Helgarpósturinn - 05.06.1981, Page 13
13
hplrjarpn^tl irínn Föstudagur 5. júm 1981
sem var mikil vinna og litill
viöurgerningur. Einu sinni geröi
hann tilraun til aö flýja staöinn og
vafraöi um i atvinnuleit i tvo
daga, en varð aö snúa aftur.
Likamslýti hans urðu sifellt
meiri, blómkálsleg æxli og kýli
um allan likamann, holdiö nánast
i fellingum, sem ástæöulaust er
aö lýsa meö orðum, þvi ljósmynd-
irnar sýna þetta glöggt. Þaö sem
olli honum mestu angri var þó
„raninn”, og loks, árið 1882 varö
ekki umflúið að taka hann til
skurðaðgerðar á spitalanum i
Leicester, þar sem stór hluti af
þessu þykkildi var fjarlægður,
tvær—þrjár únsur af holdi, eins
og Joseph segir sjálfur i litlum
sjálfsævisögupésa, sem hann reit
siðar og kallaöi The Autobio-
graphy of Joseph Carey Merrick.
Þegar hann var aftur kominn i
þurfamannahúsið fór Joseph aö
velta fyrir sér hvaö hann gæti
tekið til bragös til að koma sér úr
þeim ógeðuga stað. Og þá fékk
hann hugmynd sem olli þáttaskil-
um i lifi hans: 1 staö þess að leyfa
útiitinu að draga sig niður i mestu
hugsanlega eymd, skyldi hann
snúa vörn i sókn, færa sér það i
nyt, nota það sér til framdráttar.
Hann gerðist viðundur að at-
vinnu.
Viðundrasýningar voru geysi-
vinsælar skemmtanir i Englandi
Viktoriutimans. Joseph setti sig
þvi i samband við kunnan
skemmtanastjóra i Leicester,
Sam Torr og bauð honum þjón-
ustu sina. Torr sá þegar gullnámu
■' Merrick og stofnaði um hann
sérstakt fyrirtæki. Var farið með
Joseph viða um land og hann aug-
lýstur sem „Filamaðurinn, hálfur
maður, hálfur fill”. Brátt var
röðin komin að London og þar
með var Joseph kominn i umsjá
eins af meðeigendum Torrs, Sam
Norman, sem vel þekkti til slikr-
ar starfsemi i höfuöstaðnum. Nú
varð Norman eins konar guðfaðir
Josephs.
Viðundur í vísindarann-
sókn.
Það er þegar Joseph er til sýnis
i Whitechapel Road i London aö
upprennandi læknir og visinda-
maður við Lundúnaspitala.
Frederick Treves hefur spurnir
af þessu undarlega fyrirbæri.
Hann fær Norman til að leyfa sér
aö sjá Filamanninn sérstaklega
og i litilli illa lýstri skonsunni á
Whitechapel Road hittast þessir
tveir menn sem siðar áttu eftir að
eiga sérkennilega samleið: Hinn
ungi læknir og þetta vesalings
viöundur. Treves sá strax að af-
myndun Merricks, bæði hvaö
varðaöi hold hans og bein, og
undarlegur fnykur sem stafaði af
likama hans, var merkilegt rann-
sóknarefni. Hann fékk aö taka
hann til athugunar á spitalanum
og flutti siðan um hann fyrirlestur
hjá Sjúkdómafræðifélaginu.
Hann kvaddi Merrick með þvi að
gefa honum nafnspjald sitt og
viðundrið hélt aftur til fyrra lifs.
Þá var ákveðiö að senda hann i
sýningarferð um Evrópu. Þaö
reyndist hin mesta hrakför.
Joseph Merrick var áreittur,
svikinn og prettaður og hrökklað-
ist aftur til London við illan leik.
Þar fannst hann á járnbrautar-
stöð meira og minna úti á þekju
og örmagna, lifsvilji hans á þrot-
um. 1 vasa hans fundu lögreglu-
þjónarnir nafnspjald Frederick
Treves.
Og Treves tók hann upp á sina
arma. Með aðstoð gdðra manna
fékk hann reglur sjúkrahússins
rýmkaðar svo að þar mætti búa
Joseph Carey Merrick litinn
samastað þann stutta tima sem
hann átti þá augljóslega eftir
ólifað.
Fílamaðurinn fær frið.
Kvikmyndin um Filamanninn
lýsir vel þessum siðustu fjórum
árum Merrick, eina hamingju-
timanum i ævi hans, þvi hvernig
vinátta fárra manna tókst að
sigra tortryggni,. ótta og fjand-
skap umhverfisins, byggja upp
lönguhrunið sjálfstraust hans,
þroska meðfæddar gáfur hans og
hæfifleika, og að lokum snúa við
hefðbundnum hugmyndum um
fegurð og ljótleika. Sú saga
verður ekki rakin hér, heldur
visað á kvikmyndina.
Það má furðu sæta, að eins
rækilega og ytri aðstæður höfðu
reynt að brjóta Joseph Carvey
Merrick niöur þá skuli hann hafa
komist frá þeim hildarleik, með
hreinan hug, beiskjulaus og eins
óbrenglaður og nokkur maður
getur verið. Innviðirnir hljóta aö
hafa verið sterkir. Þegar hann
kom á spitalann var likamlegri
heilsu hans að visu tekið að
hraka. Þá var hann aðeins 24 ára.
Auk sjúkdómsins gamla var hann
kominn með lungnakvef og
hjartað oröið veikt. En honum
var vel sinnt, og meö þvi aö baða
hann oft á dag tókst að halda i
skefjum þeirri daunillu lykt sem
stafaði af örkumlum hans. Af
skiljanlegum ástæðum varð hann
að halda sig aö mestu innan dyra
uns tók að skyggja, en þá haltraði
hann um portið bakviö spitalann
sér til hressingar. Þrátt fyrir
bæklun hægri handar varð hann
leikinn I smiði litilla pappabygg
inga (sjá mynd) og með hjálp
frægrar leikkonu lærði hann að
flétta körfur. En fyrst og fremst
þróaðist hans innra lif: Hann gat
lesið og gleypti i sig allt sem hann
komst yfir, en hafði mestan og
barnslegan áhuga á ástarrómön-
um og trúöi öllu sem i þeim stóð
eins og staöreyndum. Hann var
svo næmur fyrir fegurö, að hann
táraðist ef hann sá fallegt blóm
eöa fallega konu. Hann haföi
aldrei fengið aö lifa eðlilegu lifi,
vissi ekkert um hversdagslegustu
samskipti kynjanna. Það þótti
kaldhæðnislegt aö eini likams-
parturinn sem var fullkomlega
eðlilegur var kynfærin.
Oft ræddi hann um hve hann
langaði til að hitta einhverja
blinda stúlku sem viidi verða
hans, gæti fellt sig við hans innri
mann af þvi hún sæi ekki hina
hryllilegu skurn. Til að viðhalda
sjálfstrausti Merricks lét Frede-
rick Treves fjarlægja alla spegla
úrnávisthans. Hannhafði lika oft
orö á þvi, að sig dreymdi um að
geta sofið eins og venjulegur
maöur, að geta lagst útaf. Vegna
þess hve höfuöiö var þungt varö
hann að sofa sitjandi i rúminu,
með fæturna dregna upp og hvildi
höfuðið á hnjákollunum. Treves
taldi sjálfur I riti sinu um Fila-
manninn, að Merrick muni hafa
ákveöiö að reyna að breyta þeim
draumi sinum i veruleika þegar
hann lést: En hann mun hafa
kafnað i rúmi sinu. Þá var hann
29 ára aö aldri.
Hann hafði unnið hug og hjörtu
allra sem umgengust hann og var
þar fyrir utan orðinn eins konar
tiskufyrirbæri fina fólksins i
London sem það montaði sig af að
hafa hjálpað. Einnig á spitalan-
um var hann sýningargripur. En
með mannúðarskyni bliðlyndi
sinu og finlegum gáfum hafði
þessi furöulegi likamningur ljót-
leikans breyst I vitund fólks i per-
sónugerving innri feguröar.
Það er þess virði aö velta þvi
fyrir sér hvað gert yrði við slikan
mann ef hann fæddist meðal
okkar hér og nú. Hvar myndum
við hola honum niður i kerfinu
okkar?
Sjálfsævisögupésa sinum lýkur
Joseph Merrick með tilvitnun i
kvæði. Sú tilvitnun, þótt hún sé
ekki alveg nákvæm og trúlega
skrifuö eftir minni, bendir til að
hann hafi haft furðu réttan skiln-
ing á sinu hlutskipti. Visan er
svona:
Were I so tall to reach the pole
Or grasp the ocean with my span
I must be measured by my soul
The mind’s the standard of the
man.
Með mörg ftæki I takinu?
ESSOLUBE XD315W/40
• •1
Wtmmsðr w áioaBnwa 'mmwgmm m
lantældaflotann,
alltárið!
Ný kynslóð afolíu
ESSOLUBE XD-3 15W/40 er í raun
ný kynslóð af alhliða mótorolíu. Hún er
kjörin fyrir nær allar díesel- og 4-gengis
bensínmótora og þolir öll vinnuskilyrði
sumar sem vetur, í hita sem frosti.
ESSOLUBE XD-3 15W/40 hefur að
geyma ný bæti- og hreinsiefni sem gera
það að verkum að mótorinn helst hreinn
og slit í lágmarki. Eiginleikar ESSO-
ingum vegna hita og kulda.
>etta tryggir auðvelda gangsetningu
í miklum kuldum og ekki síður örugga
smurhæfni við hátt hitastig og mikið álag.
Þannig helst smurolíu- og eldsneytis-
eyðsla í lágmarki, en öryggið í hámarki.
Hverjirnota ESSOLUBE XD-315W/40?
ESSOLUBE XD-3 15W/40 hentar
þeim sérlega vel sem eru með blandaðan
tækjaflota s.s. fyrirtækjum, verktökum
og þeim sem reka langferðabíla t.d.
öryggi og sparnað.
I xD-smam
Þúmanstnafliiðeftirfyrstunotkun!