Helgarpósturinn - 05.06.1981, Page 24
Föstudagur 5. júní 1981 hQÍgarpósfurinn
Taktu ekki óþarfa áhættu!
Sölu og þjónustumaöur
Bílaborgar h.f. tekur viö bíl
til sölumeðferðar.
Þjálfaður viðgerðarmaður yfirfer allt gangverk og
öryggisbúnað og lagfærir það sem þörf erá.
Blllinn afhentur kaupanda I
1. flokks ástandi og með 6
mánaða ábyrgð.
Notaðir Mazda bílar með 6 mánaða ábyrgð.
Þeir sem kaupa notaðan Mazda bíl hjá okkur geta verið fullvissir um
að bíllinn sé yfirfarinn, nýstilltur og í fullkomnu lagi og að ef leyndir.
gallar kæmu íIjós myndi Bílaborg h.f. lagfæra þá að kostnaðarlausu.
Firrið yður óþarfa áhættu í kaupum á notuðum bil...
Kaupið notaðan Mazda með 6 mánaða ábyrgð.
Smiöshöföa 23,/sími 81299.
2. tbl. 2. árg. 1981
Glæsilegt timarit um island fyrir islendinga.
80 bls. fjölda litmynda. —
Meðal efnis: Fjallvegir á islandi.
Akstur yfir ár, greinar um Vesturland og ódáöahraun.
Skófatnaður fyrir göngufólk, læknaspjall, Ferðafélag Is-
lands — Útivist — björgunarsveitir o.fl. o.fl.
Áskriftarsiminn 29499.
Hitið fæst einnig i bókaverslunum og á blaðsölustöðum um
allt land.
• Sagt er að Sjálfstæðismenn
ætli ekki að brenna sig á sömu
mistökunum tvisvar og ætli sér
nii að láta lengra liða á milli próf-
kjöra og sjálfrar kosningabarátt-
unnar heldur en var i siðustu
kosningum. Mun Kjartan
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæði sflokksins, hafa gert
þaö að tillögu sinni að prófkjör
flokksins fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar i Reykjaviká næsta
ári fari fram i haust eða fljótlega
eftir landsfund flokksins og með
þvf verði tryggt að þær öldur sem
prófkjörið veki innan flokksins
hafi lægt þegar nær kosningunum
sjálfum dregur...
• 1 þessu sambandi þá heyrum
viðfrá Albertsmönnum að Albert
Guðmundsson sé staðráðinn i þvi
að skipa sér i sjálft baráttusætið
nr. 8 á lista Sjálfstæðisflokksins I
Reykjavfk, þótthann verði meðal
hinna efstu i prófkjcrinu, og með
þvi eiga heiðurinn að þvi að færa
Sjálfstæðisflokknum meirihlut-
ann eða falla ella og draga sig Ut
lir borgarmálum. Ekkimunu allir
Sjálfetæðismenn vera jafn hrifnir
afþessum hugmyndum Alberts...
• Fjölmiðlarnir og þar á meðal
Helgarpósturinn hafa verið nokk-
uö samstfga I gagnrýni á lækna
fyrir aögerðir þeirra i yfirstand-
andi kjaradeilu við rfkið. Fyrr i
vikunni munu siðan læknar hafa
þingað um kjaramál sin og þar
skorist i odda milli ungra lækna
og hinna eldri. Munu hinir siðar-
nefndu vilja fara hægar í sakirn-
ar, leggja áherslu á ýmis
réttindamál og hafa bent á að
fjölmiölar væru að snUa almenn-
ingsálitinu gegn læknastéttinni.
Ungu læknarnir munu hins vegar
vera ósveigjanlegir i afstöðu sinni
um hækkun launa, svo að hugsan-
legter talið að til klofnings komi I
röðum lækna...
• Greinilegt er að töluverð tog-
streita er I uppsiglingu milli
Flugleiða og íscargó. Við sögðum
frá þvi' I siðasta blaði að Flug-
leiðamenn margir hverjir væru
vantníaðir á að Amsterdamflug
Iscargó yrði nokkru sinni að
veruleika, þvl áður en Inter-Avia,
hollenska félagið sem Kristinn
Finnbogason hefur fengið til að
annast flugið, gæti hafið hingað
áætlunarflug þyrfti Kristinn að
standa skilá tryggingum sem alls
dcki væri Utséð um að hann gæti
reitt af hendi. Jafnframt er þvi
haldið fram að fulltrUar rikisins I
stjórn Flugleiða hafi gerst þar
talsmennþessað Flugleiöir tækju
yfir Iscargó þannig að Kristinn
kæmi sléttur Ut...
• Eins og vænta má er aðra Ut-
gáfu að fá frá þeim sem þekkja til
hjá Iscargó. Þar er þvert á móti
fullyrt að engan bilbug sé á
Kristni Finnbogasyni að finna og
siðasta trompið hans sé að ætla
að fá GuönaÞörðarson, fyrrum
Sunnuforstjóra, til liðs við sig og
nýta margháttaða reynslu Guðna
af feröaskrifstofu- og flugrekstr-
armálum í þágu Iscargó. Jafn-
framt er þvi haldiö fram, að af
hálfu Flugleiða sé nU með öllum
ráöum reynt aö leggja stein i götu
tscargó, m.a. hafi Flugleiðir látið
það spyrjast til einhverra ferða-
skrifstofanna að afsláttur þeirra
hjá Flugleiöum kunni að vera I
hættu, ef þær hyggi á samstarf
við tscargó...
• Nýr aðstoðarmaður ritstjóra
hefur verið ráðinn á Þjóðviljann:
Ragnar Arnason, lektor sem tek-
ur við sæti Baldurs Óskarssonar,
er lét af störfum um siðustu
mánaðamót. Ragnar Arnason er
ungur allaballi á uppleiö og er
talið að hans aðalstarf á blaðinu
muni veröa að gæta hagsmuna
flokksins, þ.e.a.s. verði einskonar
flokkspólitlskur varðhundur.
Ekki mun Ragnar hafa mikla
reynslu I blaðamennsku, a.m.k.
ekki miðað við þá blaðamenn sem
unnið hafa á Þjóðviljanum marg-
ir hverjir I mörg ár. Ragnar er
menntaður hagfræðingur frá
Ameriku og er sagt aö hann eigi
að taka tii við að endurskoða
rekstur Þjóöviljans, þegar Einar
Karl Haraldsson, ritstjóri kemur
aftur til starfa um næstu mánaða-
mót...
• Margir sem fylgst hafa með
þróun islenska sjónvarpsins
bundu talsverðar vonir við að ný
sjónarmið, ferskar hugmyndir og
aukinn framkvæmdakraftur
myndu setja svip sinn á starfsemi
lista- og skemmtideildar við
valdatöku Hinriks Bjarnasonar i
stöðu forstöðumanns hennar. NU
er liðið vel á annað ár frá þeirri
valdatöku og er haft orð á þvi inn-
an sjónvarpsins að þessar vonir
hafi siður en svo ræst og um aft-
urför að ræða frá þvi Jón Þórar-
inssonréöi rikjum. Ekki er laust
viö að almennir sjónvarpsáhorf-
endur verði varir við þetta i dag-
skránni sjálfri. Þykir sjónvarps-
mönnum sem yfirstjórn deildar-
innar sé einkar máttlaus og for-
stöðumaðurinn ekki atkvæða-
mikill i öðru en utanlandsferðum.
Þannig heyrir Helgarpósturinn
að það sem af er árinu fari ut-
anferðir hans núna að nálgast
tuginn...
• Heyrst hefur að starfrækt
verði Götuleikhús hér i borginni I
sumar. Æfingar eru um það bil að
hefjast og mun meginuppistaða
verka leikhússins verða marg-
vislegir performancar, ásamt
undirspili. Þaö mun vera Helgi
Asmundsson, scenograf sem
stendur fyrir fyrirtækinu, og er
tilgangurinn auðvitað sá aö lifga
upp á bæjarlifið. Sýningar hefjast
i byrjun júli....
• Og áfram með borgalifið i
Reykjavik. í bigerð er að koma
upp svokölluðum ,,free market” i
miðbænum. Þessi markaður er
einskonar Utimarkaður- þar sem
fólk getur komið, selt vörur og
keypt aörar. Hann er sniðinn skv.
erlendri fyrirmynd, og mun verða
með allt ööru sniði, en sá Uti-
markaður sem fyrir er i bænum.
Þar er ætlunin að fólk geti selt
eigin hluti, en þeir geta verið allt
milli himins og jarðar, t.d. bús-
áhöld, afgangs spónaplötur,
grænir stólar o.s.frv., sem sagt
allt sem nöfnum tjáir að nefna.
Vafalaust mun þessi markaður
koma til með að lifga upp á mið-
bæinn, og skapa skemmtilegt
andrUmsloft. Forsvarsmaður
þessa fyrirtækis er Gerður
Pálmadóttir, kaupmaður i
Flónni...
• Eitt helsta tromp breskrar
kvikmyridagerðar um þessar
mundir, — en þau eru reyndar
ekki mörg —, er kvikmyndin
Chariots of Fire, sem var opinber
fulltrúi Breta á kvikmynda-
hátiðinni i Cannes sem nýlokið er.
Þessi kvikmynd fjallar um tvo
enska frjálsiþróttamenn, nánar
tiltekið hlaupara og þátttöku
þeirra i Olympiuleikunum I Paris
1924, þar sem þeir tryggðu landi
sinu sigur. Hafa enskir gagnrýn-
endur varla mátt vatni halda yfir
þessari kvikmynd og sagt hana
boða nýja tima I þarlendri kvik-
myndagerð. Fulltrúi
Helgarpóstsins sem séð hefur
þessa mynd telur þetta að visu
ofmat. En hún vakti i Englandi
mikinn áhuga á þessum tveimur
Iþróttamönnum sem flestum voru
gleymdir. Og nú er komin út ævi-
saga a.m.k. annars þeirra,
maraþonhlauparans Eric Liddel ,
sem var svo mikill bókstafstrúar-
maður að minnstu munaði að
Englendingar yrðu af sigrinum á
Ólympiuleikunum vegna þess aö
hann vildi ekki hlaupa á hvildar-
degi. Liddel varð siðan trúboði og
lést i höndum Japana I siðari
heimsstyrjöldinni, kornungur
maður. NU væri þetta varla i
frásögur færandi hérlendis ef höf-
undur ævisögunnar væri ekki
islenskur að hluta til, nefnilega
Sally Magnússon, dóttir
Magnúsar okkar Magnússonar,
sjónvarpsmanns hjá BBC. Sally
er blaðamaður að atvinnu og kom
m.a. hingað til lands sem slikur I
fyrra. Bók hennar, The Flying
Scotsman hefur fengið prýöilegar
viðtökur...
• Og I haust er svo afráðið að
vio fáum að sjá i sjónvarpinu
nýjasta verkefni Magnúsar
Magnússonar hjá BBC, þ.e.
frægan myndaflokk hans um
Vikingana...