Helgarpósturinn - 13.05.1983, Blaðsíða 23
östudagur 13. maí 1983
23
Æ fleiri svið þjóðlífsins taka
f'J nú svip af vídeóbyltingunni
svokölluðu. Nú hefur ráð
gjafafyrirtæki Jóhanns Briem gert
ítarlega könnun á möguleikum
myndbandanotkunar fyrir sjó-
menn á hafi úti, en notkun mynd-
banda um borð í skipum hefur farið
gífurlega í vöxt undanfarið. Er nú i
undirbúningi samstarf við Sjó-
mannasamband íslands um miðlun
myndefnis á kasettum til sjómanna
á vegum fyrirtækis Jóhanns og yrði
þar væntanlega um að ræða stærsta
lokaða sjónvarpskerfið á landinu,
— eða í landhelginni. Þess má geta
að hvað auglýsingamarkað tengd-
an sjávarsíðunni varðar er áætlað
að hann nemi allt að 18 milljónum
króna og mætti þannig vafalaust
standa straum af þessari nýju miðl-
un upplýsinga- og skemmtiefnis...
Frétt um að undirskriftasöfn
/"] un væri hafin meðal Sjálf
*S stæðismanna þar sem skorað
væri á stjórn flokksins að halda
landsfund hið fyrsta og fela ein-
hverjum öðrum en Geir Hallgríms-
syni forystu í stjórnarmyndunar-
viðræðum olli miklum óróa í innsta
hring flokksins. Munu menn þar í
fyrstu hafa haldið að Albert Guð-
mundsson og Sveinn Björnsson
(forseti ÍSÍ) stæðu fyrir undir-
skriftasöfnuninni, en þeim mun þó
fljótt hafa tekist að sanna sakleysi
sitt. Þarna mun hafa verið um
einkaframtak nokkurra manna sem
til þessa hafa verið lítt áberandi í
starfi flokksins. Ekki fer sögum af
undirtektum við söfnunina, en
hins vegar vitað að strax og fréttist
um hana munu Sjálfstæðismenn á
a.m.k. tveimur stöðum úti á landi
hafa undirbúið hliðstæða undir-
skriftasöfnun í kjördæmum sínum.
Af framkvæmdum hefur hins vegar
ekki orðið enn, enda hafa viðbrögð
flokksforystunnar orðið slík að
menn eru sagðir hugsa sig um tvis-
var áður en þeir leggja út í fram-
kvæmdir...
Stuðmenn/Þursaflokkurinn
og Grýlurnar fljúga
I til Færeyja í lok mánaðarins
og halda tvenna tónleika í Þórs-
höfn. Það er fyrirtækið Líkams-
ræktin h/f sem býður tónlistarfólk-
inu í reisuna og hefur leigt heila
flugvél fyrir förina enda ekki van-
þörf á þar eð hljóðfærin vega sam-
tals tvö tonn...
Ný stjórn hefur tekið
Irekstri Félagsstofnunar
fln
^yienta í kjölfar þess að vinsi
menn og umbótasinnar í Háskó
íslands hafa náð saman um meii
hluta. Vaka og umbótasinnar ha
stjórnað á þessum bæ undanfar
misseri. Rekstur félagsstofnun
mun núna skila talsverðum hagna
í fyrsta skipti í langan tíma. Við fc
mennsku stjórnar tekur nú af Péi
J. Eiríkssyni, Kristín Ástgeirsdótt
kvennalistakona...
Tölvuborð .
Prentaraborð
Ritvélaborð
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Konráð Axelsson
Ármúla 36 — SÍMI 82420
Bókav. Sigfúsar Eymundssonar Reykjavík
Bókaval Akureyri
Bókav. jónasar Tómassonar ísafírði
MODEL „HJARTA
í borðstofuna eða
eldhúskrókinn.
Model Hjarta ar íslensk gæðavara, hönnuð í
gömlum bændastíl, aðeins í nýrri og betri út-
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
færslu.
EÐA
Framleitt úr valinni, massífri furu. Fæst í
Ijósum viðarlit eða brúnbæsað og lakkað með
sýruhertu lakki.
Model Hjarta nýtur verðskuldaðra vinsælda,
enda ákaflega hlýlegt sett, hvort sem er í
borðstofunni eða eldhúskróknum — og jafnt í
nýjum húsum sem gömlum.
Áklæði að eigin vali.
FRAMLEIÐANDI FURUHÚSGAGNA í HÆSTA GÆÐA-
FLOKKI
20%
ÚTBORGUN
QG EFTIRSTÖÐVAR
Á 6-8 MÁN.
FUftUHÚSÍÐ HF.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. Suóurlandsbraut 30 105 Reykjavík • Sími 86605.
Hver er þinn
uppáhalds-
matur?
Ólafur Jóhannesson skag-
firskur sælkeri:
Píta með buffi og frönsk-
um. Láttu mig líka fá
kokkteilsósu með.
Ragnhildur Helgadóttir,
sjómaöur:
Eg get bara ekki, hvernig
sem ég reyni, gert upp á
milli pítu með fiski og
pítu með kjúklingi.
Aibert Guðmundsson,
dagpabbi:
Mín fjölskylda vill ekki
annað en pítu. Og það er
allt í lagi, því hún er svo
ódýr, þ.e. pítan ekki fjöl-
, skyldan, og svo saðsöm að
2—3 krakkaormar geta
rifið í sig einu og sömu
pítuna og orðið saddir af.
Kolfinnur Andrésson,
. þingmannsefni:
Ég er ógurlega gráðugur í
allt austurlenskt. Sér-
staklega er ég gráðugur í
pítu! Ég gæti þess vegna
slafrað haría í mig með
bréfi og öllu saman.
Jóhanna Sigurðardóttir,
verkstjóri hjá
Bifreiðaverkstæðinu:
Þe'ssa stundina borða ég
ekkert nema pítu. Auðvit-
að borða ég líka franskar
og svoleiðis. En ég næ því
ekki hvað pítan er góð hjá
strákunum í Pítunni á
Bergþórugötu.
Guðrún Helgadóttir,
1 vörubílstjóri:
Píta er góð að bíta í.
rímar, er það ekki?
Þetta
Spurningin