Helgarpósturinn - 14.07.1983, Qupperneq 21
j/~
IpSsturínrL Fimmtudagur 14.
júlí 1983
21
Fjármagnið
Verslunarráð íslands fjármagnar starf-
semi sína eingöngu á árgjöldum aðildarfé-
laganna, auk þess sem það hefur einhverjar
tekjur af telexþjónustu fyrir smærri fyrir-
tæki. Árgjöldin eru reiknuð sem prómill af
veltu fyrirtækjanna og fer sú taia stiglækk-
andi, frá 1.5 prómill niður í 0.2 prómill.
Hæsta árgjald er nú 37800 krónur og í þeim
gjaldaflokki eru stórfyrirtæki á borð við ís-
lenska álfélagið, Flugleiðir, Eimskip, Haf-
skip, stærri tryggingarfélögin, stærri heild-
verslanir og stærri iðnfyrirtæki. Heildar-
tekjur Verslunarráðsins fyrir 1982 voru 4.2.
milljónir króna. Starfsmenn þess eru tíu og
það hefur aðsetur sitt á sjöundu hæð húss
verslunarinnar í Kringlubæ.
65 ára barátta
Helstu baráttumál Verslunarráðsins á 65
ára starfsferli þess hafa verið margbreytileg og
þar má nefna baráttu gegn ríkiseinokun, inn-
flutningshöftum, skömmtunum, opinberum
afskiptum af verðmyndun, gjaldeyrishöftum
og fleiru. En hvar hefur ráðinu orðið ágengt í
þessari baráttu sinni? Árni Árnason:
„Sextíu og fimm ár eru löng saga og ég
þekki hana ekki alla. En við getum nefnt
dæmi eins og viðtækjaverslun ríkisins. Þegar
skipt var um stefnu í efnahagsmálum í kring-
um 1960 voru þær stefnubreytingar á margan
hátt í anda þess, sem Verslunarráðið hafði ver-
ið talsmaður fyrir, og Verslunarráðið var tals-
maður þess að við tengdumst viðskiptasamn-
ingum eins og EFTA“.
Árni nefnir fleiri atriði eins og meira frjáls-
ræði í sölu símtækja en nefnd um gjaldskrá og
þjónustu Pósts og síma starfaði á vegum ráðs-
ins um nokkurra mánaða skeið 1979—1980.
„Nú á að endurskoða gjaldeyris- og við-
skiptalögin í átt til meira frjálsræðis“, heldur
Árni áfram. „Þar höfum við verið að benda á
leiðir og kosti. Verðmyndun hefur lengi verið
baráttumál okkar og við höfum sett hana
töluvert á oddinn á síðustu árum.
Við höfum lagt spilin á borðið og fyrir
bragðið sýnist manni almennur skilningur
vera á því, að það verðmyndunarkerfi, sem við
höfum notast við er orðið alveg gagnslaust".
Verslunarráðið hefur haft það að leiðarljósi
í starfi sínu, að viðskiptalífinu sé best borgið
með frjálsri samkeppni, þannig að kostir
einkarekstrar og einkaframtaks fái að njóta
sín. Og að sögn Árna er ráðið því mótfallið að
opinberir aðilar, ríki eða sveitarfélög, taki að
sér að reka atvinnufyrirtæki og þjónustu sem
væri hægt að láta einkaaðila annast.
„Við höfum þess vegna verið talsmenn þess,
að vissir þættir í starfsemi ríkis og sveitarfé-
laga verði boðnir út“, segir Árni og tekur sem
dæmi sorphreinsun, rekstur skóla, sjúkrahúsa
og brunaliðs og vegalagningu.
„Hins vegar erum við á því, eins og almennt
er, að við höfum látið búa okkur til fyrir-
komulag í gegnum hið opinbera til þess að
fjármagna ýmsa samfélagslega þjónustu,
þannig að það sé ekki háð tekjum manna í hve
miklum mæli þeir geti notið hennar", segir
Árni ennfremur, en skýtur þó inn þeim fyrir-
vara, að þó að þjónusta sé fjármögnuð af op-
inberum aðilum, þurfi þeir ekki endilega að
reka hana líka.
Á framfæri
Verslunarráðið hefur verið töluvert í frétt-
um á undanförnum misserum og kannski
meira en oft áður. Hver er ástæðan fyrir því?
Árni Árnason segir, að félagar í ráðinu hafi
áttað sig á því, að ef þeir hefðu ekki opinber-
lega afskipti af efnahagslífinu og hvernig því
væri stjórnað, myndu aðrir aðilar hafa áhrif
og taka ákvarðanir fyrir þá, og segja þeim fyr-
ir verkum.
„Menn hafa líka gert sér grein fyrir því að
fjölmiðlunin hefur breyst", segir Árni. „Við-
horf hafa líka breyst í þá átt, að almenningur
eigi rétt á að vltá hvíð er að gerast. Við höfum
þess vegna viljað opna starfsemi okkar. Við
höfum ekkert að fela og teljum okkur til hags-
bóta að segja frá því, sem við erum að gera og
reyna að rökstyðja það. Okkur hefur sýnst, að
ef við getum sæmilega rökstutt það sem við
erum að gera, sé það málstaðnum til fram-
dráttar".
— Er Verslunarráðið þá að verða einhver
valdastofnun með óbein pólitísk völd?
„Við höfum verið að setja fram hugmyndir
og ef hugmyndir hafa áhrif, þá höfum við
haft áhrif, en við höfum ekki aðstöðu til að
Verslunarskóli íslands:
Verslunarráðið
ber ábyrgðina
en ríkið rekur
Verslunarráð íslands ber ábyrgð á rekstri
Verslunarskóla íslands, en daglegur rekstur
skólans, svo og launagreiðslur til kennara er
að öðru leyti fjármagnaður úr ríkissjóði.
'Verslunarráðið mun hafa boðið yfirvöldum
að reka skólann fyrir minni pening en þekk-
ist hjá sambærilegum skólum í skólakerf-
inu, en því tilboði var hafnað. Verslunar-
skólinn hefur fengið lóð undir nýtt skóla-
húsnæði í nýja miðbænum í Kringlumýri og
mun sú bygging verða fjármögnuð af skól-
anum sjálfum, en ekki af ríkinu.
þvinga fram baráttumál okkar. Við eigum
ekki aðild að kjarasamningum, við förum
ekki í verkbann og við förum ekki í verkfall.
Við höfum ekki beitt okkur fyrir því, að fé-
lagsmenn okkar hætti að greiða söluskatt og
setji hann inn á reikning til þess að knýja fram
eitthvað, eða beita slíkum baráttuaðferðum,
sem væri í sjálfu sér mjög einfalt. Við höfum
viljað nota leikreglur lýðræðisins, koma skoð-
myndir: Jim Smart
unum okkar á framfæri og ná þannig fram
breytingum. Til þess hafa allir sama rétt og
við“.
Ragnar Arnalds fyrrum fjármálaráðherra
segist ekki hafa orðið var við sérstakan þrýst-
ing frá Verslunarráðinu t.d. við gerð fjárlaga.
„Ég geri ráð fyrir að Verslunarráðið hafi
sent inn erindi eins og fjöldamargir aðilar aðr-
ir, en ég man þó ekki eftir sérstökum erindum
útaf fyrir sig“.
„Ég hef ekki orðið var við þrýsting frá
Verslunarráðinu, ekki hjá okkur. Hann kem-
ur þá í gegnum aðra kanala. Það koma margir
með ábendingar og hugmyndir, en Verslunar-
ráðið hefur þar enga sérstöðu", segir Magnús
Pétursson hagsýslustjóri.
Allir flokkar
Árni Árnason segir að það fari eftir málefn-
um að hvaða stjórnmálaflokki hugmyndir
Verslunarráðsins eigi greiðastan aðgang.
„Ef við tölum um frjálsan afgreiðslutíma
verslana, þá eigum við kannski greiðastan að-
gang að Alþýðubandalaginu", segir hann.
„En ef við tökum eitthvert annað mál, eins og
sölu ríkisfyrirtækja, sem nú er mikið talað
um, þá eigum við þar greiðari aðgang að
Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum
og Alþýðuflokknum“.
Þegar listinn yfir stjórnarmenn Verslunar-
ráðsins er skoðaður, virðast þeir vera mjög
margir, sem á einhvern hátt eru tengdir Sjálf-
stæðisflokknum og er Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra skýrasta dæmið þar um.
Arni Árnason segir hins vegar að þar á milli
séu engin formleg tengsl, né heldur við neinn
annan stjórnmálaflokk, önnur en þau að
menn tali saman.
„Við höfum samið frumvörp fyrir og ráð-
lagt þingmönnum úr öllum stjórnmálaflokk-
um“, segir hann. „Við höfum viljað leggja á-
herslu á að við værum ekki háðir neinum
stjórnmálaflokki, ekki háðir opinberum fjár-
stuðningi þannig að við gætum gagnrýnt
hvaða ríkisstjórn og hvaða stjórnmálaflokk
sem væri. Við gagnrýnum alla flokka jafnt og
kannski harðast þá flokka sem ættu að vera
sammála okkur á hverjum tíma, en gera ekki
það sem þeir hafa sagst ætla að gera, þegar
þeir hafa aðstöðu til þess“.
Eftir helgi kemur
út ný VERA
í henni er mikið
og gott lesefni
m.a.
Nauðgun og vændi
— vanmáttur hverra?
Klám og fjölmiðlar
Sá eini rétti
Að afneita eigin líkama
Eg hugsa
— þessvegna er ég kona
Taktu VERU með þér í fríið
V’
W
±s>