Helgarpósturinn - 14.07.1983, Síða 4

Helgarpósturinn - 14.07.1983, Síða 4
4 Atlagan gegn ríkiskerfinu: 1. grein Fimmtudagur 14. júlí 1983 -íjSsturinn Hnífnum beitt • Getur ríkiskerfið tekið sjálft sig í gegn? • Helgarpósturinn hefur í dag greinarflokk um væntan- legar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í uppstokkun ríkiskerf- isins. • Á a.m.k. fjórum vígstöðvum er hafin markviss athug- un á ýmsum þáttum: Fyrirhuguð sala ríkisfyrirtækja, út- boð á rekstrarþáttum ríkisspítala og skipulagsbreyting- ar á Tryggingastofnun, endurskoðun bankakerfisins og síðast en ekki síst; nýskipuð nefnd Steingríms Her- mannssonar sem ætlað er að semja frumvarp að nýrri löggjöf um stjórnarráð íslands. Við höfum kallað nefnd- ina „dauðasveit Steingríms“ því hún verður aðalvopn ríkisstjórnarinnar í atlögunni gegn ríkiskerfinu. • Markmið þessara aðgerða ríkisstjórnarinnar eru: Hagræðing, sparnaður, aukin virkni, einföldun og minni ríkisumsvif. Af hverju framleiðir ríkið brenni- vín en ekki einhver annar? Hvers vegna standa ríkisfyrir- tæki í því að leggja síld niður í dósir, reka sumarhótel, framleiða gras- köggla og fóður fyrir búfénað, flytja inn vélar og varahluti, og hvað er ríkið að vasast í prjóna- skap? Spurningar um eðli ríkisrekstrar og skiptingu atvinnustarfseminnar í landinu milli ríkisins og einkaaðila hafa sótt á hugi manna innan og ut- an „kerfisins" síðan Albert Guð- mundsson, fjármálaráðherra lét hefja athugun á sölu ríkisfyrir- tækja og hluti ríkisins í ýmsum fyr- irtækjum, nú í sumar. Reyndar þurfti ekki Albert til að segja Matthíasi Bjarnasyni, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, að fara að kanna þessi mál í fjárfrek- ustu ráðuneytum ríkisins. Bréf Matthíasar til stjórnarnefndar rík- isspítalanna og forstjóra þeirra um að kanna hugsanlegt útboð á ýms- um rekstrarþáttum sjúkrahúsa ríkisins og bréf ráðherrans til for- ráðamanna Tryggingastofnunar- innar um skipulagsbreytingar þar hafa að sama skapi vakið athygli. En fleira hangir á spýtunni en það sem kann að felast í yfirlýsing- um Sjálfstæðisráðherranna. Fram- sóknarmenn ætla líka að taka þátt í gegnumlýsingu kerfisins. Og þeirra maður er Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra. Endurskoðun bankakerfisins Auk „dauðasveitarinnar" nefnd- arinnar sem Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra mun skipa til að stokka stjórnkerfið upp (sjá rammagrein) hefur bankamála- ráðherra Matthías Á. Mathíesen framlengt umboð nefndarinnar um endurskoðun bankakerfisins, sem Tómas Árnason fyrrum viðskipt- aráðherra skipaði á sínum tíma. Þorsteinn Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins tók við for- ystu í nefndinni af Halldóri Ás- grímssyni, sjávarútvegsráðherra. Þessi nefnd hefur það hlutverk að gera tillögur um nýja löggjöf um bankakerfið, sem á að miða að því að gera það einfaldara og virkara. Núverandi löggjöf um stjórnar- ráð íslands er frá 1969. Höfundar hennar voru Bjarni Benediktsson og Jónatan Hallvarðsson, hæsta- réttardómari. Á þeim 14 árum sem liðin eru síðan þessi lög tóku gildi, hafa orðið umtalsverðar breytingar í þjóðfélaginu. Ríkisumsvif hafa aukist talsvert með auknum kröf- um um samneyslu af ýmsu tagi. Vinstri stjórnir síðustu ára svöruðu þessum auknu kröfum. Hægri stjórnin vill annars vegar leitast við að minnka ríkisumsvifin á þeim sviðum þar sem hún telur þau óeðli- lega mikil og hins vegar gera kerfið hagkvæmara og virkara, þannig að það svari sömu kröfum um sam- neyslu og þjónustu og það gerir núna, en með minni tilkostnaði. Á sama hátt og bílar hafa verið gerðir bæði minni og sparneytnari undanfarin ár án þess að fórna þægindum farþeganna, segist ríkis- stjórnin nú ætla að færa ríkisbákn- ið í nútimalegra og virkara form án þess að draga úr þjónustu þess við almenning. Nefnd Matthíasar Frá 1969 fer litlum sögum af end- urskipulagningu í ríkiskerfinu. Fyr- ir þrýsting frá ungum sjálfstæðis- mönnum, lagði þó hægri stjórn Geirs Hallgrímssonar út á svipaðar brautir og Albert Guðmundsson hefur lagt út á nú. Ungliðarnir í flokknum vildu báknið burt með markvissum nið- urskurði ríkisútgjalda og lögðu hart að ráðamönnum flokksins að vinna að þessu í anda frjálshyggj- unnar. Niðurstaðan varð sú, að Matthías Á. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra skipaði nefnd vorið 1977 til að meta m.a. hvort ýmiss framleiðslu- og þjónustu- starfsemi hins opinbera væri betur komið hjá einstaklingum eða sam- tökum þeirra. Nefndin skilaði skýrslum um fimm fyrirtæki í eigu ríkisins sem hún taldi koma til greina að ríkið losaði sig við að einhverju eða öllu leyti. Þessi fyrirtæki voru Lands- smiðjan, Siglósild, Ferðaskrifstofa ríkisins, Bifreiðaeftirlit ríkisins og Slippstöðin á Akureyri, sem ríkið á 54% í. Ríkisstjórn Geirs Hallgríms- sonar entust ekki lífdagar til að klæða tillögur nefndarinnar í at- hafnir og síðustu tvær ríkisstjórnir hafa ekki haft þessi mál á oddinum. Hagræðingu hefur þó verið reynt að koma á hér og þar í kerfinu á undanförnum árum. Henni hefur verið komið á samkvæmt tillögum Fjárlaga- og Hagsýslustofnunar. Engin heildarúttekt hefur þó farið fram. Segja má að sú vinna sem Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra hefur nú sett í gang, sé beint fram- hald að því sem hafið var í tíð ríkis- Geir H. Haarde: Einkarekstur er hag- kvæmari en ríkisrekstur Guðmundur G. Þórarinsson: Við kjósum ekki menn til að reka stál- smiðju eöa ferðaskrifstofu Magnús Pétursson hagsýslustjóri: Ef leiðarljósið er minnkun ríkisum- svifa af prinsippástæðum fjúka fleiri rfkisfyrirtæki Halldór Ásgrfmsson sjávarútvegs- ráðherra: Engin stofnun er svo heil- ög að ekki megi leggja hana niður. Svavar Gestsson: Þetta verða i mesta lagi einhverjar flugeldasýn- ingar

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.