Helgarpósturinn - 10.04.1981, Page 7
7
Jie/garpásturinrL Föstudag ur
10. aprfl 1981
.» » %S \ \W
Bræðrabönd:
r
Bók Ulfars Þormóðssonar um frímúrara komin út
„FrímUrarahreyfingin er
heimshreyfing. Hún er hvorki
skátafélag né hjálpræöisher. HUn
er heldur ekki glæpamafia. HUn
er félagsskapur allra valdamestu
manna hérlendis og erlendis.
Innan hennar raöa er aö finna
æöstu menn framkvæmdavalds,
löggjafarvalds og dómsvalds.
Allir valdaþræöir þjóölifsins
tvinnast innan hennar. Meö
FrimUrurum hafa veriö teknar
stjórnmálalegar ákvaröanir
sem djUpt markarenn fyrir i
islensku þjóölifi og reyndar
mannkynssögunni allri.
Ris FrimUrarareglunnar hér-
lendis er ekki hátt nú um stundir.
Engu aö sföur er samsetning
hennar meö þeim hætti, aö þar
kunna aö veröa teknar þær
ákvaröanir sem ekkert fær
hindraö aö nái fram aö ganga
nema vitneskja fólksins i landinu
um eöli og starfsaöferöir þessa
leynifélagsskapar. Þvi fyrir
FrimUranum er frimUrari eitt og
maöur, sem ekki er frimúrari,
annaö: frimUrarinn, verk hans,
lög og reglur æöri verkum hins
óinnvigöa manns, lögum hans og
reglum.”
Þannig kemst Úlfar Þormóös-
son aö oröi I formálsoröum aö
nýUtkominni bók hans, Bræöra-
böndum, þar sem hann fjallar um
FrimUrararegluna, en hUn er
fyrra bindi af tveim, sem hann
hefur skrifaö um þennan leyni-
félagsskap.
Siöar i formálsoröunum segir
• Kanarnir hafa gaman af þvi aö
gera lista yfir alls kyns hluti, eins
og best eöa verst klædda fólkiö i
heiminum. NU hafa þeir gert lista
yfirþekkt fólk, sem hefur ráöist i
aö kaupa sér Bang og Olufsen
stereógræjur, en þær þykja meö
þeim flottari, eöa svo er manni
taliö trU um..Meöal þeirra, sem
eru á listanum, eru Marlon
Brando, Tom Jones, Stevie Wond-
er, Dean Martin og Charles Bron-
son. Úr þvi þessir gæjar hafa efni
á aö kaupa sér svona flottar græj-
ur, skulum viö vona, aöþeir hlusti
á almennilega tónlist.
• Allir vita, aö hart er gengiö
aö orkubirgöum heimsins. En
færri gera sér grein fyrir þvi
hversu máliö er alvarlegt i raun
og veru. Þaö er ekki einungis um
aö ræöa, aö oliubirgöirnar i iörum
jaröar séu á þrotum, heldur
gengur stööugt á sjálft þyngdar-
afliö. Þaö er i það minnsta skoöun
nýjustu neytendasamtakanna i
Bandarikjunum, sem nefna sig
ASCG, en það stendur fyrir
Amerisku samtökin um varö-
veislu þyngdaraflsins. Frá þess-
um samtökum er sagt i nýlegu
tölublaði timaritsins Omni. For-
seti félagsins er úrsmiður aö
nafni Darwin Crum. Hann tók
eftir þvi, aö klukkurnar á verk-
stæðinu voru allar farnar að
ganga afturábak, allar samtimis
og allar jafn mikið. Hann fór aö
rannsaka máliö, og niöurstaðan
var sú, að ástæðan var þverrandi
þyngdarafl jaröar. Og þyngdar-
aflið eyöist vegna óhóflegrar
notkunar á lyftum, rúllutröppum
oghraðfleygum flugvélum.AÖ lok-
um fer svo, ef ekkert veröur aö
gert, aö ekkert veröur eftir af
þyngdaraflinu, en hvenær það
verður vill hann ekki upplýsa.
,,Ég vil ekki hætta á aö fólk fari
aö hamstra”, segir hann.Tilaö
ráöa bót á þessu telur Crum
árangursrikast aö lækka
hámarkshraða flugvéla niöur i 90
km á klst og létta tonniö af vörum
i flugfrakt niöur i 250 kiló, auk
þess aö kanna notkun á lyftum og
rúllustigum. Ekki er vafi á þvi, að
Crum er alvara, þvi fyrir tiu doll-
ara fá menn ekki einungis félaga-
skirteini, heldur jafnframt
þyngdaraflsmæli, sem segir til
um ástand þyngdaraflsins hverju
sinni...
Úlfar, aö bók hans sé ekki sögu-
legt visindarit, heldur sé henni
fyrst og fremst ætlaö aö vera inn-
legg I þjóöfélagsumræöu.
Þetta bindi skiptist i þrjá megin
kafla. t fyrsta kaflanum er rakin
veraldarsaga Frimúrarahreyf-
ingarinnar og sýnishorn gefiö af
heimsspeki hennar og helgi-
siðum. 1 öörum kafla er rakin
saga islensku Frimúrarahreyf-
ingarinnar frá þvi fariö var aö
finna henni fótfestuhér og til árs-
ins 1945. t þriöja kaflanum er aö
finna skrá yfir alla þá menn
islenska, sem gerst höföu
frimUrararfyrir 1960. Fjóröi kafl-
inn fjallar um mannaskipti i for-
ystusveit og embættismannatal.
Siöara bindiö er væntanlegt
eftir 6-8 vikur og verður þar aö
finna yfirlit yfir sögu Islenskra
frimUrara 1945-80, nafnaskrá yfir
alla þá sem hafa gerst frimUrarar
hérlendis eftir 1960. Þá verður i
sérstökum kafla sagt frá sam-
skiptum frfmúrara viö aöra
heima, og einnig er greint frá
öörum karlaklúbbum, svo sem
Rotary ofl.
Datsun Cherry
Ánægðir kaupendur
Datsun Cherry eru sammála um
að þetta sé draumabíll.
HVERS VEGNA?
Bíllinn er fallegur, hannaður
með notagildi að leiðarljósi og
innréttingin er frábær.
Sambærileg við dýrustu
sportbila.
Tvískipt aftursæti, sem hægt
er að leggja niður allt eða að
hálfu og stórauka með því
farangursrýmið.
Skott- og bensínlok opnanleg
innanfrá.
Vegna þess hve Cherry
er breiður, er leit að öðrum eins
þægindum í minni gerð bíla.
Datsun Cherry er tæknilega
fullkominn og búinn þeim
kostum sem hagsýnt fólk
kann að meta.
• Framhjóladrif
• Stór skuthurð
• 3ja dyra
• 69 hestafla vél
• Sjálfstæð fjöðrun á
öllum hjólum
• Litaðar rúður
• Halogen ljós
• Útvarp
• Höfuðpúðar
• Qvarts klukka
• Smurningshraðamælir
• Stillanlegur þurkutafi
• Þurkur og rúðupiss
á afturrúðu
• Upphitun á afturrúðu
• Upphitun á hliðarrúður
• Sparneytni og hátt
endursöluverð
Og þegar veröid er tekiö meö i reikn-
inginn, — þá eru f lestir sammála okk-
ur um aö DATSUN CHERRY veröi
enn einn metsölubillinn frá DATSUN.
ÞÚ SPARAR FLEIRA EN BENSÍN ÞEGAR ÞÚ KAUPIR CHERRY
Datsun B* umboðið
INGVAR HELGASON
Vonarlandi vid Sogaveg • Sími 33560