Helgarpósturinn - 10.04.1981, Qupperneq 24
helgarpásturinn Föstudagur 10. april 1981
Philips
fermingar-
gjaffi
Philishave rakvélar.
Verð frá 415 krónum.
Segulbönd fyrir rafhlöður. Inn- Sambyggð útvarps- og segul- Vekjaraklukkur með rafhlöðu.
byggður hljóðnemi. bandstæki, LM, MB og FM. Verð frá 317 krónum.
Verð frá 759 krónum. Verð frá 1426 krónum.
’ Íb :: ;.. J KS
Hitabursti, léttur og þægilegur Útvarpstæki fyrir rafhlöður. Hárblásarasett, með greiðu, Morgunhaninn, vekjari með
í notkun. FM, MB og LM. bursta og krullujárni. LM, MB og FM.
Verð frá 235 krónum. Verð frá 543 krónum. Verð 575 krónur. Verð frá 543 krónum.
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
• 1 bankaheiminum þykjast
menn nú sjá þess ýmis teikn að
Útvegsbankinn muni fara að
rétta úr kútnum eftir að Albert
Guðmundsson, bankaráðs-
formaður, kom sinum málum i
gegnum rikisstjórnina fyrir hönd
bankans og ætla menn að Albert
eigi eftir að reynast Útvegsbank-
anum mikili haukur i horni.
Fyrirgreiðsla rikisstjórnar til
bankans hefur þó orðið til þess að
enn hafa vaknað hugmyndir,
einkum i röðum Alþýðuflokks-,
Alþýöubandalags- og Sjálfstæðis-
manna að samfara þessari fyrir-
greiðslu eigi að dusta rykið af
gömlum áætlunum um samein-
ingu útvegsbankans og Búnaðar-
bankans. Af hálfu Útvegsbanka-
manna mun ekki illa tekið i þess-
ar hugmyndir en hins vegar vera
litill fögnuður með þær innan
Búnaðarbankans...
• Úr rööum stjórnarliða heyr-
um við að menn þar þykjast nú
vera búnir að pina Hjörleif
Guttormsson að koma fram með
virkjunaráform sin á þingi nú
fyrir páska. Mikil ókyrrð er
meðal margra stjórnar-
þingmanna með þann drátt sem
orðið hefur á þvi að virkjunar-
áætlanirnar komi fram. Einkum
eru það þá Framsóknarmönnun-
um, sem tekið er að leiðast biðin
og kvarta sumir þeirra hástöfum
yfir þvi i fari Hjörleifs að geta
ómögulega tekið ákvörðun...
• Við sögðum frá þvi á dögun-
um að innan Sambands ungra
sjálfstæðismanna væru menn að
búa sig i kosningaham og ýmis-
legt benti til að baráttan gæti
staðiðmilli Einars Guðfinnssonar
i Bolungarvik og Péturs Hafns-
sonar.Heimdallarformanns. Lin-
urnar eru nú aðeins teknar að
skýrastog má þá segja að halli á
báöa kandidatana. Pétur hefur
ekki fengið þann byr sem hann
geröi sér vonir um i upphafi og
m.a. ekki tekist að tryggja sér
stuðning Jóns Magnússonar, frá-
farandi formanns SUS eins og
hann vænti. Mörgum þykir einnig
Einar vera full snemma á
feröinni og þá meðal annars bent
á að hann sé enn við nám
erlendis. Á siðustu vikum hefur
þar af ieiðandi verið vaxandi
hreyfing fyrir þvi að fá Geir
Haarde, hagfræðing hjá Seðla-
bankanum i framboð og gera
menn sér jafnvel vonir um aö
hann muni geta oröið sjálfkjör-
inn.
• Starfsmannafélög útvarps og
sjónvarps héldu sameiginlegan
fund um fjárhagskreppu rikisút-
varpsins i vikunni. Athygli vakti
aö umræðan beindist fljótlega að
Sinfónfuhljómsveit Islands og
þætti Rikisútvarpsins i rekstri
hennar og voru fundarmenn al-
mennt inn á þvi að I hæsta máta
væri óeðlilegt að útvarpið væri
látið axla þann bagga sem hljóm-
sveitin væri við þessar aðstæður I
rekstri Utvarpsins sjálfs og vildu
höggva á tengslin milli þessara
tveggja stofnana. Tveir fundar-
menn voru þvi þó andmæltir,
söngvararnir Guðmundur Jóns-
son og Guömundur Guöjónsson,
og þetta sjónarmið náði ekki inn i
ályktun fundarins....
• Ýmsar hreyfingar geta verið
framundan i blaðaheiminum. Af
Dagblaðinu heyrum við að menn-
ingarritstjórinn Aðalsteinn
Ingólfsson kunni að hverfa frá
blaðinu með haustinu og hafi
hann tekið stefnuna á doktors-
gráðu i listfræði i útlandinu...
® Morgunblaðinu er hins vegar að
bætast liðsauki á sama tima.
Hildur Einarsdóttir, sem eitt
sinn ritstýrði Lif og siðar blaðinu
Núna, hefur ráðið sig sem blaða-
mann hjá Mogganum og með
haustinu geta Moggamenn átt
von á gömlum félaga, Þórleifi
ólafssyni, sem vann um árabil
þar áður en hann hvarf til
Grimsby sem starfsmaður hjá
ræðismanninum þar, Jóni
Olgeirssyni...
• Likur eru á þvi, að ibúar i
grennd við Laugarásveg 1 losni
við áfengisútsöluna, sem hefur
verið i þvi húsi frá árinu 1962.
Vinbúöin var strax þyrnir i aug-
um ibúanna, og þeir reyndu að
koma i veg fyrir að hún yrði
opnuð, með undirskriftasöfnun-
um og mótmælum, en án
árangurs. Nú hefur vinbúðin
verið þarna i nærri tvo áratugi, og
nágrannarnir eru orðnir lang-
þreyttir á þeirri örtröð, sem oft er
i kringum hana, sérstaklega á
föstudögum. Þá er nærri ómögu-
legt að komast aö næstu húsum og
óslitnar bilaraðir eru langt inn-
eftir bæði Laugarásvegi og Sund-
laugavegi, beggja vegna gatn-
anna. Finnst mönnum að óþæg-
indin af þessu yfirskyggi hag-
ræöið að þvi að hafa vinbúð i
næsta nágrenni sinu. Jón
Kjartanssonforstjóri ATVR segir
það rétt vera, aö hugmyndir séu
um flutning verslunarinnar, en
þær eru raunar runnar undan
rifjum Erlings ólafssonar versl-
unarstjóra. Hann hefur barist
fyrir flutningi hennar allt frá þvi
hann tók við stöðu verslunar-
stjóra þar. En ennþá hefur ekki
fundist annar heppilegri staöur,
og mönnum ber saman um aö
hann sé ákaflega vandfundinn...
• Eitt nafn i viðbót hefur nú
heyrst nefnt i sambandi við stööu
iþróttafulltrúa rikisins. Það er
Jón B. Stefánsson, félagsmála-
fulltrúi á Selfossi, og þraut-
reyndur maður i félags- og
iþróttastarfi þrátt fyrir ungan
aldur, sem sagður er lita em-
bættið hýru auga. Reyndar hefur
einnig heyrst að i ráðuneytinu sé
nú til umræðu að gera starf Þor-
steins Einarsonar að tveimur
eftir að hann hættir, og á annað
starfið þá einkum að vera bundið
við iþróttamál og byggingar skól-
anna, en hitt við almennu Iþrótta-
félögin...
• Þaö er skoðun ýmissa nemenda
i Verkfræði- og Raunvisindadeild
Háskdla Islands, að sýningin á
starfsemi deildarinnar, sem fór
fram um siðustu helgi, hafi fyrst
og fremst verið skrautsýning og
alls ekki gefiö rétta mynd af þvi
sem þar fer fram i daglegu starfi.
„Þetta var hreinasta Tivoli”,
segir einn þeirra. Mörgum kom
það lika spanskt fyrir sjónir, að á
sýningunni var stillt fram sem
kennslutæki myndsegulbands-
tæki, litasjónvarpi og sjónvarps-
upptökuvél, sem var keypt fyrir
deildina fyrir nokkrum árum.
Tæki þessi hafa siðan ekki sést á
deildinni nema einu sinni á ári og
þegar rikisskipuð nefnd kemur til
að athuga tækjabúnaö deildar-
innar. Aö sögn nemendanna eru
tækin þess á milli I vörslu annars
af tveimur prófessorum raf-
magnsverkf ræðiskorar...
• Það eru ekki bara myndsegul-
bandstæki, sem verkfræðinemar
halda fram, að kennarar þeirra
noti mest fyrir sig. Við athugun á
útláni á bókasafni deildarinnar
kom I ljós, að einn dósentinn er
með 80 bækur i láni, og hefur haft
sumar þeirra allt frá árinu 1976. I
mörgum tilfellum er þarna um að
ræða fagbækur, sem kennararnir
hafa látið safnið panta, og er
ekkert við það að athuga, að þeir
hafi þær undir höndum i nokkra
mánuði, meðan þeir nota þær
vegna starfs síns. En nemendum
finnst sem þeir ættu aö fá að njóta
bókanna lika. Raunar hafa þeir
komist að þvi, að fái þeir lánaðar
bækur á safninu i nafni deildar-
innar er aldrei gengið eftir að
þeim sé skilað. Hinsvegar
stendur ekki á rukkun fái þeir
bækurnar áeigin nafni...
• Enn um Verk- og Raunvisinda-
deild Háskólans. Það er altalað
meðal rafmagnsverkfræðinema,
að Sæmundur óskarsson
prófessor sjáist varla i skólanum
nema á sérstökum hátiðar-
stundum. Annar prófessor, Björn
Kristinsson, kenndi i fyrra aðeins
tvo tima á viku, en hefur aukið
kennsluna nú um 100% — upp i
fjóra tima. Einu sinni á ári er þó
hægt að ganga að þessum
mönnum visum i Háskólanum.
Það er um jólaleytið, þegar þeir
eru kallaðir til að fella dóm um
prdftökurétt nemenda...
Hér er ný mynd af Hallbjörgu Bjarnadóttur, hinni kunnu og
vinsælu listakonu sem hefur undanfarin allmörg ár dvalist I Bandarlkj-
unum. Þar hefur hún haldið margar málverkasýningar undanfarið
ásamt manni sinum Fischer Nielsen. Þau sýna að jafnaði i „Gallerf 33”
i New Jersey og eru málverk þeirra eftirsótt. Hallbjörg á marga vini
hér á Fróni sem minnast hennar vafalaust með þökk fyrir gleðistundir
á söngskemmtunum sem hún hélt fyrr á árum. Þau hjónin fylgjast vel
með því sem gerist hér heima og biöja fyrir bestu kveðjur,.