Helgarpósturinn - 05.03.1982, Síða 12
Heilsteikt
gratineruð
rauðspretta
Hclgarrétturinn í dag kemur
frá Úlfari Eysteinssyni, sem er
annar eigenda Pottsins og pönn-
unnar, sem sagt er frá annars
staöar i opnunni. Þetta er góm-
sætur rcttur, sem ber yfirskrift-
ina Heilsteikt gratineruð rauð-
spretta.
í réttinn þarf eftirfarandi:
Rauðsprettu
hveiti
egg
rasp
50 g. rækjur
bernaisesósa
ost
Svarta roðið er tekiö af rauö-
sprettunni. t>að er gert meö þvi
að klippa uggana af og skera i
sporðinn hv ita roösmegi n.
Sporðurinn er siöan brotinn og
svarta roöiö dregiö af fiskinum.
Best er aö hal'a stykki utan um
sporöinn, þegargripiö er i hann.
Clfar Eysteinsson kokkur og
einn af eigendum Pottsins og
pönnunnar.
Flakið er losaö frá miöju
íisksins, þannig aö hann opnast.
Þá er honum velt upp úr hveiti,
eggjum og raspi. Hann er siðan
djúpsteiktur i íeitipotti við 280-
300 gráður, þangaö til fiskurinn
byrjar að lyftast. Þá er hann
tekinn upp úr. Flökin hafa þá
opnast og ofan i geilina eru sett-
ar rækjur, sósan yíir þær og
osturinn þar ofan á. Þetta er
siöan bakaö i grilli, þar tii Ijós-
brún áferð kemur á sósuna.
Fiskurinn er siöan borinn
fram meö soönum kartöflum og
sitrónu.
Verðykkur aö góöu.
Fðstudagur 5. mars 1962 haltj^rpn^furínn
Úlfar Eysteinsson og Sigurður Sumarliðason bjóöa landanum upp á amerlskan salatbar á næstunni á
nýja staðnum þeirra.
Nýjung í íslenskum veitingahúsum:
Potturinn og pannan
með amerískan salatbar
Einn kemur þá annar fcr,
stendur einhvers staðar, og það á
við i matsölustaðabransanum um
þessar mundir. Veitingastaður-
inn Hliðarendi hætti starfsemi
sinni um nýliðin mánaðamót, og
upp úr miöjum mánuðinum tekur
til starfa nýr staður á sama stað I
Brautarholti 22.
Nýi staðurinn á að lieita
Potturinn og pannan.og eigendur
hans eru þeir úlfar Eysteinsson,
Sigurður Sum arliðason og Tómas
Tómasson I Tomma-hamborgur-
um. Ilelgarpósturinn hitti Úlfar
um daginn og var hann spurður
að þvi hvernig staöur þetta ætti
að vera.
„Þarna á aö vera staður fyrir
alla fjölskylduna”, sagöi hann.
Þar munu gestir geta valið um
rétti dagsins, sem verða mjög
fjölbreytilegir, auk þess sem
hægt verður aö velja af sérrétta-
seðlinum. Aðal staöarins veröur
hins vegar salatbar aö amerísk-
um hætti, eins og þeir gerast
bestir vestra.
„Þar verður allt það grænmeti,
sem fyrirfinnst á markaðnum,
og þaö sem notaö er i salöt. Þaö
verða milli 15 og 20 einingar, sem
fólk getur blandað saman að vild,
og salatbarinn fylgir öllum rétt-
urn hússins, nema skyndibit-
um,” sagði Úlfar, og bætti þvi viö,
aö meiningin væriað fá fólktil aö
bera viröingu fyrir salatinu. Þaö
verður díki borið fram á heitum
matardiskum, heldur á sérdisk-
um, kældum, eins og vera ber. Þá
munu gestir geta fengið tvær til
þrjár tegundir af brauði með
matnum og kemur það frá Köku-
húsinu.
Úlfar var spurður um áherslur
staðarins.
„Við leggjum áherslu á að laga
allan mat, og við viljum að viö-
skiptavinirnir hjálpi okkur við aö
gera einhverja rétti vinsæla.
Fiskréttir eru okkar áhugamál,
þvi viðviljum mána, aö hér vanti
mikið upp á að fiskur sé eldaður á
réttan hátt. Þar á ég við, að fisk á
aldrei að sjóða eða steikja þannig
aðþúsért viss um aðhann sé soö-
inn eða steiktur. Þá verður hann
of soðinn eða steiktur. ÞU verður
alltaf að vera i'vafa, þvi þá færðu
hann bestan.”
Úlfar sagði, að þeir ætluðu að
hagræða miðju gólfi staðarins og
birta hann upp með þvf að hleypa
inn dagsbirtunni. Þá verður kom-
ið upp afgreiðslulinu, þannig að
gestir taki þátt i þjónustunni á
móti starfsfólkinu. Gestir taka
þvi sinar súpur og salat, en
starfsfólkið mun færa þvi aðal-
réttinn. Þannig, sagði Úlfar, gætu
þeir boðið lægra verð. Staðurinn
mun taka 50-55 manns i sæti og
verður hann opinn daglega frá ki.
08 til 23.30.
Úlfar var að lokum spurður að
þvihvort þeirværu díkert hrædd-
iraðopna nýjan veitingastað,þar
sem þeir væru komnir upp á svo
til hverju homi i' bænum.
„Nei, alls ekki”, sagði hann.
Ef allt fer eftir áætlun, ættu að-
dáendur ameri'ska salatbarsins
ekki að þurfa að biða nema riíma
viku eftir aö fá slikt lostæti hér-
lendis.
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri Reykjavik
TRYGGVABRAUT 14 SKEIFAN 9
S. 21715 23515 S. 31615 86915
Mesta úrvalið. besta þjónustan.
Við útvegum yður atslátt
á bilaleigubilum erlendis.
Borfta-
pantanú
Sími 86220
Veltingahúslö í
GLÆSIBÆ
Kappátið heldur áfram:
Átvöglin
fílefld til
tslendingar hafa löngum þótt
iþróttamenn góðir og ekki verið
að binda sig við neina rina tegund
iþrótta. Þessa dagana stendur
vfir hörkuspennandi keppni I
nokkuð óvenjulegri iþróttagrein,
ef hægt er að komast þannig að
oröi, nefnilega kappáti. Það er
Sunddeild Ármanns.sem stendur
fyrirhenniog fer keppnin fram á
veitingastaðnum Góðborgaran-
um við Hagamel.
Keppendur i þessari nýstárlegu
iþróttagrein veröa að sporðrenna
þrem góðborgurum, einum
skammti af frönskum kartöflum
og einu glasi af kók á sem
skemmstum tima. Til mikils er
að vinna, þvl glæsileg verðlaun
eru i boði. Aðalvinningurinn er
Suzuki bifreið, en auk þess er
fjöldi annarra vinninga, svo sem
sterpógræjur og margt fleira.
Keppnin hófst á sunnudaginn
var og þegar þetta er skrifað,
hefur hún fariö tvisvar fram, en
henni lýkur 28. mars. Eftir tvö
skipti höföu um fjöruti'u manns
reynt sig I átinu, og að sögn Birgis
Viöars Halldórssonar veitinga-
manns i Góðborgaranum, var
besti tfminn rétt tæpar þrjár
mæta
leiks
minútur. Næsti maður var hálfri
minútu á eftir og þriðji maður tiu
sekúndum á eftir honum.
Birgir Viðar sagði, að þeir
fremstu ætluðu allir að keppa
aftur, og menn væru farnir að æfa
sig sti'ft, kæmu og keyptu einn
keppnisskammt og færu meö
hann heim til sin. Sagði hann, að
það hefði myndast mikil spenna i
kringum keppnina, mikið væri
talaö um hana á vinnustööum og
væri verið aö etja helstu átvögl-
um út í keppni. Til væru þeir
menn, sem ætluðu meira að segja
að fjármagna átvöglin.
Einsog áður segir, er það sund-
deild Armanns, sem staidur fyrir
herlegheitunum til fjármögn-
unar fyrir deildina, og aðspurður
taldi Birgir Viðar það alls ekki ó-
eölilegt, að iþróttafélag stæði
fyrir sliku áti.
Þeirsem hafa áhuga á að verða
bumbu og bi'l rikari, ættu að skrá
sig til keppni hjá aðstandendum
mótsins. En munið það krakkar
minir, að kappát er best með for-
sjá. Betra er að missa af bil, en
missa heilsuna.
Verðykkur aðði. Góða skemmt-
un.
Þetta er skammturinn, sem Sunddeild Armanns og Góðborgarinn
bjóöa upp á i kappátinu. Girnilegt, finnst ykkur ekki?
t