Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 14
14
Föstudagur 22. arpíl 1983. JpfísturinrL
Landskjörstjórn:
Samræmi í
listamerkingu
og úthlutun upp-
botarþingsæta
Ætli sé ekki rétt að minna þjóð-
ina á, að á morgun, laugardaginn
23. apríl, verður kosið til Alþingis
íslendinga. Á slíkum tímamótum
heyrist oft talað um alls kyns
kjörstjórnir, yfirkjörstjórnir
hvers kjördæmis fyrir sig og
landskjörstjórn. En hvaða appa-
röt eru þetta svo? Til þess að for-
vitnast öriítið um landskjör-
stjórn, hafði Helgarpósturinn
samband við Gunnar Möller.for-
mann hennar, og var hann spurð-
ur um hlutverk hennar.
„Hlutverk landskjörstjórnar er
einkum tvennt. Aðaíhlutverk
hennar fyrir kosningar er að sjá
um, að samræmi sé í merkingu
framboðslista. Eftir kosningar
tekur hún við skýrslum yfirkjör-
stjórna og úthlutar uppbótar-
þingsætum", sagði Gunnar.
Landskjörstjórn er kosin hlut-
bundinni kosningu af Alþingi og
auk Gunnars sitja í henni Björg-
vin Sigurðsson, Vilhjálmur Jóns-
son, Baldvin Jónsson og Arni
Halldórsson, en varamaður Árna
er Arnmundur Backman.
Gunnar Möller hefur átt sæti í
landskjörstjórn að minnsta kosti
fyrir þrennar síðustu almennar
kosningar og aðspurður sagði
hann, að það væri ákaflega upp
og ofan hvort þetta væri skemmti-
legt starf.
Gunnar Möller, formaður landskjörstjórnar.
„Það fer eftir því hvaða verk-
efni ber á góma, en ég held, að við
höfum allir ánægju af þessu“,
sagði hann.
— Hefur ekki eitthvað óvenju-
legt komið uppá í setu þinni í
landskjörstjórn?
„Það hafa stundum komið upp
skondin spursmál í sambandi við
sérframboðin, en ég get ekki rakið
það í einstökum þáttum, og kann
heldur ekki við þaðý sagði
Gunnar Möller, formaður lands-
kjörstjórnar.
EKKI
, FÆDDIR
í GÆR!
Aflt tekur sínn tíma. Skípulagning, þjálfun
starfsfólks og öflun þekkíngar á rekstri eru allt dæmi um
tímafrek og vandasöm viðfangsefni en góð þekking á þeim
er forsenda gagnlegrar ráðgjafar.
Yfir 10 ára reynsla, ásamt nánu samstarfi við
virta endurskoðunarskrífstofu, skapar Tölvumíðstöðinni
sérstöðu á íslenskum tölvumarkaðí að þessu leyti. Afkasta-
mikil tölva í eigu fVrirtækísíns, Burroughs B1955, tíyggir enn
frekar örugga þjónustu.
Sparaðu dýrmætan tíma. Taktu 10 ára þekkingu
og reynslu í þína þjónustu STRAX.
Páfi kann ráð við
blankheitunum
Páfinn var ekki af baki dottinn,
þegar hann sá fram á mikinn halla-
rekstur á Vatíkaninu vegna banka-
hneykslanna, sem allir þekkja.
Hann ákvað bara að gera árið í ár
að heilögu ári, og samkvæmt tíma-
tali pápískunnar hófst það 25. mars
síðastliðinn.
Saminn var sérstakur sálmur í til-
efni ársins og nú bíður páfi bara
eftir því, að sex til sjö milljónir píla-
gríma láti plata sig.
Páfagarður gerir ráð fyrir að
hagnast um tiu milljarða líra á upp-
átækinu.
Ég vildi, að ég væri páfi. Þá væri
ég alltaf ríkur.
ÞJONUSTA JAFNT FYRIR
STÓR OG SMÁ FYRIRTÆKI
Forrítunarþjónusta.
Frá upphafi höfum
víð þróað stöðluð
Kerfi, í samvinnu við
innlenda og erlenda
aðíla tíl ýmissa nota,
bæði fyrír einkafVrír-
tæki og opinberar stofnanir. Sem daemi
má nefna: fjárhagsbókhald, Iaunabók-
hald, viðskiptamannabókhald, sam-
byggt viðskiptamanna- og lagerbók-
hald, byggingabókhald, gjaldendabók-
hald fyrir sveitafélög, séreignasjóðs-
bókhald, birgjabókhald, tímabókhald
og framleiðslu- og birgðastýríkerfi
fyrir fyrírtæki í framleiðsluiðnaði.
Fyrír þau fyrirtæki sem nota eigin tölvur
bjóðum við alhliða forritunarþjónustu
óháða tegund vélbúnaðar.
Runuvínnsla hentar
mörgum minni
fVrirtækjum sem ekki
vilja leggja út í mikinn
stofnkostnað og
þurfa á upplýsingum
að halda t.d. viku- eða mánaðarlega.
^Fjarvínnsla hentar
ýmsum stærri
OjB&O fyrirtækjum sem
þurfa á sívinnslu að
halda.
Qa l Þessí kostur býður
^ upp á afkastagetu
stórrar tölvu á verði smátölvu.
Höfóabakki 9 Sími 85933 'J |/
Skeggaparí
steininn
Það er eins gott, að tyrkneskir
verslunareigendur eigi ávallt til
nægar birgðir af rakvélum og rak-
vélarblöðum til þess að landar
þeirra geti rakað sig samviskusam-
lega kvölds og morgna. Það getur
nefnilega veríð hættulegt að vera
skeggjaður i vinaríki okkar f Nato,
hjá lýðræðissinnanum Kenan
Evran hershöfðingja. Ótrúlegt —
en SATT.
Stjórnvöld í Ankara dæma það
nefnilega eftir skeggvexti tyrk-
neskra karlmann hvort þeir geti
verið undirróðursmenn af verstu
tegund. Ef þú ert með alskegg, er
hætta á, að þér verði stungið inn
fyrir að vera strangtrúaður ís-
lamisti. Hökutoppurinn gefur til
kynna, að þú sért harðlínu marxisti.
Þunna yfirskeggið er einkenni
jafnaðarmannsins. Þykk hormotta
er hins vegar aðalsmerki fasistans.
Og segir mér hugur um, að þeir
hljóti að vera í hávegum hafðir
austur þar.
Það mætti svo sem hlæja að
svona dellu, ef ekki væru skýrslur
frá Amnesty International, sem
segja frá því að í tyrkneskum fang-
elsum húki nú þúsundir pólitískra
fanga; verkalýðsleiðtoga, mennta-
manna, sem allir eiga það sameigin-
legt að þá prýðir einhver tegund af
skeggi.
Sannleikurinn er oft ótrúlegri en
Iygin, en svona er þetta nú samt.
GLUGGA
PÓSTUR