Helgarpósturinn - 13.05.1983, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 13.05.1983, Blaðsíða 12
12 Pjetur Þ. Maack er vígður prestur SÁÁ. Það er ekki þar með sagt að hamn fáist við venjulegpreststörf. Síðurensvo. Pjetur Þ. Maack ■ þeysist á svörtum Volkswagen Golf GTIyfir Hellisheiðina margsinnis á viku hverri, fœrandi vistmönnum á Sogni boðskap sinn. Og sá boðskapur er harla ólíkur hefðbundnu helgarvœli pokapresta; að sögn þeirra sem notið hafa fyrirlestra hans og leiðsagnar situr hress- leikinn og húmorinn ífyrirrúmi. —- Gleymdu ekki GTI fyrir aftan Volkswag- en, minnir hann undirritaðan á þegar við erum sestir í stofu. Húsgögnin eru glæsileg og formfögur og sjónvarpið sérinnflutt frá Bandaríkjunum. — Ég lá í sjóvarpsbæklingum í tæpt ár áður en ég ákvað merkið segir dellumaðurinn. Bendir svo með vísifingri á blað mitt: — Já, þetta er rétt, Volkswagen GTI. Ann- ars hefðirðu átt að sjá jeppann sem ég ók á í öllum veðrum austur að Sogni þegar ég hóf leiðbeiningarstarfið fyrir nokkrum árum, segir hann og brosir breitt. Það var Willys ár- gerð 1947. Afi minn átti bílinn og ég fann fararskjótann undir Eyjafjöllum. Gamli maðurinn smíðaði reyndar yfir hann. Það var eiginlega gegn öllum lögmálum að sá jeppi gæti ekið. En hann fór allt. Pjetur horfir dreymandi upp í loftið. — Hann var sex volta, það urgaði í honum þegar honum var startað, svona: Uuuuuuu, síðan: Vrúuummmm! Alltaf í gang! Ég setti hann á bifreiðaverkstæði eftir margra ára notkun, þá kom í ljós að allar fjaðrir voru í maski, bremsukerfið búið og hann hékk sam- an á einhverju sem enginn veit hvað var. Það hefur sennilega verið æðri máttur, segir Pjet- ur og gýtur augunum upp á við. — Annars gaf ég Þjóðminjasafninu jepp- ann, þeir nota hann í styttri uppgreftrarferðir á sumrin. Viltu vindil? Fyrstu kynni af brennivíni Pjetur stingur upp í sig digrum vindli og blæs reyknum frá sér meðan hann er spurður um æsku sína. — Ég er fæddur í Danmörku 1950, segir hann og spennir greipar, pabbi var þá með yfirumsjón við byggingu Gullfoss. Hann er skipaverkfræðingur, bætir Pjetur við tíl'út- skýringar. Nú, annars ólst ég upp í Sörla- skjóli... — Nú, þú ert Vesturbæingur, grípur blaða- maður fram í. — Nú ertu eins og Guðni kjaftur! hrópar Pjetur, hann sagði líka að ég væri Vesturbæ- ingur. En strangt tekið tilheyrir Sörlaskjólið ekki Vesturbænum gamla. En hvað um það; ég bjó einnig á Skúlagötunni og þegar ég var sex ára fluttust foreldrar mínir inn í Laugarás. Það var reyndar á Skúlagötunni sem ég komst fyrst í kynni af brennivíni. Lager gömlu Ny- borgarinnar var við hliðina á híbýlum okkar, og ég man að birgðunum var rennt í renni- brautum á vörubíla frá annarri hæð. Pjetur átti eftir að kynnast brennivíni bet- ur. Meira um það síðar. En sem strákur var hann mikið í.sveit, náði bar í skottið á gamla tímanum að eigin sögn, Itérði að slá með orfi og ljá og nam listina að virða laugardaga og sunnudaga að vettugi þegar vinnan var ann- ars vegar. Hann gekk menntaveginn, tók stúdentspróf úr MR 1970, fór síðan í guð- fræði og náði í hóp þeirra síðustu sem voru í akademísku námi áður en lánasjóður náms- manna skipti öllu upp í annir og prófaskyldu. — Þá fór kennslan mest fram í umræðu- hópum, þetta voru kaffi og huggulegheit, seg- ir Pjetur. Guðfræðinám er engin ítroðsla heldur vísindaleg nálgun á guðfræði gegnum marga þætti einsog sálarfræði, trúfræði og siðfræði. Pjetur vann hörðum höndum með námi; kenndi í gagnfræðaskólajók leigubíl, vann í Tónabæ og stundaði aðra sumarvinnu. — Mér fannst gott að vera ekki í fíla- beinsturni þessi háskólaár mín, heldur öðlast eðlilega innsýn í þjóðfélagið, undirstrikar hann. „Fötluðu prestarniru Að loknu námi 1976 dembdi Pjetur sér út í prestkosningar í Laugarnesprestakalli, fékk rúmlega eitt þúsund atkvæði en tapaði kosn- ingunum á 50 atkvæða mun. — En það er mesta gæfa sem hefur komið Föstudagur 13. maí 1983 Jnt *sturinrL\ Þegar Pjetur áfrí, líður honum einna best afvelta upþ í stofusóffanum í litla steinhúsi þeirra hjóna að Bergstaðar- strceti. Hann hlustar þá gjarnan á góðan djass (plötusafnið telur tœplega 700 skíf- ur), reykir úrvalsvindil og lœtur sér líða vel. En hann er einnig einlœgur við- skiptavinur kvikmyndahúsanna og djúpt sokkinn í Ijósmyndadelluna (hefur synt á fjórum sýningum og á græjur hátt í bíl- verð nýs bíls). Eða eins og Pjetur segir sjálfur: ,,Ég er dellumaður.“ fyrir mig, segir Pjetur og brosir. Ég var vissu- lega ósáttur við niðurstöður kosninganna þá, því mér fannst að ég tapaði fyrir lygi og rógi. En síðar fékk ég viðurkenningu sem rak á núnar fjörur þegar ég var orðinn stór. Og sá allt í öðru Ijósi. — Rógi? — Já, ég var gerður að alkóhólista, kynvill- ingi, manni sem var gerður brottrækur frá Rauða krossinum fyrir fjárdrátt, ég hafði nauðgað 14 ára stúlku í Tónabæ og fjölskylda mín var sögð valdasjúk familía. Þannig var nú það. — Og viðurkenningin? — Að fá að starfa fyrir SAÁ. Ég hóf lausa- störf hjá samtökunum 1977 sem var mest- megnis fræðsla í skólum. 1979 varð þetta fast starf hjá mér. Ári síðar varð ég leiðbeinandi að Sogni. í septembermánuði 1981 var ég staddur í verslun og hitti þar kennara í Guð- fræðideild sem spurði mig: „Af hverju nærðu þér ekki í vígslu?“ Mig langaði nú ekki mikið í óléttukjólinn og þeytta rjómann um hálsinn — það er að segja hempuna og kragann — svo ég bandaði þessum hugrenningum frá mér. Hann nefndi þá prestembætti sem ekki höfðu sóknir. Nú, það er ekki að orðlengja það; sama haust vorum við tveir prestar vígðir utan sóknar: stúlka sem heitir Míyakó — mande in Japan — hún sem prestur heyrna.tlausra og ég til SÁÁ. Þar með vorum við „fötluðu prest- arnir“ orðnir þrír; skólaprestur er líka til, launaður af KSS. Einn á móti tíu í gegnum starf sitt hefur Pjetur kynnst áfengisvandanum. Sjálfur hefur hann aldrei bragðað víndropa á ævinni, ef undanskilinn er einn bjór sem hann dreypti á þegar hann vann á Fjallfossi sem strákur. — Mér fannst hann hreinlega vondur, segir Pjetur. Nú, svo hef ég náttúrlega dreypt á kaleiknum við altarisgöngur. — Flestir leiðbeinendur og læknar SÁÁ eru óvirkir alkóhólistar. Finnst þér þú ekki vera sér á báti? — Jú um tíma. Samstarfsmenn mínir sögðu mér að ég væri með minnimáttarkennd vegna þessa. Eg ræddi þetta mikið við vin minn Dr. Pirro sem er mikill og góður fyrir- lesari við Freeport-stofnunina í New York. Hann notaði þá líkingu að flestir fæðinga- læknar væru karlmenn. Við getum sagt að númer eitt séum við manneskjur, og númer tvö séu sum okkar alkóhólistar. Ég fell undir lið eitt. Viltu kaffi eða kók? Að örfáum mínútum liðnum leggur Pjetur lítinn fínlegan kaffibolla fyrir blaðamann en sjálfur kneyfar hann kók úr risastóru ölglasi fullu klaka. — Vín, þrumar Pjetur, er viðurkennd flóttaleið út úr raunverunni. Mín raunvera er þannig að ég vil ekki flýja hana. í lífinu skipt- ast á andbyr og meðbyr. Ég vil mæta andbyrn- um í þroskaskyni og meðbyrnum til að njóta uppskerunnar. En hvers vegna drekk ég ekki? Ég veit það ekki. Pjetur veifar þreytulega höndinni. — Einu sinni eyddi ég heilli helgi með for- eldrum mínum í sumarbústaðnum fyrir aust- an til að komast að því af hverju ég bragði ekki áfengi. Sko; ég er fanatískur fyrir sjálfan mig. Og ég hræðist stundum samkerindina með alkóhólistum.Kannski hef ég þennan þátt í mér er. ég hef engan hug á að sannreyna það. Sjáðu til, ég á miða í happdrætti þar sem líkurnar á vinning eru einn á móti tíuþúsund. Vinningslíkurnar að verða alkóhólisti.ef ég drekk á annað borð, eru einn á móti tíu. Ef vinning skyldi kalla, bætir Pjetur við. — Hefur þér aldrei dottið í hug að slappa af með víni? — Nei. Ég kann svo margar leiðir til að slappa af, ef ég er þreyttur á annað borð. Til dæmis að leggjast út af eða fara í gott bað. — En í samkvæmum? — Ég hitti ekki fólk til að slappa af, svarar Pjetur stuttlega. — Varð samband þitt og sjúklin'ganna öðruvísi eftir að þú breyttist úr „venjulegum leiðbeinanda“ í vígðan prest SÁÁ?

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.