Helgarpósturinn - 22.04.1983, Qupperneq 19
^p'&sturinn* FöStudagur 22. arpíl 1983
19
Af innlendum skákmótum
Skákþing íslands var haldið um
páskana að vanda. Landslið og
áskorendaflokkur tefldu hér í
Reykjavík, en opni flokkurinn í
Garðabæ. Nokkuð skyggði á að
enginn fimm fremstu skákmanna
okkar, alþjóðlegu titilhafanna,
skyldi sjá sér fært að tefla á þing-
inu, sem á að vera fremsta skák-
mót okkar íslendinga. En annars
var þarna gott úrval íslenskra
skákmanna, og gaman var að sjá
nokkra unga og efnilega nýliða,
sem mikils má vænta af í framtíð-
inni, ef þeir halda áfram jafn
rösklega og þeim hefur miðað
hingað til. Á þinginu gerðist sá
atburður í fyrsta skipti í íslenskri
skáksögu, að erlendur maður
hreppti fyrstu verðlaun í lands-
liði. Þetta var Dan Hansson, ung-
ur Svíi sem hefur verið búsettur
hér um skeið og er nýlega kvæntur
íslenskri konu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn að
Dan teflir á íslensku skákmóti, en
hann hefur ekki áður staðið sig
jafnvel. Hér sigraði hann með
yfirburðum, hlaut 9 vinninga.
Næstir honum komu þrír menn
jafnir, með 7,5 vinninga hver:
Ágúst Karlsson, Elvar Guð-
mundsson og Hilmar Karlsson.
Dan hlaut því fyrstu verðlaun,
sem munu vera sólarlandaferð, en
hann keppti sem gestur á mótinu
sökum þess að hann er ekki orð-
inn íslenskur ríkisborgari ennþá.
Þessvegna þurfa þremenningarnir
að tefla áfram um titilinn skák-
meistari íslands
8
7
6
5
4
3
2
1
»h ® m
i: MMWWitW't
±m mtw
■ ± & &
&±±
A #
iii i i
Stundum er sagt, að ekkert sé
nýtt undir sólinni, en um þessa
hugmynd er freistandi að full-
yrða, að hún sé ekki eldri en frá
miðri þessari öld. Ekki man ég um
upphafsmann, það gæti vel hafa
verið Tal, hugmyndin er honum
lík. Fórnin er byggð á mati á tafl-
stöðunni en ekki reikningum. Eft-
ir 14rexd5 15. exd5 er þrýstingur
hvíts á e-línunni afar óþægilegur
og svarti kóngurinn á erfitt um að
finna skjól (15rBxd5? 16. Hxe7 +
Kxe7 17. Dxc(5) Áskell velur aðra
leið sem er sýnu lakari, honum
hefur sjálfsagt sést yfir drottn-
ingar fórn hvíts.
14. ..rRxd5?
15. exd5-Bd5?
Eftir 15rBxg5 16. fxg5 standa
allar gáttir opnar. Etv mátti reyna
15rRf6.
16. Dxd5!-exd5
17. Hxe7+-Kf8
18. Bf8-Bf5-h6
Svartur er varnarlaus. Við Hd8 er
svarið 19.Be6!
Nokkru fyrir íslandsþingið fór
skákþing Norðlendinga fram á
Sauðárkróki og var fjölsótt. Þar
bar sigur úr býtum ungur
Akureyringur, Pálmi Ragnar
Pétursson og skaut aftur fyrir sig
ýmsum valinkunnum kempum,
eins og Braga Halldórssyni, sem
reykvískir skákmenn kannast vel
við frá fyrri árum, en hann er nú
kennari við fjölbrautarskólann á
Sauðárkróki.og Akureyringunum
Áskatli Erni Kárasyni og Gylfa
Þórhallssyni.
Akureyringarnir þrír komu
suður og tefldu á íslandsþinginu,
Áskell Örn og Gylfi í landsliði en
Pálmi í áskorendaflokki. Leikar
fóru svo að Pálmi sigraði í áskor-
endaflokki þrátt fyrir harða sam-
keppni. Pálmi er sonarsonur
Pálma rektors Hannessonar,
sókndjarfur og efnilegur skák-
maður sem gaman verður að
fylgjast með.
Ánnar ungur maður sem
athygli vakti í áskorendaflokkn-
um er Björgvin Jónsson, sem
hlaut önnur verðlaun. Björgvin er
sonur Jóns Böðvarssonar skóla-
meistara í Keflavík, en hann var á
yngri árum mikill áhugamaður
um skák — og er það reyndar enn
— hann var frumkvöðull þess að
alþjóðlegt skákmót stúdenta var
haldið í Reykjavík árið 1957.
Gleðilegt er að utanbæjarmenn
skuli sækja íslandsþing meira en
fyrr og láta Reykvíkingum ekki
eftir öll efstu sætin. Ofurveldi
Reykvíkinga á skáksviði er ekki
að öllu leyti hollt fyrir íslenskt
skáklíf. Tvær stuttar skákir frá
þessum mótum skulum við Iíta á.
Sú fyrri er frá Sauðárkróki, en þar
lagði Pálmi þrjá hættulegustu
keppinauta sína í þremur síðustu
umferðunum.
19. Hxd7-Dc4
20. Be7 + -Kg8
21. Hxd6-He8
22. He6 Dxa2!
23. C3-h5
24. Ba3
. og svartur gafst upp, drottning
hans er lokuð inni, ofan á allt ann-
að, hvítur hótar Bbl, Dal,Rb3.
Síðari skákin er úr 3. umferð
landsliðskeppninnar.
Ágúst Karlsson —
Björn Sigurjónsson
Byrjun Rétis
1. c4-e6
6. Rf3-Rf6
3. g3-d5
4. Bg2-d4
5. 0-0-c5
6. d3-Be7
7. e3-dxe3
8. fxe3-Dc7
9. Rc3-0-0
10. b3-Rc6
11. Bb2-Bd7
12. d4-Had8
13. d5-Re5
14. Rxe5-Dxe5
15. De2-Db8
16. d>6!
Ljómandi falleg peðsfórn! Leiki
svartur nú.
16rDxd6, kemur 17. Hxf6! Bxf6
18. Re4 De7 19. Rxf6+ gxf6 20.
Dg4+ Kh8 21. Dh4 e5 22. Be4 og
Pálmi R. Pétursson —
Áskell Örn Kárason
Sikileyjarleikur
1. e4-c5
2. Rf3-d6
3. d4-cxd4
4. Rxd4-Rf6
5. Rc3-a6
6. Bg5-e6
7. f4-Db6
8. Rb3-Be7
9. Df3-Rbd7
10. 0-0-0-Dc7
11. Bd3-b5
12. Hhel-Bb7
13. Rd4-Hc8
14. Rd5!
svartur er varnarlaus.
16. ..rBxd6
17. Hxf6!-gxf6
18. Re4-Be5
19. Rxf6 + -Kg7
20. Dg4 + !-Kxf6
21. Dxf4 + !-Ke7
22. Bxe5-Dc8
23. Bd6 + -Ke8
24. Df6
og mátar í næsta leik.
ur ekki slíkúr maður svikið kjósendur sína, þegar
hann fótumtreður hjarta ástvinu sinnar eins og
hestur?! Hvílíkur saáismi! Hvílík karlremba!
Jæja, Nú líður mér betur eftir að hafa gert
skyldu mína sem sannferðugum kvinnublóma
sæmir og varað ykkur við honum Vilmundi. Og þá
get ég loksins snúið mér að kosningamatseðlinum:
pæa með reyktum laxi, spænskri grænmetissúpu
og möndluperum. Kjörið að styrkja maga- og
taugakerfi um miðnættið fyrir framan kosninga-
sjónvarpið, þegar kjörborðsskjálftinn er liðinn
hjá. Góður málsverður getur fyrirbyggt að úrslita-
skjálftinn leggi ykkur í flensu. Pæann og súpuna
getið þið verið búin að hafa til með góðum fyrir-
vara, en perurnar eru bestar volgar úr ofninum.
Uppskriftirnar eru handa fjórum7
Pæi meö reyktum laxi
Fyllingin:
200 g af reyktum laxi
FRAM TIL FESTU
OG FRELSIS!
Háttvirtu kjósendur!
Nú göngum við að kjörborðinu nk. laugardag að
aflokinni leiftursnöggri, flugskarpri en málefna-
legri kosningabaráttu og veljum menn og konur til
setu á Alþingi næstu vikurnar — eða fram að síðari
umferð kosninganna. (Eins og maður hafi nú ekki
öðrum hnöppum að hneppa á laugardögum...)
Eins og alþjóð á að vera orðið löngu ljóst snúast
þessar kosningar eins og aðrar kosningar um það
hvort íslendingar kjósa að fylkja sér stétt með stétt
eða stétt upp á kant við stétt i baráttunni við verð-
bólguófreskjuna; þá jafnframt um það álitamál
hvort telja eigi verðbólguna niður ásamt Iaunum,
hvort setja eigi lögbundið þak yfir óskapnaðinn
eða hvort eigi að veita enn samræmdara verðbólgu-
viðnám á enn breiðari grundvelli.
Líf okkar er fyrir löngu orðið ein óslitin maga-
kveisa, því við vitum gjörla að samdrátturinn í sin-
um þjóðarlikamans og kreppan í þjóðarbrjóstinu
valda því að við getum ekki leyft okkur að borða
neinar rjómatertur á næstunni, heldur verður fyrst
í stað að verja það skyr sem þegar er komið á disk-
inn. Til þess að svo megi verða þarf styrka stjórn
vöðvastæltrá manna og kvenna sem þora að horf-
ast í augu við verðbólgudrauginn án þess að beygja
af og bregðast við honum af hörku. Menn og kon-
ur sem þora að segja þjóðinni sannleikann og vilja
sækja fram af fullri festu og einurð.
Já, mikill er vandi vor, kjósendur, að velja á milli
allra þessara föngulegu og framsæknu frambjóð-
enda sem allir eiga það sameiginlegt að elska sina
hnípnu þjóð í vanda og allir sem einn myndu þeir
manna fyrstir kasta sér á móti kjarnorkusprengj-
unum til að firra fleiri dauðsföllum, ef á okkur yrði
ráðist — úr austri eða vestri, norðri eða suðri.
Vissulega greinir framboðsflokkana lítillega á um
stjórnunarleiðir, en allir hugsa þeir þó um hags-
muni fjöldans en ei um eigin frama. Svo mikið er
víst! T.d. hefursjálfstæðismönnum ætíð verið ljóst
að fámennri þjóð á borð við íslendinga getur ekki
verið til góðs að stéttirnar berist á banaspjót. Þess
vegna er þeirra kjörorð: „Stétt með stétt“. ó, hve
fagurt...
Vandinn við að velja Besta framboðsflokkinn
eykur enn á magakveisu vora. En ég et> þó fyrir
mína parta þegar búin að útiloka einn flokk, en
það er Bandaiag jafnaðarmanna. Hann kýs ég sko
örugglega ekki og skylda mín og réttlætiskennd
gagnvart þjóð minni býður mér að greina umsvifa-
laust frá ástæðunum fyrir þeirri ákvörðun. Varið
ykkur á Vilmundi! Ég er hrædd um að þar fari
maður sem mælir fagurt en hyggur flátt. Til að
kynnast manninum er ekki nóg að lesa drög að
málefnagrundvelli Bandalags jafnaðarmanna. Þið
skuluð lika lesa persónulegar játningar Vilmund-
ar, þ.ea.s. ljóðabók hans Myndir og Ijóðbrot, því
þar, já þar, kemur maðurinn nefnilega til dyranna
eins og hann er klæddur. í þeirri bók segist hann
oftar en einu sinni bókstaflega hafa traðkað á
hjarta ástvinu sinnar! Ég leyfi mér. að vitna hér í
Hörpusöngva Vilmund^r máli mínu til stuðnings:
En samt
þótt örtög okkar séu samofin
í því sem við elskum
og draumar okkar sœki d sömu mið.
Þá á nóttunni '
þegar þú heldur um hqisinn á mér
og við tölum saman
þá ert þú blóm
en ég hestur
sem traðka á hjarta þínu:
Hjartanu, sem þú gafst mér.
Því ber ekki að neita að ljóð þetta er sannanlega
ort af þeim smekklega tilfinningahita sem einkenn-
ir persónu Vilmundar. En ég bara spyr: hvernig get-
4egg
3 dl sýrður rjómi
6 msk mjólk
2 msk söxuð steinsclja (eða 1 msk af þurrkaðri)
salt og pipar
Deigið:
200 g hveiti
100 g smjör (kalt)
ögn af salti
1. Byrjið á því að útbúa deigið og setja ofninn á 230
gr. Sigtið hvcitið á borðið og saltið það ögn;
skerið smjörið í litla bita og setjið saman við
hveitið. Myljið smjörið saman við hveitið með
fingrunum. Dreypið þá 3—4 msk af köldu vatni
yfir blönduna og hnoðið deigið vel. Látið standa
í isskápnum á meðan þið eruð að útbúa fylling-
una.
2. Roðflettið laxinn, fjarlægið bein ef einhver eru,
og skerið laxinn í litla bita. — Þeytið eggin með
gaffli í skál, bætið út í sýrðum rjóma og mjólk,
saltið og piprið og þeytfð vel með gafflinum.
3. Smyrjið pæaformið (u.þ.b. 25 cm i þvermál)
fletjið deigið út og komið fyrir i forminu. Sting-
ið nokkrum sinnum í botninn með gaffli, raðið
laxabitunum yfir, stráið þá steinseljunni og heli-
' ið að lokum eggjasósunni yfir.
4. Bakið í 15 mín. við 230 gr., minnkið hitann þá
i 170 gr. og bakið í u.þ.b. 20.mín til viðbótar eða
þar til fyllingin er orðin fagurgyllt. Pæinn bragð-
ast jafnvel hvort heldur sem er heitur eða kaldur
og gjarnan má bera fram með honum blaðsal?t
með léttri olíusósu.
Spænsk grænmetissúpa
— Gazpacho
Þetta er köld, friskandi súpa sem ætti að vera ís-
lenskum Spánarförum að góðu kunn, a.m.k. þeim
sem ekki hafa tekið saltfisk og bjúgu með sér að
heiman. Hún er krydduð vel og því er meira en svo
við hæfi að milda kryddkeiminn með nokkrum ís-
molum.
Yi laukur
Vi gúrka
5—6 tómatar eða 1 lítil dós af niöursoönunv'tómöt-
um _. ;
2 grænar paprikur
2 hvítlauksrif
2 msk ólífuolia eða sólblómaolía
1 msk vínedik eöa 2 msk sitrónusafi
11. vatn
1 tsk salt
nýmalaöur pipar eftir smekk
nokkrir dropar af Tabasrosósu
1. Saxið laukinn smátt, skerið gúrku, tómata og
paprikur í litla bita og setjið í skál. Kryddið með
mörðum hvítlauk og bætið út í olíu, ediki eða
sítrónusafa, vatni, salti, nýmöluðum pipar og
tabasco.
2. Látið súpuna standa i ísskápnum í a.m.k. 2 tíma
gjarnan lengur. Smakkið á henni áður en þið
framreiðið hana og kryddið hana frekar, ef ykk-
ur sýnist svo. Setjið síðan nokkra ísmola út i
súpuskálina, ef þið æskið þess. Berið súpuna
fram t.d. með ristuðu brauði og mögrum osti eða
hrökkbrauði með kotasælu og kúmeni.
Frelsi á la Vilmundur
Mér þykir það leitt, elskurnar mínar, að plássips
vegna verð ég að sleppa uppskriftinni að perunum.
(Ritstjórinn hefur nefnilega bannað mér að hafa
framhald á næstu síðu, og það verður að vera
mynd...) En þið deyið áreiðanlega ekki ráðalaus
fyrir því. Svo má líka með nokkrum rétti segja að
skilningur Vilmundar á hugtakinu frelsi skipti
meira máli en möndluperur. Þess vegna ætla ég að
enda þennan pistil á að vitna í lokaorð ljóðsins Frelsi
í áðurnefndri bók Vilmundar. En þar segir orðrétt:
Frelsið
við höfum gert það að skcekju
og við sofum hjá henni _ t
fyrir lítið verð. '
Fram, fram fylking, forðum okkur hættu frá!