Helgarpósturinn - 13.05.1983, Side 7

Helgarpósturinn - 13.05.1983, Side 7
 Hampton í Háskólabíói Þetta er meistari vibrafónsins Lionel Hampton sem fylgir í kjöl- far Gary Burtons (sjá umsögn hér til hliðar) á vegum Jazzvakningar og heldur hljómleika með 17 manna stórsveit í Háskólabíói 1. júní. Mikið orð fer af Evróputúr Hamptons um þessar mundir og er sagt að gamli maðurinn sé í slíku formi að hann vilji helst ekki hætta að spila fyrr en tónleikarnir hafa staðið langt fram á nótt. Jafnframt er talið að þetta kunni að verða síð- asta hljómleikaferð Hamptons til Evrópu, enda aldurinn tekinn að færast yfir hann. Semsagt, — ein- stakt tækifæri 1. júní, sem Jazz- vakning var gert fjárhagslega kleift fyrir velvild Flugleiða sem gaf alla frakt fría vegna hljómleikanna. Ævintýrjð / Óoeruhúsinu Stundum gerast ævintýri og þeir sem upplifa þau gleyma stund og stað og berast um undrageim í himinveldi háu. Ég er viss um að Benedikt gamli Gröndal hefði svifið á léttum himinvængjum og sál hans verið sjóðandi tónlistar- lífguð af yl hefði hann verið einn þeirra er sátu í Gamla bíói sl. þriðjudagskvöld og hlýddu á kvartett víbrafónmeistarans Gary Burtons. í það minnsta var undir- ritaður í sjöunda himni og svo virtist um flesta er sátu umhverfis hann. Gary og félagar hófu tónleik- ana á verki eftir Chick Corea og áður en hætt var voru Corea verk- in orðin þrjú. Kannski var Chris- tal Silence þeirra eftirminnilegast og segir titillinn allt um verkið og túlkun þess. Þó var það ekki Ijóð þagnarinnar sem einkenndi tón- leikana öðru fremur heldur kraft- ur ljóðsins. Ég minnjst þess ekki að hafa heyrt Burton jafn þrung- inn orku og þarna í Óperuhúsinu, hvort sem það var í blúsi Jim Halls eða dansi Mike Gibbs, sömbu J obims eð'a ópusum Swall- ows rafbassasnillings. Það eru rúm tíu ár síðan ég sat eina dag- stund í Tónleikahöll Berlínarfil- harmóníunnar og hlýddi á Burton einan við víbrafóninn; sú endur- minning er föl samanborið við þau þrjú einleiksverk er hann lék hér. Og var ekki dásamlegt að heyra hann ljúka tónleikunum á söng Jarretts: In Your Quiet Place! Jón Múli var með djassþátt um Burton á dögunum og lauk honum einmitt á þessurn söng og sagði eitthvað á þá leið að enginn kynni betur að fara með róman- tísk smálög en Burton og fannst þá mörgum djassprófessorinn hitta naglann á höfuðið. Þó held ég að Burton hafi spilað hann helmingi betur þarna í bíóinu en á plötunni, en kannski vélaði list augnabliksins þar unt. Gary Burton er víbrafónleikari í sérflokki og þó hann leiki ekki eigin tónverk gerir hann hvert það verk að sínu er hann fer höndum um. Gamlir Ellingtongeggjarar táruðust er þeir heyrðu hann leika Afríkublóm meistarans og tóna- ljóð Mingusar: The Duke Elling- ton Sound of Love, þarsem Lush’ L.ive stakk brosandi upp kollin- um. Þar lék Jim Odgren aðalhlut- verkið. Að sjálfsögðu á hinn kornungi altisti margt ólært og sólóar hans bliknuðu samanborið við Burton, en enginn verður snill- ingur á augabragði og tón hefur hann góðan og mikið blés hann fallega ballöðuna hennar Cörlu Bley: Dreams So Real. Fátt þarf að segja um rýþmann. Swallow er hunang, sagði bassaleikari á konsertinum og eru það orð að sönnu. Mike Hyman lék einsog hugurinn og horfinn var hinn há- væri unglingur er hingað kom með John McNeil. Þetta voru listatónleikar og straumarnir í Óperuhúsinu magn- aðir. Þá er bara að bíða eftir næsta djassmeistara, en það er enginn annar en faðir djassvíbra- fónsins, Lionel Hampton, en hann ætlar að lyfta þakinu af Háskólábíói með fulltingi sautján manna hljómsveitar sinnar þann 1. júni n.k. Gary Burton í Gamla bíói — hef ekki heyrt hann jafn þrunginn orku og í Óperuhúsinu, scgir Vernliarður m.a. í umsögn sinni. Annars er mín skoðun á saman- safnsplötum sú, aó þar sé um frekar ómerkilegt fyrir- brigði og peningaplokk að ræða. Mér reynist alla vega allsendis óframkvæmanlegt að hlusta á þessa gripi mér til ánægju. Það er helst að hægt sé að notast við þessar plötur sem partýplötur, þar sem hvort eð er enginn gefur því gaum hvað er verið að spila. Það sem af er þessu ári held ég að einar þrjár samansafnsplötur náð einhverri sölu hér á landi, þ.e. Ein með öllu, Einmitt... og Club Dancing ’83. Er sú síðast- nefnda innflutt og er hún þeirra sýnu verst.Á henni er varla annað að finna en diskótónlist af aum- ustu gerð. Að mínu mati eru að- eins á henni þrjú þolanleg lög, en þau eru með Phil Collins, Pass- port og Chic. Eina með öllu hef ég aldrei heyrt og man raunar ekki hvaða lög er að finna á henni, en Ein- mitt... er ég að renna í gegn nú þegar ég hripa þessar línur. Á plötu þessari held ég að séu óvenju mörg lög sem ég hef gam- af að hlusta á, miðað við aðrar plötur af þessári gerð, eða svona fimm eða sex. Það eru lögin með Undertones, U2, Dire Straits, Dexy’s Midnight Runners, Grace Jones og kannski John Watts, þó hann hljómi í mínum eyrum alveg eins og Pete Townshend. Af þess- um lögum átti ég fyrir öll nema Dexy’s lagið og Wattslagið, en það síðarnefnda Iangaði mig nú ekki neitt sérlega í, svo af þessu getur nú hver séð hversu léleg fjárfest- ing þessi plata hefði orðið fyrir mig. Mín skoðun er sem sé sú að * , þegar fólk kaupir samansafns- x ; > plötur fái það kannski tvö eða þrjú lög sem það langar til að eignast og svo fylgi hitt jukkið með. Það er nokkuð sem ég kalla slæm plötukaup. Morrison snvr aftur Van Morrison — Inarticulate Speech Of The Heart Sú saga komst á kreik fyrr á þessu ári að einn besti hviti „soul“ söngvari heims, Van Morrison, hygðist gefa út plötu, fara í hljóm- leikaferð um Bretlandi og að því loknu draga sig í hlé frá rokk- bransanum um aldur og ævi. Hljómleikaferðinni er nú lokið og platan Inarticulate Speech Of The Heart er komin út. Sem bet- ur fer hefur Morrison hætt við að hætta alveg, en þó ætlar hann að taka sér frí frá tónlistinni næstu tvö árin, en að þeim tima loknum megum við eiga von á að heyra frá honum að nýju. með árunum, en hann hefur þó sjaldnast útsett tónlist sína á sama hátt tvær plötur í röð. Á Inar- ticulate Speech fer hann t.d. nokkuð aðrar leiðir en á Beautiful Vision, þar sem rafmagnsgítar og svífandi synthesizerleikur er áber- andi, en blásturshljóðfæri eru minna áberandi en oft áður. Það sem er þó sérkennilegást við plötu þessa er að á henni er að finna fjögur svokölluð „instrumental" lög. Á fyrri hliðinni eru t.d. ekki nema tvö „týpísk“ morrison lög, þ.e. Higher Than The World og River Of Time og er það síðar- nefnda öllu betra. Tvö lög eru að- eins leikin þ.e. Connswater, sem er undir áhrifum frá keltneskri tón- list, og Celtic Swing, sem er mun mínu mati besti hluti plötunnar og mér er spurn til hvers ætti mað- ur að vera að kaupa plötu með einum bésta „soul“ söngvara heims ef hann syngur lítið sem ekkert á henni. í þeim lögum sem Morrison syngur, sem betur fer er það meirihluti laganna, kemur í Ijós að hann er enn í fínu sem söngvari. Nú hefur Morrison sem sé tekið sér tveggja ára hvild frá plötugerð og hljómleikaferðum. Vonandi megum við þó vænta þess að þessu tímabili verði gefin hljómleikaplata, frá ferðalaginu nýafstaðna, sem tókst að því er fregnir herma mjög vel. Ýmsír — Club Dancing ’83 og Einmitt... Samansafnsplöturnar hafa ver- ið ákaflega vinsælt fyrirbrigði hér á landi síðustu árin og má eigin- Iega segja að plötur þessar hafi komið í stað lítilla platna, sem hér virðast eiga erfitt uppdráttar, hvað sölu varðar. Fyrir nokkrum árum voru það plötur frá breska fyrirtækinu K-Tel sem mestu réðu á samansafnsplatna hér á landi en þegar plötupressun fluttist inn í Íandið urðu kaflaskil. Hljóm- plötuútgáfan Steinar reið á vaðið með að gefa út samansafnsplötu, sem eingöngu var hugsuð fyrir íslenskan markað, en þar var í bland að finna íslenska og erlenda flytjendur. Mín skoðun er sú að margar þeirrá platna sem gerðar eru hér heima séu mun betur vald- ar en þær erlendu, að ég tali nú ekki um hve þær þjóna betur markaðnum. Þar sem plata Morrisons Beautiful Vision var að mínu mati ein af tíu bestu plötum síðastlið- ins árs var ég því nokkuð spenntur að fá frá honum nýja plotu. Það verður þó að segjast eins og er, að þegar ég spilaði Inarticulate Speech fyrst, varð ég fyrir all- nokkrum vonbrigðum. Éftir þvi sem ég spilaði hana meira vandist ég henni og sætti mig nú ágætlega við hana. Morrison reynir ávallt að breyta til og þróa tónlist sína. Það má kannski segjaað sem lagahöfund- ur hafi nann ekki mikið breyst rokkaðra lag, hvað svo sem nafnið gefur tii kynna, og mest áberandi við það er góður saxófónleikur. Rave On, John Donne er síðasta lag fyrri hliðarinnar og er texti þess ekki sunginn, heldur talaður og minnir upplestur textans mig nokkuð á Linton Kwesi Johnson, en rétt er þó að taka fram að lagið er samt ekki í reggaestíl. Seinni hliðin byrjar og endar með „instrumental" lögum, en þeirra á milli gefur að heyra lög í þeim stíl sem frekar hefði verið von á frá Morrison. Þessi fjögur lög, sem hér um ræðir, eru að eftir Gunnlaug Sigfússon

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.