Helgarpósturinn - 13.05.1983, Blaðsíða 22
22 Föstudagur 13. maí 1983
Geir Hallgrímsson kemur af fundinum í gærkvöld, eftir aö Ijóst varð að honum mistækist myndun ríkisstjórnar:
Pólitísk framtíð hans er nú eitt stórt spurningamerki.
Minnihlutastjórn — Nýsköpun?
Geir Hallgrímssyni tókst ekki að hrökkva
inn á niðurtalningarstefnu Framsóknar; eins
konar samræming á hjöðnunarferli Fram-
sóknarmanna og þeirri efnahagsstefnu Sjálf-
stæðismanna að afnema verðbótakerfið sam-
fara kjaratryggingu til láglaunahópa hefur
ekki borið árangur.
Mikill ágreiningur hefur ríkt í þingflokki
Sjálfstæðismanna um ágæti sameiginlegrar
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
ar. Margir hafa haft horn í síðu Geirs, talið
þennan tvífallna kandídat standa of höllum
fæti til að veita nýrri stjórn forystu. Og það
sem meira er: Hluti þingflokksins er ósáttur
við að sitja uppi með Geir sem formann.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er í
nóvember og ógjörningur annað en að endur-
kjósa Geir sem formann, væri hann forsætis-
ráðherra landsins.
Innan Framsóknarflokksins hafa einnig
verið skiptar skoðanir; sterk öfl í flokknum
telja það vænlegast að vera í stjórnarandstöðu
en aðrir aðilar hafa beitt miklum þrýstingi á
forystumenn flokksins að ganga í eina sæng
með Sjálfstæðismönnum. Það voru ekki hvað
síst valdamenn í samvinnuhreyfingunni sem
lögðu hart að Steingrími Hermannssyni for-
manni Framsóknarflokksins að mynda mál-
Steingrímur Hermannsson ræðir við
fréttamenn: Framsóknarmenn vildu
lögbinda vísitöluna í að minnsta kosti
ár, — Sjálfstaíðismenn í mesta lagi
hálft ár.
efnasamning við Sjálfstæðisflokkinn hvað
sem málefnastefnu flokksins leið.
Hvað nú? Sennilegt er að umboð til stjórn-
armyndunar lendi í höndum Svavars Gests-
sonar, formanns Alþýðubandalagsins, hvort
sem það millilendir hjá Steingrími eður ei.
Steingrímur kærir sig sennilega ekki um um-
boðið, þar eð stjórnarmyndunarviðræður eru
þegar afstaðnar við Sjálfstæðisflokkinn og
ekki líklegt að honum takist að breyta neinu
þar um. Vinstri stjórn undir forystu Stein-
gríms er ekki heldur ákjósanleg lausn; hún
mundi fela í sér minnst fjögurra flokka stjórn
að meðtöldum öðrum eða báðum nýju flokk-
unum, hverra stefnur eru flestum óljósar.
Svavar Gestsson gæti orðið lykilmaður við
myndun nýrrar stjómar. Hann hefur þegar
biðlað til Sjálfstæðisflokksins eins og fram
hefur komið í fréttum og átt viðræður við
Geir Hallgrímsson um hugsanlega stjórnar-
myndun. En hvert er baksvið þeirra þreifinga?
r
I fyrrakvöld, þriðjudagskvöld, var haldinn
lokaður fundur áhrifamanna í Alþýðuflokki
og Alþýðubandalagi. Fundinn sátu fulltrúar
flokksins i verkalýðshreyfingunni en einnig
mættu þar aðrir áhrifamenn í flokkunum
tveimur. Frá Alþýðuflokknum mættu t.a.m.
Árni Gunnarsson, Sighvatur Björgvinsson,
Guðríður Þorsteinsdóttir, Snorri Guðmunds-
son og Jón Helgason. Af fulltrúum Alþýðu-
bandalagsins má nefna Ásmund Stefánsson,
Guðmund J. Guðmundsson, Baldur Óskars-
son, Ólaf Ragnar Grímsson, Einar Karl
Haraldsson og Grétar Þorsteinsson.
Umræðuefni fundarins var hugmynd að
stofnun nýsköpunarstjórnar. Að sögn nokk-
urra viðmælenda Helgarpóstsins sem sátu
fundinn, var tónninn jákvæður þótt engar
ákvarðanir né samþykktir hafi verið gerðar,
og ákveðið að hittast aftur til frekari um-
ræðna um stjórnarmyndun Alþýðubandalags
og Alþýðuflokks með Sjálfstæðisflokki.
Samstaða A-flokkanna innan verkalýðs-
hreyfingarinnar er alþe'kkt, og því ekki óeðli-
legt að verkalýðsarmurinn innan Alþýðu-
flokksins og Alþýðubandalagsins sjái sér leik
á borði er stjórnarmyndunarviðræður Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar ná ekki saman.
Þrýstingur verkalýðshreyfingarinnar á valda-
mennina hefur verið mestur innan Alþýðu-
bandalagsins. Þess er skemmst að minnast
fyrir kosningar að ýmsir forráðamenn verka-
lýðshreyfingarinnar höfðu í hótunum um að
stofna nýjan vinstri flokk, eins konar verka-
lýðsflokk, ef fulltrúa verkalýðshreyfingarinn-
ar, Guðmundi J.,væri ekki tryggt þingsæti í
uppstillingu Alþýðubar.dalagsins.
Forystusveit Alþýðubandalagsins hefur því
IMWLEWD
VFIRSVIM
Fréttamennirnir Ingólfur Margeirsson, Fríða Proppé, Gunnar Kvaran og Sigur-
dór Sigurdórsson ræða við Steingrím Hermannsson eftir að slitnaði uppúr
viðræðunum í gærkvöldi: „Útiloka enga flokka“, sagði Steingrímur þegar
hann var spurður við hverja hann mundi tala,fengi hann umboðið.
Erlend yfirsýn fellur niður
Þar eð Magnús Torfi Ólafsson, höfundur
Erlendrar yfirsýnar Helgarpóstsins, dvelst er-
lendis um þessar mundir fellur hún niður að
þessu sinni.
______________________íj'SsturinrL
átt í vök að verjast. Líklegt er að Svavar Gests-
son hafi verið hlynntur hugmyndum verka-
lýðshópanna um nýsköpunarstjórn en hann
þarf hins vegar tíma til að ná samstöðu um *
slíka stjórnarmyndun innan Alþýðubanda-
lagsins.
Öðru máli gegnir um Alþýðuflokkinn.
Áhrifamenn innan Alþýðuflokksins sögðu
við Helgarpóstinn að Kjartan Jóhannsson
væri opinn fyrir slíkum viðræðum en helstu
andmælendum nýsköpunarstjórnar, þeim
Jóni Baldvin Hannibalssyni og Eiði Guðna-
syni, yrði hreinlega ýtt til hliðar í þeim stjórn-
armyndunarviðræðum.
Fulltrúar atvinnurekenda og verkalýðs-
hópa Sjálfstæðisflokksins eru mjög hlynntir
nýsköpunarstjórn. Það eru einkum Þorsteinn
Pálsson og Björn Þórhallsson sem hafa stutt
þessa hugmynd dyggilega, og Albert Guð-
mundsson einnig.
ASÍ og BSRB hafa einnig sent frá sér sam-
eiginlega yfirlýsingu sem túlka má sem for-
mála að stefnu nýsköpunarstjórnar. Þar segir
m.a.: „Nýsköpun arðbærrar atvinnustarfsemi
er frumnauðsyn ef ekki á að koma til atvinnu-
leysis og hún er jafnframt forsenda þess að
árangur náist í baráttu við verðbólgu". Þá er
einnig þeirri eindregnu áskorun beint til
stjórnvalda og stjórnmálaflokka, að nú verði
brotið blað í efnahagsstjórn, að sem víð-
tækastri samstöðu verði náð um stefnu sem
taki tillit til sjónarmiða verkalýðshreyfingar-
innar. Sem kjarna nýrrar efnahagsstefnu er
m.a-. bent á hagnýtingu orkulinda og upp-
byggingu stóriðnaðar, bætt starfsskilyrði
Sjálfstæðismenn koma glaðbeittir af
fundi: Ólafur G. Einarsson, Salóme
Þorkelsdóttir og EgiEI Jónsson.
iðnaðar, samræmt skipulag veiða og vinnslu,
hagræðingu i verslun og bankastarfsemi,
sameiningu fjárfestingalánasjóða og bætt
skipulag opinberrar þjónustu.
Forsendan fyrir myndun nýsköpunarstjórn-
ar er að samkomulag náist milli flokkanna
þriggja um efnahagsstefnu þ. 1. júní n.k. Ná-
ist það samkomulag eru leiðirnar tvær við
stjórnarmyndun: Svavar Gestsson getur
myndað stjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn með
aðild A-flokkanna fyrir 1. júní. Litlar líkur
eru á því að Sjálfstæðisflokkurinn samþykki
Svavar sem forsætisráðherra og muni því gera
kröfu til þess embættis.
Hinn möguleikinn er sá, að formenn kom-
andi stjórnarflokka þurfi tíma tii að ná sam-
stöðu innan sinna flokka um nýsköpunar-
stjórnarmyndun. Þetta gildir ekki síst um
Alþýðubandalagið, því vafalaust neyðist
flokkurinn til þess að Ieggja mál sem Flug-
stöðvarmálið og Alusuisse-málið á hilluna
meðan tekist er á við brýnustu efnahagsmál-
in. Væntanlegur málefnasamningur flokk-
anna mundi þó skýra þessi atriði nánar.
í beinu framhaldi af síðari kostinum væri
ekki ósennilegt að álykta, að Sjálfstæðis-
flokkur myndaði minnihlutastjórn með
tryggingu A-flokkanna eða öfugt. Sú minni-
hlutastjórn mundi sitja til haustsins. Síðan
yrði nýsköpunarstjórnin mynduð.