Helgarpósturinn - 10.04.1981, Síða 22

Helgarpósturinn - 10.04.1981, Síða 22
22 Greenwich Village þorpið í stórborginni Sú spurning hefur oft leitað á mig, þegar ég er stödd i lista- mannahverfum erlendra stór- borga hvað valdi að ein hverfi frekar en önnur verða að lista- mannahverfum. Voru húsin, skipulagið eða mannlifið svo sér- stætt að listamenn löðuðust að? En svarið hefur ætíð verið á sömu lund. Ódýrt húsnæði réöi úrslit- um. Þegar New York borg fór að byggjastinorður upp úr aldamót- unum og bflar, sem óku um breið- sem þeir gátu látið skoðanir sinar og tilhneigingar þróast óhindrað af þröngsýni og smásálarskap heimabæja sinna. Þeir komu til New York i óþökk foreldra sinna með vasana tóma en fullir af bjartsýni og settust að i þorpinu. Miðstéttar unglingar voru þó ekki þeir einu, sem fundu sér griðarstað i þorpinu. Börn New York-búa af lágstétt og inn- flytjenda fundu þar einnig skjól. Þessi mislita hjörð átti það sam- eiginlegt að fyrirlita umhverfið, götur aðalsamgöngumátinn, þá breyttist Greenwich Village úr virðulegu ibúðarhverfi i fátækra- hverfi. Götur þorpsins voru of þröngar og hlykkjóttar fyrir bila þeirra tima svo allir þorparar, sem vildu teljast menn með mönnum.fluttu sig upp i bæ. Ódýrt húsnæði eitt og sér skapar þó ekki listamannahverfi. A þessum tima var New York að verða að stórborg, sem fólk hvaðanæva að leitaði til, sér til frægðar, frama eða frelsis. I fyrsta sinn i sögu Bandarikjanna gafst róttækum miðstéttarung- lingum tækifæri á griðarstað, þar sem hún var sprottin úr. Eins og einhver komst að orði voru hinir efnameiri að forðast leiðindi vel- megunarinnar en hinir að flýja undan byrðum fátæktar. Þar sem allir þessir óliku straumar mættust myndaðist brátt öflugt samfélag, sem hafði sina eigin lifsstefnu og lifsmáta. Takmarkið var að reyna allt og andstætt kristilegum kenningum að biða með að njöta ávaxta erfiðsins var hvers augnabliks notið til fulls. Fullkomið jafnrétti rikti milli kynjanna og konur reyktu, drukku og sváfu hjá, sem karlmenn væru. Allur klæðnaður leyfðist og stjórnmálaskoðanir, sem voru i andstöðu við hinar rikjandi. Samieinstaklingurinn gat verið kommúnisti, einn daginn stjórn- leysingi þann næsta og syndikal- isti þann þriðja. Eða allt i senn sama daginn. Alls kyns stjórn- málaklúbbum var komið á fót þar sem málin vorureyfuð ogrædd og öflug blaða- og bókaútgáfa rekin. Bækur ungra og óþekktra höf- unda voru gefnar út og ýmis mis- munandi langlif timarit. Frægust þeirra urðu The Masses (Al- þýðan) og The Little Review.Hið siðarnefnda birti fyrst allra i Bandarikjunum kafla úr Ulysses, James Joyce, og Ijóð eítir þá Töframaður á Washington Square leikur listir Verslunin RUSL við Saint Marks Place, sem sérhæfir sig I fatnaði fyrir pönkara. óþekkt skáld, Pound og Eliot. 1 timaritum þessum mátti lika finna greinar um og eftir Marx, Freud og Bergson. — Leikhúslifið dafnaði þar einnig. Eugene O’Neil þá ungur og óþekktur var einn af stofnend- um, og aðal höfundur og stjórn- andi við Provincetown Play- house, sem enn er við lýði i dag. A timabili trúðu margir þorp- ara að draumurinn um útópiuna, hið stéttlausa, „lagalausa” sam- félag hefði ræst. En eins og fyrri daginn reyndist svo ekki vera. Fyrr en varði urðu sumir þorpara heimsfrægir og einn þeirra, Sinclair Lewis, fékk meira að segja Nóbelsverðlaunin. Þó draumurinn um fyrir- myndarrikið rættist aldrei, þá var lagður grundvöllur á þessum tima að samfélagi, sem enn þann dag i dag er griðarstaður þeirra, sem ekki sætta sig við rikjandi skoðanir og lifsmáta. Það yrði of langt mál að telja upp alla þá starfsemi og stefnur sem rikt hafa i þorpinu siðastliðin sextiu ár, en ég mun reyna að nefna það helsta. Eins og við var að búast, fundu vinunnendur sér skjól i þorpinu á bannárunum. I friðsælu ibúðar- húsi á horni Burrowstrætis og Bedfordsstrætis var rekinn vin- veitingastaður Chumbley’s. Til að komast þar inn varð að ganga i gegnum litið, afgirt húsasund og hvergi sáust þess merki að þarna væri samkomustaður vin- drykkjumanna. Engu hefur verið breytt siðan á bannárunum og til minningar um þau hafa bókakáp- um neðanjarðabókmennta þeirra tima verið komið fyrir snyrtilega i glerrömmum meðfram veggj- um. A s"jötta áratugnum settu bitnikkarnir svip sinn á þorpið og á þeim sjöunda, hippar og blóma- börn. 1 dag er vesturþorpið höfuð- vigi hýrra karla og kvenna (gays), en þeir eru einn athafna- mesti og best skipulagði minni- hlutahópur hér um slóðir. Þeir hafa öfluga hreyfingu „The Gay Rights Movement” sem berst af hörku gegn öllu misrétti, sem þeir eru beittir. Þeir hafa unnið marga sigra á undanförnum ár- um, en nú eru dimmar blikur á lofti. Reaganog félagar eru mikið á móti öllu, sem á einhvern hátt brýtur i bága við rikjandi hegð- unarmunstur og eru alls kyns hugmyndir uppi meðal þing- manna thaldsflokksins að koma hýrum fyrir kattarnef. Mörgum fannst það timanna tákn, þegar ungur maður ók inn Kristófer-stræti, sem er aðal- gatan i hverfi þeirra, i haust og skaut tvo til bana, þar sem þeir sátu i makindum á bar. Þegar morðinginn var handsamaður, sagðist hann alla tið hafa hatað hýra og þetta væri liður i útrým- ingarherferð. Við Kristóferstræti eru rekin veitingahús, skemmtistaðir og barir sem eingöngu eru ætluð hýrum. Það má einnig finna verslanir sem sérhæfa sig i tisku þeirra. Eins og i þorpinu forðum, er þar öflug blaða- og bókaútgáfa og leikhús, sem eingöngu sýna verk um og eftir hýra (þá). Um þessar mundir standa yfir miklar deilur milli þeirra og annarra New York búa út af höggmynd eftir George Seagal sem á að reisa á Sheratontorginu við Sjö- undu breiðgötu' (Avenue). Lista- verk þetta sýnir tvo karlmenn veita hvor öðrum ástaratlot. Innan um þá hýru má finna alls kyns aðra hópa og einstaklinga. Þar reka t.d. rauðsokkur kvenna- bókaverslunina Djunu við tiunda stræti og listamenn og skáld eiga sér þar griðastað. Þar býr meðal annars rússneska skáldið og flóttamaðurinn Joseph Brodsky, sem er af mörgum talið eitt efni- legasta Ijóðskáld i heiminum i dag. i austur hluta þorpsins hafa pönkarar aðsetur sitt innan um innflytjendur frá Úkraniu. Þeir hafa lagt undir sig Saint Marks Place og þar er að finna ótal verslanir sem selja alls kyns undarleg föt bæði gömul og ný. Svarta bosmamikla leðurjakka, grófar keðjur, rennilása og risa- öryggisnælur, sem hengdar eru i eyru og nef. Þar má lika finna tá- mjóa plastskó i vemmibleikum og ælugrænum litum, sem viðskipta- vinir Bloomingdales (eitt finasta vöruhús hér um slóðir) mundu aldrei svo mikið sem snerta. Inngangurinn að Chumbleys, sem var athvarf vinunnenda á bannárunum. Föstudagur 10. áprfl 1981 he/garpÓsturinn Innan um starfsemi pönkara má finna ódýr veitinga- og kaffi- hús, sem rekin eru af ungu lista- fólki, sem er að freista gæfunnar i stórborginni. Ekki er hægt að kalla pönkarana hreyfingu i sama skilningi og nágranna þeirra i vestur-þorpinu. Þó þeir hafi sina eigin tisku, tónlist og lifsmáta, þá er þetta fyrir flestum timabundið uppreisnarástand. Þess er að vænta að þeir, eins og bitnikkarnir og blómabörnin ger- ist einn góðan veðurdag siðprúðir borgarar og eignist kannski eigið hús, bil og börn. Bleeckerstræti og McDougal, sem voru aðalgötur hinna upp- haflegu þorpara hafa löngu orðið skemmtana- og ferðamanna- iðnaðinum að bráð. Þau eru yfir- full af matsölu- og kaffihúsum og smáverslunum, sem selja út- hverfabúunum frjálslegan fatn- að. A sumarkvöldum klæðast þeir honum og streyma inn i þorpið til að komast I snertingu við lista- mannalifið sem löngu er horfið. Og enda þvi með að glápa hverjir á aðra. New York háskóli er einnig i þorpinu. Að margra mati er hann svartur blettur á þvi og ætti að flytja hann burt við fyrsta tæki- færi. Frá byggingarlegum sjónarhóli er hann það vissulega. Gamlar og fallegar smábygg- ingar hafa verið rifnar og mis- fagrir steinkumbaldar reistir i þeirra stað. Skólinn hefur á undanförnum árum keypt verk- smiðjuhúsnæði i næsta nágrenni við skólann og flæmt burt smá- iðnað og gert marga verka- konuna- og manninn atvinnu- lausan. En eins og oft vill verða þá þrifst i skjóli stórra menntastofn- ana mikil og öflug menningar- starfsemi. Skólinn rekur stóran listaverkasal og getur þar að lita verk og sýningar hvaðanæva að. Þar eru haldnir tónleikar, leikrit og danssýningar vikulega og hugsuðir frá öllum heimshornum koma þangað og flytja speki sina og kenningar. New York-háskólinn stendur ekki frekar en aðrir háskólar undir þvi að hafa að geyma alla visku heimsins (universe). En torgið, sem skólinn umlykur, The Washington Square, er svo sannarlega heimur i hnotskurn. A góðviðrisdögum má finna þar fulltr. allra stétta og aldurshópa i New York ef ekki öllum Banda- rikjunum. Þar standa dópsalar og bjóða þeim sem vilja gras, skák- menn tefla, hljóðfæraleikarar spila, dansarar dansa, söngvarar syngja, ræðusnillingar flytja ræður og töframenn leika á sak- lausa vegfarendur. Þar getur einnig að lita börn að leik og gamalmenni sem hvfla lúin bein innan um uppdópaða eða útúr- drukkna róna og stúdenta með námsbækur, hjólaskautamenn og trimmara. Að ógleymdum góð- borgurum sem ganga um með sparisvip og skemmta sér á kostnað annarra en sjálfum sér að kostnaðarlausu. Að lokum má geta að i þorpinu er gefið út mikið og veglegt helgarblað, The Village Voice. „Þorpsrómurinn” sem enn er eitt vandaðasta blaðið hér um slóðir. Margur stjórnmálamaðurinn hefur mátt sviða sárt undan rann- sóknablaðamennsku þeirra. En blaðakonungurinn, ástralski, Murdock keypti „Þorpsróminn” fyrir nokkrum árum og er það trú manna að það sé bara timaspurs- mál hvenær það verður að æsingafréttablaði. Þó svo verði er ekki hætta á öðru en að þorpararnir komi af stað nýju blaði. Fram til þessa hafa þeir ekki sætt sig við rikj- andi hefðir og skoðanir og er ótrú- legt að þeir taki upp á þvi i fram- tiðinni. — Myndir: Hrefna Hannesdóttir. Provincetown Playhouse. Elsta leikhúsið i þorpinu. Stendur viö McDougal Stræti.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.