Helgarpósturinn - 18.02.1983, Side 6
Tæplega hefur nokkuð vakið meiri almenna athygli í landinu í líðandi viku en bein sjónvarpsútsending frá atkvæða-
greiðslu á Alþingi um bráðabirgðalögin margumtöluðu sl. mánudagskvöld. Gafst þar býsna fróðleg mynd af starfsháttum
Alþingis. Og þau tvö atriði, sem hvað mesta athygli vöktu þetta kvöid, voru stuttar athugasemdir Ólafs G. Einarssonar,
formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins, (þar sem hann skýrði hjásetu þingflokks sins við atkvæðagreiðsluna) og
Guðrúnar Helgadóttur, þingmanns Alþýðubandalagsins, sem lýsti sig óbundna af störfum ríkisstjórnarinnar framvegis.
Guðrún Helgadóttir hefur áður verið skorinorð á þingi - og áður hótað festarslitum við ríkisstjórnina.
Föstudagur 18. febrúar 1983 ~^J^sturÍDn
Nafn: Guðrún Helgadðttir Starf: Alþingismaður og rithöfundur________________
Fædds 7. september 1933 Heimili: Skaftahlíð 22. Heimilishagir: Eiginmaöur __
Sverrir Hólmarsson,4 börn Bifreið Trabant, árgerö 7 Áhugamál: Betri heimur
Ómældur þáttur f jölmiðla
í virðingarleysi fyrir Alþingi
— Þaó þekkja allir söguna af stráknum,
sem hafði hrópað „Úlfur! Úlfur!” svo oft,
að enginn tók mark á honum þegar úlfurinn
loksins kom. Bíða þín ekki svipuð örlög á
alþingi eftir að þú hefur hrópað tvisvar eða
þrisvar að þú sér óbundin af samþykktum
rikisstjórnarinnar - en styður hana samt?
„Þetta er alrangt. Ég hefi einu sinni áður
haft í hótununi um að styðja ekki þessa
ríkisstjórn. Það var út af máli, sem mér
fannst ákaflega mikilvægt. Það mál leystist
og þá náðust að sjálfsöðgu samningar á
milli mín og umræddrar ríkisstjórnar. Eg er
ekkert að hóta þessu öðru hverju. Núna er
afstaða mín mjög svipuð og afstaða míns
flokks: Það er deginum ljósara, að okkar
ráðherrar ganga út úr ríkisstjórninni ef
kjaraskerðingarfrumvarp forsætisráðherra
verður samþykkt. Það er stigsmunur á
minni afstöðu og þingflokksins — mér
fannst nægilegt tilefni til stjórnarslita að
forsætisráðherra legði frumvarpið fram án
okkar vilja,en félagar mínir vildu sjá hvaða
örlög það hlyti. En við erum öll á móti því!’
—Er ekki stjórnin dauð hvort eð er?
„Það má kannski segja það — en hún
situr ennþá. Það er ekkert leyndarmál, að
við höfum yfir ýmsu að kvarta í þessu
stjórnarsamstarfi — til dæmis Alusuisse-
-málinu, framkvæmdum á vegum hersins og
fleiru. Það hlýtur að koma að því á ein-
hverju augnabliki, að þetta verður þýðingar-
laust.”
— Það er mikið rætt um virðingu al-
þingis, að hún fari þverrandi. Er ekki þetta
einmitt gott dæmi um framkomu, sem er
ekki beinlínis til þess fallin að auka á þá
virðingu — yfirlýsing, sem að minnsta kosti
einn ráðherra virðist ekki taka alvarlega og
sumir meðþingsflokksmenn þinir ekki held-
ur?
„Ég hef aldrei þurft að kvarta yfir því, að
samþingsmenn mínir tækju mig ekki alvar-
lega. Hins vegar eiga fjölmiðlar ómældan
þátt í því að fólk kvartar undan virðingar-
leysi Alþingis, og það er stóralvarlegt mál.
Sannleikurinn er sá, að allur fréttaflutning-
ur af Alþingi er með eindæmum. Áhugi
fjölmiðlamanna beinist frekar að þing-
mönnum sjálfum en því, sem þeir segja. Það
kemur sárasjaldan fram sem maður er í raun
og veru að gera og segja á Alþingi. í þessu
tilviki var verið að greiða atkvæði um bráða-
birgðalögin, sem umræður höfðu staðið um
allan daginn. Sjónvarpið var búið að hanga
yfir okkur alian þann tíma. Þeir þingmenn,
sem leika með fjölmiðlum, gera það auðvit-
að — og þá er einn liður í því að gera aðra
þingmenn broslega. Það gera menn helst
þegar sjónvarpið er viðstatt. Ég held að
flestir þingmenn hafi skilið mína afstöðu í
þessu máli, líka forsætisráðherra sjálfur.
Það er ekkert óeðlilegra en að þessari fram-
komu hans sé mótmælt. Og það er alveg
dæmigert, að þú skulir vera að hafa þetta
viðtal við mig núna. Ég hef gert ýmsa merki-
legri hluti hér á þingi en einmitt þetta — að
mótmæla frumvarpi forsætisráðherra. En
það hefur ekki þótt fréttnæmt”
— En er ekki staöreyndin sú, að það eru
þeir Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar,
Ragnar Arnalds og Hjörleifur Guttorms-
son, sem ráða lögum og lofum í þingflokkn-
um og að þið hinir þingmennirnir gerið
nokkurveginn eins og þeir ákveða?
„Ég held að þú ættir að spyrja þá um
þetta - ætli þetta væri ekki óskastaðan fyrir
þá! Sjáðu til: ég held að ég líti kannski öðru-
vísi á stjórnmálastörf en margir aðrir. Fyrir
mér er þetta ekkert merkilegra en ýmislegt
annað, sem ég hef gert. Mestan part óskar
maður að hafa vinnufrið hér. Ég hef fengið
samþykkt þrjú lagafrumvörp, á þeim þrem
árum, sem ég hef setið hér, og unnið að ótal
öðrum málum. Það er ekki fréttnæmt — en
það er frétt ef ég er ósammála einhverju”.
— Þú fórst á sínum tíma inn í borgarstjórn
og á þing m.a. vegna starfa fyrir minnihluta-
hópa, gamla fólkið og lífeyrisþega. Hefur
þú reynst þessu fólki vel á þingi?
„Já, alveg hiklast. Ég gæti nefnt fjölda
mála, sem varða hag þessa fólks, og ég hef
ýmist flutt sjálf eða unnið að með mínum
félags- og heilbrigðismálaráðherra. Það er
auðvitað góð staða að hafa samflokksmann
sinn í viðkomandi ráðuneyti. Þar má nefna
lög um málefni aldraðra, lög um fæðingar-
orlof, lög umbætteftirlaun... ótal marga
lagabálka, lög um aðstoð við þroskahefta.
Ég get nefnt endurskoðun á lögum um at-
vinnuleysistryggingar. Ég flutti á mínu
fyrsta þingi frumvarp um rétt giftra kvenna
til atvinnuleysisbóta. Það náði að vísu ekki
fram að ganga sem mitt frumvarp, en ráð-
herra flutti það aftur árið eftir og fékk það
samþykkt. Það hvarflar stundum að manni,
að betra væri að þetta kæmi í fréttum í stað
þriggja setninga, sem eru teknar úr sam-
hengi við umræður, er hafa staðið allan dag-
inn”
— Nú er Ijóst af úrslitum prófkosninga, að
konum mun ekki fjölga á þingi — a.m.k,
ekki í gegnum gömlu flokkana fjóra. Getur
það stafað af því, að þær konur sem nú eru
á þingi hafi ekki staðið sig nógu vel?
„Nei, svo sannarlega ekki. Ég vil bara
benda á konu, sem féll í forvali fyrir síðustu
alþingiskosningar, Ragnhildi Helgadóttur.
Það er kona, sem búin var að vera forseti
Norðurlandaráðs, forseti þingdeildar og
þingmaður um margra ára skeið. Það deilir
enginn um, að Ragnhildur er þingmaður á
borð við hvern sem vera skal af flokksfélög-
um hennar. Mér er gjörsamlega óskiljanlegt
hvers vegna hún féll. Ég held að þær tvær
konur, sem sitja hér auk mín, geti á sama
hátt borið höfuðið hátt. Við höfum ekki
verið lakari þingmenn en aðrir. Þetta liggur
auðvitað í því, að sætin eru fá...”
— ...og karlarnir hremma þau?
„Já, auðvitað gera þeir það. Þetta er vita-
skuld flókið mál. Það er ekkert einfalt mál
fyrir konu úti á landi að kveðja bónda sinn
og börn að hausti og sitja á fundum í
Reykjavík vetrarlangt. Það er ekki alltaf
auðvelt að komast heim um helgar og svo
framvegis. Konur, sem geta þetta, hljóta að
verða að teljast harla vel giftar. Auðvitað
vorkennir enginn konum þingmanna sem
þurfa að búa við þetta, en ég held að það sé
óraunhæft að ætla að konur sitji þarna við
sama borð. Jafnréttiðhefst í fjölskyldunni”.
- I forvali Alþýðubandalagsins hér i
Reykjavík um daginn skaustu þingflokks-
formanninum, ÓlaFi Ragnari, aftur fyrir
þig. Nú er ekkert augljóst að Ólafur muni
eiga sæti á næsta þingi?...
„Auðvitað fer hann inn á þing. Skoðana-
könnun, sem birt var í vikunni, bendir til að
við munum haida okkar fylgi. Nú, sjálf sit
ég í þessu sæti, sem Ólafi er ætlað nú og ég
sé enga ástæðu til að ætla að það tapist.
Þessi úrslit eru náttúrlega tilviljun. Ólafur
Ragnar á ekki kosningarétt í félaginu í
Reykjavík svo í rauninni munaði aðeins at-
kvæðum þeirra hjóna. Okkar stuðningur er
svo til jafn. En ég ætla svo sannarlega að
vona að Ólafur haldi sætinu - við megum
illa án hans vera. Hann hefur verið afskap-
lega duglegur þingflokksformaður."
- Eftir þetta forval lýsti hann því yfir, að
það hefði verið unnið gegn sér í flokknum.
Þá kemur þú manni óneitanlega í hug.
„Ég skal svara þessu skýrt og skorinort:
Ég hef aldrei komið nálægt vinnu í forvali
og mun aldrei gera. Mér þykir það fullkom-
lega ósiðlegt. Fólk á að meta verk okkar og
kjósa okkur eftir því. Hvort einhverjir aðrir
voru með einhverja vinnu í forvalinu veit ég
ekki og vil ekki vita.*'
eftir: Guðjón Arngrímsson og Ómar Valdimarsson
- En hverskonar flokkur er þá Alþýðu-
bandalagið? Þar eru verkalýðsleiðtogar,
sem tala hæðnislega um gáfumannafélag og
menntamannaklíku; menntamenn tala af
álíka mikilli virðingu um verkalýðs-
forkólfana, karlar tala um kvennahreyfingu
og Þjóðviljinn skrifar langar útlistingar á
því hvernig flokkurinn er smám saman að
skríða frá vinstri til hægri. Hverskonar
flokkur er þetta eiginlega?
„Alþýðubandalagið er stór flokkur og í
honum er auðvitað allskonar fólk. Ég held
að það sé mikil ógæfa flokksins þetta hjal
um verkalýðsarm og menntaklíkur. Það er
eiginlega hálf hráslagalegt, að fyrir baráttu
íslenskra sósíalista hafa verkamanna-
krakkarnir, sem áður áttu engan
menntunarkost, komist í skóla. Ég held að
það séum ekki við, flest sprottin upp úr
verkalýðshreyfingunni, sem erum nú orðin
óvinir hennar. Alþýðubandalagið er sósíal-
ískur stjórnmálaflokkur og auðvitað er fár-
ánlegt að skipta honum upp í slíka hópa. Ég
hef aldrei tekið þetta alvarlega en óneitan-
lega hef ég heyrt þetta. Ég held að þarna sé
mikill og alvarlegur misskilningur á ferð-
inni. Enn og aftur vilégminnaá verkin, það
eru þau sem skipta máli. Ég held að ég hafi
ekki borið fram færri mál hér á þingi í þágu
verkalýðsins í landinu en hver annar þing-
maður flokksins."
- Hefur þér dottið í hug að hætta í pólitík
og fara aftur I Tryggingastofnina og heim til
að skrifa meira um Jón Odd og Jón Bjarna?
„Já. (Hlær) Ég fer nú ekki aftur í
Tryggingastofnunina því ég sagði upp þar
þegar ég fór á þing og nú hefur eftirmaður
minn tekið við þar. Eg hefi því enga stöðu
til að ganga inn í. En vissulega hefur hvarfl-
að að mér að hætta í stjórnmálum og snúa
mér að því að skrifa. Én nú héf ég tekið
ákvörðun - ég hef gefið kost á mér fyrir
næsta kjörtímabil. Hvað síðan gerist veit ég
ekkert um. Það er mér iangt í frá nokkurt
sáluhjálparatriði að vera á þingi þó að ég
telji mig í allri auðmýkt, hafa gert hér þó
nokkurt gagn fyrir það fólk, sem ég þykist
vera að vinna fyrir. Mér finnst ég hafa unn-
ið fyrir kaupinu mínu og tel ntig ekkert
þurfa að skammast mín fyrir það, sem ég
hef gert hér. Ef pressunni þóknast að láta
það fara í taugarnar á sér eða gera mig að
einhverri grínfígúru, þá er það hennarmál.
- Það er fullyrt við mig, að Vilmundur
Gylfason hafi boðið þér að ganga til liðs við
Bandalag jainaðarmanna. Hvað er til í því?
„Vilmundur Gylfason sagði einu sinni í
blaðagrein, að hann væri pólitíkst skotinn í
mér. Eg sagði í annarri blaðagrein, að ég
væri skotin í Vilmundi Gylfasyni - en ekki
pólitískt. - Nei, Vilmundur hefur ekkert
sæti boðið mér."
-------myndir: Jim Smart ■