Helgarpósturinn - 13.05.1983, Síða 16

Helgarpósturinn - 13.05.1983, Síða 16
Það eru margir að spyrja mann að þessu“ „Ég var 17 ára þegar ég byrjaði að læra á klassískan gítar, en hafði þá spilað nokkuð lengi svona fyrir sjálfan mig og svo á rafmagnsgítar með hljómsveitum eins og Tívolí og Stuðventlunum. Mig langaði til að læra að lesa nótur og auðga mig í músíkinni. Upphaflega stefndi ég ekkert frekar að því að ljúka þessu námi því ég hafði svo margt annað að gera, en svo fór ég alveg á kaf í þetta“. Við erum að tala við Friðrik Karlsson gítarleikara en hann er að Ijúka burtfararprófi frá Tónskóla, Sigursveins D. Kristinssonar þessa dagana. Auk þess spilar hann með Mezzoforte, þeirri frægu hljóm- sveit. Nóg að gera „Mig langar til að læra meira í gítarleik, en það verður að bíða eitt- hvað. Þegar þetta gerðist með Mezzoforte breyttust öll mín plön töluvert því ég var búinn að fá skólavist í Bandaríkjunum, styrk og hvaðeina og vár á leiðinni þang- að í haust. Núna erum við í Mezzo- forte hins vegar á leiðinni til Eng- lands í næstu viku og verðum þar sennilega í 6 mánuði að minnsta kosti. Það er þegar búið að ráða okkur á 50 staði í Englandi, Hollandi og Belgíu. Svo stefnum við að því að gera plötu í ágúst. Ef tími verður til þá ætla ég alveg harður í einkatíma hjá einhverjum kennara í London því ég verð að halda mér við“. — Græðið þið mikið í Mezzo- forte? „Það eru allir að spyrja mann að þessu, en þetta gerist ekki svona á augabragði. Ætii við náum samt ekki að hafa í okkur og á í þessari ferð“. Skemmtilegt hljóöfæri „Ég á nú varla von á því að vera i Mezzoforte alla ævi og stefni því að því að fá kennararéttindi í gítar- leik, því einhvern veginn sé ég mig ekki fyrir mér sem einleikara. Ég hef líka verið að kenna í vetur og finnst það bæði gaman og ekki síð- ur lærdómsríkt. Gítarinn er líka vinsælt og skemmtilegt hljóðfæri, svo það verður örugglega nóg að gera fyrir kennara. Á þessum skóla í Bandaríkj- unum mundi ég taka jazzgítar sem aukahljóðfæri, en ég hef verið að spila jazz í vetur og langar til að halda því áfram. Og í framtíðinni langar mig til að spila sem flestar tegundir af músik. Annars verða þessar pælingar að bíða betri tíma og það leggst mjög vel í mig að vera að fara til London, við fórum þang- að í vetur og það er greinilega mikið um að vera þar, fullt af tónleikum og þetta verður eflaust mjög skemmtilegt". i=r=]Z7 UD®D DDD Qa tTD DD DD Vor- og sumartískan er fyrir löngu mótuð á teikniborðum tískufrömuðanna í London — París — Njú Jork og hefur verið kynnt fyrir heiminum. Eins gott því annars hefði maður heldur betur lent í vandræðum fyrir framan fataskápinn í sumar og slatti af tískuverslunum hreinlega farið á hausinn. Stuðarinn hefur alltaf lagt sig fram við að fylgjast með því nýjasta í tískuheiminum óg vill nú — þó komið sé fram í miðjan maí og vetrartískan í þann veginn að koma — kynna það sem er efst á baugi þessa dagana fyrir lesendum sínum. Við látum okkur ekki aðeins nægja að líta inn á tískusýningar heldur liggjum fyrir vel og smekklega klæddu fólki á förnum vegi. Hérna sjáum við nemanda á eðlissviði Mennta- skólans við Hamrahlíð svífa niður Laugaveginn. Hann er í bleikum samfestingi, meö grænan hjálm á höfði og hanska í sama fagurbleika litnum og samfestingurinn. Til að búningurinn njóti sín betur hefur pilturinn hengt á sig alls konar skemmtilegt dót og er það í stil við hjálminn. Þetta er ágætt dæmi um það hvernig ungt fólk getur látið drauma sína rætast með viðeigandi klæönaði. Það er fleira tíska en hár og föt eins og við sjáum glöggt á þessari mynd. Regnhlífar skipa veglegan sess í sumartískunni í ár og er það vel. Þetta eru nefnilega þarfaþing og algjör mis- skilningur að þurfi rigningu til að þær komi að notun. Regnhlífar eru nefni- lega þekktar fyrir aö koma aö góðum notum i sjálfsvörn og auk þess minnast eflaust margir hvernig Mary Poppins nýtti sér regnhlífina sem flugvélar- hreyfil og flaug um loftin blá. Hún leynir sér ekki ánægjan í svip þessa unga manns, en hann var að eignast sína fyrstu skellinöðru. Eins og vera ber hefur drengurinn hjálm i sama lit og sætiö á nýja hjólinu og hefur með ótrúlegu hugmyndaflugi tekið þaö al- veg upp hjá sjálfum sér að skreyta höfuðfatið með ofurlitilli stjörnu. Svona getur hófleg notkun á ímyndunaraflinu vakið mikla kátínu. Það fer ekki á milli mála að síða hár- ið er aftur að komast i tísku hjá karl- mönnum. Er bara betra aö hafa það ó- greitt og dálítið reytt. Svona getur tísk- an verið duttlungafull. Loksins datt einhverjum í hug að teikna þægilegan og dálítið sniðugan strandklæðnað handa ungu dömunni. Sundbolirnir (svo að ekki sé nú talað um bikiníin) eru farnir að ganga sér til húðar og kvenfólk almennt hætt að ganga i þvílíku í laugunum og á strönd- inni. Þessi hlýlegi búningur mætir líka ströngustu kröfum læknavisindanna, en það er fyrir löngu sannað mál að sólböð séu stórhættuleg heilsu og jafnvel lífi manna. Litirnir eru sólgulur og brúnn og kemur sá síðarnefndi í staðinn fyrir þann sem fólk fær eftir strand- og laugalegur. Má nú nota tímann til annars en vera samt „sólbrúnn". -------Lesendabréf----- Bréf frá Margréti H. Hæ! Mér finnst Stuðaranum hafa hrakað upp á síðkastið. Ég vil hafa hann fyrir virkilegan unglingaþátt en ekki kynningar á einhverjum skallapoppurum eins og þessari Grafík. Mér finnst vanta allar upplýsingar um popp- bransann, eins og hvenær kemur plata með Sjálfsfróun út eða ný. með Vonbrigði? Er það rétt að Bubbi og Mikki séu að setja upp nýja hljómsveit (ég er ekki að meina Mögulegt óverdós)? Af hverju eruð þið hætt að birta Óháða vinsældalistann? Kemur út plata með Baðvörðunum? Ferlega er hún slöpp þessi hljómsveit Björgvins Halldórs- sonar sem spilaði í kosningasjón- varpinu. Ég hef aldrei á ævi minni heyrt annað eins kraftleysi. Það var ekki von að þetta lið fengi at- kvæði á Stjörnumessunni. Jæja, þá er víst best að hætta þessu áður en ég skrifa frá mér allt vit. Bæ, Margrét H. Halló Margrét H. ! Takk fyrir bréfið. Það er bara hressandi að fá smá gagnrýni við og við, sérstaklega þegar við gamlingjarnir hættum okkur of nálægt skallapoppinu. Við viljum líka hafa Stuðarann „virkilegan unglingaþátt", en ekki bara enn eina poppsíðuna. Við höfum nú samt reynt að gera því helsta úr poppheiminum nokkur skil og svörum því með mikilli ánægju þeim spurningum sem þú lagðir fyrir okkur: Sjálfsfróun hefur eitthvað verið við upptökur í Grettisgati, en hvorki þar né í Gramminu var nokkuð að frétta af plötunni. Platan með Vonbrigði kemur út í júní, en það eru aðeins nokkrir dagar síðan lokið var við að taka hana upp. Ego er ekkert að hætta. Bubbi og Mikki stofnuðu bara hljóm- sveitina Móral til að spila á tón- leikunum með Fall. Ein ástæðan fyrir því að hætt var að birta Ó- háða vinsældalistann var sú að fólk greindi á um hversu „ó- háður“ hann væri og eins vildum við hvíla hann um sinn og fá eitt- hvað annað efni i staðinn. Baðverðirnir eru ekki með plötu á leiðinni svo við vitum. Jæja Margrét H. við vonum að þú sért ánægð með þetta svar og skrifaðu okkur endilega sem fyrst aftur. Bless, bless. Helga og Palli. ^

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.