Helgarpósturinn - 04.02.1983, Side 4

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Side 4
4 <r / & y V \ V % ÍHann er einn ríkasti athafna- | maður landsins Fáir hafa heyrt hans getið En hverer Pállí Polaris og sagan bak við umsvif hans? Föstudagur 4, febrúar 1983 irinn O* Á skrifstofunni undir súðinni Austurvall- armegin er stjórnað umfangsmiklum við- skiptum í nafni hlutafélagsins Polaris. Eigendur þesseru Páll G. Jónsson, eiginkona hans og móðir. Polaris rekur gosdrykkja- og ölverksmiðjur Sanitas og Sana (á Akureyri), umboð fyrir Pan American flugfélagið og ferðaskrifstofu í tengslum við umboðið, um- fangsmikla innflutnings- og heildverslun og hefur jafnframt komið nærri útflutningi á lag- meti og sjávarafurðum. Forstjórinn hefur í rúman áratug haft eina gjöfulustu laxveiðiá landsins, Laxá í Kjós, á leigu ásamt vini sín- um í Keflavík, Jóni Jónssyni verktaka, og þeir leigt ána mestmegnis útlendingum. I tengslum við laxveiðar útlendinga þarf jafn- an að reka nokkurn veitingarekstur. Polaris á á annan tug íbúða í Reykjavík, eitthvað á fyrsta tuginn á Akureyri, dýrt skrifstofuhús- næði fyrir Pan Am í Bankastræti 8 og nær 5000 fermetra skemmu á Ártúnshöfða. Skemman er auð - og til sölu. Þá eru ótaldar ýmsar eignir, sem ekki blasa við þeim, er skyggnast inn fyrir gættina á veldi Polaris. „Hugur minn hefur alltaf hneigst til við- skipta“, segir Páll í Polaris. „Það hefur aldrei verið neitt markmið hjá mér að verða ríkur. Ef ég hef haft eitthvert markmið, þá hefur það verið að liggja ekki í leti. Ég var í ein tíu ár á spenanum, ríkisstarfsmaður á Keflavík- urflugvelli, og vann þá vaktavinnu - stundum fjórar sextán tíma vaktir og svo fjörurra til átta daga frí inn á milli. Þá vann ég yfirleitt alltaf fulla vinnu með, í fiski eða einhverju öðru, sem til féll. Nei, málið er ekki að eiga meira eða minna af peningum. Ég vil gjarnan halda þeim viðfangsefnum gangandi, sem ég hef tekið að mér“. Allsherjar þjóðnýting - Þannig að það er ekki auðurinn, sem heldur þér í viðskiptum? „Nei. Maður hoppar ekki inn í þessa hluti eða út úr þeim eins og að súpa úr vatnsglasi. Mínu starfi fylgir geysileg ábyrgð- ....Skynsamlegast væri auðvitað að selja allt sitt og koma sér aftur á spenann. En ég er nú einu sinni þannig gerður, að ég vil ekki sjá allt mitt fara í rúst - ég vil gjarnan sjá fyrir endann á því verkefni, sem ég hef tekið að mér. En þetta er afskaplega erfiður rekstur, til dæmis þessi iðnaður, sem við erum í núna. Verð er skammtað hér á öllum sviðum. Tökum bara sem dæmi vörugjaldið, sem var skellt á um ein áramótin. Þrjátíu prósent. Þetta átti ekki að vera neitt mál, bara svolítil auka innheimta fyrir ríkissjóð. Og þetta var gert með einu pennastriki hér handan við völlinn. Ég sé ekki betur en að þetta sé liður í allsherjar þjóðnýtingu á svona starfsemi, því verðlag fær ekki að hækka eðlilega á sama tíma. Eg skal segir þér: það eru ekki nema bjánar, sem standa í þessum rekstri. Eins og ég“. - Ekki getur þetta verið allt slæmt - tals- vert virðist hafa orðið afgangs þrátt fyrir allt. „Ég er svosem ekki að kvarta fyrir sjálfan mig. En kerfið er kolvitlaust. Öllum rekstri er gert mjög erfitt fyrir. Við erum til dæmis að bisa við að reka Sana þarna norður á Ak- ureyri og höfum verið að byggja það fyrirtæki upp. Hvað eftir annað höfum við sótt um lán úr byggingasjóði, enda veitir víst ekki af að ' efla atvinnurekstur í þeim landshluta. Því hefur ekkert verið ansað“. - Það er ekkert mjög langt síðan birtist í blaði klausa um nokkuð ævintýralega inn- göngu þína í Sana og Sanitas.... „Já, það var mestmegnis kjaftæði. Ég nenni náttúrlega ekki að vera að eltast við allt, sem sagt er. Ég gerði þá líklega ekki mikið annað. En það er ekkert leyndarmál, hvernig það æxlaðist, að Polaris yfirtók rekst- ur Sana og Sanitas. Þannig var að ég rak ásamt Baldri Þórissyni fyrirtæki, sem hét Ö1 og gos. Við höfðum m.a. með höndum dreif- ingu á framleiðslu Sana á Akureyri. Það gekk ágætlega - að minnsta kosti svo vel, að verk- smiðjan fór loks að skila hagnaði. Ö1 og gos eignaðist síðan hlut í Sana. Við Baldur rákum líka Rydenskaffi en skildum svo að skiptum Einn af ríkustu mönnum íslands og mestu viðskiptajöfrum siturjafnan á lítilli skrifstofu áþriðju hœð íAusturstrœti 8. Veggirnir eru klœddir með svokölluðum ,Játœkravið“, gólfteppið er gamalt og þunnt, öskubakkar eru ekki úr silfri eða krystal heldur með auglýsingum frá Eimskip og sígarettufyrirtœkjum. Þessi skrifstofa er áð mestu undir súð. Glugginn snýr að Austurvelli- Alþingishúsið og HótelBorg blasa við. Iþeim húsum láta menn gjarnan eins og þeir séu afar mikilvœgir og sem hvert orð er fellur af vörum þeirra skipti höfuðmáli fyrir land og þjóð. Slíkt snakk fellur Páli í Polaris- Páli G. Jónssyni forstjóra -ekki í geð.Hann vill heldur vinna. Þegar komið er upp stigann, sem trúlega hefur verið eins í rúmlega hundrað ár, kemur gesturinn fyrst inn í sœmilega rúmgott herbergi. Þar eru tvö skrifborð nœr hulinpappírum afýmsu tagi. A stigapallinum er lítil skonsa, þar sem er hœgt að hella upp á könnuna og fá sér kaffisopa úr brúnum verkamannaföntum. Og ekki þvœlist starfslið fyrir manni - auk forstjórans vinna hjá þessu stórfyrirtœki tvœr manneskjur. Millióna

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.