Helgarpósturinn - 16.04.1982, Síða 12

Helgarpósturinn - 16.04.1982, Síða 12
12 MAÐURiNN Á BAK VIÐ NAFNIÐ: Andrés Indriðason „Hef alla tíð verið með mörg verk í takinu” Fræösluraö Reykjavlkur veitti nýlega Andrési Indriöasyni verö- laun fyrir bestu frumsömdu ís- lensku barnabók ársins 1981, og á svipuöum tima fékkhann styrk úr kvikmyndasjóöi til aö skrifa kvik- myndahandrit. Andrés er fyrst og fremst þekktur fyrir störf sin hjá sjónvarpinu en á siðustu árum hefur hann verið aö hasla sér völl sem rithöfundur, og er þess skemmst að minnast, að fyrsta skáldsagan, sem hann sendi frá sér, Lyklabarn, fékk einnig verö- laun i barnabókasamkeppni Máls og menningar áriö 1979. Okkur lék þvi forvitni á aö vita meira um manninn og er hann þvi maö- urinn á bak viö nafniö þessa vik- una. „Ég er Reykvikingur i húð og hár, fæddur i Ljónsmerkinu 1941 sagði Andrés, þegar hann var spurður um uppruna sinn.og i Reykjavik hefur hann búið alla sina tið. Eftir heföbundna skyldunáms- skólagöngu settist hann I Mennta- skdlann i Reykjavík og lauk það- an stúdentsprófi. A menntaskóla- árunum vaknaði áhugi hans á leiklist og hefur hann haldist alveg síöan, og tók Andrés m.a. mikinn þátt i Herranótt mennta- skólans. Aö loknu stúdentsprófi var hann með annan fótinn i enskudeild Háskólans og starfaði um skeið sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Einnig starfaði hann sem gagnfræðaskólakenn- ari. „Ég réðstsiðan til sjónvarpsins i september 1965 og var þá um veturirm ÍDanmörku til að kynna mér upptökustjórn. Ég hef svo starfað við sjónvarpið frá upp- hafi”. — Nú hefur þú skrifað tvær bækur og báðar hafa þær fengið verðlaun, hvernig tilfinning er það? „Það er mjög notaleg tilfinning og uppörvandi. Það fyrsta sem kom frá minni hendi var bama- leikrit, sem hét Köttur úti i mýri, og var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1974. Siðan hef ég skrifað þessar tvær bækur, leikrit fyrir Leikfé- lag Kópavogs, Aldrei er friður, handritið að kvikmyndinni Veiði- feröin auk útvarpsleikrita. Ég er meö barnabók i smiðum og hef lika skrifað bók fyrir fullorðið fólk, sem kemur út á þessu ári.” — Þú hefur eingöngu skrifað fyrir börn fram að þessu, hvers vegna? „Mér þykir gaman að börnum og finnst gaman að lifa mig inn i þeirra hugarheim. Ég reyni að skoða hlutina frá sjónarhóli barn- anna og skrifa bækurnar þannig, aö þær höfði bæði til barna og full- orðinna. Þær gerast i þeim veru- leika, sem við þekkjum. Persón- urnar eru engar súperhetjur, heldur óskqp venjuleg börn sem lesendur þekkja sjálfa sig vænt- anlega i”. Aðspurður um þær bækur, sem hann er með i takinu, sagði Andrés, að barnabókin fjallaði um strák á fermingaraldri, sem verður yfir sig ástfanginn af skólasystur sinni. Hin bókin, sem ber heitið Maður dagsins gerist i Reykjavik og tengist efnið iþrótt- um og auglýsingamennsku. Andrés er maður i fullri vinnu og vel það, og var hann því spurð- ur hvernig hann hefði tima til að sinna skriftunum. „Þaðer svo merkilegt með það að eftir þvi sem maður hefur meira að gera, þeim mun meiri orku hefur maður til að sinna skriftunum. Ég hef alla tið verið með mörg verk i takinu á sama tima, sem er nokkuð sem ég hef vanið mig á siðan ég byrjaði að vinna hjá sjónvarpinu. Við þurf- um að vera með margar skúffur i kollinum og sinna mörgum verk- um i einu.” Handritið sem kvikmyndasjóð- ur styrkti Andrés til að skrifa hef- ur vinnuheitiö Lára. Er það saga úr samtimanum og fjallar um tvær listakonur. önnur þeirra er ballettdansari og hin tónlistar- maöur. Sagan gerist á einu sumri Þessar föngulegu stúlkur eru frænkur okkar frá Danmörku. Þær eru I sýningarhóp, sem kallar sig Silfurrósina.og á dögunum sýndu þær undirfatnaö, ef fatnaö skyldi kalla,á nokkrum öldurhúsum bæjar- ins, gestum til óblandinnar ánægju. Enda eru þær þekkilegar mjög. Veitingahúslö í GLÆSIBÆ interRent car rental Bílaleiga Akureyrar Akureyri Reykjavik TRYGGVABRAUT 14 SKEIFAN 9 S. 21715 23515 S. 31615 86915 Mesta úrvalið, besta þjónustan. Við útvegum yður afslátt á bilaleigubilum erlendis. Galdrakarlar leika fyrir dansi Diskótek Föstudagur 16. apríl 1982 —helgarpósturinn_ Andrés Indriöason viö vinnu slna niöri i Sjónvarpi. áður en þær fara utan til fram- haldsnáms og verður sumar þetta mjög afdrifarikt og þó sérstak- lega fyrir aöra þeirra.Láru. Andrés sagðist ekki vita hvort hann myndi gera myndina sjálf- ur, eða hvort aðrir sæju alfarið um það. Þaðyrðibara að koma á daginn. Andrés var að lokum spurður hvort maður með svona mikið umfangs hefði nokkrar tómstund- ir. „Þær gefast, og þá reyni ég að vera sem mest með börnunum”, sagði hann. Andrés er kvæntur Valgerði Ingimarsdóttur og eiga þau tvær dætur, Ester 9 ára og Astu 6 ára. Garðasport fyrir Garðbæinga Tveir ungir forystumenn i iþróttalifi Garðbæinga hafa ráðist I opnun nýrrar sportvöru- verslunar i Garðabæ. Versiunina nefna þeir Garðasport og er hún staðsett i' Iönbúð 4, en það er I iðnaðarhverfi þeirra Garðbæ- inga. Eigendur verslunarinnar eru velþekktir af fþróttaáhuga- mönnum i Garðabæ. Þeir eru Gunnar Einarsson sem þjálfað hefur og leikið handbolta með meistaraflokki Stjörnunnar I Garðabæ s.l. tvo vetur og náð þeim glæsilega árangri að koma liöinu úr þriðju deild og upp i þá fyrstu á þessum stutta tima. Gunnar starfar sem æskulýðsfull- trúi I Garðabæ. Hinn eigandinn, sem mun sjá um rekstur verslunarinnar að mestu leyti,er heldur ekki ókunnur hand- boltanum i Garðabæ, þvi sá heitir Guðmundur Jdnsson og er for- maður handknattleiksdeildar Stjörnunnar. Garöasport opnar i dag, en þar verður á boðstólum fiestallt það sem íþróttamenn vanhagar um, sama h v aða iþótt um er að ræða. Verða þeir Guðmundur og Gunnar með vörur frá Adidas og Henson og sundáhöld frá Speedo. Þá verða garðáhöld seld i Garða- sport, svo og leikföng frá Play- mobil. Einnig verður boðið upp á allan búnað til útilegu og skiða- iðkana. 1 Garöabæ hefur ekki verið til staðar nein versiun á þessari linunni og aðspurðir sögðust þeir Guðmundur Jónsson og Gunnar Einarsson vonast til þess að Garðbæingar kynnu að meta þessa þjónustu og sækja þá heim i Garðasport. „Leitið ekki iangt yfir skammt”, segja þeir félagar við Garðbæinga, semvilja stunda útivist og Iþróttir. Og það er ekki að efa, að Garðbæingar — Iþróttaáhugamenn miklir — fari eftir þessum tilmælum þeirra fé- laga og kiki við hjá þeim Garða- sportsmönnum á næstunni. Þeir eru þekktir úr handboltanum i Garðabæ, eigendur Garða- sports, Gunnar Einarsson og Guömundur Jónsson.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.