Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.09.1981, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 11.09.1981, Qupperneq 6
6 Föstudagur 11. september 1981 helgarpásturinn 0Bárður Jónsson, fanginn sem strauk af Litla-Hrauni í vikunni, lýsir sínum sjónarmiðum í samtali við Helgarpóstinn # Hyggst gefa sig fram við yfirvöld nú um helgina „Eg er hið algjöra stofnana barn...” rrrrrrinnnnnnggggg ...Síminn hringir hér á Helgarpóstinum, einu sinni sem oftar. „Góöan daginn. Hefur Helgarpósturinn áhuga á þvf aö eiga viötal viö mann sem strauk af Litla Hrauni um daginn?”, er sagt hinum megin. Nánari útlistanir fylgdu. Aö sögn þess I simanum vildi fanginn lýsa ástæöum þess aö hann lagði á flótta, i blaöa- viötali, en siöan ætlaöi hann aö gefa sig fram viö yfirvöld. Heigarpósturinn ákvaö aö athuga máliö. Nokkrum kiukkustundum slðar mættu blaöamaöur og ljósmyndari til stefnumóts I húsi hér á höfuöborgarsvæöinu. Þar tók hinn umræddi brotthlaupni fangi á móti okkur: „Báröur Jónssou heiUé&”. sagöi hann. Þegar viö höföum komifcakkur fyrir.ogPíiBm- sest makindalega i sófa, hóf hann frásögn sina. Hann taiaöi hratt, en virkaöi annars ekki mjög taugaóstyrkur, af strokufanga aö vera. „Ég hef ekkert sérstakt i hyggju” sagöi hann um þaö hvað hann ætiaöi aö gera I „fríinu”. „Ég ætla bara aö taka þaö rólega Idálitinn tima, og svo gef ég mig fram”. • Ég labbaöi bara út. Fór svo af staö á puttanum. Ég þekkti ekki fólkið sem tók mig uppi. Veit ekkert hvaöa fólk þaö var. En ég náði aðkomast til Reykjavikur. • Ég er fyrsti fanginn i meira en ár sem tekst aö komast til Reykjavikur. Þaðstrauk einn fyrr i sumar, en hann var tekinn á leiðinni i bæinn. • Égfékk bara hugmyndina um morguninn og ákvaö aö framkvæma hana um hádegiö. En ég kem aldrei til meö aö segja hvar ég hef verið þennan tima. • Þetta er fyrsta strokið mitt frá Litia-Hrauni. En svo sannarlega ekki fyrsta strokið mitt. Ég hef strokið af óteljandi stofnunum. Ég er hið algjöra stofnanabarn, ólst upp á stofnunum eingöngu. • Annars hef ég mest búið erlendis, eða siöan 1971. Núna er ég búinn að vera i um fimm mánuði inni, en er nýbúinn að fá 20 mánaða dóm. • Minir glæpir eru i tengslum við eiturlyf, en af þeim hef égmjög mikla reynslu. Ég var meðal annars heróinneyt- andium tima. Ég er búinn að neyta eiturlyfja I um 12 ár. Ég er tuttugu og átta núna. • Þetta er I fjórða skipti sem ég er á Litla-Hrauni. Á sin- um tima var ég fyrsti fanginn sem tók út dóm hjá fikni- efnadómstólnum. Ég er fikniefnafangi númer eitt. • Ég strauk vegna þess að mér leiddist tilbreytingaleysið, og til þess að hræra upp i einhverjum. Það veitir ekki af, eins og fangelsismálum okkar er háttað. Ég vil vekja athygli á þvi hvernig búið er aö föngum hér á landi. Það er alls ekki veriðaðendurhæfa neinn, eins og málum er núna háttað. • Hvaða endurhæfing er i þvi þegar átján ára unglingar eru settir inn með allskonar fólki, jafnvel geðveiku, og þeir fá aldrei að fara útaf fangelsislóðinni. • Ég held að þaö sé eitthvað aö þokast i áttina, með helgarleyfum, sem fangar hafa lengi barist fyrir. Það er nauðsynlegt fyrir menn sem lengi hafa verið innilokaöir að fá að hitta vini og ættingja nokkrum sinnum, áöur en þeir eru látnir lausir. Þaö er alltof mikið sjokk aö koma óundirbúinn úti mannlifið, kannski eftir nokkurra ára fjarveru. • En þá verður þetta að vera þannig að brjóti einhver reglurnar þá lendi þaö á honum sjálfum — ekki samföng- um hans. • Einangrunarvistin er lika annað mál sem verður að gera eitthvað i. Ég get sagt þér að Siðumúlinn er algjör dauðsmannsgröf. Það er tortimingarstaður, ekkert annað. Eftir gæsluvaröhald þar i viku ertu orðinn þannig aö þú getur ekki einbeitt þér við lestur á einföldu efni. • Fangar eru uíangarðsmenn, og það er i þágu þjóð- félagsins að finna stað fyrir þá. Það er engin lausn að loka þá inni. Það gæti eyðilagt nokkra menn, en það bætir eng- an . • Ég er ekki að biðja um að mér sé sýnd sérstök með- aumkun. Mér er engin vorkunn. En mér finnst eins og að verið sé að auðmýkja fanga með þvi ástandi fangelsis- mála sem hér er. Við þurfum ekki á meðaumkun að halda. Við munum standa okkur ef þjóðfélagið stendur við sitt. • Ég fæ ekki dóm fyrir þetta strok. Ég fæ hinsvegar refs- ingu. Þetta kostar mig liklega tvo mánuði i algjörri ein- angrun. Ég verð settur i sellu. Svo verð ég látinn vera á deild með geðsúkum afbrotamönnum. Ætli ég verði þar ekki i svona einn og hálfan mánuð. • En þetta er þess virði. Ég er ekki hættulegur maður. Ég sit ekki inni fyrir neina ógeðslega glæpi. Dómarnir eru fyrir eiturlyf jaþjófnað og innbrot i mannlaus hús á sinum tima. • Þaö tekur náttúrulega ekkert við annað en fangelsiö. Ég hef jafnvel i huga að þýða þar Dansk kriminalpólitik. Það er gott rit sem fjallar um betrunarhúsvist og réttindi fanga. Það er holl lesning hverjum manni.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.