Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 10

Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 10
10 Fimmtudagur 14. júií 1983 Helgai----- JDústurinn £ Ý\ Þegar leið að kosning- um greip Olla og Malla ó- róleiki. Malli minntist oft á auðvaldið og Olli sagði að stöðugt væri verið að klípa af kaupinu. Báðir voru sammála um að bæta ætti kjör láglaunafólksins, en þegar leið á umræðurn- ar við matarborðið varð ljóst að þeir vildu fremur að kaupið þeirra væri bætt en annarra. Og oft sögðu bræðurnir: Til hvers fór maður í iðnnám ef kaupið er ekki hærra en hjá ófaglærðum verkamannj ? Olli var sammála Malla og Malli tók undir orð Olla. Faðir þeirra og móð- ir samsinntu með því að kinka kolli og líta ýmist til Olla eða Malla. En gamla konan og gamli maðurinn létu enga skoðun í ljós. Það fór einkennilega mikið i taugarnar á Olla og Mall:.. Viku fyrir kosningar f jr æsingurinn í þeim v; x- andi. Olli hafði oft yfir! óð um verkalýðinn og sa; ði: Það mátti ekki sjá á mönnunum þeim að á mölinni oft hafði blætt, að þeir voru kúgaðir komnir í heim og kaghýddir langt fram í ætt. A eftir leit Malli á gamla manninn og gömlu kon- una. En Olli hafði ekki augun af þeim meðan hann þuldi ljóðið sem hann vissi ekki hvort hann fór með rétt. Gamli maðurinn reisti sig á stólnum og þagði en gaf í skyn að honum hefði aldrei blætt á mölinni vegna þess að hann hafði verið bóndi; kannski hafði honum blætt í mold, en það var göfugt og gjörólíkt því að hafa látið blóð sitt renna á grjót eða möl. Tveim dögum fyrir kosningar ákváðu Olli og Malli að tryggja það að gamli maðurinn og gamla konan kysu rétt. Þeir klipptu atkvæðaseðla og skrifuðu á þá nöfn flokk- anna og listabókstafma. Síðan kölluðu þeir á gömlu konuna og gamla mann- inn og kváðust ætla æfa þau í að kjósa. Kannski þú kjósir rétt í þetta sinn, sagði Olli við gömlu konuna. Malli leiddi gömlu kon- una inn í eldhúsið og Olli listabókstaf bændaflokks- ins. Nei, þetta nær engri átt, sagði Malli og lét gömlu konuna fara á ný bak við teppið, eftir að hann hafði útskýrt vandlega fyrir henni að þau væru farin úr bændaflokknum og komin í verkamannaflokkinn. okkar samt. Jæja, sagði Olli. Það kom sér líka vel fyrir kúg- unarvaldið. Væri nokkuð betm þótt við hefðum verið ætíð með hýðingarsvip? spurði sú gamla. Oft er flengdur maður frjáls en sá óhýddi ekki. Olli og Malli afhenti henni kjörseðilinn og sagði henni að fara á bak við teppi í horninu. Þar höfðu þeir útbúið kjör- klefa. Og gamla konan kom undan teppinu og Olli sagði: Má ég sjá seðilinn. bn Malli sagði: Nei, Olli, þú mátt ekki vera eins og auðvaldið og athuga seðilinn áður en hann fer í kjörkassann. Is- land er engin banananý- lenda. Jæja-jæja, sagði Olli og lét gömlu konuna stinga atkvæðaseðlinum gegnum rifu á skókassa. En Malli var fljótur að fara í kass- ann og athuga hvernig gamla konan hafði kross- að. Hún krossaði eins og ævinlega fyrir framan Gamli maðurinn þurfti aðeins að fara í eina æf- ingu og krossaði rétt. En hvernig sem Olli og Malli reyndu að ,,kristna“ þá gömlu gátu þeir aldrei ver- ið vissir um hvern hún kysi í raun og veru á kjördegi. Þegar hinar raunveru- legu kosningar voru haldnar óku þeir henni á kjörstað eftir hádegi, eftir að birt hafði örlítið í höfð- inu á henni. Olli sat undir stýri og til vonar og vara fór hann með ljóðið um mennina sem ekki var hægt að sjá á að þeir voru kaghýddir langt fram í ætt og kusu því auðvaldið. En þá sagði sú gamla: Við minnkuðum ekkert við það að vera hýdd, við héldum sjálfsvirðingu Að svo sögðu ákvað Olli að aka henni hring um kaupstaðinn í von um að hún sefaðist, en þegar það var vonlaust ákvað hann, í samráði við Malla, að fórna atkvæðinu og láta hana ekki kjósa, því hún kysi eflaust kúgunarvald- ið. Olli horfði á Malla. Þeir og foreldrarnir og sá gamli höfðu kosið fyrir hádegi, og þeir strax við opnun kjörstaðarins því flokkur- inn hafði auglýst og beðið stuðningsfólk sitt að kjósa snemma. Nú ákváðu þeir að aka gömlu hjónunum niður að sjó. Olli sagði að þau skyldu draga rúðuna niður svo þau fyndu lykt af hafinu, og þau gerðu það og ilmurinn streymdi inn. Bfllinn rann dálítið til í fjörusandinum og slettist til að aftan með sporða- köstum. Þau stigu út úr bflnum. Gamla konan greip hönd mannsins síns. Hún sá fugla sveima yfir hafmu í leit að æti sem ekkert var en athugulir fuglarnir steyptu sér niður og létu sig svo líða í sveig upp frá hafinu. Gamla konan fann hvernig hafið streymdi móti henni, ekki kalt og vott heldur eins og eitthvað sem var inni í henni sjálfri, heitt og endalaust á alla vegu. Yfir víðfeðminu var ekki himinn, hafið var himinn í senn, og um- hverfis voru engar strend- ur og niðri í hafinu voru ekki djúp heldur endalaust haf. Gamla konan fann víð- áttuna og hélt hún myndi deyja, meðan hún hélt í hönd gamla mannsins, en þá fór að rigna og þau hrökkluðust inn í bílinn. Mér er alveg sama, sagði gamla konan og strauk upphandlegginn meðan regnið dundi á bíl- þakinu. Olli og Malli vissu ekki hvað orð hennar merktu, en Olli var þeirrar skoðun- ar að gamla konan hefði kosið utan kjörstaðar og af því væri henni sama þótt þeir ækju henni ekki á kjörstað. Olli hafði þetta á tilfmningunni og skoðun hans staðfestist um kvöldið þegar þeir ætíuðu að láta hana fara í kosningaleik, ' því þá agði hún: Eg er búin að kjósa. Hvenær? Spurðu Malla, svaraði sú gamla og Malli gekk á hana og hún svaraði: Spurðu Olla, svo hvor grunaði hinn um græsku og hélt að hann hefði bilast í trúnni og veitt atkvæði þeirrar gömlu fyrir auð- valdsflokkinn í laun fyrir yfirborgun undir borðið og þeir nöguðu sig í hand- arbökin fyrir að hafa ekki farið með hana á kjörstað, svo úr því hefði fengist skorið hvor var sekur. Ofbeldi á ofbeldi ofan Bióhöllin: Class of 1984. Bandarísk. Árgeri 1982. Aðalhlutverk: PerryKing, Merrie Lynn Ross, Timothy Van Patt- en, Stefan Arngrim, Roddy McDowall. Hanrit: Mark Lester, John Saxton og Tom Holland, byggt á sögu eftir Tom Holland. Leikstjórn: Mark Lester. Fyrir fimmtán árum eða svo var myndin To Sir With Love sýnd í bíóhúsum um víða veröld og gerði mikla lukku hjá unglingum. Hún fjallaði um ungan svartan kenn- ara (Sidney Poiter) sem tók við ó- stýrlátasta bekknum í skólanum og raunir hans við að vinna krakkana á sitt band. Þetta var ansi hugljúf mynd og fólk féll umvörpum í faðma undir lokin. í mynd Bíóhallarinnar, Class of 1984, er verið að fjalla um sama efni — en með öðrum á- herslum, jafnvel þó kennarinn og unnusta hans falli í faðma í lok- in. Dæmi: Þegar kennarinn í Class of 1984 skammar nemendur fyrir óþekkt sprengja þeir bil hans í loft upp og nauðga konu hans. Og kennarinn svarar fyrir sig með því að saga krakkana í sundur í vélsög, kveikja í þeim, lemja þau með kúbeini og hengja þau. Hún er því allt annað en fögur framtíðarmyndin sem Mark Lest- er reynir að draga upp. Og hann segist vita um hvað hann er að fjalla. Á síðasta ári segir hann tæplega þrjú hundruð árásir hafa verið gerðar í bandarískum gagn- fræðaskólum. í Boston segir hann að nemendur gangi í gegn- um vopnaleit við útidyr skólans og í Florida hafa yfirvöld komið upp sjónvarpsvélum í öllum her- bergjum svo hægt sé að fylgjast með hverju fótmáli hættulegra nema. Grimmilegt ofbeldi í skól- um er því efniviður í kvikmynd, eins og hvað annað, og ekki endi- lega nauðsynlegt að láta hana ger- ast i framtíðinni. En heldur þykir mér farið yfir (eða til hliðar við) strikið. Myndin er alls ekki hrollvekjandi framtíð- arsýn, heldur bara enn ein ógeðs- leg ofbeldismynd. Hún lýtur öllum hefðbundnum lögmálum slíkra mynda, með smáskærum í fyrstu, og miklu uppgjöri í lokin. En þegar reynt er að færa ofbeldið í víðara sam- hengi verður allt með ólíkinda- brag, sérstaklega þegar leiðtogi unglinganna fer undir lokin skyndilega að hrópa: „Ég er fram- tíðin, ég er framtíðin!“ Það vant- aði bara að kennari segðist vera nútíðin og skólastjórinn fortíðin. Þá væri enginn í vafa. Það eru grófar einfaldanir af þessari tegund og slök persónu- sköpun sem verða þessari mynd að falli. Leikurinn er einnig frem- ur dapurlegur og er þar Vestur-ís- lendingurinn, og ef til vill fjar- skyldur ættingi, Stefan Arngrim, bróðir Alison Arngrim, ekki und- antekning, því miður. dívi/cmundii eftir .Guöjón Arngrímsson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.