir 11 árum og hef ekki þurft að aug- lýsa aftur, slik hefur aðsóknin verið. Þaö er 1 árs biötimi eftir að komast á þau námskeið hjá mér”. Að sögn Rannveigar er það fólk á ýmsum aldri og af báðum kynj- um, sem hafa sótt i námskeiöin hjá henni. „Það er æskilegt að það fólk sem til min kemur, hafi einhverja undirstöðuþekkingu I matreiðslu, þvi ég fer ekki út i að kenna grundvallaratriði mat- reiöslunnar., enda er það svo að minir nemendur eru yfirleitt mjög flfnkir matreiðslumenn og áhugasamir. Koma til min aðeins til að auka á fjölbreytnina á matartilbúningnum.” Rannveig Pálmadóttir er með 16 nemendur á hverju námskeiði og kennir i kjallaranum á heimili sinu, og kveöst ætla að halda áfram með þessari braut svo lengi sem Islendingar hafa áhuga á ma targeröarlist annarra þjóða. Svellkaldir á mannbroddum Margir hafa fengiö slæmar byltur I hálkunni siöustu vikur. Alls staöar má sjá fólk feta sig hægt og varlega um isilagöar slóðir, en ekki hefur þó öllum tekist aö komast slysalaust leiöar sinnar. Það skiptir þvi töluverðu máli hvernig fólk er búið til fótanna, þegar það rennir yfir svellbung- urnar. Blankskórnir þykja ekki hentugir viö slikar aðstæður. Gaddaskórnirkæmu þá eflaust að betri notum. Og nálgumst viö nú kjarna málsins hægt og rólega, enda vissara i hinni miklu hálku. Mannbroddar hafa komið mörgum manninum til hjálpar I ófærðinni og orðiö til þess að fólk getur rennt svellkalt i hálkuna. Mannbroddar eru fiestir neðan á skó og meö broddana á skósólun- interRent car rental um ertu stöndugur sem eikartré. Ekkert fær þig hrært. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, aö litil prýði er af þessum fótaútbúnaöi, enda sagði Haraldur Theódórsson verslunarstjóri i Geysi, sem hefur selt þrjár tegundir mannbrodda um nokkurra ára skeið, að ungt fólk hikaði við að kaupa brodd- ana. „Sumir eru hégómagjarnir og veigra sér við að kaupa brodd- ana, vegna þess að þeir segja þá hallærislega,” sagöi Haraldur. „Þar af leiðandi er þaö aðallega fólk af eldri kynslóöinni sem kaupir mannbroddana. Þeir eldri hugsa fyrst og fremst um örygg- ið, en láta hégómagirndina lönd og leið.” Eins og fyrr sagði selur Geysir þrjár tegundir mannbrodda og kostar pariö frá 25 krónum upp i 52 krónur. „Ekki verður sagt að Islend- ingar séu allt of forsjálir i þessu- um efnum,” sagði Haraldur. „Það vill þvi miður vera þannig, að fólk kemur ekki hingað til aö kaupa mannbroddana fyrr en þaö hefur þegar dottið i hálkunni. Fólk virðist verða að reka sig á, áöur en það tekur við sér.” Bílaleiga Akureyrar Akureyri TRYGGVABRAUT 14 S.21715 23515 Reykjavik SKEIFAN 9 S.31615 86915 Mesta úrvallö, besta þjónustan. Vlö útvegum yður alslátt á bilalelgubilum erlendls. ' Mannbroddarnir traustir I hálkunni.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.