Helgarpósturinn - 10.04.1981, Page 18

Helgarpósturinn - 10.04.1981, Page 18
18 FöstudagUr 10. ápríl 1981 helgarposturinn Clark Terry með ungu b/óði „....maöur saknaöi þess eins aö sólóar meistarans voru of fáir, þetta kvöld”. Lengi haföi landinn beöiö hingaö komu Clark Terrys og stórhljómsveitar hans og þaö var lika mikil stemmning i Há- skdlabitíi á föstudagskvöldiö var. Hljómsveitin lék i næstum þrjá tima meö túndri og eleg- ans. Þetta er ung hljómsveit I orðsins fyllstu merkingu, hljóö- færaleikararnir kornungir og komu fyrst saman fyrir tveimur mánuöum til aö æfa fyrir sex vikna Evrópuferð, sem lauk I Reykjavik. Það þarf vel skólaða tónlistarmenn til að valda sliku verkefni og enginn þurfti að kvarta, æskufjörið var mikið, brasskýling á la Basie og meira að segja vinkona okkar allra Stella By Starlight var blásin á fullu af Garry Black- man og bandinu. í honum kristölluðust einkenni einleikar- anna ungu, gott vald á hljóðfær- inu, kraftur og sveifla en ljóð- rænam’’ fjarri og stillinn enn ómótaður. Clark Terry gerði vel við ung- mennin og flest þeirra blésu fleiri en einn sóló. Kven- barrýtonistinn Diane De Rosa blés i minningu Harry Carneys og hæfði ttínn hennar vel meist- aranum. Miður tókst með túlkun altistans Danny House og bandsins á Blóðgreifa Billy Strayhorns, að minnsta kosti i eyrum þeirra er handgengnir eru minningarskifu Ellingtons um vin sinn: „...And HisMother Called Him Bill” þar sem Hodges syrgöi „Swee’Pea”. Hin sársaukafulla ballaða var hvergi nærri. Verk þetta var frumflutt i júni 1967 og lék Clark Terry þá sem gestur með Ellingtonbandinu. Þetta var siðasta verk sem Strayhorn sendi frá sér og var einfaldlega kallað Manuscript, nafn fékk þaö ekki fyrr en eftir dauða Strayhorns. Annar Hodgesópus var á efnisskránni: Jeep’s Blues. Þá var meistarablásarinn Chris Woods stiginn á fjalirnar og leiddi okkur i allan sannleika um hvernig blús skyldi blása. Ollum ‘ til skemmtunar muldruðu þeir Terry Oll-Ya- Koo einsog Dizzy og Kenny Hagood forðum, þá Hear That Rainy Day og Chris Woods yfir- gaf sviðið alltof fljótt. Söng konan unga Michal Beckham kom syngjandi I Got It Bad, a la Nell Brookshire og gerði það nokkuð vel. Hún og bandið sungu lika A Tisket A Tasket einsog Ella og Webb-liðiö og yljaði það mörgum gömlum geggjaranum um hjartarætur. Undir lokin blés Clark Terry sönginn um Flintstone og frú þegar flauelstónarnir hrisluðust um heilabúið saknaði maður þess eins að sólóar meistarans voru of fáir þetta kvöld. Chopin - Frédéric F. Chopin: Píanrisónata nr. 2 i b-moll, op. 35. Pfanrisrinata nr. 3 í h-moll, op. 58 Einlcikari: Martha Argerich Ctgefandi: Deutsche Gramm- ophon 2531 289 (1977) Gildi þessarar hljómplötu er fólgiö í fjölmörgum atriðum. Fyrst er að telja þann kost, að báðar stóru píanósónötur Chopins eru hér samankomnar á einni plötu og gefst mönnum þannig tækifæri á aö bera verk- in saman 1 flutningi eins og sama píanóleikarans. Annar kostur eru upptökurnar. Þótt átta ár skilji þær að (en báðar eru Polydor-upptökur), eru tón- gæöin afbragðsgóð og hvergi er að finna hnökra né tískýran hljóm. Báöar hliðar eru teknar upp í sama ttínstyrk og virðist enginn merkjanlegur munur Argerich vera á upptökunum. Þá er aö geta einleikarans, Mörthu Argerich, en hún er meðal þeirra pianistasem hvað skilmerkilegast hafa flutt hinn rómantiska anda 19. aldarinnar yfir á hljómplötur, hin siöari ár. Hún er fædd i Buenos Aires (Argentínu), árið 1941. Atta ára gömul var hún orðin konsert- sólóisti og meðal kennara hennar má nefna rússneska pianistan Nikita Magaloff, Austurrikismanninn Friedrich Gidda og italska snillinginn Arturo Michelangeli. Slik fylking ólikra skóla ásamt rikri skaphöfn Argerich, lifsþróttiog krafti, færa hana i hóp fremstu túlkenda pianótónlistar. Hún hlaut 1. verðlaun I Busoni- keppninni árið 1957 og sama ár varð hún sigurvegari alþjóölegu keppninnar i Genf og er slikt af- rek ágætur mælikvarði á hæfni hennar. Það getur virst hjákátlegt aö kynna slikan túlkanda sem unn- endur klassiskrar tónlistar ættu og hljóta að þekkja. En úr þvi hafiö er, má geta i tengslum viö þessa hljómplötu, að Martha Argerich kórónaði sigurgöngu sina, með þvi aö krækja i 1. verðlaun alþjóða Chopin-keppn- innar f Varsjá 1965. Það má þvi ætla að Chopin sé hér I góðum höndum. Chopin samdi fyrri sónötuna I b-moll, 1839, ári eftir að hann kynntist frönsku skáldkonunni George Sand (Aurore Dupin eða Dudevant bartínessu). Sónatan mun vera samin á setri hennar, Nohant nálægt Chateauroux i Mið-Frakklandi og hvatinn að henni er talinn vera frelsisbarátta Pólverja. Þrátt fyrir aö þessi sónata sé álitin heilsteyptari en sú i h- moll, fékk hún slæma útreið hjá R. Schumann sem sagði hana vart sónötu, heldur „sambræðslu fjögurra olnboga- barna”. Vist er að Chopin var búinn að semja hinn fræga sorgarmars sem sjálfstætt verk, þegar árið 1837. Þykir tenging hans viö restina þvi nokkuð vandræðaleg. Hitt gat Schumann og öðrum vart sést yfir, að lýrisk uppbygging verksins er afar frumleg tilraun ' Chopin-Argerich til aö sætta andstæöa póla hljómborðsins. Eöa eins og Chopin tjáði einum vina sinna: „Hægri og vinstri höndin ræðast við i bróðerni.” H-moll sónatan er eina verkið sem Chopin samdi árið 1844. Hann var þá staddur i Paris, I þrengingum sem stöfuðu af kólnandi sambúö við G. Sand og kennslustörfum sem dreifðu um of, kröftum hans. Þetta kemur fram í vissu moði forsendna sem að verkinu liggja og gera það nokkuð sundurleitt og óöruggt í byggingu. En likt og I fyrri stínötunni er hinn sterki lyríski undirtónn aldrei langt undan og frá og með largo-kafl- anum, ris verkið i æðra veldi og fullan styrk. Auk rómantisks yf- irbragðs, tvinnar Chopin stúdiur sinar á pólyfóniu Bachs ogútsetningum Mozarts, saman við fyrsta kaflann. Óþolinu og spennunni sem fram kemur i báðum sónötunum (einkum þeirri fyrri), tekst Argerich að skila á meistara- legan hátt. 1 stað þess að vinna mót flöktandi og kvikri kafla- skiptingu b-moll sónötunnar, þenurhún andstæð stefin til hins ytrasta. Hún hefur lika full efni á sliku. Hin finlegu mótif, allt frá „doppio movimento” til hins óræða niöurlags innan um hina þunguásláttarkafla, njóta sin til fullnustu i meðfckum hennar. Rikt skap og léttur en áherslumikill hljómur, er ein- kenni útfærslu Argerich á h- moll sónötunni og hin dæma- laust þróttmikla túlkun hennar á fyrsta kaflanum (allegro maestoso) og fyrrnefndum finalekafla (Presto, ma non tanto), væri ein sér, rikulega plötunnar virði. Þótt menn vilji ætla að sónötur Chopins jafnist vart á við ballööur hans og scherzo, frá sjónarmiði uppbyggingar, lýsa þau betur en flest önnur verk hans togstreitunni milli hins rtímantiska og klassiska eðlis. Þær eru einnig lifandi dæmi um sálarástand manns sem þjak- aður af tæringu, bar örlög föðurlands sins á herðum sér út i sjálfskipaða útlegð. Hljómplötur - Klassík pRr/1'' eftir Halldór Björn Runólfsson Norrænar konur Að Kjarval sstööum hafa Norrænar konur opnað sýningu á verkum sinum og er þetta all- stór yfirlitssýning á breiðu úrtaki margra kynslóða. Það er fjölmennur hópur fulltrúa frá hverju landi fyrir sig og m.a. taka sex listamenn frá Islandi þátt i þessari sýningu, þær Valgerður Bergsdóttir, Sigriður Björnsdóttir, Edda Jónsdóttir, Borghildur óskarsdóttir, Berg- ljót Ragnars og Björg Þorsteinsdóttir. Greinilegur undirtónn þessar- ar sýningar er barátta fyrir viöurkenningu kvennalistar, þ.e. listar þeirra kvenna sem jafnframt hafa þurft aö sinna öðrum verkefnum og ekki getað fullkomlega helgaö sig mynd- listinni. Alla vega virðist mér það vera inntakið I vali Islend- inganna til þessarar sýningar. Erfitt er að fara I sterkar greiningar á þvi, hvaða þjóð skili hér bestri vinnu. Þrátt fyrir allt hefur hvert land sina sérstööu sem merkjanleg er, þegar heildin er skoöuö. Þó er það einkennandi hversu mjög islenskar listakonur sækja út fyrir landsteinana Iframhalds- menntun og gjarnan út fyrir Skandinaviu. Það eru aðeins hinar eldri, meðal kynsystra þeirra á Norðurlöndum sem stundað hafa nám utan hins norræna menningarsvæðis. Flestar hinna yngri hafa látið sér nægja heimaland sitt. Þetta má sjá greinilega þegar islenska framlagið er borið saman við framlag hinna. Hvergi eraö finna neinn sterkan þjóðlegan né heföbundinn þátt i fulltrúum Islands. Valgerður Bergsdóttir kemst einna næst þvi að kallast þjóöleg. Þ.e.a.s. ef maður vill kalla kriuna þjóðlegan fugl. Annars eru verk hennar svo persónuleg og tjáningartákn þeirra svo altæk, að einu gildir hvar hún hefði verið niður kom- in á kúlunni, Valgeröur heföi alltaf fundiö sina kriu. Svo er og um verk Eddu Jónsdóttur, Skilaboðin og útfærslan eru alþjóðlegs eðlis, næmar myndraöir hennar skýra sig sjálfar hvar sem er (allavega i Brasiliu, eftir nýjustu sápunni i sjónvarpinu að dæma). Þá eru verk Bjargar Þorsteinsdóttur þess eðlis, að þau tengjast beint þeim formrænu tilraunum sem málarar um allan heim hafa veriö að fást við undanfarna áratugi. Myndir Bjargar eru rökvisst málaöar og t ilþrifin eru fólgin i næmu, en eitruðu lita- valisem oft minna á Mortensen. Það sem kom mér þó mest og skemmtilegast á óvart, var framlag þeirra Bergljótar, Borghildar og Sigriðar. Kannski er það ókunnugleiki minn viö fyrri verk þessara kvenna sem gerirverk þeirra svo nýstárleg. Bergljót Ragnars sýnir einhverja best heppnuðu sam- bræðslu minimal-málverks og conceptúal-listar sem ég hef augum barið hér á landi. Verk hennar minna kannski á Larry Poons aö einhverju leyti, nema hvað þau eru mun liflegri. Borghildur óskarsdóttir nálg- ast einnig hreint concept, þótt ljósmyndir hennar séu um leiö afar ljóðrænar og geti þess vegna staöið sem óhlutbundin verk. Hugmyndin um konu meö andlitsfarða er skilmerkilega útfærð, þannig að Borghildi má skoöa sem rfsandi stjörnu innan þessa hóps. Sigriður Björnsdótt- ir er af allt öðru sauðarhúsi. Verk hennar eða smámyndir eru hefðbundin, en eitthvaö er það sem gerir þessa miniatúra stóra i smæð sinni. Kraftmikil útfærsla og næmtefnisskyn gera þessi landslagsverk að þeim bestu sem ég hef séð i langan tima. Það sem áður var sagt um skort á þjóölegum eða heföbundnum viðfangsefnum i list Islendinga, á svo sann- arlega ekki við um Finna. Það er greinilegt aö heföbundin alþýðulistá sterkan hljómgrunn i finnskri nútimalist. Þetta gerir list Finna nokkuð innhverfa, en þegar best lætur verður hún allsérstæð og frumleg. Fyrir utan Sigrid Schauman, þessa langlifu og hugljúfu listakonu, eru það einmitt tradisjónalistar á borð viö Saara Tikka og Pirkko Valosem halda framlagi þjóöar sinnar á lofti. En of mikil rýni i hefðbundna list, gæti með timanum reynst hættuleg nútima málurum. Danska framlagiö er öllu sundurlausara. Það er raunar fyndið að hugsa til þess, að Islendingar hafi farið til Danmerkur til að vikka sjóndeildarhringinn. Þó eru hér konur eins og Anna Klindt- Sörensen, með frábært framlag. Kirsten Christensen, Kit Mose- gárd-Bruun og Ursula Reuter- Christiansen syna einkar geðþekka og nokkuð frumlega vinnu. Norömenn ætla seint að komast fram úr honum Munch sinum. Þó sýna þær Aase Gulbrandsen, Mette Schau og Tonje Ström sannfærandi og oft snörp tilþrif. Einkum eru verk hinnar siðastnefndu sem standa upp úr framlagi samlanda hennar. Lestina reká svo Sviar, meö afar misjafnt pródúkt, jafnvel svo aö manni finnst sem þeir hljoti að hafa sent hingað b- landslið sitt i listinni. Vera Nils- son og Lenke Rothman bera uppi þetta fjölmenna lið. An þeirra væru sænskar konur illa staddar. Það sannast s.s. með þessari sýningu, hve Skandinavar heföu gott af að lfta rétt út fyrir land- steinana. Eins og ég gat um áður, viröast það vera elstu fulltrúarnir frá Norðurlöndun- um sem hafa að bera mesta viðsýni og sýna snörpustu til- þrifin, meðan yngri kynslóöir draga sig inn i skel dreifbýlis- hyggju. Það er þvi sannarlega islenska framlagið sem skarar fram úr. En sem heild er sýn- ingin skemmtileg og athyglis- verö og það besta sem þar er sýnt nægir til aö mæla með henni.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.