Helgarpósturinn - 04.02.1983, Page 3

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Page 3
trínn Wstudagur 4. febrúar 1983 3 _fie/gai— — pústurinn Blaö um þjóömál, listir og menn- ingarmál. Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfulltrúi: Guöjón Arngrímsson. Biaðamenn: Guölaugur Bergmundsson, Óm- ar Valdimarsson, Þorgrímur Gestsson Útlit: Kristinn G. Haröarson. Ljósmyndir: Jim Smart. Dálkahöfundar: Hringborð: Auöur Haralds, Birgir Sigurös- son, Heimir Páisson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Jónas Jónasson, Magnea J. Matthíasdóttir, Pétur Gunnarsson, Sigríöur Halldórs- dóttir, Sigurður A. Magnússon. Listapóstur: Heimir Pálsson, GunnlaugurÁst- geirsson, Sigurður Svavarsson (bókmenntir & leiklistir), Sigurður Pálsson (leiklist), Sigurður Páls- son (leiklist), Árni Björnsson (tón- list), Sólrún B. Jensdóttir (bók- menntir & sagnfræði), Guðberg- ur Bergsson (myndlist), Gunn- laugur Sigfússon (popptónlist), Vernharður Linnet (jazz), Árni Þórarinsson, Björn Vignir Sigur- pálsson, Guðjón Arngrímsson, Guðlaugur Bergmundsson, Jón Axel Egilsson (kvikmyndir). Utanlandspóstar: Erla Sigurðardóttir, Danmörku, Adolf H. Emilsson, Svíþjóð, Inga Dóra Björnsdóttir, Bandaríkjun- um, Helgi Skúli Kjartansson, Bretlandi, Ólafur Engilbertsson, Spáni. Erlend málefni: Magnús Torfi Ólafsson. Skák: Guðmundur Arnlaugsson. Spil: 'Friðrik Dungal. Matargerðarlist: Jóhanna Sveinsdóttir. Stuðarinn: Jóhanna Þórhallsdóttir. Utanlandspóstar: Erla Sigurðardóttir, Danmörku,' Inga Dóra Björnsdóttir, Banda- ríkjunum, Helgi Skúli Kjartans- son, Bretlandi. Útgefandi: Vitaðsgjafi hf. Framkvæmdastjóri: Bjarni P. Magnússon. Auglýsingar: Inga Birna Gunn- arsdóttir. Innheimta: Guðmundur Jó- hannesson. Dreifing: Sigurður Steinarsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Lausasöluverð kr. 20 Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík. Sími: 81866. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 38. Símar 81866 og 81741. Prentun: Blaðaprent hf. Burt með bönnin Svokallaðar ofbeldiskvikmyndir hafa mjög verið í brennideplinum að undanförnu eftir að uppvíst varð, að slíkar myndir eru á boð- stólum á íslenskum myndbanda- markaði handa hverjum er hafa vill, börnum sem fullorðnum. Þeir, sem hafa fjallað um þessi mál á op- inberum vettvangi hafa réttilega lýst yfir áhyggjum sínum vegna sí- aukins fjölda þessara mynda, þar sem erlendar rannsóknir sýna, að þær geta haft miður holl áhrif á börn. Hliðstæð umræða hefur farið fram á öðrum Norðurlöndum og hafa sum þeirra nú þegar ákvæði í lögum sínum, sem banna slíkar kvikmyndir. íslensk lög hafa hingað til ein- ungis heimilað algjört bann á „klámmyndum“, sem svo eru kall- aðar, en aðeins hefur mátt banna grófar ofbeldisk vikmyndir börnum yngri en 16 ára. Nú stendur til að breyta þessu, því að fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um bann við ofbeldiskvikmyndum, þar sem segir, að kvikmyndaeftirlitinu sé heimilað að leggja hald á og banna kvikmyndir, sem falla undir skil- greiningu laganna á ofbeldiskvik- myndum, en það eru kvikmyndir, þar sem sérstaklega er sóst eftir að sýna hvers kyns misþyrmingar á möpnum og dýrum eða hrottalegar drápsaðferðir. Lögin taka hins veg- ar ekki til kvikmynda þar sem of- beldi telst eiga rétt á sér vegna upp- lýsingagildis myndarinnar eða vegna listræns gildis hennar, eins og þetta er orðað. Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti laga þessara, eins og fram kemur í grein í Helgarpóstinum í dag. Um hitt eru menn og eiga að geta verið sammála, að einhvers konar eftirlit með slíkum myndum er nauðsynlegt. Helgarpósturinn telur hins veg- ar, að lög sem heimila algjört bann á þessum myndum sé ekki rétt- lætanlegt. Bann sem þetta er skerðing á frelsi manna til að velja og hafna efni sér til skemmtunar eða annarrar notkunar, eins og við- urkennt er í athugasemdum við frumvarpið. Það er hins vegar rétt- lætt með því, að ekki sé hægt að gera ráð fyrir því, að foreidrar geti stemmt stigu við notkun barna á ofbeldiskvikmyndum, og er vísað til erlendra rannsókna. Það er álit Helgarpóstsins að þarna opinberi löggjafinn vantraust sitt á íslensk- um uppalendum, - að þeir valdi ekki þeirri ábyrgð, sem á þeim hvíl- ir og þess vegna verði að hafa vit fyrir þeim. Þessi afstaða er röng. íslensk börn, eins og önnur, hafa lengi haft aðgang að ýmsu, sem getur haft miður góð áhrif á þau. Lagasetning breytir litlu sem engu þar um, eins og dæmin sanna. Siðgæðisvitund löggjafans er í engu frábrugðin siðgæðisvitund þorra almennings, og löggjafínn verður að treysta fólki til að hafa ekki ósóma fyrir börnunum. Þarna verður að koma til hugarfarsbreyting, en slíkt verð- ur aldrei sett í lög. Helgarpósturinn er algjörlega andvígur hömlum á tjáningarfrelsi. Ofbeldi er hluti af raunveruleikanum og kynlíf er hluti af raunveruleikanum. Full- orðnu fólki á að treysta sjálfu til að velja hvort það vill horfa á kvik- myndir, heima hjá sér eða i kvik- myndahúsum, sem fjalla um þessi viðfangsefni. Og það á að fá að meta sjálft hvort umfjöllun við- komandi verka flokkast undir list eða ekki. Slíkt er ævinlega smekks- atriði, - og reyndar algjört aukaat- riði þegar prinsippið um frelsi er annars vegar. Jafnframt telur Helgarpósturinn fráleitt að setja einni listgrein - kvikmyndinni - harðari reglur en öðrum listgrein- um. Hvað um bækur, myndlist, leiklist? Bönn í þessum efnum leysa engan vanda. Þau skapa annan - og margþættari-t.d. aukinn „svartan markað“. í stað þess að setja lög sem banna ofbeldismyndir, ætti að afnema þau lög sem fyrir liggja og banna opinskáa tjáningu og túlkun kynlífs í kvikmyndum. Slíkt frelsi er þegar fyrir hendi í t.d. bók- menntum og myndlist. Nýjasta list- greinin, kvikmyndin, á ekki að sæta mestu afturhaldsreglunum. Staðlausir stafir Óvíða á byggðu bóli pukrast fólk í jafn miklu myrkri og við. Fiestar þjóðir virðast hafa komist að hinu sanna um árstíða- bundinn sólargang og dregið sínar ályktanir: flýtt klukkunni á vorin og seinkað í vetrarbyrjun. Með því að taka upp árs- tíðabundna klukku gætum við stytt morgunverkin um eina klukkustund. Grunn- lífshækkun sem dreifðist^ jafnt yfir alla væri ekki verðbólguhvetj andi. Eiginlega var ég að von- ast til að sjá í nýju stjórn- hrinoboróió í dag skrifar Pótur Gunnarsson arskránni ákvæði um út- göngubann fyrir kl. 10 á hávetrarmorgnum. Eða sérstaka grein þar sem kveðið væri á um að eng- um væri heimilt að byrja vinnu fyrr en hann hefði flautað lagstúf og/eða stig- ið dansspor. Ætli það sé á móti inngróinni hetjuhug- sjón landans að laga sig að aðstæðum? „Aldrei að víkja“ sögðu Ungmenna- félagsmenn. Útlagapíslar- vættið. Útlagi má aldrei sættast við umhverfi sitt. Landið sjálft hefur neytt upp á okkur hitaveitu og rafmagni og farið langt með að týna fyrir okkur glæpnum. Við hugsum með hryllingi til þess ef heita vatnið væri látið renna undir gangstéttar og bílastæði, jafnvel götur og hægt að ganga um borgina á inniskóm allan ársins hring. Stundum þegar allt er í hassi gríp ég mig í að ein- blína á eitthvað sem var út- ópía fyrir svo sem öld en liggur á glámbekk í nútím- anum. Eg fikta í slökkvar- anum og beljandi stórfljót breytist í rafstraum sem á sekúndubroti kveikir á hundrað kertum. Sjálfur sólkóngurinn hefði öfund- að mig af klósettinu. Ég skrúfa frá krananum og stilli mig inn á tímabil þeg- ar vatnsbuna heim í hús var útópía. Þegar ég skríð ofan í baðkarið fölnar samanlagður lúxus heils keisaradæmis. Synfóníu- hljómsveit þrumar inn í stofu. Á eftir ætla ég að setja brauð í ristina. Eg er lukkunnar pamfíll, hugsa ég og horfi út í morgun- myrkrið. A'etta flokkast undir upp- stoppaðan útópisma og má finna í 1. gr. stjórnarskrár- draganna sem nú eru til umræðu, en þar er þjóðinni lofað lýðræði, þingræði og jafnrétti. Fyrir 150 árum hefðu svona yfirlýsingu fylgt blóðsúthellingar eins og gjörvalla 19. öld þegar múgurinn reyndi ítrekað að knýja kónga, kjörfursta og keisara til að skrifa undir plögg um að alþýða manna nyti kosningarétt- ar, málfrelsis, samtaka- leyfis og menntunar. Blek- ið var sjaldan þornað á undirskriftinni þegar gagnbyltingin kom æðandi eins og strokleður og byrj- aði að viska út það sem áður hafði verið sam- þykkt: uppfræðslan var aftur fengin kirkjunni, samtök bönnuð, málfrelsi afnumið og kosningaréttur bundinn fjárhag. F átt bendir til að almenn- ingur ætli að hlaða götu- vígi út af þeirri stjórnar- skrá sem nú bíður sam- þykkis. Helst að einhverj- ar hræringar eru út af jöfn- un kosningaréttar sem ku vera ætlað að létta lands- byggðarómegðinni af Stór-Reyk j avíkursvæð- inu. Ég hef aldrei fyllilega skilið þetta píslarvætti. Er átt við að fólk úti á landi hafi betri aðgang að skól- um, sjúkrahúsum og þjón- ustumiðstöðvum? Hvað þarf dreifbýlisfjölskylda að kosta miklu til mennta- skólagöngu barns í saman- burði við höfuðborgarfjöl- skyldu? Sumir telja að jafnrétti fáist með því að fjölga þingmönnum. Mér sýnist jafnvel brýnna að koma á þokkalegum sam- göngum. í stað þess að vegavinnuflokkar og vind- urinn séu að bera ofan- íburðinn til og frá, mætti hræra þetta mak í eitt skipti fyrir öll og gera var- anlegan veg með tilheyr- andi gjaldeyrissparnaði í hljóðkútum, glerluktum og ökutækjaendingu. Steypti vegurinn stakk Sunnlendingum í samband við þá staðreynd að þeir búa á lófastórum bletti þar sem allt er í hámarks klukkustundar seilingu. Island er orkueyja mitt í auðugustu fiskimiðum heims. Hvernig geta íbú- arnir nýtt sér það til að lifa eftir eigin höfði? í 79. gr. stjórnarskrárdraganna segir: „Auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar iögsögu eru þjóðareign“. Mín útópía er um mann- laus veiðitæki sem væri stýrt úr landi á útmæld fiskimið og aftur heim með afla sem mannshendi kæmi ekki nálægt. Tvær klukustundir væru hámark þess sem hægt væri að bjóða manni að gera sér þvert um geð. Launþegar og atvinnurekendur myndu deyja út eða skjóta upp kollinum í frítíman- um. Hvert sem litið væri sæjust skokkarar hlaup- andi í leiðslu og risin væru upp ný allsherjartrúar- brögð í landinu í trássi við 59. gr. stjórnarskrárinnar sem segir að Lúterstrú sé þjóðtrú landsmanna. Lífið væri hér og nú og þess virði að vera lifað.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.