Helgarpósturinn - 14.07.1983, Síða 8
8
sÝniiHfsirsalir
Nýlistasafnið:
Samsýning. Bjöm Roth, Daöi Guö-
björnsson, Eggert Einarsson, og
gestur þeirra Ómar Stefánsson.
Rosalega villt og pönkuö sýning (Ég
dixit) Lýkur á sunnudag.
Hótel Stykkishólmur:
Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn
Guöbrandur Harðarson sýna glæsi-
legar litaðar glansmyndir og teikning-
ar. Sýningin stendur út júlí.
Listmunahúsið:
Lokað út júlí.
Kjarvalsstaðir:
Kjarval á Þingvöllum. Frábær sýning
í Kjarvalssal. Opin I sumar. Annars
staðar i húsinu sýna: Listmálarafélag-
ið í vestursal, fimm grafíklistamenn
sem útskrifuðust úr MHl’ i vor sýna list
á göngum og einnig Rikharöur
Valtingojer, sem sýnir lifla grafíska
bók með Ijóðum. Þrem síðastnefndu
sýningum lýkur á sunnudag. Opið
daglega kl. 14—22.
Ásmundarsalur:
Ásgeir Smári opnar myndlistarsýn-
ingu á laugardag. Sýningin verður
opin út þennan mánuð.
Norræna húsið:
Sumarsýningin á verkum Ásgríms
Jónssonar heldur áfram í kjallara. í
anddyri er sýning á íslenskum sjó-
fuglum.
Gallerí Lækjartorg:
Þrir danskir myndlistarmenn á far-
aldsfæti sýna Byen: 20.10: 82, en
studie í gult 15. 16. og 17. júlí kl.
11—22. Video, litskyggnur, málverk.
Allur salurinn er eitt verk.
Gallerí Grjót
Skólavörðustíg 4a:
Nýtt gallerí. Grand sýning opnar á
föstudag kl. 18—20. Þar sýna Hjördís
Gissurardóttir, Jónína Guðnadóttir,
Magnús Tómasson, Malín Örlygs-
dóttir, Ófeigur Björnsson, Ragnheið-
ur Jónsdóttir og Örn Þorsteinsson.
Og verkin eru grafik, höggmyndir,
fjölvi (multiple), skartgripir, hand-
prjónaöur fatnaður og fleira. Málverk.
Opið alla virka daga kl. 12—18.
Árbæjarsafn:
Opið kl. 13.30—18 i allt sumar. Kaffi-
veitingar i Eimreiðarskemmunni. Á
sunnudaginn kl. 14 er gönguferð um
Elliðaárdal meö leiðsögumanni. Lagt
verður af stað frá safninu.
Safnahúsið,
Selfossi:
Hans Christiansen opnar málverka-
sýningu á laugardaginn kl. 14. Þetta
er fjórða einkasýning Hans og sýnir
hann vatnslitamyndir. Sýningunni lýk-
ur 17. júlí.
Heilsuhæli
Náttúrulækningafélags-
ins í Hveragerði:
ÓlafurTh. Ólafsson á Selfossi heldur
málverkasýningu. Hann sýnir oliu- og
vatnslitamyndir. Sýningunni, sem er
sölusýning, lýkur 15. ágúst.
Bogasalur:
Myndir úr islandsleiööngrum og
fleira nýtt. Opið alla daga kl. 13.30-16.
Sýningin stendur út ágúst.
Gallerí
Langbrók:
Langbrókarmunir til sýnis og sölu.
Opiö virka daga kl. 12-18.
Mokka:
italski myndlistarmaðurinn Ricardo
Licate sýnir verk sín.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Opiö miövikudaga og sunnudaga kl.
13.30— 16. Stórfenglegar höggmynd-
ir.
Ásmundarsafn:
Ásmundarsafn við Sigtún er opið
daglega nema mánudaga frá kl.
14—17.
Ásgrímssafn:
Búiö að opna. Opið daglega kl.
13.30— 18 nema mánudaga. Til
ágústloka. Strætó 10 frá Hlemmi.
leikliiís
Ferðaleikhúsið,
Tjarnarbíó:
Light Nights. Sýningar hefjast í kvöld,
fimmtudag, kl. 21. Næstu sýningar á
sama tima á föstudag, laugardag og
sunnudag. Tilvaliö fyrir erlenda
ferðamenn svo þeir megi kynnast
menningu vorri.
Stúdentaleikhúsið
í Félagsstofnun:
Lorcakvöld. Flutt verða brot úr tveim
verkum eftir þetta mikla skáld, sem
fasistarnir á Spáni drápu siðsumars
1936. Verkin eru Blóðbrullaupið og
Yerma. Einnig verða flutt Ijóð eftir
Lorca, svo og spænsk alþýðutónlist.
Á undan dagskránni verða leiknar
gamlar upptökur frá timum borgara-
styrjaldarinnar. Stjórnandi dagskrár-
innar er Þórunn Sigurðardóttir og
leikendur eru fjölmargir. Sýningar
verða 17., 18., 21. og 22. júlí kl. 20.30.
...in short
or hot pants!
Helgarpósturinn rœÖir við Peter Green í Montmartre
Síðan snemma árs 1979 þegar ég labbaði yfir götuna með Á.Þ.
lcerimeistara mínum og besta vin til að setja á laggirnarþetta ágceta
helgarblað sem þú ert að lesa akkúrat núna, — síðan þá hef ég átt
fréttaritaraskírteini, Press Card. Síðan þá hefur það verið að velkj-
ast í veskinu mínu, oft verið sýnt vinum og kunningjum til gamans,
en aldrei notað... Þá vorum við líka ungir og ekki fullorðnir svo
skírteinið mitt er í rauninni ekki Helgarpóstsskírteini heldur Al-
þýðublaðsskírteini, því þá vorum við einskonar helgarútgáfa Al-
þýðublaðsins... Og í fréttaritaraskírteininu mínu standa þessu
fleygu orð: The bearer of this Press Card is a journalist correspond-
entfortheDailyAlþýðublaðið, Reykjavík, Iceland, anditisexpect-
ed that he be extended all the assistance that he may need on the
execution of this assignment... (Vá, þetta fer að verða einsog grein
eftir Graham Greene)..
Nema stend ég svo ekki um daginn seint að kvöldi reyndar í kjall-
ara djassklúbbsins fræga hér í K., Montmartre, og réttifréttaritara-
skírteinið engum öðrum en Peter Green, — þið vitið: sem stofnaði
Fleetwood Mac hér í den... og fer frammá viðtal við kappann.
Mr. Green horfir lengi lengi á fréttaritaraskírteinið mitt alveg
heillengi lítur svo hlœjandi upp, bendir á myndina af mér og segir:
„Is this really you? My, what a sad picture!"
Ég fer náttúrlega alveg í kerfi, en verð að viðurkenna að Mr.
Green hafi á réttu að standa; þetta er alveg hrœðileg mynd af mér
þarna ískírteininu... égskil ekki af hverju hún erþar, hún ersvo öm-
urleg, og ég er orðinn hálfömurlegur líka þarna í kjallara Mont-
martre...
„Ifyou’re serious, come tomorrow at 3 o’clock.. and we’ll have a
chat..."
Og það gerði ég.
Black Magic Woman
Eg hef lengi verið að búa mig
undir að tala við svona stórlax í
bransanum, og lengi verið sann-
færður um að besta taktíkin á svona
gæja sé að vera vel að sér í smáatrið-
um poppsögunnar og slá um sig
með slíkum anekdótum í tíma og ó-
tíma. — Þessvegna byrjar viðtal
mitt við Peter Green og hljómsveit-
ina Kolors á svona Iíka háfleygan
hátt:
— Mr. Green, Bob Dylan var
einusinni spurður að því hvernig
honum fyndist að vera höfundur
laga einsog Blowing in the Wind,
Times they are a changin’ og fleiri
og Bob Dylan sagði að oft á tíðum
tryði hann því ekki lengur að hann
hefði samið lögin, heldur væru
þetta ævagömul þjóðlög sem hefðu
fylgt mannkyninu frá upphafi vega,
— semsagt Mr. Green: Hvernig
finnst þér að vera höfundur laga
einsog Black Magic Woman, Alba-
tros, Man of the World og Áeiri?
P.G.: „Great! — Þangað til ein-
hver fer að nota þau fyrir sjálfan
sig, setja sinn stimpil á lögin. Málið
er að lögin mín eru viðkvæm og
brothætt strax í mínum flutningi
þannig að þau eru fyrirfram dæmd
til að leysast upp í flutningi ann-
arra. Þetta hefur tekist í örfáum til-
vikum einsog þegar Santana tóku
Black Magic Woman, en það er
undantekningin sem sannar regl-
una..“
McClean percussionisti bandsins
skýst inní samræðurnar:
„A Peter Green song is like a
bottle; it breaks but never rots“.
— En mannstu eftir því þegar þú
samdir lögin, — eru engar sögur í
kringum þau einsog þegar Paul Mc-
Cartney vaknaði einn morguninn
fór frammí eldhús og þar var nátt-
gagnið hans að hræra egg og þá
kom... og nú haldið þið lesendur
mínir að ég sé alveg að fríka út en ég
syng semsagt: Scrambled eggs o
my baby how I love your legs... og
það varð Yesterday!!!
Hahahahahahahahahahahaha
Kolors velta um gólfið af hlátri
og Peter Green glottir úti annað:
„Yeah, I know what you mean!“
Elskast, hafa gaman,
lifa
Ég ætti kannski meðan Kolors
jafna sig á hláturskastinu, að segja
örlítið frá hljómleikum þeirra fé-
laga hér í Montmartre. Þeir byrja
þannig að Spartacus R. fyrrverandi
Osibisameðlimur og núverandi
bassaleikari Kolors treður einn upp
með kassagítar og bjöllur á leggjun-
um og flytur efni af sólóplötum sín-
um. Spartacus er mjög skemmtileg-
ur tónlistarmaður og ég sé enn eftir
að hafa ekki farið og náð í plöturn-
ar til hans einsog hann bauð mér...
En gæsahúðirnar mæta í salinn
þegar bandið skellir sér allt á sviðið
og seiðandi blúsrokkið streymir
fram og svo birtist ógurlega feitur
Fimmtudagur 14. júlí 1983
jjfísturinn
maður í hvítri mussu — hann er
einsog Öræfajökull með gítar hang-
andi framaná sér og skriðjöklalegir
(var einhver að tala um Teódór Fr.)
fingurnir líða um hálsinn og fram-
kalla andstæðu sína ljúfa gítartóna:
Peter Green el maestro... Black
Magic Woman, Albatros (Ómar Á.
þú hefðir sko átt að vera þá!J, Man
of the World, Whatcha Gonna Do?,
White Sky....
Ég spyr hvort þeir séu ekki til í að
koma til íslands?
Og McClean svarar:
„Jú, ef fólkið er þar einsog ann-
arsstaðar vill elskast, hafa gaman
og lifa þá komum við þangaðí’
Og McClean heldur áfram:
„Annars erum við orðnir leiðir á
því að tala sífellt um fortíð Peters...
við erum hljómsveitin Kolors og
Peter er gítarleikari í þessari hljóm-
sveit og hann einsog við vill stíla
inná framtíðina, ekki fortíðina þó
hún sé glæsileg í hans tilfelli.í'
— Hver er saga hljómsveitarinn-
ar?
„Would you like it in short or hot
pants!“
P.G. er orðinn fyndinn og Mc-
Clean svarar:
„Það var eftir plötuna White Sky
að við flugum niður til Barbados til
að ræða málin.“
„Það er æðislegt á Barbados",
grípur P.G. frammí — „þegar við
verðum ríkir ætlum við að kaupa
okkur hús á Barbados.“
Og McClean fær að halda áfram:
„Og niðurstaðan varð semsagt sú
— in short pants — að setja saman
band and here we are..“
— Og hvað hefur verið svona
helst á döfinni hjá ykkur?
McClean: „Við höfum verið í
Þýskalandi, Júgóslavíu, Ítalíu,
Hollandi, Noregi og hér og hver veit
nema við eigum eftir að heimsækja
ísland áður en langt um líður..!1
— Hver er boðskapur Kolors?
„Tónlistin er eini miðillinn sem er
hafinn yfir landamæri tungumáls
og þjóðernis. Hvar sem þú kemur
og spilar skilur fólkið þig.. Tónlist-
in er þvi besti miðillinn tilað koma
ástinni á framfæri og það er boð-
skapur okkar..“
P.S. Ef einhver heima á íslandi
vill halda hljómleika með Peter
Green og Kolors getur hann haft
samband við mig. Á meðan ætla ég
að útvega mér nýja mynd í fréttarit-
araskírteinið mitt....
S.IÓNVARI'
Föstudagur
15. júlí
20.40 Á döfinni. Kalli Sigtryggs er enn
trúr og tryggur áhorfendum. En er
hún Birna farin aö svikja okkur?
Mér sýndist ég sjá hana Rósu Ing-
ólfs um daginn. Hún er ágæt.
20.50 Steini og Olli. Harmleikir frá upp-
hafi tuttugustu aldar. Grátþurrkur
nauösynlegar.
21.10 Varnir Islands. Já, við erum vel var-
in hér fyrir noröan allt og alla. Kan-
inn er góöur. Svo segir amk Goggi
runni. Ólafur Sigurðsson frétta-
maöur ætlar aö stjórna umræöum
um viðkvæmt mál. Hvar er kjarn-
orkan? Fátt um svör. Glasagjálfur
og kokkteilberjabros.
22.05 Rómeó og Júlía. Hér er á ferðinni
ballettútgáfa af þessari einni fræg-
ustu ástarsögu vestursins, eftir
sjálfan Shakespeare. Tónlistin er
eftir Prokofieff. Dansarar eru
Margot Fonteyn og Rudolf Nureyev,
ásamt dönsurum úr kongunglega
breska ballettflokknum. Tónlistin er
amk góö. Um dansinn veit ég ekk-
ert, hef enda á honum takmark-
aöan áhuga.
Laugardagur
16. júlí
17.00 íþróttir. Ég veit ég tala fyrir munn
sjálfs mín: Meira golf. Kannski eru
fleiri sama sinnis? Bjarni Felixson
kynnir. Vonandi ekki heila hallæris-
leiki úr islensku fyrstu deildinni.
Ömurlegt.
20.35 í blíöu og strfðu. Lööur númer tvö,
en alls ekki eins fyndið. Hér er sko
passað upp á aö styggja ekki siöa-
vendnipostulana. Niður meö þá,
hvar i flokki sem þeir standa og í
hvaða embætti sem þeir sitja.
Hræsnarar.
21.00 Vegir réttvisinnar (Justice est
faite). Frönsk bíómynd, árgerð
1950. Leikendur: Michel Auclair,
Claude Nollier, Raymond Bussi-
eres, Jacques Castelot. Leikstjóri:
André Cayatte. Cayatte gerir mynd-
ir meö mjög sterkum siörænum
boöskap. Stundum eru þær ágæt-
ar, stundum herfilegar. Hér er fjall-
aö um kviödóm, sem á aö úrskuröa
um konu sem hefur gerst sek um
líknarmorð. Við sjáum hvaö setur.
22.45 Dafne (Daphne Laureola). Breskt
sjónvarpsleikrit eftir James Bridie.
Leikendur: Laurence Olivier, Joan
Plowright, Arthur Lowe, Bryan
fylarshall. Leikstjóri: WarisHussein.
Ég kannast viö Hussein, en hvaö-
an? Slöari heimsstyrjöldinni er
lokiö, en þá tekur kynjastyrjöldin
viö og lika kynslóöastyrjöldin. Gam-
an, gaman, gaman.
Sunnudagur
17. júlí
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Sig-
uröur Arngrímsson flytur hugg-
unarorö í tilefni dagsins.
18.10 Magga í Heiöarbæ. Hún er hættu-
leg sprengjan, sú sem Magga finn-
ur.
18.35 Börn í Sovétríkjunum. Eitt sinn
dreymdi mig um aö vera barn í
Sovét, að fá aö ákalla Stalin og
Lenín og láta þá vaka yfir mér á nótt-
unni. Finnskur flokkur.
20.35 Sjónvarp næstu viku. Nafnlaust
gaman enn sem stendur, en vænt-
anlega er þaö Guömundur Ingi.
20.50 Blómaskeið Jean Brodie. Bráö-
skemmtilegur þessi skoski mynda-
flokkur um þessa óvenjulegu
kennslukonu. Margur nútímakenn-
arinn mætti taka hana sér til fyrir-
myndar.
21.45 Fyrsti djassleikarinn (Buddy
Bolden Blues). Charles „Buddy"
Bolden lék á trompett og hefur veriö
kallaöur fyrsti djassleikarinn.
Teiknimyndir notaðar til að segja
margar skemmtilegar sögur af
þessum ágæta manni. Ætli Jún
Múli þekki hann?
7,15 Bæn. Ég held að mér sé óhætt aö
byrja svona snemma. Þaö eru allir
komnir á fætur. Góöan daginn.
8.30 Ungir pennar. Siggi-átti-kind-sög-
lÍTVAKI*
Föstudagur
15. júlí