Helgarpósturinn - 13.05.1983, Side 9

Helgarpósturinn - 13.05.1983, Side 9
9 /J(5sturinn Föstuda9ur 13- maí 1983 Revíuleikhúsið sýnir íslensku revíuna — verulegur hlátur- vaki en hláturinn var orðinn helst til holur í lokin, segir Sig- urður m.a. í umsögn sinni. Græskulaust gaman Revíuleikhúsið sýnir í Gamla bíói Is- lensku revíuna. Höfundar: Geirharður markgreifi og Gisli Rúnar Jónsson á- samt leikhópnum. Leikstjóri: Gísli Rúnar Jónsson. Leikmynd: Steinþór Sigurðssön. Tónlist: Magnús Kjartans- son. Lýsing: Ingvar Björnsson. Leik- endur: Guðrún Alfreðsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Kjartan Bjargmundsson, Pálmi A. Gestsson, Saga Jónsdóttir, Þórhallur Sigurðsson og Orn Arnason. Aðstandendur Revíuleikhúss- ins eiga sér þá hugsjón að auka oss íslendingum hlátur. Einn lið- urinn í þessu hugsjónastarfi er að endurvekja íslenska revíu. Revíur voru hér á árum áður spegill sam- tiðarinnar og birtu oft á tíðum glannalegt skop og háð um menn og málefni á liðandi stund. Satýran var á tíðum slík að mála- ferli spunnust og reynt var að banna sýningar. Fyrir 70 árum var sýnd hér revían Allt í grænum sjó og hún varð mjög umdeild. Einn höfundanna Andrés Björnsson hafði þá eftirfarandi að segja um eðli draumaskopleika þeirra fé- laga: „Skopleika sem ekki gleymi nokkrum þverbresti í þessu þjóð- fjelagi, heldur glenni hann vægð- arlaust framan í fólkið, þangað til það má til að sjá hann og gjöra við honum. Skopleika, sem hitti hvern einasta bókmenntalegan, siðferðislegan og pólitískan nagla á þessu landi svo öruggt og þjett á höfuðið, að hann verði rekinn niður þar sem hann er kominn og komi aldrei upp aptur að eilífu —amen“. Ég hygg það hafi verið revía í þessum anda sem ég von- aðist til að sjá í Revíuleikhúsinu en fékk ekki. Við lifum vitaskuld á breyttum tímum og það er staðreynd að sjónvarpið og kjaftasagnadálkar blaðanna (þ.á m. Helgarpóstsins) hafa að hluta til tekið við hlut- verki revíanna. Því er þó fráleitt svo farið að ekki sé lengur rúm fyrir napra ádeilu og hrollvekj- andi háð. Á slíku örlaði þó sára- sjaldan í íslensku revíunni. Þar er á ferðinni græskulaust gaman í revíu sem mjög er blönduð trúð- leik í anda þöglu myndanna. Því verður ekki neitað að athafnir leikenda voru oft á tíðum veruleg- ur hláturvaki en hláturinn var orðinn helst til holur í lokin. Hugmynd Geirharðar mark- greifa er að sönnu nokkuð snjöll, að búa gríni af menningarlífinu stað að tjaldabaki i leikhúsinu. Leikhópurinn sem þar starfar undir stjórn Ladda á greinilega andstreymt eins og menningar- lífið yfirleitt. Leikararnir eiga til- , vistsínaundirþvíaðhafaeitthvað að starfa og þess vegna hefur hóp- urinn ákveðið að reyna við ýmis- legt það sem menningarlegast og/eða vinsælast telst, s.s. vanda- málaleikrit, GuIIna hliðið, óperu, útvarpsleikrit og síðast en ekki síst sjónvarpsþætti um lífið á hin- um íslenska Dala-ási. Þessi brot eru síðan tengd með ekta revíu- söngvum, sem ýmist eru fluttir af barber-shop kvartetti eða kvenna- tríói í anda þeirra Andrewsdætra. Atriðin eru sannarlega dálítið misfyndin en oft er hægt að skella rækilega uppúr. Ég nefni t.d. út- varpsleikritið og effektana þar, ó- peruna og söngvana marga. Önn- ur atriði misstu marks mörg hver. í því sambandi vil ég einkum minnast á atriðið úr Gullna hlið- inu. Þar virtist mér gæta tilhneig- ingar til ádeilu á aðbúnað listalífs- ins sem birtist í því að leikendur báru auglýsingar á búningum sín- um líkt og keppnislið í íþróttum. Þetta atriði hefur eflaust átt að sýna lakan fjárhagslegan aðbún- að leikstarfseminnar en broddinn vantaði algerlega og skotið fór því framhjá. I slíkum tilfellum virðist mér frekar við leikstjórann að sakast en markgreifann. Gísli Rúnar jónsson hefur marga góða skopleikara að sýsla með í Islensku revíunni en mér finnst hann ekki ná út úr þeim sem skyldi. Aðdáun hans á chap- línskum brellum leiðir t.a.m. sýn- inguna oft afvega. Það var bros- legt að sjá leikara falla fram af sviðinu og oní gryfjuna einu sinni en það var orðið þreytandi í fimmta og sjötta skipti. Af leikurunum stóðu þeir sig best Örn Árnason og Pálmi Á. Gestsson sem báðir útskrifuðust úr ieiklistarskólanum í fyrra. Þeir virðast báðir fæddirgamanleikar- ar, næmir á aðstæðurnar og búa yfir góðri tækni. Líkamlegt ásig- komulag þeirra tveggja og Ladda nýttist oft vel. Laddi er fyrir löngu annálaður spaugfugl og hann stóð fyllilega fyrir sínu en virtist þó ekki kunna sér hóf á stundum. Kjartan átti góða spretti en var bundnari af karakter sínum en hinir og átti þess vegna örðugara uppdráttar. Þær Guðrúnarnar og Saga komu langbest út í söngat- riðunum enda virtust mér það vera einu atriðin þar sem þær fengu virkilega að sýna hvað í þeim bjó. Ég veit ekki alveg hvort ég á að hvetja fólk til að skella sér í revíuna að sjá „révíuna“, en mér finnst þó tiltækið heillandi og jafnvel virðingarvert. Afstaða min til verksins markast ef til vill dálítið af óraunsæjum vænting- um og fordómum. Á frumsýn- ingu hlógu margir dátt og Iengi og fimm ára snáði sem ég hitti í hléi var miður sín af hræðslu yfir að sýningin væri búin! Ef þið skellið ykkur í Gamla bíó, takið þá börn- in með fyrir alla muni. SS Skítverk Auslurbœjarbíó: Nana. Líklega bresk-frönsk. Handrit: Marc Behm, mjög lauslega (!) byggt á skáldsögu Emile Zola. Leikendur: Katya Berger o.fl. Tónlist Ennio Morrecone. Leik- stjóri: Dan Wolman. Öll vinna hefur sín skítverk. Á sunnudagskvöldið sá ég Nönu... „...byggð á þekktustu sögu Emile Zola.“ stóð í kynningunni í blöðunum. Á filmunni stóð: „Loosely based on..“ og er það nær lagi, því mjög var það laus- lega. Sagan er einhverskonar afsök- un fyrir að gera „vandaða" djarfa mynd, þar sem hver átylla er not- uð til að sýna bert og frygðarsvipi. Skemmst er frá því að segja að mér fannst allt ómerkilegt við þessa mynd, meira að segja fram- lag Ennio Morrecone, sem gerði tónlistina við dollarámyndirnar; hann semur þarna óttalega slappa músik. En af því maður hefur þessa sanngirnisáráttu, er mögu- legt að segja að nokkru virðist til kostað í leiktjöld og kvikmynda- tökumaðurinn sýnist verkvanur. Persóna i myndinni er Georges Méliés.einn fyrsti kvikmyndalista- maður allra tíma. En hér er hann látinn vera frumkvöðull i gerð klámmynda. Aðalpersónan Nana Ieikur niá honum berbrjósta og einhver segir um hana í mynd.nni: Hún er ansi slæm leikkona greyið, en það er eitthvað við hana. Fyrri hluti setningarinnar á við aðal- leikkonuna Katya Berger en ekki sá síðari. Ég skildi aldrei hvað allir þessir menn sáu við Nönu, en ég verð reyndar að viðurkenna að ég sá ekki hvað gerðist eftir hlé: mað- ur verður að fá að halda sjálfs- virðingunni, þó maður fjalli um útlendar kvikmyndir í blöðum. Að lokum smá saga úr bernsku kvikmyndanna: Bræðurnir Lumiére fundu upp kvikmynda- tökuvélina (ásamt með Edison) og höfðu einkaleyfi á fyrirbrigðinu. Georges Méliés var 35 ára gamall töframaður og hann vantaði nýtt gott atriði í sjóið sitt. Hann fór til Antoine Lumiére og bað um að fá að kaupa eina vél. Gamli maður- inn neitaði því og bætti við: Ungi maður, þér ættuð að vera mér þakklátur. Þessi uppfinning er ekki til sölu og ef hún væri það, mundi hún setja þig á hausinn. Það er bara hægt að þéna smá- vegis á henni í skamman tima, sem hverju öðru vísindalegu fá- gæti; þar fyrir utan verður aldrei neitt á henni að græða. Méliés lét ekki segjast og af- sannaði orð gamla mannsins. Það munu aðstandendur Nönu líka þegar hafa gert — ekki væri ég hissa á því. — LÝÓ bíóiii ★ ★ ★ ★ framúrskarandi' ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð ★ þolanleg 0 léleg Háskólabíó: Strok milli stranda (Coast to Coast). Bandarisk kvikmynd, árgerö 1980. Leikendur: Dyan Cannon, Robert Blake. Leikstjóri: Joseph Sargent. Maöur nokkur á vesturströnd Ameríku kemur konu sinni fyrir á geö- veikrahæli á austurströndinni og hyggst þannig losa sig viö hana. Kon- an strýkur hins vegar úr vistinni og heldur vestur. Gamansöm mynd. Bíóhöllin: Ungu læknanemarnir (Young Doctors in Love). Bandarísk kvik- mynd, árgerð 1982. Leikendur: Michael McKean, Sean Young, Hector Lizondo. Lelkstjóri: Gary Marshall. Þessi mynd er hættuleg heilsunni: áhorfendur fá óstöövandi hláturskast. Læknanemar bralla margt á Borgó. Þrumur og eldingar (Creepshow). Bandarisk, árgerö 1982. Leikendur: Hal Holbrook, Adrienne Barbeau, Fritz Weaver, Viveca Lindfors. Handrit: Stephen King. Leikstjóri: George A. Romero. ¥ Fimm stuttar myndir I einni. Grinhroll- vekjur i gamla stllnum. En þvi miður er lítið um grínið og hrollir eru fáir. Þó eru tvær sögurnar nokkuð sæmilegar. Lífvöröurinn (My Bodyguard). Bandarísk kvikmynd. Leikendur: Chris Makepeace, Adam Baldwin, Matt Dillon. Leikstjóri: Tony Bill. Ungur piltur er áreittur í skóla og hann ræöur sér þess vegna lífvörö. Gaman- mynd um alvarlega hluti. Atlantíc Clty. Bandarísk kvikmynd, árgerð 1981. Leikendur: Burt Lancaster, Susan Sarandon. Leik- stjóri: Louis Malle. *** Stórgóð mynd, sem gerist í strandbæ í N.Y. Lancaster er fantalegur leikari. Litli lávarðurinn (Little Lord Fonten- roy). Bresk kvikmynd. Leikendur: Ricky Schroeder, Alec Guinness. Hugljúf mynd um lítinn lávarö, sem hittir annan stærri. Porky’s. Bandarisk kvikmynd. Leik- endur: Don Monahan, Mark Herrier, Wyatt Knight. Gaggómynd um ástir og strandlif unglinga. Gamansöm gamanmynd. Allt á hvolfi (Zapped). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Scott Baio, Willie Ames, Robert Mandan, Felice Schachter. Leisktjóri: Robert J. Rosenthal. Regnboginn: ** í greipum dauðans (First Blood). Bandarísk, árgerð 1982. Handrit: Stallone, o.fl. Leikendur: Sylvester Stallone, Brian Dennehy, Richard Crenna, Jack Starrett. Leikstjóri: Ted Kotcheff. Trúboöarnir (Two Missionaries). ítölsk-amerisk kvikmynd. Leikendur: Bud Spencer, Terence Hill. Leikstjóri: Franco Rossi. Félagarnir eru komnir aftur á stjá. Nú eru þeir í prestabúningi í Vestur- Indíum. En ef maður þekkir þá rétt, eru þeir nú ekki par heilagir. Til móts við gullskipið (The Golden Rendez-vous). Bresk kvikmynd. Leikendur: Richard Harris, Gordon Jackson, John Vernon, David Jan- sen, John Carradine. Leikstjóri: Ashley Lazarus. Spennumynd, gerð eftir sam- nefndri skáldsögu Alistair MacLean um sjórán og fleira skemmtilegt. Á hjara veraldar. íslensk kvikmynd, árgerð 1983. Leikendur: Arnar Jónsson, Helga Jónsdóttlr, Þóra Friörlksdóttir. Handrit og stjórn: Kristin Jóhannesdóttir. Á hjara veraldar er ótrúlega þaul- hugsaö verk, — í smáu og stóru. Kristín leikur sér I tíma og rúmi og dregur fram fjórar megin viddir kvik- myndalistarinnar meö sérkennilegri hætti en ég minnist aö hafa séö áöur á hinu hvíta tjaldi — mynd, texta, hljóö og leik.. Hreinn galdur i lit og cinemaskóp. *** Stjörnubíó: Tootsie. Bandarisk kvikmynd, ár- gerö 1983. Leikendur: Dustin Hoff- man, Jessica Lange, Terry Garr, Charles Durning. Leikstjóri: Sidney Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum i aöalhlutverkinu og sýnir afburða- takta sem gamanleikari. Tootsie er ó- svikin skemmtimynd. Maöur hlær oft og hefur litiö gleðitár i auga þegar upp er staðið. * * * — LÝÓ Saga heimsins 1. hluti (World History Part 1). Bandarísk kvik- mynd, árgerö 1981. Leikstjóri: Mel Brooks. Víst misfyndin mynd, þar sem háö- fuglinn sér heiminn í nýju Ijósi. * Þrælasalan (Ashantl). Bandarísk kvikmynd. Leikendur: Michael Caine, William Holden, Peter Usti- nov, Omar Sharif. Caine og gífurlega falleg kona eru læknar í Afriku. Henni er rænt og hún seld arabiskum olíugreifa. Fallegt landslag, en annaö ekki. Úlfaldarnir skilja islensku. * Nýja bíó: * * Heimsóknartími (Visiting Hours). Bandarisk kvikmynd um hrollvekj- andi atburði á sjúkrahúsi. kl. 5 og 7. Eldvagninn (Chariotsof Fire). Bersk verölaunamynd um hlaupara á Ólym- píuleikum. kl.9. * * * Pink Floyd The Wall. Bresk kvik- mynd. Handrit: Roger Waters. Leik- endur: Bob Geldoff. Leikstjóri: Alan Parker. Hressileg ádeilutónlistar- mynd meö músík eftir þessa frægu sveit. * * Laugarásbíó: * * Næturhaukar(Nighthawks). Banda- risk kvikmynd, árgerð 1981. Leik- endur: Sylvester Stallone, Billy Dee Williams, Rutger Hauser. Leikstjóri: BrUce Malmuth. Þýskur hryöjuverkamaöur kemur til Usa, þar sem Stallone löggan ætlar aö sjá til þess, aö hann geri ekki flugu mein. Spenna I upphafi, spenna i endi. Spenna í miðju. Austurbæjarbíó: * * * Excalibur. Bandarisk kvikmynd, árgerð 1981. Leikendur: Nigel Terry, Helen Mirren, Nicholas Clay. Hand- rit og leikstjórn: John Boorman. Boorman á margar góöar myndir aö baki og hér kemur enn ein góð, viö- fræg og vinsæl um allan heim. Hér segir frá riddurum hringborösins og öörum köppum á þeim tíma er galdrar voru jafn algengir móöurmjólkinni. Bíóbær: Ljúfar sæluminningar (High School Memories). Bandarísk kvikmynd, árgerð 1980. Leikendur: Aneta Haven, Jamie Gillis, John Lesley. Rugbyliö er á keppnisferðalagi, en spilararnir komast víst lítiö út fyrir rúmstokkinn. Spennandi verkefni. Hrakfallabálkurinn. Bandarisk kvik- mynd meö og eftir hinn frábæra Jerry Lewis. Gamanmynd í sérflokki. Sýnd á laugardag og sunnudag kl. 14 og 16. Undradrengurinn Remi. Bráö- skemmtileg og hugljúf teiknimynd fyr- ir barniö í okkuröllum. Sýndkl. 14 og 15 á laugardag og sunnudag. Tónabíó: * Bardaginn um Johnson-hérað (Heaven’s Gate). Bandarisk kvik- mynd, árgerð 1981. Leikendur: Kris Kristofferson, Christopher Walken, John Hurt, Isabelle Huppert. Hand- rit og leikstjórn: Michael Cimino. Aö mörgu leyti misheppnuö mynd eft- ir einn ungu strákanna i Hollywood Segir frá uppreisn fátækra innflytj- enda i Wyoming gegn rikum landeig- endum og belju. Kryddaö meö blóöi, brennivíni og brjóstum. MÍR-salurinn: Þegar haustar. Sovésk kvikmynd, árgerð 1975. Leikendur: Armen Dsjigarkhanjan, Vladimir Ivashov, Lára Gevorkjan. Leikstjóri: Edmond Keosajan. Aldraöur sveitamaöur frá Armeniu fer til Moskvu þar sem barnabarn hans ætlar aö hefja skólagöngu. Karlinn er alltaf á þönum I kringum aöra og hug- ar ekki aö sjálfum sér. Sýndásunnudagkl. 16. Öllum heimill ókeypis aögangur. télllist Menningarmiöstööin viö Gerðuberg: Sænska visnasöngkonan Thérese Juel og nokkrir félagar úr Visnavinum syngja og leika í kvöld, uppstigníngar- dag, kl. 21. Þjóðleikhúskjallarinn: Visnakvöld Vfsnavina á mánudag. Sænska visnakonan Thérese Juel kemur fram ásamt islenskum kol- legum hennar. Nýi tónlistarskólinn: Á föstudagskvöld kl. 20.30 verða ein- leikaratónleikar, þar sem nemendur skólans láta leikni sina i Ijós. I tilefni fimm ára afmælis skólans. Kjarvalsstaðir: Nemendur Tónskóla Sigursveins halda tónleika i kvöld, uppstigningar- dag, kl. 20.30. i vestursal. vi^linnVir Norræna húsið: Færeyingavaka á laugardag kl. 20.30. Fyrirlestur, upplestur á færeyskum Ijóöum, færeyskur dans og væntan- lega föroyskur bumbustrengjaslagur. Broadway: l’slandsmeistaramót í hárgreiðslu og hárskurðiásunnudag. Keppnin hefst kl. 10 og lýkur kl. 17. Galadinner um kvöldiö.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.