Helgarpósturinn - 18.02.1983, Síða 2
2
Föstudagur 18. febrúar 1983 Jpústurinrí
Prófkjörsframbjóðendur
/ i Sjálfstæðisflokksins í
S'1 Reykjaneskjördæmi eru nú
farnir að hugsa sér til hreyfings og
hafa verið á fundum með
stuðningsmönnum sínum að
undanförnu. Búist er við hörðum
slag um öruggu sætin og vonarsætin
sem enginn veit hversu mörg verða
og fer það m.a. eftir ákvörðun um
kjördæmamálið. Matthías A.
Mathiesen er talinn öruggur og nýt-
ur trausts og fylgis víða í kjördæm-
inu. Öðru máli gegnir um Ólaf G.
Einarsson og Salóme Þorkelsdóttur
sem voru í 2. og 3. sæti listans í
Partypönnusett
fyrir sælkerana.
Nýtt og spennandi. Hver steikir fyrir sig.
Úr Sjálfstæðisherbúðunum
/ J berast okkur þær fregnir að
S það verði Albert Guðmunds-
son, sem muni leiða kosningabar-
áttu flokksins fyrir þingkosning-
arnar í vor. Albert hreppti fyrsta
sætið í prófkjöri flokksins í vetur og
mun vera staöráðinn í að láta ekki
„keyra yfir“ sig eins og gert hafi
verið áður. Stjórn fulltrúaráðsins
er sögð hafa ákveðiö þessa tilhögun
og Geir Hallgrímsson fallist á hana
úr sínu sjöunda sæti...
Áhugamaður um þjóðmá!
f j fúkk þessa vitrun í vísnaformi
um daginn ogsendi Helgar-
póstinum:
„Þjcðfrelxið' á okkar þingi
þjónar feitir selclu í gær.
Yfir röncl á einseyringi
aldrei þeirra hugsun nær.
- Tileinkað Ólafi Ragnari og
öðrum þjóðfrelsishetjum með
skaphöfn feita þjónsins.
og:
Seint nutn herinn héðan burt
ef hugsjónin snýst um diskinn.
Ólafur getur áfram spurt:
Á ekki aö selja fiskinn?“
Flugráö hefur eindregið mælt
J með því að Leifur Magnús-
✓ son, ejnn framkvæmdastjóra
Flugleiða og fyrrurn framkvæmda-
stjóri Loftferðaeftirlitsins. verði
skipaður næsti flugmálastjóri.
Ráðið samþykkti þetta á fundi sín-
um í gærmorgun og studdu allir
Leif, bæði aðal- og varamenn. Það
er svo hlutverk Framsóknarráð-
herrans Steingríms Hermanns-
sonar að skipa nýjan flugmála-
stjóra. Er talið mjög vafasamt að
ráðherrann sniðgangi vilja flug-
ráðs, jafnvel þótt Leifur sé eyrna-
merktur Sjálfstæðismaður...
Félag kvikmyndahúsaeigenda
J hefur nú sent menntamála-
y nefnd neðri deildar Alþingis
greinargerð vegna frumvarps
menntamálaráðhcrra um bann við
sýningu ofbeldiskvikmynda á ís-
landi. Kvikmyndahúsaeigendur
eru ekki alls kostar ánægðir með
það og vilja ekki, að kvikmynda-
eftirlitinu veröi veitt völd til að
senda kvikmyndir aftur til föður-
húsanna. Hins vegar mæla kvik-
myndahúsaeigendur með því við
Alþingi, að höfð verið hliðsjón af
frumvarpi Eiðs Guðnasonar, þar
sem lagt er til, að myndbönd verði
látin sæta samskonar eftirliti og
kvikmyndir gera við núverandi að-
stæður. Það eftirlit hafi reynst
kvikmyndahúsunum og bíógestum
vel...
Jóhannes Norðfjörð,
Hverfisgötu 49, sími 13313.
Helgarfargjöld kn 5.940
Söluskrifstofur okkar, umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar veíta allar
upplýsingar um m.a. ferðatilhögun, hótel og bílaleigubíla.
Þaðeru
fáar/Sborgir
erlendar^^jafn
tengdar okkur og kærar
og Kaupmannahöfn.Þaðan var
okkur stjórnað, þar háðu fram-
sýnir menn frelsisbaráttu þjóðar
okkar, þangað sóttum við mennt-
un okkarog fyrirmyndir allra helst.
En Köben er ennþá fS á sínum
stað & við sundið og þangað
eigum við margt að sækja
enn sem pfZ fyrr.^S
Kynntu þér Kaup-
mannahafnará-
ætlun fi
Flug-
leiða
*miðað er við gengi 10.2. '83
síðustu kosningum. Munu „Gunn-
arsmenn" sem eru margir í
Reykjaneskjördæmi ekki vera
hrifnir af Ólafi og Salóme.
Harðasti keppinautur þeirra verð-
ur ugglaust Gunnar G. Schram
enda telja margir sjá í honum for-
ystumannsefni fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Að sögn
þeirra sem fylgst hafa vej með mál-
um í Reykjaneskjördæmi mun bú-
seta manna ekki hafa mikil áhrif á
kosningabaráttu prófkjörskandi-
datanna, en um tíma var þó rætt
um að viðhafasvipað fyrirkomulag
í prófkjörinuog gert var í Suður-
landskjördæmi...
5r'll Jazzvakning hefur í tvö ár ver-
f 1 ið að safna saman efni í tvöfalt
y albúm með Gunnari heitnum
Ormslev tenórsaxófónleikara. Nú
hillir loksins undir útkomu plöt-
unnar og fór hún utan í pressun í
þessari viku. Útgáfudagurinn hef-
ur verið ákveðinn 22. mars. en
þann dag hefði Gunnar orðið 55
ára. Sama kvöld verða haldnir tón-
leikar, þar sem bandaríski tenór-
saxófónleikarinn Ernie Wilkins
leikur með íslenskum djassleikur-
um. Plötunnar hefur verið beðið
með nokkurri eftirvæntingu, þar
sem hún gefur mjög góða mynd af
íslensku djasslífi síðustu 30 ára....
Lipurogpersonuleg
þjónusta,
ó besta stað í bœnum
og nóg af bílastœðum
Ef þetta eru atriði sem þú metur mikils að
peningastofnunin þín uppfylli, er Sparisjóður
vélstjóra eitthvað fyrir þig.
Sparisjóður vélstjóra starfar í nýju og rúm-
góðu húsnæði að Borgarúni 18 og hefur frá
upphafi verið í fararbroddi í tölvuvæðingu og
hagræðingu. Þess vegna getum við tryggt
viðskiptavinum okkar hraða og örugga af-
greiðslu.
Ef þú hefur reglubundin viðskipti við okkur,
áttu svo að sjálfsögðu möguleika á lánafyrir-
greiðslu þegar hennar er þörf.
SPARISJOÐUR
VÉLSTJÓRA
Borgartúni 18, s. 28577