Helgarpósturinn - 18.02.1983, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 18.02.1983, Blaðsíða 21
J~felc 'pSshJFhn. Föstudagur 18. febrúar 1983 21 dæmum utan Reykjavíkur og þess hluta Reykjaneskjördæmis, sem liggur á Stór-Reykjavíkursvæðinu, er rétt að undirstrika, að það tekur einungis til þéttbýlisstaða, þ.e. kaupstaða og kauptúnahreppa en ekki sveitahreppa. Á Vesturlandi er úrtakið bundið við 6 þéttbýlis- staði, þ.e.a.s. Akranes, Borgar- nes, Ólafsvík, Grundarfjörð, Hell- issand og Stykkishólm en þar eru 71.5% kjósenda kjördæmisins. Á Vestfjörðum er úrtakið frá 8 þétt- býlisstöðum eða 65.7% kjósenda. f Norðurlandi vestra er úrtakið frá 6 þéttbýlisstöðum með 63.7% kjós- enda. í Norðurlandi eystra er allt úrtakið frá 4 þéttbýlisstöðum með 71.5% kjósenda. A Austurlandi er úrtakið frá 10 þéttbýlisstöðum með 72.9% kjósenda. A Suðurlandi er úrtakið frá 9 þéttbýlisstöðum með 69.7% kjósenda. Úrtakið fyrir Reykjanes er frá 5 kaupstöðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu, eins og áður segir, og 5 öðrurn þéttbýlis- stöðum með alls 96.8% kjósenda kjördæmisins. Úrtakið fyrir Reykjavík nær til allra hverfa borg- arinnar eða 100% kjósenda. Framkvæmdin Þessi skoðanakönnun var unnin á þann hátt, að hringt var í síma- númer skv. skrá yfir útdregin núm- er. Á Stór-Reykjavíkursvæðinu var hringt í númerin beint en ann- ars staðar var hringt í viðkomandi númer með aðstoð Landssímans. t>ar sem úrtakið miðast við fjöl- skyldur, en ekki einstaklinga, var óskað eftir að fá að leggja spurn- ingar fyrir^þá, sem svöruðu ef þeir höfðu þá náð kosningaaldri. Spurt var: „Hverja munduð þið kjósa ef kosið væri til Alþingis núna?” Nöfn viðkomandi einstaklinga komu hvergi fram og voru því hvergi skráð. Að jafnaði unnu 10-14 manns við þessa könnun 8 klukku- stundir hvorn dag og var reynt að vanda til allra vinnubragða svo sem kostur var. Þegar litið er á niðurstöður þess- arar könnunar er eitt og annað sem nauðsynlegt er að hafa í huga. í fyrsta lagi er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir því, að skoðana- kannanir hafa ýmsar og reyndar margar takmarkanir. Niðurstöður skoðanakönnunar ber því ekki að taka í bókstaflegri merkingu held- ur sem vísbendingu um ákveðna þróun eða stöðu mála á þeirn tíma, sem könnunin er gerð. Úrtakið, 1.03% kjósenda, er í sjálfu sér engin töfratala. Það sem mestu máli skiptir er hvernig staðið . er að verki, hvernig úrtakið er unn- ið og hvort menn gera sér grein fyrir þeim takmörkunum sem til- tekin könnun er háð. f þessari könnun var tekinn upp nýr flokkur svara sem ekki var með í könnun sem gerð var í desember sl. Þetta er svarið „ætla ekki að kjósa” eða „ætla að skila auðu”. umboðinu á íslandi E.t.v. má gera ráð fyrir að nokkuð stór hluti þeirra sem þannig svara fari og kjósi þegar á reynir. Margir þeirra fara fyrir þrábeiðni kunn- ingja og vina og aðrir láta segjast af einhverjum sérstökum ástæðum. En hvað sem öðru líður á þetta svar fullan rétt á sér enda felur það í sér ákveðna afstöðu. Sá sem þannig svarar er ekki óákveðinn á þeirri stundu sem hann svarar, hvað sem síðar kann að verða. Hlutfallsleg skipting Á meðfylgjandi töflum er ein- ungis miðað við prósentutölu en ekki fjölda einstaklinga sem tóku þátt í könnuninni. í fyrsta lagi er litið á heildardreifingu atkvæða og má þar nr.a. sjá hlutfall þeirra, sem óákveðnir eru og einnig þeirra sem neita að svara og þeirra sem ætla ekki að kjósa. í öðru lagi er litið á hlutfallstölu þeirra sem tóku af- stöðu og falla þá niður þeir, sem voru óákveðnir og þeir sem neituðu að svara. Hins vegar má hér sjá hlutfallstölu þeirra sem ætla ekki að kjósa, enda er hér um á- kveðna afstöðu að ræða eins og áð- ur er vikið að. I þriðja lagi koma einungis þau atkvæði sem koma til skipta á bakvið kjördæmakosna þingmenn. í töflunum 11-IX er reiknaður út fjöldi þingmanna fyrir hvern flokk í hverju kjördæmi um sig. Reykjavík nú og í desember Ef litið er á niðurstöður þessarar könnunar í Reykjavík kemur í ljós að 12. þingmaður Reykvíkinga fellur annað hvort í hlut Alþýðu- flokks eða Framsóknarflokks. Skv. þessari könnun fær annar þessara flokka engan mann kjörinn í Reykjavík. í könnun okkar frá því í desember 1982 fékk Alþýðuflokk- urinn 7.2% atkvæða og einn mann en fær nú 6.6%. Framsóknarflokk- ur fékk 7.6% atkvæða í desenrber og einn rnann kjörinn en fær nú 6.6% atkvæða. í desemberkönnuninni fékk Sjálfstæðisflokkurinn 48.0% at- kvæða og 6 menn en fær nú 44.3% og sama fjölda þingmamía. Staða Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík er því mjög svipuð nú og hún var í desember að því er atkvæðamagn snertir. í þessari könnun fær Alþýðu- bandalagið 14.65% atkvæða í Reykjavík og skv. því tvo kjörna þingmenn. í desember var Alþýðu- bandalagið með 9.5% atkvæða og einn mann kjörinn. 1 desentber- könnun okkar var Vilmund- ar-framboðið með 12.5% atkvæða og hefði því fengið einn mann kjör- Starfsmenn SKÁÍS vinna að skoð- anakönnuninni um síðustu helgi. Niðurstöður hennar ættu að geta orðið ágætt innlegg í stjórnmála- umræðu dagsins. inn. 1 þessari könnun er Bandalag jafnaðarmanna með 14.15% og tvo menn kjörna í Reykjavík. Kvennaframboðið er nú nteð 7.0% atkvæða í Reykjavík og hefur því tapað einu prósentustigi frá því í desember en heldur áfram einum manni. í könnun okkar í desember kom fram verulegur stuðningur við hugsanlegt framboð Gunnars Thoroddsen. í þessari könnun kemur í Ijós að slíkar hugmyndir eru að mestu horfnar, en þó ekki alveg. Stuðningur við Gunnar Thoroddsen er því flokkaður undir önnur framboð og á það ekki ein- ungis við unt Réykjavík Iteldur einnig önnur kjördæmi, sérstak- lega þó Reykjanes og Vesturland. Önnur kjördæmi Ef vikið er að niðurstöðum í Reykjanesi kemur í ljós að Sjálf- stæðisflokkur fær þrjá menn kjörna og ntunar þá að vísu mjög litlu á 3. manni Sjálfstæðisflokksins og I. manni Alþýðuflokksins. Framsóknarflokkur tapar manni á Reykjanesi en Alþýðubandalag og Bandalag jafnaðarmanna fá einn mann, hvor flokkur. Á Vesturlandi hlýtur Sjálfstæð- isflokkur 29.15% atkvæða og skv. þvt' tvo kjörna þingmenn. Frarn- sóknarflokkur, Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur fá hver um sig einn mann kjörinn í kjördæminu. Bandalag jafnaðarmanna er með 4.15% og önnur framboð samtals 8.5%, senr virðist ótrúlega hátt. Á Vestfjörðum hlaut Alþýðu- flokkurinn flest atkvæði eða. alls 28.5% og tvo menn kjörna. Fram- sóknarflokkúr og Alþýðubandalag hlutu 21.4% atkvæða hvor flokkur og einn ntann hvor. Sjálfstæðis- flokkur hlaut 14.3% og einn mann en Bandalag jafnaðarmanna og Sérframboð sjálfstæðismanna hlutu 7.20% hvor flokkur. Á Norðurlandi vestra hlaut Framsóknarflokkurinn 44.4% at- kvæða og þrjá menn kjörna. Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðubandalag lilutu 22.3% hvor og einn rnann hvor flokkur. Aiþýðuflokkur hlaut 11.10% atkvæða og engan mann. Bandalag jafnaðarmanna hlaut ekkert atkvæði í þessu kjördæmi. Á Norðurlandi eystra hlaut Sjálfstæðisflokkur 53.30% at- kvæða og 4 menn kjörna. Fram- sóknarflokkur hlaut 17.75% og einn mann og Alþýðubandalagið 11.10% og einn nrann og Alþýðu- Ilokkur 8.8% og engan mann kjör- inn. Bandalag jafnaðarmanna hlaut 4.45%. Á Austurlandi var Alþýðu- bandalagið með 36.85% atkvæða og tvo menn, Framsóknarflokkur með 26.30% og 2 menn og Sjálf- stæðisflokkur með 15.75% og I mann. Bandalag jafnaðarmanna og Alþýðuflokkur fengu 5.25% hvor flokkur en 10.60% féllu á önnur framboð. Á Suðurlandi hlaut Sjálfstæðis- flokkur 50.0% atkvæða og 4 menn kjörna. Alþýðubandalag lilaut 15.8% og 1 ntann og Framsóknar- flokkurinn 10.5% atkvæða og 1 mann kjörinn. Alþýðuflokkur og Bandalag jafnaðarmanna hlutu 7.85% livor flokkur en 8.0% greiddu atkvæði öðrum fram- boðum. Til athugunar Þegar litið er á niðurstöður í kjördæmum landsbyggðarinnar (öðrunt kjördæmum en Reykjavík og Reykjanesi) er nauðsynlegt að hafa í huga að sveitahrepparnir eru ekki með í úrtakinu og getur það að sjálfsögðu haft veruleg áhrif. Á Vestfjörðum er hér um að ræða 34.3% kjósenda, á Suðurlandi 30.3%, í Norðurlandi eystra 28.5% en á Reykjanesi er þessi munut; sára lítill eða aðeins 3.2%. Austurland — HiutfaiLsicg skipting og fjöldi kjördæma- kjörinna þingmanna VIII heildar- dreifing þeir sem tóku afstöðu atkvæði til skipta fjöldi þing- manna Alþýðuflokkur 1.60 3.70 5.25 0 Framsóknarflokkur 8.20 18.50 26.30 2 Sjálfstæðisflokkur 4.90 11.10 15.75 1 Alþýðubandalag 11.50 25.90 36.85 2 Bandalag jafnaðarm. 1.60 3.70 5.25 0 önnur framboð 3.30 7.40 10.60 0 setla ekki að kjósa 13.10 29.70 — — óákveðnir 44.30 — — — vilja ekki svara 11.50 100.00 100.00 100.00 5 Suðuriand — Hiutfaiisieg skipting og fjöldi kjördæma- kjörinna þingmanna IX heildar- dreifing þeir sem tóku afstöðu atkvæði til skipta fjöldi þing- manna Alþýðuflokkur 3.40 5.50 7.85 0 Framsóknarflokkur 4.50 7.40 10.50 1 Sjálfstæðisflokkur 21.00 35.00 50.00 4 Alþýðubandalag 6.75 11.10 15.80 1 Bandalag jafnaðarm. 3.40 5.50 7.85 0 önnur framboð 3.40 5.50 8.00 0 ætla ekki að kjósa 18.35 30.00 — - óákveðnir 30.30 — — - vilja ekki svara 8.90 100.00 100.00 100.00 6 Samanburður á fylgi flokkanna í kosningunum í desember 1979 og í skoðanakönnuninni núna, í febrúar 1983. X 1979 atkvæði til skipta fjöldi þing- manna 1983 atkvæði til skipta fjöldi þing- manna Alþýðuflokkur 17.50 7+3=10 9.60 3 eða 4+X Framsóknarflokkur 24.90 17+0=17 11.60 9 eða 10+X Sjálfstæðisflokkur 35.40 15+7=22 40.70 22+X Alþýðubandalag 19.70 10+1=11 15.90 10+X Bandalag jafnaðarm. — — 11.40 3+X Kvennaframboð — — 3.10 1+X önnur framboð 2.50 100.00 49+11=60 7.70 100.00 0 49 + 11 umboðinu á íslandi

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.