Helgarpósturinn - 16.04.1982, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 16.04.1982, Blaðsíða 28
- I Föstudagur 16. apríl 1982 he/garpásturinn Trabant ekkert stöðutákn he/dur hei/brigð skynsemi INGVAR HELGASON VONARLAND v/SOGAVEG — SÍMI 33560 • Einhverju blómlegasta út- gáfufyrirtæki landsins, bókafor- laginu Iðunni.hefur nú bæst liös- auki á toppnum. Jóhann Páll Valdimarsson framkvæmdastjóri sem setið hefur þar á miklum uppgangstimum hefur nú fengið sér við hlið Jón Karlsson, sem starfaði hjá forlaginu fyrir all- mörgum árum og verða þvi fram- kvæmdstjórarnir tveir hér eftir.... • Úr bókabransanum er það einnig að frétta að upp er sprottið nýtt forlag, Fjölnir h.f.sem aug- sýnilega ætlar sér stóran hlut á þéttsetnum bókamarkaði. Þannig heyrir Helgarpósturinn að Fjöln- ir, sem nokkrir ungir menn standa að, sé þegar búinn að ákveða sex útgáfubækur fyrir næstu jólavertið, og likur bendi til að þeim fjölgi i átta eða jafnvel tiu. Eru þetta bækur af ýmsu tagi, þ.ám. ný islensk skáldsaga, tvær samtalsbækur ogþýddar bækur... • Og enn úr bókmenntaheim- inum. Nú mun vera frá gengið hvaða islenskar bækur siðasta árs verða fulltrúar okkar i keppn- inni um bókmenntaverölaun Norðurlandaráðs. Það eru eftir þvi sem við höfum sannfrétt, ljóðabók Matthiasar Jóhannessen Tveggja bakka veður og ævi- minningar Guðmundu Elias- dóttur, Lifsjátning, sem Ingólfur Margeirsson skráði. • Einhver kurr mun nú vera meðal popptónlistarmanna sem fram komu á stjömumessu Dag- blaðsins og Visis um daginn. Útgáfufyrirtæki DV. Frjáls fjöl- miðlun sem einnig á nú Vidósón lét taka messuna upp á mynd- band og sýndi i kerfum Vidósón um páskana. Einhver áhöld munu um hvort hafi verið gengið frá samningum við alla aðila vegna þessarar sýningar en viðræður standa yfir þaraðlútandi.... • I siðasta Helgarpósti var greint frá þvi að innan veggja Al- þingis gengi sá orðrómur að Eirikur Tómasson lögfræðingur tengdist kaupunum á togaranum umdeilda Einari Benediktssyni og hefði verið hinn raunverulegi milligöngumaður um þau. Að þessu gefna tilefni er rétt að fram komi, að við frekari athugun Helgarpóstsins á þessu máli i blaöinu i dag hefur ekkert komið fram sem tengir hann málinu á einn eða annan hátt og Eirikur hefureinnig i samtali við Helgar- póstinn staðhæft að hann hafi engin afskipti haft af þessum skipakaupum. Orðrómur þessi viröist þvi úr lausu lofti gripinn, likt og fleira sem skrafað er i bak- sölum þingsins.... • Eftir að bankarnir létu af þeim sið að hætta að láta afsegja vixla,minnkuðu tekjur fógetaem- bættanna þvi að embættin lögðu til votta við undirskrift afsagn- anna sem aftur höfðu af þvi dálitlar tekjur, er látnar voru renna i ferðasjóði embættanna. Nýlega gerðu svo sum embættin rnikla rassiu i þvi að gera lögtök vegna vangreiddra fyrirfram- greiðslu skatta en þegar fróðir menn fóru að leita skýringa á þessú skyndilega kappi, þóttust menn sjá um að nú ætti að bæta ferðasjóðunum upp tekjumissinn. Varð þá til þessi visa i stórum kaupstað norðan heiða: Hún á erfitt þessi þjóö, þörf er heitra bæna, þegar fé i ferðasjóð fógetarnir ræna. • Þegar upp kom orðrómur i bænum um páskana að einhver starfsmaður Eimskips sæti nú inni vegna rannsóknar á fjár- drætti, flaug sú fiskisaga viða. Þótti það heldur ekki einleikið að morgni sl. þriðjudags, hversu margir af skrifstofuhöldurum Eimskips voru á ferli um götur miðbæjarins og tóku kunningja tali á götuhornum. Þegar Dag- í blaðið hins vegar kom á göturnar, skýrðust málin og Eimskipa- S félagsmenn hurfu af götunum.... • Skáksamband Islands þingar á næstunni og eins og flestir muna hafa þessi þing verið all söguleg amk. hin siðari ár. Svo getur einnig orðið nú. Fyrir mun liggja að dr Ingimar Jónsson forseti Skáksambandsins, ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs. Vegna þeirra væringja og flokka- drátta sem orðið hafa innan sam- bandsins undanfarin ár út af forsetakjöri, þá þykir nokkuð ljóst að ekki muni verða eining um varaformann sambandsins Þorstein Þorsteinsson sem eftirmann dr. Ingimars. Þess vegna mun nú helst rætt um þrjá menn i forsetaembættið sem eininggeti orðið um Pétur Eiriks- son i Alafossi, Björn Theódorsson hjá Flugleiðum og Halidór Blöndal alþingismann.... • Mönnum þykir völlur á Kristni Finnbogasyni þessa dag- ana. Hann keypti hús Ililmars Helgasonar á Kjalarnesi og borgaði þar út milljón króna og nú er hann kominn á fulla ferö með að undirbúa útgáfu nýs sið- degisblaðs. Hann mun þegar hafa með sér ýmsa fjársterka flokks- bræður sina og hefur nú rætt við háttsetta menn i Alþýðubanda- laginu um þátttöku i fyrirtækinu. Hugmyndin að blaðinu er svipuð og var þegar siðdegisblað krat- anna var á dagskrá þ.e. að félags- hyggjumenn sameinist um veg- legt siðdegisblað sem geti myndað mótvægi gegn DV á sið- degismarkaðinum, en þeir DV- menn eru sagðir mjög borubrattir um þessar mundir og fullyrða að blaðið þeirra sé farið að nálgast 40 þúsund eintök. En þá má ekki gleymast aö siðdegisblaða- markaðurinn hefur alltaf farið nokkuð frjálslega með upplags- tölur.... • Ritstjóraskipti eru sögð i vændum á Sjómannablaðinu Vík- ingi Þar hefur nú i nokkur ár ráðið rikjum Guðbrandur Gisla- sonen hann er nú hættur og blaðið að svipast um eftir nýjum rit- stjóra. Er einkum rætt um Gissur Sigurðsson (bróður Óla Sig. á sjónvarpinu) sem næsta ritstjóra en hann þykir einhver mesti sér- fræðingur i blaðamannastétt i þessum málaflokki, sjávarútveg- inum.... 0 Elektra þeirra Arnarflugs- manna.sem mestuppistandhefur orðið út af, er nú úti i Noregi og sögð standa á Oslóflugvelli. Heimildum ber hins vegar ekki saman hvort þeir Arnarflugs- menn séu þar með hana i klössun eða hvort þeir vilji einfaldlega koma i veg fyrir að hún sé til sýnis hér á Reykjavikurflugvelli, I þvi að eitthvað mun djúpt á verk- j efni handa henni.... ® Það verða ekki allir vellrikir af rekstri skemmtistaöa, enda þótt þeir virðist rjúka upp hér i Reykjavik eins og gorkúlur. Eins og kunniigt er hafa nú eigendur skemmtistaðarins Manhattan, i Kópavoginum gefist upp á streð- inu og selt staðinn i hendur Baldurs Brjánssonar töframanns og Magnúsar Kristjánssonarsem hefur verið skemmtanastjóri i Hollywood Þeir hyggjast opna undir nýju nafni — Paradis. Eigendur Manhattan sáluga lögðu allt sitt undir, þegar þeir hófu reksturinn og treystu á að Manhattan malaði gull. Svo fór þó ekki og nú verða þeir að selja. Hætt er þó viö, að eigendur Man- hattan komi ekki alveg út á sléttu úr þessu ævintýri öllu, þvi áreiðanlegar heimildir herma, að kaupendur hafi aðeins tekiö á sig áhvilandi skuldir á Manhattan, en ekki þurft aðgreiða krónu til fyrri eigenda. Ahvilandi skuldir munu vera talsverðar, en ljóst er að beint tap hinna ungu manna, sem hófu rekstur Manhattan skiptir hundruðum ef ekki milljónum króna.... 9 Það bendir margt til þess að Sólnesraunir ihaldsmanna ái Akureyri séu nú aðeins rétt að hefjast. Areiðanlegar heimildir herma nefnilega að gamli maður- inn hyggist gefa kost á sér i hugsanlegu prófkjöri vegna Alþingiskosninga komi til þeirra \ á komandi hausti, þó ekki sé nema til að ná sér niðri á „Brútusi”, — Halldóri Blöndal, og eitt er vist að fldcksapparatið mun eiga i miklum vandræöum meö að hafna prófkjöri i þettta sinn eftir þá eindregnu viljayfir- lýsingu sem fram kom i opnu prófkjöri flokksins til bæjar- stjórnar. Annars hefur Sólnes að sögn látið I veðri vaka að hann muni ekki sitja I bæjarstjórn nema nokkra mánuði eftir kosningar, og vikja þá fyrir kvenframbjóðanda listans sem reyndar er engin önnur en tengdadóttir hans sjálfs Margrét Kristinsdóttir, og mun hann jafn- vel hafa boðist til að vikja Ur þriðja sæti framboðslistans fyrir Margréti... Þingmenn Þar sem sumarið er að fara i hönd og ef tir erfiða og stranga þingsetu í vetur, gefum við ykkur kost á að koma hjólum ykkar i lag fyrir sumarið gegn sanngjörnu veröi. Gerum við Kalkhoff — SCO — Winther — Peugeot — Everton og öllönnurhjól. Fullkomin tækja- og varahluta- þjónusta. Sérhæfing ifjölglrahjólum., Opið alla daga frá kl. 8—18, laugar- daga kl. 9—1. Hjólatækni Vitastig 5. Simi 16900 það boraar úg aðnota PLASTPOKA P Plastprent hf. HÖFÐABAKKA9 SÍMI85600

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.