Helgarpósturinn - 04.02.1983, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 04.02.1983, Blaðsíða 16
„Ég sat inní eldhúsi áöur en upplesturinn byrjaði, með magapínu og alhliða skjálfta, enda hafði ég sofið illa ífjórar ncetur. Rétt áður en ég átti að byrja þurfti ég að fara á klósettið, og sá þá mér til mikillar skelfingar að salurinn var þéttsetinn fólki, sem ég hafði alls ekki átt von á. Svo þegar Bubbi kynnti mig Védísi Þorsteinsdóttur- ég erLeifs -fór ég endanlega á taugum. Mér tókst þó að vera róleg á meðan ég las upp Ijóðin, en á eftir skalf ég í20 mínútur og var meira eða minna í leiðslu allt kvöldið. Samtfékk ég góðar viðtökur að ég held, nemafólk hafi bara verið svona kurteist. - Sama skeði þegar ég las upp í JL-húsinu um síðustu helgi. Ég var í einhverri undarlegri leiðslu allt kvöldið, þannig að fólk hefur ábyggilega haldið að ég væri stónd eða eitth vað svoleiðis. “ Unglingaheimilið kynntist sjálfri mér betur og gat gert upp hlutina gagnvart foreldr- um mínum, vinum mínum og þess háttar.“ Módel - Hvað starfarðu? „Ég er módel í Myndlista- og handíðaskólanum og Myndlista- skólanum í Reykjavík. Svo . ber ég líka út Moggann. Það er gott að hreyfa sig svolítið áður en maður fer í vinnuna, en þetta er erfitt starf og illa launað. Hinsvegar finnst mér módelstarfið lifandi og - Hvenær byrjaðirðu að skrifa? „Það var rétt áður en ég fór á Unglingaheimilið, en þá skrifaði ég aðallega einhvers konar skáld- sögur eða fantasíur. En á Unglingaheimilinu fór ég að yrkja ljóð, því þannig tókst mér betur að losna við vanlíðan og neikvæðar til- finningar. Um leið og ég hafði komið orðum að hugsunum mínum átti ég auðveldara með að átta mig á hlutunum.“ - Yrkirðu þá frekar þegar þér líður illa? „Já, ég geri það. Þegar manni líður vel er maður svo upptekinn við að gefa frá sér að manni dettur ekki í hug að loka sig af til að skrifa ljóð.“ - Umgengstu mikið fólk sem líður illa? „Já, ég þekki mikið af fólki sem líður illa, er langt niðri, í sjálfsmorðspælingum, drekkur mikið, er mikið í dópi og þess hátt- ar. Ég á kannski auðvelt með að skilja það, vegna þess að mér líður oft illa sjálfri." Úraunverulegt líf - Notarðu mikið vímugjafa? „Ja, ég lít þessi mál allt öðrum augum nú en áður. Þá fannst mér dóp svo sjálfsagður hlutur og skildi ekki allt þetta stress út af því. Núna vil ég að fólk reyni að komast sem mest af án þess. Lífið verður svo óraunverulegt að fólk lifir í blekk- ingunni, falsmyndum. Sjálf er ég ekki eins föst í þessu sukki og áður. Nú fer ég frekar út til að hitta fólk og hreyfa mig, enda er dansinn eina leikfimin sem ég stunda um þessar mundir." - Finnst þér þú hafa haft gott af dvölinni á Unglingaheimilinu? „Já, ég veit náttúrlega ekki hvernig ég væri núna ef ég hefði ekki farið. Mér finnst Unglinga- heimilið aðallega hafa gefið mér tíma til að hugsa. Mér var kippt útúr lífinu um tíma og það gerði mér kleift að sjá hlutina úr fjarlægð og átta mig á þeim. Þarna var ég komin í aðstöðu sem enginn gat bjargað mér úr nema ég sjálf. Ég Þetta hefur komiö öllum á óvart skemmtilegt. Maður er að gefa af sjálfum sér til að hjálpa öðrum að þroska sína listrænu hæfileika. En ég held ekki að þessi vinna sé heppi leg til lengdar, þó hún sé ekki eins ógeðsleg og verksmiðju- eða fisk- vinnan sem ég hef verið í.“ - Ertu að hugsa um að læra eitthvað rneira? „Þegar ég var búin með 9. bekk lofaði ég sjálfri mér því að fara ekki aftur í skóla nema ég hefði virki- lega löngun til þess. Og ég er enn sömu skoðunar. Ef maður hefur ekki áhuga á því sem maður er að læra, lærir maður aldrei neitt hvort sem er.“ Þessi stökkbreyting... - Hvað segirðu um unglinga- vandamálið? „Ja, ætli það séu ekki vandamál alls staðar, og þá ekki síður hjá fullorðna fólkinu. En þessi stökk- breyting á líkama og hugsun á gelgjuskeiðinu er mörgum erfið, en hvort það er eitthvað sér- stakt vandamál...." - Hvernig líst þér á framtíðina? „Það er barnaskapur að lifa við þá hugsun að bomban springi einn góðan veðurdag og láta það stjórna sér. Framtíðin er í okkar höndum og við getum fengið það útúr henni sem við viljum. Þetta er bara spurning um að velja og hafna, það er ég allavega að reyna. Og ég er bjartsýn.já. Ég lít ekki á mig sem pönkara, ljóðskáld eða anarkista. Ég lít fyrst og fremst á mig sem manneskju. Auðvitað er ég pólitísk en ég hef ekki fundið pólitíkinni minni neitt nafn - ekki ennþá. Anarkisminn er bara í tísku einsog svo margt ann- að. Sumum finnst þetta töff. En pönkið er mjög skemmtilegt hér, allar þessar hljómsveitir og Reykjavík hefur fengið skemmti- legri svip. - Og þú finnur þig í ljóðinu? „Ja, fyrir flestum er ég með þessu að sýna á mér nýja hlið sem ég hef aldrei áður sýnt, ekki einu sinni vinum mínum. Þetta hefur komið öllum á óvart. En samt dett- ur mér ekki í hug að líta á mig sem ljóðskáld, - ég sem þekki varla muninn á stuðlum og höfuð- stöfum." - Og hér birtum við eitt Ijóð eftir Védísi Hvers vegna hrífst ég af fólki sem leiðist lífið er hrœtt við tilfinningar, sársauka? Er það vonleysisglampinn í augunum skilningur á grimmd heimsins, þjáningu mannanna? Fegurðin við einmanaieikann, sjálfsvorkunnina blekking pípudraumanna vorkunnsemi við ósjálfstæðið móðurtilfinning gagnvart barnaskapnum? Ég hæðist að leikaraskapnum en dáist að hversu vel er leikið en leiknum illa stjórnað. Skoðanaskipti: ÚRNATÚ 4 HERINN BURT Gegn helstefnu Fyrir tveimur vikum auglýsti Stuðarinn eftir skoðunum les- enda sinna. Viku eftir að auglýs- ingin birtist hafði aðeins borist eitt bréf og var það frá strák í Keflavík. Hann er alveg harður herstöðvarandstæðingur og rök- styður mál sitt í löngu bréfi. Hér verður aðeins stiklað á stóru í bréfinu, en ekki er ósennilegt að við fáum strákinn bráðum í við- tal. Þá væri nú gaman að heyra í einhverjum herstöðvarsinnanum um leið. Keflvíkingurinn gerir lítið úr mikilvægi herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og segir að ef stórveidin myndu nota öll sín vopn í stríði yrði nú Iítið eftir af íslensku þjóðinni þrátt fyrir her- inn. Hann vill að ísland verði óháð öllum hernaðarbanda- lögum. „Vígbúnaðarkapphlaup- ið í heiminum er orðið geigvænlegt og er að mínu mati kominn tími tii að stöðva slíka helstefnu..." Að lokum lýsir bréfritari því yfir að hann sé ekki kommúnisti, þótt hann búist alveg við að verða stimplaður komrni út af andúð sinni á hernurn. Stuðarinn skrapp í leikhús uin daginn og sá „Súkkulaði handa Silju“ eftir Nínu Björk Árnadótt- ur. Leikritið er sýnt á litla sviðinu í kjallara Þjóðleikhússins. Verkið fjallar urn konu, sem er einstæð ntóðir.og samband henn- ar við 15 ára gamla dóttur sína. Unglingar koma mikið við sögu og er gaman að bera líf þeirra saman við líf fullorðna fólksins í leikritinu. Þið ættuð endilega að skella ykkur á leikritið. Passið ykkur bara á að lenda ekki á bak við súlu...Gaman væri svo að fá frá ykkur Iínu og heyra hvernig var.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.