Helgarpósturinn - 22.04.1983, Side 21
jjSstúrírih.. Fö'stijdaguY 22. arpíl 1983
21-
eftir Illuga Jökulsson myndir Jim Smart
Rfl?K
Þetta er naestdýrasta umslagið frá Islandi. Það er metið á í kringum eina milljón
króna, eða fjórum sinnum lægri upphæð en „Biblíu-umslagið“.
eigandi umslagsins nú áttað sig á því að hann
átti dálítinn fjársjóð þar sem það var. Hann
ákvað að selja það sem fyrst og í gegnum einn
millilið fannst kaupandi í
útlöndum. Okkur hefur ekki tekist að finna út
verð umslagsins er það var selt úr landi, en það
mun hafa verið umtalsverð upphæð. Svo mik-
ið er víst að skömmu síðar, eða á árinu 1973,
var umslagið selt á uppboði í Hamborg og var
þá metið á 150 þúsund þýsk mörk i frímerkja-
skrá. Ekki er vitað hvort seljandi þá var hinn
sami og keypti umslagið af eigandanum hér
því hann óskaði nafnleyndar við uppboðið og
sama gerði kaupandinn. Raunar hefur einn
heimildarmanna okkar i frímerkjabransan-
um sagt að kannski hafi ekki allt verið sem
sýndist með þetta uppboð. Það getur sem sé
verið að eigandinn hafi sjálfur boðið í, og
keypt umslagið aftur, til þess einfaldlega að
auglýsa það og hækka verðgildi þess. Slíkt
mun ekki vera fátítt í svona sölumennsku, en
athygli skal vakin á því að hér er aðeins um
vangaveltur að ræða.
Farið fram á
dómsrannsókn
Um svipað leyti og fréttist af umslaginu hér
á landi gerðist það að farið var fram á rann-
sókn lögregluyfirvalda á málinu. Þeir sem það
gerðu voru erfingjar manns nokkurs í Hafn-
arfirði sem látist hafði nokkru áður. Þóttust
erfingjarnir, bræður tveir og fleiri aðstand-
endur, kannast við umslagið af lýsingum og
töldu að það hefði verið í eigu föður þeirra.
Vildu þeir nú fá á hreint hvort svo hefði verið,
og þá með hverjum hætti það hefði komist í
annarra manna hendur og verið selt úr landi.
Rannsókn þessi var falin lögreglumanni
nokkrum sem fór samstundis á stúfana.
Bræðurnir töldu að umslagið hefði ef til vill
lent hjá aldraðri konu sem lengi hafði verið í
þjónustu föður þeirra og erft nokkra persónu-
lega muni eftir hann látinn. Rannsóknarlög-
reglumaðurinn fór því á fund konunnar.
Jú, hún kannaðist við eitthvert umslag en
hafði satt að segja aldrei velt því verulega fyrir
sér. Að beiðni rannsóknarlögreglumannsins
athugaði hún hvort það væri enn á sínum
stað; sem var innan í bók nokkurri uppi í
skáp. Það var reyndar ekki Biblía, en guðsorð
engu að síður; nefnilegagömul húslestrarbók.
Og þar var umslagið sem hún hafði fengið frá
fyrrum vinnuveitanda sínum, alveg óhreyft en
allt annað umslag. Þetta var danskt umslag og
heldur ómerkilegt.
Við frekari rannsókn var sannleikurinn í
málinu ekki lengi að koma í ljós og rannsókn-
arlögreglumaðurinn sneri sér að öðrum verk-
efnum. Niðurstöður þessarar rannsóknar
voru hins vegar aldrei gerðar lýðum Ijósar,
enda óskaði maðurinn sem átt hafði umslagið
eftir því að ekki yrði gert opinbert hver hann
væri. En vegna gömlu konunnar og húslestr-
arbókar hennar komst sagan um Biblíuna á
kreik og þeir sem vissu betur sáu ekkert at-
hugavert við að láta þjóðsöguna hafa sinn
gang.
Uppboðið í Sviss
Og nú hefur „Biblíu-umslagið“ sem sé verið
selt á nýjan leik.
Það fór ekki milli mála að upp-
boðshaldararnir i Zurich'í Sviss töldu hér um
merkilegan grip að ræða, sem marka má af
því að það var metið á 300 þúsund svissneska
franka í uppboðsskránni og var það jafnframt
lágmarksverð. Var „Biblíu-umslagið“ lang-
verðmætasti uppboðsgripurinn að þessu
sinni. í Morgunblaðinu þann 12. apríl síðast-
liðinn var fjörleg frásögn af uppboðinu frá
fréttaritara blaðsins í Sviss, Önnu Bjarnadótt-
ur, og tökum við okkur það bessaleyfi að birta
hér hluta frásagnarinnar.
„Þegar kom að númer 50720 („Biblíu-um-
slaginu") gleymist að breyta númerinu yfir
höfði Feldmans (uppboðshaldarans), en hann
byrjaðisjálfurá aðbjóða 310.000 sv. franka
í biblíuumslagið. 30 manns voru þá í salnum,
verðið fór hratt upp í 340 þúsund sv. franka,
hækkaði um 10.000 franka í senn, en enginn
sagði neitt nema Feldman sem sagði verðið og
benti á þann sem átti tilboðið. Þegar hamrin-
um var slegið í borðið brosti maður að nafni
Dicky Refson og nokkrir óskuðu honum til
hamingju. En fyrir aftan hann sat litli ítalinn
og veifaði númeraspjaldinu sínu kátur og
hróðugur á svip. Hann var þó fljótur að koma
sér í burtu þegar átti að mynda hann og spyrja
hann nokkurra spurninga. Hann vildi ekkert
um sig eða kaupanda biblíuumslagsins segja
(Áður hafði Anna þó haft eftir honum að
kaupandinn væri ekki íslendingur)...
Refson, sem er umboðsmaður og býr í
Monaco, sagði að hann hefði álitið að hann
hefði hreppt umsiagið. Hann sá hvorki né
heyrði ítalann sem sat að báki hans og keppti
við hann um umslagíð. Hann hafði umboð frá
ónefndum skjólstæðingi, sem hann vildi að-
eins segja að væri ekki íslenskur, til að bjóða
340.000 sv. franka í umslagið. Hann var leiður
yfir að hafa ekki fengið það, en sagði að ekk-
ert væri við því að gera.
Menn klöppuðu þegar biblíuumslagið var
selt, en uppboðið hélt óhindrað áfram.
Frammi á ganginum töluðu menn um rugling-
inn og brostu að kænsku ítalans. Hann var
augsýnilega vel þekktur, en enginn vildi gefa
upplýsingar um hann“
Framboð og eftirspurn
Hér látum við staðar numið í frásögn Önnu
Bjarnadóttur í Mörgunblaðinu. Þess má geta
að alls voru 117 íslensk frímerki seld á þessu
uppboði, sem fram fór þann 10. þessa mánað-
ar, en að sjálfsögðu var langhæsta verðið
greitt fyrir „Biblíu-umslagið“. 340 þúsund
svissneskir frankar gerir rösklega hálfa fjórðu
milljón íslenskra króna, en þess ber að geta.að
þá eru sölulaunin, sem nema 15%, eftir. Alls
þarf hinn nafnlausi kaupandi því að punga út
með hér um bil fjórar milljónir íslenskra
króna. Til samanburðar má geta þess að dýr-
asta umslagið sem selt hefur verið á uppboði
í veröldinni fór á eina milljón dollara fyrir all-
nokkrum árum, en það var bandarískt umslag
sem" á núverandi verðgildi dollarans myndi
kosta rúmlega 21 milljón íslenskra króna.
Ekki er þó unnt að segja með nokkrum rétti
að þetta bandaríska umslag, sem kallast Blue
Box Boy Post Master, sé á einhvern hátt
„merkilegra" en hið íslenska; verðlagið í þess
um bransa fer eingöngu eftir framboði og eft-
irspurn, og það liggur í augum uppi að mun
fleiri safna bandariskum frímerkjum og ums-
lögum heldur en íslenskum og eftirspurn eftir
slíkum munum því miklu meiri.
Ekki er gott að segja hvað nú er orðið af
„Biblíu-umslaginu“ margnefnda; að likind-
um er það í einkasafni einhvers staðar á
heimskringlunni, og óvíst hvenær það kemur
næst fyrir almenningssjónir. En Helgarpóst-
urinn stingur a.m.k. upp á því að nafnið
„Biblíu-umslag" verði héðan í frá lagt niður
— hvernig væri að kalla það „fornbókaums-
lagið“?
MIÐIER
MOGULEIKI
Fjöldi stórvinninga á nýju happdrættisári
Mánaðarlega verður dregið um íbúðarvinning; 8-10
bílavinninga; 25 ferðavinninga og hundruð húsbúnaðar-
vinninga.
Aðalvinningurinn sem jafnframt er stærsti vinningur á einn
miða hérlendis er húseign að eigin vali fyrir 1.5 millj. króna
(dregið út í apríl '84).
11 (búðavinningar
á 400 þús. kr. hver.
100 bílavinninga’r
á 75 þús. kr. hver.
300 ferðavinnmgar
á 25 þús. kr. hver.
BUUM ÖLDRUÐUM
AHYGGJULAUST
ÆVIjCVÖLD
600 húsbúnaðarvinningar Aðalvinningur ársins; Verum með í Happdrætti DAS.
á 7.500 kr. hver húseign fyrir 1.5 millj. króna.
og 6188 húsbúnaðarvinningar
á 1.500 kr. hver.
Sala á lausum miðum og endurnýjun
ársmiða og flokksmiða er hafin
HAPPDRÆTTI '83-84