Helgarpósturinn - 05.03.1982, Qupperneq 7
7
helgarpósturinn Föstudagur 5. mars 1982
Sólrisuhátíð Mí
í næstu viku
Fjölmiðlun 19
hins vegar ekkiab fylgjastmeö
þvi hvort við höfum réttar skoð-
anir eöa ekki. Við blaðamenn
hljótum að hafa jafnan rétt og
aðrir þjóðfélagsþegnar til að
hafa skoðanirog setja þærfram
undirfullu nafni.Það er iverka-
hring dómstólanna að skera
úrum það hvort við höfum gerst
brotlegir við meiðyröalöggjöf-
ina ef einhverjum þykir aö sér
sorfiö.
Ef Siðareglunefndin ætlar að
fara inn á þessa braut sé ég ekki
betur en að hdn sé aö setja sig i
hlutverk ritskoðara. Það hefur
áreiðanlega aldrei verið ætlun
stéttarinnar aö kalla yfir sig
slíkt miöaldafyrirbæri.
Það er ekki og getur aldrei
oröið hlutverk nefndarinnar að
hefta skoðanafrelsi stéttarinnar
og skammta okkur naumari
mannréttindi en aðrar stéttir
njóta. Henni kemur hreint ekk-
ert við hvort Atla Rúnari finnst
Haraldur Blöndal „óguðlega
ihaldssamur” félagi i „hags-
munasamtökum bögubósa”.
Það er stjórnarskrárbundinn
réttur Atla RUnars að halda þvi
fram og dómstólanna að ákveða
hvort það fellur undir meiðyrði.
Það er á hinn bóginn full
ástæða til að efla starfsemi
Siðareglunefndar, veita henni
aukiö frumkvæði og efna til
funda um störf hennar og
starfssviö. t áðurnefndu bréfi
Atla Rúnars greinir hann frá
starfsháttum siöareglunefndar
norska blaðamannasambands-
ins og eru þeir allrar athygli
verðir.
Samkvæmt reglum félagsins
er ég nú orðinn sekur um trún-
aðarbrot. Þaö er nefnilega
bannað að fjalla um úrskurði
Siöareglunefndar annars staðar
en i'Félagstlðindum Bí. Þetta er
eitt af þvi sem þarf að breytast.
Þaö er i hróplegu ósamræmi við
kröfur okkar blaðamanna um
opiö þjóöfélag og óheft upplýs-
ingastreymi frá yfirvöldum að
loka allar umræður um ávirö-
ingar stéttarinnar inni i nefnd
og banna alla opinbera umf jöll-
un um starf hennar. Slikt likist
engu frekar en þeim starfsað-
ferðum „læknamafiunnar” sem
blaðamenn og aðrir hafa iðu-
leea gagnrýnt. Einhver minnt-
ist á flis og bjálka i svipuðu
samhengi.
Á mánudaginn hefst hin árlega
Sólrisuhátið Menntaskólans á
isafirði, og kennir þar margra
grasa.Ekki veröur annaö sagt, en
býsna feittsé á stykkinu varðandi
hátiðina að þessu sinni, þar eð
hinar ýmsu greinar lista kveða
sér hljóðs. A músikksviöinu ber
að geta tónleika Kammersveitar
Vestfjarða svo og tónleika þeirra
Hiifar Sigurjónsdóttur fiðlu-
leikara og Sigriðar Ragnars-
dóttur pianóleikara. Pönkarar
láta heldur ekki sitt eftir liggja.
Trióið Jonee Jonee kemur alla
leið frá Reykjavik að flytja pönk-
tónverk við Djúp: þetta mun vera
glænýtt band og hljóöfæraskipan
allnýstárleg, þ.e.a.s. bassi,
trommur og söngur.
Þá er von á tveimur lista-
skáldum að sunnan, þeim Pétri
Gunnarssyni og Elisabetu Þor-
geirsdóttur, sem er Isfirðingum
að góðu kunn (eins og sagt er á
flötu fjölmiðlamáli). Ekki heíur
fengist úr þvi skorið, hvað þau
veröa með i pokahorninu, en eitt-
hvað verður það bitastætt ef að
vanda lætur.
Leiklist á sinn bás á þessari
hátið; Alþýöuleikflúsið stormar
vestur með Elskaðu mig eftir
Vitu Andersen og engu likara en
það eigi aö verða rúsinan i pylsu-
endanum.
Auðvitað verður haldinn sól-
risudansleikur og meiningin að
hann verði i Uppsölum og B.G.
sjái um stuöið, en þetta er ekki
klárt að þvi er Kristin Gests-
dóttir, form. Listafélags M.I.,
upplýsti tiðindamann Helgar-
póstsins um á mánudaginn var.
Sólrisuhátið Menntaskólans er
orðinn fasturliður i menningarlifi
Isafjarðar og er vel sótt af bæjar-
búum og merki þess að hún sé
aufúsugestur á tsafirði.
Gleðilega Sólrisuhátið.
Auglýsingasíminn er
81866
Helgarpósturinn Síðumúla 11