Helgarpósturinn - 18.02.1983, Page 24
Prófaðu
Föstudagur 18. febrúar 1983
.pfísturinn.
Aukin þjónusta OUs
iGarÖabæ
ábeinnilínu
1 Nokkur kurr er nú meðal ým-
/^issa Alþýðuflokksmanna
S* vegna sendinga sem þeir hafa
fengið frá gömlum flokksbróður
sínum, Ágústi Einarssyni, fyrrum
gjaldkera flokksins og núverandi
liðsmanni Bandalags jafnaðar-
manna. Hefur Ágúst sent ýmsum
krötum heim eintak af drögurn
bandalagsins að málefnagrundvelli
með þeim orðum að það sé gert
viðkomandi „til gaumgæfilegrar at-
hugunar og íhugunar". Þykir
sumum þetta miður smekkleg
sending frá fyrrum baráttufélaga...
Mikill áhugi er nú innan mið-
/ J stjornar Bandalags jafnaðar-
S' mannaumaðfyrstasætiálista
þess í Reykjaneskjördæmi skipi
Stefán Olafsson lektor og er sögð
um það samstaða. Stefán er ættað-
ur og uppalinn í kjördæminu, nán-
ar tiltekið í Keflavík...
V:
I fyrrakvöld var ákveðið á
fundi stuðningsmanna
Gunnlaugs Stefánssonar að
hann tæki ekki fjórða sætið á lista
Alþýðuflokksins í Reykjaneskjör-
dænti í komandi kosningum. í því
sæti hafnaði hann í prófkjöri, en
stefndi mun hærra. Aftur á móti
verður ekki um sérframboð að
ræða, né heldur liðveislu við
Bandalag jafnaðarmanna...
1 J Gárungarnir voru fljótir að
sjá fídusinn í því fyrir Tómas
Árnason viðskiptaráðherra
að færast niður fyrir Halldór Ás-
grímsson á lista Framsóknarflokks-
ins á Austfjörðum: Þetta er nefni-
lega eina merkið sem menn hafa
séð um niðurtalningarstefnu ráð-
herrans. Þykir hann hafa sýnt að
ekki beri að leita langt yfir skammt
við framkvæmd stefnunnar og því
talið sjálfan sig niður. Og verður
ekki annað sagt en að hann hafi
náð góðum árangri...
Steingrímur Hermannsson
f J sjávarútvegsráðherra mun nú
íituga alvarlega að segja ís-
land úr Alþjóða hvalveiðiráðinu.
Með þeim hætti yrðu hendur fs-
iendinga óbundnar þegar hval-
veiðibannið gengur í gildi eftir tvö ár
þótt fallið hefði verið frá, eftir at-
kvæðagreiðslu á alþingi, að mót-
mæla því...
r'l Frágengið er að við stöðu
/ J framkvæmdastjóra Lands-
S virkjunar taki í sumar Halldór
Jónatansson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hennar. Vangavelt-
ur hafa verið uppi um að Egill Skúli
Ingibergsson hreppti þessa stöðu
þegar hann hætti hjá „Kísilmálm-
verksmiðjunni á Reyðarfirði", en
nú er Ijóst að við brottför Eiríks
Briem færast innanhúsmenn upp...
v lEnn er ekki vitað hvernig
L^bókaforlögin fóru nákvæm-
lega út úr síðustu vertíð en
ekki gekk jafnvel hjá öllunt. Hið
unga forlag Fjölnir sem gaf út sínar
fyrstu bækur fyrir síðustu jól er
hins vegar strax farið að undirbúa
næstu vertíð og stefnir síður en svo
í samdrátt þar. Verða gefnir út allt
að tíu titlar en voru sex síðast.
Meðal útgáfubóka sem vinna er
hafin við er síðara bindi endur-
minninga Ingólfs á Hellu sem Páll
Líndal skráir...
•Vl Ekki mun ráðning Magnúsar
/■ J Gunnarssonar í stöðu fram-
Sl kvæmdastjóra Vinnuveitenda
sambands íslands hafa gengið
þegjandi og hljóðalaust fyrir sig.
Innan VSÍ urðu nefnilega talsverð
átök um þessa ráðningu. Hún mun
hafa staðið verulega í Flugleiða-
veldinu innan sambandsins, sem
ekki var hrifið af fortíð Magnúsar
sem forstjóra Arnarflugs, og hót-
aði jafnvel hörðum viðbrögðum ef
af ráðningunni yrði. Það voru svo
Davíð Scheving Thorsteinsson og
Kristján Ragnarsson sem höfðu
ráðningu Magnúsar í gegn, en þeir
voru einmitt helstu forvígismenn
ráðningar forvera Magnúsar Þor-
steins Pálssonar, sem vel að merkja
er einnig kominn úr svokölluðum
Eimreiðarhópi ungra Sjálfstæðis-
manna...
ITl Verulegrar óánægju gætir nú
meðal forvígismanna litlu
T\
y flugfélaganna hérlendis vegna
frönsku þyrlanna sem hingað
komu í fyrradag. Þyrlur þessar
komu með leyfi og vilja samgöngu
ráðuneytisins og verða hér í
u.þ.b. mánuð við tilraunaflug af
ýmsu tagi, m.a. sjúkra- og björgun-
arflug. Islenska ríkið tekur þátt í
eldsneytiskostnaði og uppihaldi
fyrir starfslið þyrlanna. Þykir litlu
íslensku flugfélögunum sem ís-
lenska ríkið sé hér að taka þátt í
þróunarkostnaði fyrir fram-
leiðendur þessara nýju þyrluteg-
unda og það sem verra er, svipti
íslenskar vélar verkefnum og tekj-
um í leiðinni. Eru þessi félög að
kanna möguleika á iögbanni á starf
þessara þyrla hérlendis...
7?,l Menn hafa talsvert velt því
I fyrir séi hvernig stóð á því, að
J Guðmundur J. Guðmundsson
greiddi atkvæði á mánudagskvöld-
ið með breytingartillögu sjálfstæð-
ismanna við bráðabirgðalögin þar
sem gert er ráð fyrir því að gengis-
munargjald á skreið yrði fellt nið-
ur. Að vísu studdi Guðmundur til-
lögu Steingríms Hermannssonar
við þriðju umræðu um bráða-
birgðalögin daginn eftir unt að
gengismunargjaldið yrði sett inn
aftur, en með semingi þó og sagði
hana vonda. Jafnvel í innsta hring
Alþýðubandalagsins áttuðu ntenn
sig ekki til fulls á þessu flakki Guð-
mundar J. milli stjórnar og stjórn-
arandstöðu. En einmitt frá Ajrýðu-
bandalagsmönnum er komin sú
skýring, að bróðir hans, Jóhann
Guðmundsson, sem starfar við
fiskmat ríkisins, hafi haft þessi á-
hrif á afstöðu jakans. Samstaðan
með flokkunum vó þó þyngra við
atkvæðagreiðsluna eftir þriðju um-
ræðu enda þótt það dygði ekki til,
því tillaga Steingríms féll þar á
jöfnum, 19:19...
BÍLALEIGA
Mesta úrvalið.
Besta þjónustan.
Skeifan 9. 108 Reykjavik s. 91-86915
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
s. 96-23515
talsverðan hug á að verða forsætis-
ráðherra í „væntanlegum" mála-
miðlunum við stjórnarmyndun
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks; þar muni hvorki Geir Hall-
gríntsson nc Steingnmur Her-
mannsson verða gjaldgengir fyrir
mótaðila í því sem flestir telja lík-
legast stjórnarmynstur eftir kosn-
ingar. Dr. Gunnar er svo sagður
vera aftur kominn í sérframboðs-
hugleiðingar, hvað sem úr verður,
og segja sumir spámenn að hann
muni rjúfa ping þegar hann kemur
heim frá Danmörku í næstu viku og
setji ný b: aðahirgðalög sem frysti
öll laun í landinu frant yfir kosning-
ar og sýni þar með að þar sé hinn
„sterki maður íslenskra stjórn-
rnála" sem geri það sem handónýtt
þing getur ekki tekist á við...
7^1 Ménn sem orðnir eru það sem
^■J kallað er „heimsfrægir"
J bregðast við þessari frægð
með ýmsum hætti. Fyrir skemmstu
kom hingað til lands sá heimsfrægi
Vínarvalsahljómsveitarstjóri Willy
Boskovsky til að stjórna Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Fljótlega eftir
að æfingar hófust þótti Boskovsky
tilhlýða að sýna „heimsfrægð" sína
með þeim hætti að lýsa því yfir við
forystumenn hljómsveitarinnar að
þeir kynnu hreinlega ekkert að
spila. Hleypti þessi einkunnagjöf
hins heimsfræga illu blóði í hljóm-
sveitina, svo og almennur rudda-
skapur mannsins, og kont að því að
hún neitaði með öllu að leika undir
hans stjórn nema hann bæðist af-
sökunar á þessum ummælum og
drægi þau til baka. Var nú öllum
óviðkomandi vísað úr salnunt, að
sögn, og hafnar samningaviðræður
við þann heimsfræga. Var honum
m.a. tjáð að þótt hann gæti sagt
hljóðfæraleikurum í Vínarborg að
éta skít og þeir kyngdu því vegna
harðrar samkeppni sem þar ríkir
um stöður, þá væri slík framkoma
ekki liðin hér hjá íslensku sinfóní-
unni. Lyktir urðu vitaskuld þær að
sá heimsfrægi lúffaði...
*»l Ýmsar kenningar eru nú á
f' \ lofti um fyrirætlanir hinna
✓ tveggja „grand old men" í ís-
lenskunt stjórnmálum, - dr. Gunn-
ars Thoroddsen forsætisráðherra
og Ólafs Jóhannessonar utanríkis-
ráðherra. Báðir eru að hugsa um
„grand exit" að hætti „grand old
men"; spurningin er aðeins hvernig
það mætti verða sem mest „grand".
Ólafur Jóhannesson er sagður hafa
Olís hefur opnað glæsilega bensínstöð við
Hafnarfjarðarveg í Garðabæ. Stöðin er í
beinni aksturslínu milli Hafnarfjarðar,
Garðabæjar og Reykjavíkur.
Á Olís stöðinni í Garðabæ færðu bensín
og díesel olíu úr hraðvirkum dælum.
1. flokks smurolíur frá B.P. og Mobil.
Auk þess allskyns bílavörur og aðrar vörur.
Verid velkomin í nýju
Olís stöðina í Garðabæ, —
bensínstöð í beinni aksturslínu.
Sími: 5 10 10