Helgarpósturinn - 10.04.1981, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 10.04.1981, Blaðsíða 3
3 halnarpn^turínfn Föstudagur 10. aprf 198] fræðing — til að standa þér við hlið i yfirheyrslum. Mögulega gæti lögf ræðingurinn gengið i máliðaf oddi og egg til að hreinsa þig af áburðinum og sýna óvéfengjanlega fram á sakleysi þitt — með þinni hjálp að sjálf- sögðu. Hér annars staðar á siðunni er þvi lýst reynslu manns sem einmitt hefur fengið reynslu af þvi tagi, sem hér er verið að fjalla um. Sá maður sjokkeraðist eftir að hafa gengið i gegnum slika þolraun, enda hlýtur slikt að reyna á þolrifin i öllum þeim sem aðeins hafa litið lögreglumálefni úr fjarlægð og umfram allt séð lögregluna sem verndara sinn og heiðarlegs fólks almennt, en hreint ekki fyrirbrigði sem ógn stæðiaf. Réttargæslumaður strax eftir handtöku Það eru aðeins örfá ár siðan eftirfarandi klásúla var fest i lög: „Handtekinn maður á rétt á skip- uðum réttargæslumanni, þegar eftir handtöku og ber þeim, er handtöku framkvæmir að skýra, honum frá þessum rétti. Réttar- gæslumaður ber skyldur og réttindi sem verjandi. Handtekn- um manni er heimilt, þegar eftir handtöku að hafa samband við ættingja eða aðra vandamenn, nema sérstök ástæða sé til að ætla að það kunni að torvelda rann- sókn málsins.” Þá segir einnig i lögum, ,,að verjanda er heimilt að tala einslega við sökunaut, þegar hann er i gæslu.” Það var Finnur Torfi Stefáns- son fyrrum alþingismaður og núverandi umboðsfulltrúi i dóms- málaráðuneytinu, sem bar fram fyrrgreindum atriðum um réttindi handtekinna manna á Alþingi, sem afgreiddi þau siðan sem lög. Hann sagði aðspurður i samtali, að ekki gæti hann merkt annað, en framkvæmd þessa atriðis væri að fullu virt, hjá lögreglumönn- um. ,,A þvi hafa þó orðið fáeinar undantekningar og mér hafa boristnokkrar kvartanir frá fólki, sem telur að sér hafi ekki verið kynntur rétturinn til að kalla réttargæslumenn þegar i stað,” sagði Finnur Torfi. „Réttargæslumaður ekki alltaf nauðsynlegur” Helgarpósturinn hefur og fregnað, að ekki sé allt of mikil hrifning hjá lögreglumönnum með ákvæðið um réttargæslu- mann, þegar eftir handtöku. „Þetta er án efa réttarbót fyrir marga,” sagði lögreglumaður einn sem Helgarpósturinn hafði tal af. „Hins vegar vill þetta verða ansi þungt i vöfum og stundum höndtökum við einhverja fyllibyttuna og verðum náttúrlega að tilkynna henni um réttindi hennar viðvikjandi réttargæslumanni. Menn eru þá stundum i öðrum heimi vegna ölvunarástands, heyra kannski úr fjarska minnst á möguleikann á lögfræðingi og hrópa þá upp óskýrum rómi ,,ha, lögfræðing, já auðvitað vil ég lögfræðing”. f langflestum tilvikum liggja mál það skýr fyrir, að réttargæslu- menn geta á engan hátt aðstoðað viðkomandi mann, sem hefur ein- hverra hluta veriö handtekinn.’ Hjalti Zóphaniasson deildar- stjóri i dómsmálaráðuneytinu sagði, að mjög væri það misjafnt hvort menn óskuðu eftir réttar- gæslumanni, þegar eftir hand- töku. Það færi mjög eftir eðli þeirra mála, sem verið væri að rannsaka. Ónefndur lögfræðingur, sem talsvert hefur starfað sem réttar- gæslumaður handtekinna manna, sagði það oft ansi brýnt fyrir þá sem handteknir væru, að lög- fróður maður væri viðstaddur þeim handtekna til ráðuneytis. Hann sagðist halda, að öllu jöfnu væruhandteknum mönnum kynnt þessiréttindisin. „Hins vegarhef ég dálitið orðið þess var, að lög- reglumenn hafi dregið úr þvi við sakborning, að nokkur nauðsyn væri fyrir þá á ráðgjöf lög- fræðings. Þetta hafa minir skjól- stæðingar stundum sagt mér, að lögreglumenn hafi stundum dregið úr, að nokkur þörf væri raunverulega á réttargæslu- manni fyrir þá. Aftur á móti hefur þeim aldrei, svo ég viti, verið neitað um aðstoð lögfræðinga, ef þeir hafa farið fram á slikt.” Fyrirlitning á grunuðum Þessi sami lögfræðingur var aö þvi spurður hvort hann hefði fengið af þvi fréttir, að óþarflega harkalega væri farið með grun- aða i höndum lögreglunnar. „Ég get svarað þessu bæði með já og nei,” sagði þessi lögfræðingur. „Fæstir verða fyrir einhvernju harðræði. Það get ég fullyrt. Hins vegar er það ef til vill of rikt i lög- reglunni að beita sálarlegri pressuá þá grunuðu. Það er kom- ið fram við þá sem grunaða saka- menn og ekkert verið að fela það. Það er þvi viss undirtónn hjá lög- reglunni i garð sakborninga og of litill greinarmunur gerður á þvi hvort verið er að meðhöndla sibrotamenn og róna, eða alsak- lausan borgara, sem hefur verið dreginn inn i mál á vafasömum forsendum. Ég veit að sjálfsögðu að grunaður er grunaður og hann á að yfirheyra sem slikan. Hitt er svo annað mál, hvernig komið er fram við þessa menn i samskipt- um lögreglumanna og þeirra, utan við hina eiginlega yfir- heyrslu. Þar vill fyrirlitning lög- reglumanna — sumra hverra — verða dálitið of augljós. Og það eru einmitt slik atriði sem vilja verða dálitið sjokkerandi fyrir venjulegt fólk, sem litur á sig sem heiðvirða fyrirmyndaborgara, en lendir fyrir misskilning og að ósekju i einhverjum leiðinda- málum. Þegar talað er um menn sem hafi lent i höndum lögreglunnar að ósekju og meðhöndlaðir sem verstu glæpamenn, þá er eflaust kunnasta dæmið um fjórmenn- ingana, Einar Bollason, Valdi- mar Ólsen, Magnús Leópoldsson og Sigurbjörn Eiriksson, sem saklausir voru handteknir og úr- skurðaðir i langt gæsluvarðhald. Ofnotkun gæsluvarð- halds? Það hefur stundum verið nefnt i umræðunni um beitingu gæslu- varðhalds, aðhin islenska réttvisi beiti þvi af um of mikilliléttúð ef svo mætti orða það. Gæsluvarð- hald sé með öðrum orðum ofnotað við rannsókn mála og á stundum notað til að þvinga fram játningar sakborninga. Samkvæmt upplýsingum frá Ingibjörgu Benediktsdóttur full- trúa hjá Sakadómi Reykjavikur var fjöldi uppkveðinna gæslu- varðhaldsúrskurða hjá embætt- inu eftirfarandi á siðustu þremur árum: 1980—70 og þar af 14 fram- lengingar. 1979 — 62 1978 — 72 og þar af 8 framleng- ingar. Einni beiðni um gæsluvarðhald frá RLR var synjað hjá Sakadómi á árinu 1980 og i 20 tilfellum var gæsluvarðhaldið styttra, en beiðni rannsóknarlögreglunnar hljóðuðu upp á. Þá má og geta þess, að á siðasta ári voru úr- skurðir Sakadóms kærðir til Hæstaréttar og staðfesti Hæsti- réttur 5 úrskurði, en felldi einn úr gildi. Ingibjörg sagði f jölda úrskurða áranna fyrir 1978 ekki hafa verið tekna saman, þannig að fyrir- liggjandi væru, en bæði hún og Halldór Þorbjörnsson yfirsaka- dómari töldu að gæsluvarðhalds- úrskurðum hefði fækkað talsvert siðan Rannsóknarlögregla rikis- ins varð til og þá um leið aðskiln- aður með Sakadómi og rann- sóknarlögreglunni i Reykjavik, bæði i lagalegu tilliti og einnig það, að rannsóknaraðilar og dóm- arar urðu þá ekki lengur i sama húsnæði, en sú var raunin, meðan rannsóknarlögreglan i Reykjavik var og hét. Sumir oft i gæsluvarð- hald Hjá Asgeiri Friðjónssyni dóm- ara hjá Fikniefnadómstólunum fengust þær upplysingar, að 35 úrskurðir hefðu verið uppkveðnir á árinu 1980, 25 árið 1979 og 21 árið 1978. Asgeir vildi þó taka fram, að þessi f jöldi úrskurða þýddi þó alls ekki að jafnmargir einstaklingar hafði verið úrskurðaðir i gæslu- varðhaldsvist. A einu árinu hefðu t.d. 3menn átt 14 úrskurði og væri þá um framlengingar að ræða, eða sömu menn úrskurðaðir oftar en einu sinni á sama árinu. Asgeir neitaði þvi ákveðið að um ofnotkun gæsluvarðhaldsúr- ræðisins við rannsókn mála _k. væri um að ræða hjá fikni- efnalögregl- ly Þessi auglýsing fjallar um nýjung í fasteignaviðskiptum á íslandi: Verð- tryggingu. Seljandi fær sanngjarna út- borgun - og afborganir sem halda fullu verðgildi sínu á hverjum tíma. Greiðslubyrði kaupanda dreifist jafn- ar. Nú er sem sagt runnin upp sú stund að fólk getur hagað fasteignaviðskipt- um sínum eftir greiðslugetu sinni i dag og í framtíðinni, án þess að raska lífs- háttum sínum um of. Hugsaðu þig um augnablik. Gerðu þér grein fyrir hvað þessi nýjung í fast- eignaviðskiptum þýðir fyrir þig og áform þín. Leitaðu frekari upplýsinga hjá starfs- fólki okkar. Fasteignamarkaður Fjárfestingarfélagsins hf (HÚS SPARISJÖÐSREYKJAVlKUR) Lögfræöingur: Pétur Þór Sigurðsson myndir: Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.