Helgarpósturinn - 04.02.1983, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Blaðsíða 5
Jp&sturinn. Föstudagur 4. febrúar 1983 5 ’76 eða '11 og þá hélt hann kaffibrennslunni en ég hlutnum í Sana...“ Frelsandi engill? Þegar þetta var, samkvæmt öðrum upplýs- ingum Helgarpóstsins, hafði Sana liðið tals- verðar fjárhagslegar þrengingar um hríð. Bæði var, að aldrei hafði tekist almennilega að yfirstíga byrjunarörðugleikana við að koma upp svo dýrri verksmiðju sem öl- og gosframleiðsla er, og eins var samkeppnin frá verksmiðjunum syðra þeim norðanmönnum hann leitað eftir samningum við Sanitas um dreifingu á vörum á Reykjavíkursvæðinu. „Það hentaði ágætlega fyrir þeirra starfsemi en auðvitað út í hött fyrir Sana að ætla að setja upp dreifingarkerfi hér fyrir ekki meira magn, en þá var um að ræða. En svo kom á daginn, að Sanitas gat ekki staðið í skilum við Sana. Eg stakk þá upp á, til að leysa málið, að ég kæmi inn í fyrirtækið. Það varð úr, að hlutafé Sanitas var aukið - gömlu hlutirnir voru reiknaðir upp og ég lagði til aukið fé. Síðan ætlaði ég einfaldlega að losa mig út úr þessu verklega. En dæmið gekk ekki upp. Fyrirtækið gekk einfaldlega ekki eins og það átti að gera. Á endanum taldi ég ekki blasa við nema þrjá möguleika: að leggja fyrir- tækið niður, breyta starfseminni eða fá inn Sterkur í skák - Upur í körfu Páll Jónsson hefur ekki alltaf verið viðskiptajöfur, eins og komist hefur verið að orði. Upp úr 1950 gerðist hann veðurathug- unarmaður hjá Veðurstofu íslands á Kefla- víkurflugvelli og vann þar í háloftadeild. Síðar lærði hann flugumsjón og vann hjá Loftleiðum um tíma - eða þar til ríkið yfirtók flugumsjónina og vildi ekki viðurkenna starfsaldur flugumsjónarmanna. Hann var lipur körfuknattleiksmaður og mjög iiðtækur í skák - varð Suðurnesjameistari a.m.k. tvis- búðir og efnisvörur fyrir kjötiðnaðarfyrir- tæki, teppi, filt og teppalista, JB viskí, léttvín (aðallega selt á Keflavíkurflugvelli) og fleira. Og svo flytur hann inn útlendinga til að veiðalaxí Kjósinni. Þeir JónH. Jónssonhafa í hálfan annan áratug leigt Laxá í Kjós af landeigendum og endurleigt útlendingum. Páll mun hafa verið með fyrstu mönnum til að stunda viðskipti af því tagi, eftir því sem Jón Birgir Pétursson blaðamaður hefur sagt frá í grein í Sportveiðiblaðinu. „Það var 1967-68 að upp kom sú staða að dollaraprís- inn hafði tekið stökk upp á við um ein 100% á rúmu ári. Sáu fjáraflamenn ýmsir hag í því að taka ár á leigu til að endurleigja síðan er- lendum veiðimönnum. Fyrstur til þessa mun Páll Jónsson í Polaris hafa verið“, segir í ævintýrí undir siíð alltaf þung í skauti. Það var ekki síst þeim í óhag, að Thule var alltaf dýrari en Egils pils- ner, einfaldlega vegna flutningskostnaðarins að norðan. Þá muna menn sjálfsagt eftir stríðinu milli Egils Skallagrímssonar og Sana vegna þess, að út úr verksmiðjunum slapp talsvert magn af Thule pilsner með meira áfengismagni en íslensk lög leyfa. í þessum þrengingum öllum má segja, að Páll í Polaris hafi komið til Akureyrar eins og „frelsandi engill“, eins og það var orðað. Hann bauðst nefnilega til þess að veita nýju fjármagni inn í fyrirtækið - en jafnframt gerði hann að sjálfsögðu kröfur um völd. Þannig var hann í rauninni búinn að tryggja sér Sana áður en hann var orðinn hluthafi. Síðan gerðist það, að Páll keypti öll þau hlutabréf sem voru í eigu þeirra Sólnes-feðga og Ásmundar Jóhannessonar lögfræðings á Akureyri, auk nokkurra annarra einstak- linga. Nokkrir vildu þó ekki selja hlutabréf sín og eiga þau enn, en engu að síður varð staðan þannig, að Páll í Pólaris var orðinn aðaleigandi Sana á Akureyri. Áður hafði Páll keypt hlutabréf í Sanitas, en á þessum árum var fyrirtækið farið að ganga heldur illa, og kenna menn því aðal- lega um, að þetta var fjölskyldufyrirtæki Sig- urðar heitins Waage og, eins og títt er um slík fyrirtæki hér á landi, þurftu of margir að hafa sitt lifibrauð af því. Þar að auki hafði Sanitas þá ekki nema um fimm prósent af markaðin- um. En ástæðuna má líka rekja til þess, að vélakostur verksmiðjunnar var endurnýjað- ur og árið 1978 var svo komið, að allar fjáröfl- unarleiðir voru lokaðar og Sanitas var lokað tvívegis það ár vegna vanskila. Páll Jónsson segir að eftir að hann kom inn í Sana og hafði hætt rekstri Öls og goss, hafi nýja aðila. Eigendurnir, sem fyrir voru, vildu engu breyta. Nú, til að gera langt mál stutt, þá var leitað ýmissa leiða til að leysa þennan vanda og á endanum seldu fyrri eigendur sína hluti á mjög viðunandi verði. Og allt gerðist þetta í miklu bróðerni - enda hefur ekki mik- ið um það heyrst. Síðan hefur verið reynt að rífa þetta upp og það hefur gengið sæmilega - að minnsta kosti hefur markaðshlutdeildin margfaldast", segir Páll Jónsson. Eftir þetta gerðust hlutirnir hratt, skv. þeim upplýsingum, sem HP hefur aflað sjálf- stætt. Mörgum gömlum starfsmönnum var sagt upp störfum, m.a. öllum af Waage- ættinni, en tengdasonur Páls, sem þá var orð- inn framkvæmdastjóri Sana, flutturí fram- kvæmdastjórastólinn syðra. Á þessum árum virtist Pál ekki skorta fé. Árið 1980 keypti hann meðal annars fimm eða sex flutningabíla af gerðinni Hino, sem Bílaborg flytur inn. Slíkir bílar kosta nú frá 300 þúsundum upp í rúma milljón og eru frá 8 'h tonni að heildarþyngd upp í 26 tonn, en einn bflanna var af þessari stærstu gerð og er notaður í förum milli Akureyrar og Reykja- víkur. Menn undruðust hversu miklu fjármagni Páll hafði yfir að ráða og voru uppi ýmsar getgátur um það, m.a. að hann hafi átt hlut í Bílaborg og því notið sérstakrar viðskipta- vildar þar. Þórir Jensson forstjóri Bílaborgar segir hinsvegar að það eigi við engin rök að styðj- ast. „Auðvitað var hluti af þessu erlent lán. En það var fullkomlega í samræmi við þær reglur sem við förum yfirleitt eftir hér í slíkum við- skiptum, og þetta borgaðist allt á réttum tíma, eins og upp var sett“, segir Þórir við Helgarpóstinn. var og vann sig á fáum árum upp í landsliðs- flokk í skák. „Hann var-og gæti líklega verið enn - í fremstu röð í skákinni“, segir Jóhann Þórir Jónsson, ritstjóri tímaritsins Skákar. „Þegar hann tefldi var hann hiklaust í röð ca. 30 bestu skákmanna landsins og var baráttu- maður í tafli. Þarna í kringum ’60 var hann með um 4000 svokölluð Akastig, sem sam- svarar á að giska 2250-2270 Elo-stigum í dag. Og í dag eru ekki margir með þann styrk- leika“. En jafnframt því sem Páll vann á veður- stofunni og síðar hjá Loftleiðum fékkst hann við viðskipti. Hann fór að flytja inn pappírs vörur, vasaljós og sitthvað fleira smádót frá Japan og Hong Kong, sem hann seldi síðan í frítimanum. Hann keypti hús í bænum og leigði út og var „í ýmsum smábíssniss, enda alltaf svolítil brasknáttúra í honum“,segir gamall félagi úr Keflavík. Gler í Breidholtið En þegar hann fór af „spenanum", eins og Páll kallar ríkisjötuna, flutti hann til Reykja- víkur og hélt áfram að flytja inn og selja. Polaris var stofnað 1964. Einn heimildar- manna blaðsins segir að það hafi verið kex- og kökuinnflutningur, sem var „stóra start- ið“. En hann fór fljótlega að flytja inn gler - og hefur lengi verið einn umsvifamesti heild- sali í gleri; fyrir um það bil hálfum áratug eða svo, flutti Polaris inn megnið af því gleri, sem notað var í húsbyggingar. Nú hefur sú hlut- deild skroppið nokkuð saman. En Polaris flytur inn sælgæti, m.a. frá Finnlandi, um- greininni. „Hann náði yfirráðum yfir Laxá í Kjós en Stangaveiðifélag Reykjavíkur þótti hafa farið klaufalega að þegar félagið varð undir í þeim átökum. Eftir þetta rann ein áin af annarri úr greipum íslenskra veiði- manna....“ Nú get égl Páll segist sjálfur aðallega hafa verið með Laxá á leigu að gamni sínu - en líklegast verði sumarið í ár hið síðasta. „Ég er ekki viss um að það sé borgað meira fyrir nokkra aðra á á landinu en það virðist ekki duga bændunum þarna. Hvernig var nú orðtækið? „Nú get ég!“. En það er sársaukalaust af minni hálfu, þótt við sleppum þessu. Þetta hobbý hefur haldið mér heima á hverju sumri í mörg ár - það stendur enginn í slíku með hangandi hendi“, segir Páll. Laxá í Kjós er ekki eina áin, sem Páll hefur komið nærri. Við Norðurá í Borgarfiíði stendur afar glæsilegt veiðihús, sem hann * byggði fyrir nokkrum árum. Það hús er enn kallað Pálshús. Og hann situr í stjórn Hafskips h.f. - enda trúlega sá einstaklingur, sem á stærstan hlut í fyrirtækinu og einn af stærstu viðskiptavinum Hafskips. Það er líklega eina félagið sem Páll er í núna - hann var í Lions-hreyfingunni til margra ára en er nú hættur. Eða eins og hann • segir í kveðjuskyni á hanabjálkaskrifstofunni við Austurvöll: „Ég sé ekki beinlínis tilgang í því að vera að ganga í hvert félagið af öðru til þess eins að éta og sitja að snakki úti á Hótel Borg.“ !»>»!>>! Bllli 4i> . II ,i, Hérergengiö inn í„höfuðstöðvar“ veldis- ins - Polaris er á þriðju hœð ÍA usturstrœti 8 í Reykjavík. Pepsi og Pan Am- tveir af þyngdarpunkt- unum í rekstri Páls í Polaris. Pepsi hefur verið burðarásinn í markaðsátaki Sanitas og jafnvel sjoppur útum land, sem í ára- tugi hafa bara selt kók, selja nú Pepsi úr vélurn undir borði. Pan Am er hluti af ferðaskrifstofu Polaris í eigin húsnœði fyrirtœkisins í Bankastrœti 8. Þessa skemmu á fyrirtcekið á Ártúnsholti. Hún var flutt til landsins haustið 1977 af allt öðrum aðilum en náðist ekki ígegnum tollfyrr en Polar- is kom til skjalanna. Nú er hún til sölu - þetta mikla hús stendur autt.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.