Helgarpósturinn - 18.02.1983, Page 16
Hannes Johnsen 15 ára pönkari
Tóta, Inga, Dagur og Fúsi
SAFARI.
aldurstakmörk og pönkarar
Stuðaranum barst í síðustu
viku óvæntur en kærkominn
liðsauki þegar fjórir nemendur
frá Víðistaðaskóla í Hafnar-
firði: Tóta, Inga, Dagur og
Fúsi, mættu í starfskynningu á
Heigarpóstinn. Og þau unnu
eftirfarandi grein:
Föstudaginn 4. feb. sl. opnaði á
þeim stað þar sem Villti tryllti Villi
var áður. nýr staður sem hlaut
nafnið SAFARI.
Á föstudagskvöldinu stóðu fyrir
utan nýja staðinn margir svekktir
unglingar „árgerð ’67“ sem höfðu
staðið í þeirri góðu trú að þeir
kæmust inn. En komust svo að
því að með nýjum eiganda komu
nýjar reglur.
Við spurðum nýja eigandann,
Magnús Kristjánsson. hvers vegna
sú breyting hefði átt sér stað að nú
gilti afmælisdagur viðkomandi en
ekki fæðingarár. Magnús svaraði
því til að í lögum væri bannað að
hleypa unglingum inn nema þau
hefðu náð 16 ára aldri.
Við höfðum frétt að fyrir Alþingi
lægi tillaga um að breyta þessu
þannig að árið gilti. Og er mjög
líklegt að hún nái fram að ganga
bráðlega.
Við fórum í bæinn og tókum
nokkra krakka tali og spurðum þá
m.a. hvort þau hefðu farið á nýja
staðinn SAFARI.
Á Hlemmi varð á vegi okkar 16
ára stelpa sem heitir Arndís.
Við spurðum hvort hún væri oft
á Hlemmi.
Hún Arndís á Hlemmi hafði
aldrei heyrt minnst á Safari.
„...að löggan verði
betri við fólk"
„Nei, ég trúi ekki á neitt, huhu.
Eg held að maðurinn sé kominn af
öpum, þetta með „verði Ijós” finnst
mér alveg út í hött. Samt er gaman
að lesa Biblíuna, það er mikið af
heimspeki í henni, fyrir utan að
hún er alveg frábær reyfari. Það var
alltaf verið að segja mér að ég ætti
að lesa Biblíuna þegar ég var lítill,
en ég vildi það aldrei, svo tók ég mig
til og byrjaði á Gamla testament-
inu, sem reyndist svo vera besti
brandari sem ég hafði heyrt, sér-
staklega þetta með hvernig Guð á
að hafa skapað heiminn. Eg fatta
bara alls ekki fólk sem trúir huhu.”
Segir Hannes Johnsen, 15 ára
(verður 16 í sept.) þegar trúar-
brögðin berast í tal, en við fengum
hann í heimsókn til þess að spjalla
um daginn og veginn. - En hvað
ætlar hann að gera þegar hann
verður stór?
- Já, svona frekar.
Ertu í skóla?
- Nei.
Ertu þá aö vinna?
- Nei, ég fæ enga vinnu.
Hvernig líst þér á SAFARI?
- Ha, hvaö er það?
Næst réöumst við á tvær stelpur
sem heita Elísabet og Helga og eru
í 9. bekk. Helga er í skóla í Reykja-
vík, en er frá Bolungavík. Þær hafa
ekki hugsað sér að halda áfram í
skóla eftir að 9. bekk lýkur.
Helga sagðist ætla að fara að
vinna í Ishúsi Bolungavíkur.
Blaðamenn spurðu hvort þær ætl-
uðu ekkert í skóla aftur.
- Jú, kannski í Öldungadeildina
seinna meir.
Hafið þið áhuga á nýja skemmti-
staðnum, SAFARI?
- Okkur finnst hann ekkert fyrir
okkur. Krakkarnir sem við erum
með fara ekki þangað.
Að lokum hittum við að máli
tvær stelpur úr Valhúsaskóla. Þær
heita Alda og Þorbjörg.
Fer ykkar skóli í starfskynningu
eins og flestir aðrir skólar og hvert
þá?
- Já, sagði Alda. Eg fer í gull- og
silfursmíði.
En Þorbjörg sagðist fara í flug-
skóla.
Störfuðuð þið við það sama í
'sumar?
- Nei, sagði Alda. Ég vann við
pípulagnir.
Þorbjörg sagðist hafa unnið í
búð.
Hafið þið komið í SAFARI?
- Já, og okkur finnst hann mun
betri en Villti tryllti Villi. Sérstak-
lega var gott að losna við spila-
kassana.
Hvaða skýring haldið þið að sé á
því að pönkarar sækja ekki stað-
inn?
- Við höldum að skýringin sé sú
að þeint líki ekki tónlistin sem þar
er spiluð.
Við spurðum einnig eiganda
staðarins, Magnús Kristjánsson,
hvaða skýringu hann gæfi á því að
pönkarar sæktu ekki staðinn.
Hann svaraði:
- Staðurinn hefur bara verið op-
inn í tvo daga og ekkert hefur reynt
á það hvort pönkarar sækja staðinn
eða ekki. Á staðnum gilda sömu
reglur og á veitingahúsum um
snyrtilegan klæðnað og fágaða
framkomu.
Við starfskynningarfólk vonum
að tillagan um breytingu á lögum
um aldurstakmark nái fram að
ganga sem fyrst.
-TIDF.
Súkkulaðiæla
„Mamma og allir eru alltaf að
segja að ég eigi að verða óperu-
söngvari huhu, en ég er að hugsa um
að fara á sjóinn. Og er á leiðinni að
sækja um pláss á millilandaskipi
sem messagutti.”
- Hefurðu einhverja reynslu af
sjómennsku? hcldurðu að þú liggir
ekki bara í kojunni sjóveikur?
„Huhu, ég hef nú bara einu sinni
verið sjóveikur. Það var þegar ég
var á bát í Grindavík og borðaði
Lindubuff og alls konar súkkulaði,
lakkrís og kók. Svo þegar við vor-
um komnir út á sjó stóð súkkulaði-
bunan út úr mér huhu. Eftir það
borðaði ég aldrei sælgæti áður en
ég fór á sjóinn.”
- Hvað með skólagöngu?
„Mér finnst skólinn bara fangelsi
fyrir krakka á aldrinum 6-15.
Sumir taka því vel, aðrir illa. Ég
hef aldrei fílað skólann, nema einn
vetur þegar ég var í sérkennslu hjá
Birni Bjarman, hann erskogóður
kennari maður. Skólinn segir við
mann, sé maður eitthvað slappur
við að læra og nennir ekki að mæta,
að maður geti ekki lært. Maður fer
að trúa því sjálfur að maður geti
ekkert þegar kennararnir eru alltaf
að segja manni það. En mér finnst
að þeir verði að kenna manni
áfram, því ef maður kann ekki neitt
þá fær maður enga vinnu.”
Þunglyndisland
„Annars er ég að pæla í því að
flytja í eitthvert annað land þar
sem maður getur keypt bjór og þar
sem er ekki svona mikið af svona
ströngum reglum og svoleiðis. Hér
er iíka allt svo dýrt, peningarnir
fljúga frá manni. - í hvað? Skít, -
bíó, sígarettur, brennivín, sælgæti,
strætó o.s.frv.
- Hvert ferðu að skemmta þér?
„Á Planið. Maður hefur engan
annan stað. Áður stundaði ég mik-
ið Hlemm, Jóker og BiIIann, en er
hættur því núna. Á Hlemmi hangir
liðið yfir ekki neinu og ég hef bara
annað við tímann að gera huhu.”
Pönkið
- Þú lítur út fyrir að vera pönk-
ari - hvað er pönk?
„Oj, þetta er leiðinlegasta
spurningsemégfæíhausinn. Pönk
er bara orð búið til af breskum
blaðamönnum. Það þýðirrottaeða
ræfill. Pönkarar er kannski sam-
heiti yfir fólk í uppreisnarhug, fólk
sem vill leggja sitt af mörkum til að
brjóta niður þetta tilgangslausa
kerfi. Þetta eru anarkistar, friðar-
sinnar, fólk sem berst fyrir því að
iöggan verði betri við fólk.”
- Hvernig þá?
„Flestir skrifa texta og syngja þá
inn á plötur eða klæða sig til að
hneyksla fólk.”
- Hefurðu einhvern tímann lent í
löggunni?
„Ég er enginn þjófur, ég hef
aldrei brotist inn, bara verið tekinn
fyrir fyllerí og svoleiðis huhu.”
- Hefurðu slæma reynslu af lögg-
unni?
„Sumir eru ágætir, aðrir eru al-
gjörir sadistar. Þeir koma fram við
mann eins og maður sé dýr en ekki
maður. Kalla mann feitt svín og
þegar ég svaraði til baka og sagði
að þeir væru helvítis hettumávar
var ég látinn fara úr buxunum og
rassskelltur huhu.”
Ljóð fyrir frímínútur
- Þú hefur eitthvað fengist við að
skrifa Ijóð, ekki satt?
„Jú, og það byrjaði þannig að í
ljóðatíma í skólanum var okkur
sagt að við yrðum að skrifa ljóð
annars fengjum við ekki að fara í
frímínútur. Svo fannst öllum ljóðið
mitt svo gott að ég var hvattur til að
halda áfram og hef skrifað eitthvað
um tíu ljóð. Sögur? Huhu, ég var
byrjaður á einni sögu, um skólann
eða eitthvað svoleiðis, en ég hætti
því ég var svo lengi vegna þess að
ég kann ekki almennilega að
skrifa."
Og hér kemur eitt ljóð eftir
Hannes:
Menn í röðum, menn í
þúsundatali,/ menn á leið til slátr-
unar á vígvöllinn./ Ég get alveg líkt
þeim við/ menn sem bíða eftir að
heyra/ hvort þeir verði dæmdir til
dauða/ eða verði sýknaðir./ En
hvort sem þeir verða sýknaðir/ eða
ekki/ þá lifir minningin alltaf.
Æskulyðsheimili
með vínveitingum
„Mér finnst að útvarpið mætti
vera með eins og 1-2 þætti í viku
þar sem bara væri spilað pönk, ný-
bylgja eða þungarokk. Þetta er
tónlist sem heyrist þar aldrei, ég
man t.d. bara eftir einu Stranglers
lagi frá áramótum, en það var ör-
ugglega spilað vegna þess að nýj-
asta platan þeirra var komin hátt á
breska vinsældalistann, það er
nefnilega spilað diskó og vinsæl lög
í útvarpinu. Sama gildir um Skon-
rokk, þar mætti sýna spólur með
pönk-hljómsveitum en ekki bara
sömu vinsælu lögin og í útvarpinu.
Mér finnst líka að þið á Stuðaran-
um ættuð að taka opinská viðtöl
við stjórnmálamennina um
eitthvað annað en verðbólguna.
Þið gætuð t.d. spurt Gunnar Thor-
oddsen um hvernig honum lítist á
pönkið, hvort ekki sé sjéns á því að
lækka aldurstakmarkið í Ríkinu og
fleira.
Það vantar að setja upp stað,
æskulýðsheimili þar sem væru vín-
veitingar og pönkhljómsveitir
mundu spila, - þá mundi maður
losna við allt þetta vesen sem fylgir
því að redda sér bokku.”
Og áfrani með gáfnasmjörið:
Hér kemur annar hluti spurninga
keppni Stuðarans, sem hófst í
síðasta blaði, en lýkur í næsta
blaði („allt er þegar þrennt er“).
Svör við þessum hluta verða að
bcrast okkur í síðasta lagi 25. fe-
brúar (utanáskrift: Stuðarinn,
c/o Helgarpósturinn, Ármúla 38,
105 Reykjavík), en þá birtast
væntanlega nöfn verðlaunahafa
1. hluta. Verðlaunin eru sem fyrr
3 hljómplötur (ein á kjaft) sem
Hljómplötudeild Karnabæjar
veitir af alkunnum rausnarskap.
Spurningar dagsins eru:
1. Éílarnir ganga í grænum striga
skóm:
?
Pí*
4.
a) af því þeir halda me
Breiðabliki
b) svo' þeir sjáist ekki
grasinu
c) þeir eru grænfriðungar
„Sjálfstætt fólk" skrifaði:
a) Þórbergur Þórðarson
b) Geir Hallgrímsson
c) Halldór Laxness
Jody í „Löðri" er orðinn:
a) Júlíus Kazendorf
b) Júlíus Sesar
c) Júlíus Brjánsson
Margrét Thatcher er forsæti:
ráðherra:
a) Bretlands
b) Indlands
c) Þýskalands