Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 24
/ 24
Fimmtudagur 14. júlí 1983 nösturinn
'elgar
SK/PADEILD
A SAMBANDS/NS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200
annast
flutninga
fyrir
Þig
r* 1 Fjárlaga- og hagsýsludeild
f' J fjármálaráðuneytisins hefur
y m.a. með höndum endur-
skoðun á reikningum Þjóðleikhúss-
ins. Embættismönnum ráðuneytis-
ins hefur blöskrað fjármál leikhúss-
ins sem munu vera í hrikalegu á-
standi eftir síðustu vertíð Sveins
Einarssonar sem fór langt fram úr
fjárframlögum ríkisins til stofnun-
arinnar. Það mun þviekkivera til-
hlökkunarefni fyrir Gísla Alfreðs-
son að setjast í stól Sveins í haust og
hefja starfsemina í mínus...
"1 Eitt af fjármálahneykslum
f' \ Þjóðleikhússins var „boðs-
y ferðin" til Venezuela þegar
Silkitromman var sýnd þar í landi.
Þjóðleikhúsið og íslenska ríkið
greiddi nefnilega allan ferðakostn-
aðinn og laun allra starfsmanna en
Venezuelabúar borguðu hins vegar
uppihald, mat og fyrir sýningar sem
er smákostnaður miðað við útgjöld
islenska ríkisins. Á sama tíma
treysti Þjóðleikhúsið sér ekki til að
senda eina leiksýningu út á land....
Meiri fjármálaóreiða: Full-
Y 1 trúaráðsfundur Listahátiðar
V verður haldinn 28. þessa
mánaðar. Aðskilnaður fyrri for-
manns og framkvæmdastjóra
Listahátíðar, þeirra Njarðar P.
Njarðvík og Örnólfs Árnasonar -
mun ekki vera fagur: Talað er um -
mínus eina milljón. Stór hluti af
skuldasúpunni eru vanskil sem þýð-
ir vaxtakostnaður. Hefur verið lok-
að á Listahátíð af þessum sökum.
M.a. neitaði Morgunblaðið að birta
auglýsingar frá hátíðinni nema
greiðslutrygging lægi fyrir...
Hvaða útvarpsþáttur finnst
/ J þér bestur? Við höfum heyrt,
að laugardagssyrpa Páls
Þorsteinssonar og Þorgeirs Ást-
valdssonar hafi fengið hæsta eink-
unn útvarps- og sjónvarpsþátta í
nýlegri hlustendakönnun Ríkisút-
varpsins. Hér er ekki átt við hvað
margir hlusta, heldur gæðamat,
sem byggt var inn í könnunina.
Þátttakendur í henni voru beðnir
um að gefa hverjum þætti einkunn
frá 1 uppí 5. Laugardagssyrpan
fékk 4.62. Kvöldgestir Jónasar Jón-
assonar lentu í öðru sæti með 4.49.
Baráttan var hörð um næstu sæti.
Þáttur Friðriks Páls Jónssonar á
sunnudagsmorgnum Út og suður
náði þriðja sæti með 4.47. I fjórða
til fimmta sæti urðu Á tali Eddu
Björgvinsdóttur og Helgu Thor-
berg og þáttur Einars Kristjánsson-
ar frá Hermundarfelli, Mér eru
fornu minnin kær. Þessir þættir
voru með 4.46. Gull í mund Stefáns
Jóns Hafsteins hlaut 4.45 eða þar
um bil. Syrpurnar eftir hádegið
voru með frá 4.30 upp í 4.45, Kvöld-
fréttir rokkuðu á svipuðu róli
4.30—4.40 misjafnt eftir dögum,
og hádegisfréttir voru með 4.20 upp
í 4.30. Tommi og Jenni fengu hæstu
gæðaeinkun í sjónvarpi: 4.60. Og
þetta með Dallas er alveg satt.
Næstum allir horfa á það. Það er
vinsælasti þátturinn í útvarpi og
sjónvarpi með 75% glápi. En er
Dallas ekki lélegur þáttur? Jú, lík-
lega finnst fólki það: Dallas fær
ekki nema 4.07 í einkun. Sjónvarps-
fréttir fá 4.30 til 4.40...
Mál og menning mun m.a.
Y 1 gefa út þrjár nýjar íslenskar
skáldsögur í haust, sem eiga
eftir að vekja töluverða athygli. -
Jakobsglíma heitir þriðja bindi
uppvaxtarsögu Sigurðar A. Magn-
ússonar og fjallar um viðkvæmt
tímabil, nefnilega KFUM-tíma
hans. Ólafur Haukur Símonarson -
sendir frá sér Vík milli vina og fjall-
ar um hóp af fólki sem fer utan til
náms, um æskudrauma sem fara til
fjandans. Loks er svo skáldsaga eft-
ir Ólaf Jóhann Sigurðsson, sem er
framhald bókanna Gangvirkið, og -
Seiður og hélog. Munu aðdáendur
Ólafs bíða þeirrar bókar með mik-
illi eftirvæntingu...
3
Albert Guðmundsson, fjár
málaráðherra, lækkaði tolla á
bílum um daginn. Skömmu
siðar lækkaði hann líka tolla á til-
teknum búsáhöldum, grænmeti,
ávöxtum, kornmat, og barnavögn-
um. Spaghetti, kornflex, þurrkaðar
döðlur, frystir, sykraðir ávextir,
gráfíkjur, asparagus, maís, stálull,
hnífapör, kaffivélar, handsnúnar
hakkavélar og fleira lækkaði í verði
í kjölfarið. Albert skoraði öll mörk-
in. Eða hvað? Við heyrum að Albert
hafi aðeins viljað lækka toll á bíl-
unum en framsóknarmenn hins
vegar strækað á þá lækkun nema
aðrar „nauðsynjavörur“ fylgdu
með. Albert lét víst undan þrýst-
ingnum. Samkvæmt stefnuyfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar áttu tolla-
lækkanirnar einkum að „gagnast
þeim sem lægstar tekjur og þyngsta
framfærslubyrði hafa..!‘
'• "1 Sólarlandaferðir ferðaskrif-
YJ stofanna hafa verið þeim
S mikill sólstingúr eins og fram
kom í síðasta Helgarpósti. Nú
munu ferðaskrifstofurnar hafa tek-
ið upp hátt starfsbræðra sinna á
hinum Norðurlöndunum og selja
sæti til sólarlanda fyrir 10-15% af
venjulegu miðaverði ef ferðin er
keypt degi fyrir brottför. Skilyrði er
að sæti séu laus og óbókuð eftir í
vélunum. Og það eru víst engin
vandkvæði með það...
Ferðaskrifstofufólk veltir nú
fyrir sér hvort Hagkaup sé að
fara út í ferðabransann. Fyr-
irtækið hefur sett upp umboðs-
skrifstofu fyrir Ferðaskrifstofu
Austurlands í verslun þess í Lækj-
argötu. Þar eru seldir flugmiðar í
tvær ferðir til Parísar í sumar á
Hagkaupsverði með frönsku flug-
félagi. Skrifstofan í Lækjargötu
annast venjulega ferðskrifstofu-
þjónustu s.s. pantanir á hótelum og
bílaleigubílum. Flugleiðir hafa
hætt við þrjár ferðir til Parísar í
sumar, m.a. vegna þessarar sam-
keppni. C’est la vie...!
’F'l Fram hefur komið í fréttum
Y J að Vikan/Úrval séu að semja
y við Skeljung h/f varðandi
sölu á tímaritunum á bensínstöðv-
um fyrirtækisins. í því sambandi
minnast menn þess að fyrir nokkr-
um árum hófu Shell-stöðvarnar -
sölu á verjum í því skyni að auka
fjölda viðskiptavina og þá bensín-
söluna um leið. Raunin varð þó sú
að bensínsalan stóð nokkurn veg-
inn í stað en verjusalan fór upp úr
öllu valdi. Aukin verjuumsvif fé-
lagsins voru framkvæmdastjórun-
um mikið feimnismál og fór svo að
þeir neyddust til að draga úr sölunni
en hitt...
'STÖFAí Iðnaðarhúsinu
lönar 28388 og 28580
Atlantik býður upp á þriggja vikna ferð
til sólskinseyjarinnar Mallorka með
sérkjörum. Verðið er í sérflokki og auk
þess er barnaafslátturinn meiri en
gengur og gerist.
Ath. Hagstætt verð
Ath. Hagstæð kjör
Ath. 50% barnaafsláttur
(alltuppíl6ára)
Það er ekki tilviljun að Mallorka skuli njóta
þeirra vinsælda, sem raun ber vitni. Eyja-
skeggjar kappkosta við að gera dvöl ferða-
manna, sem eyjuna heimsækja, sem ánægju-
legasta.
Atlantik býður sem fyrr upp á ákjósanlega að-
stöðu fyrir fólk á öllum aldri. Ekki síst fyrir
fjölskyldur með börn.
Takmarkað
sætaframboð.
íslensk framtíö
áiónaðibyggó
FELAG ISLENSKfW O'JREKENDA 50 /VW
Plastpoka og prentun færðu hjá
N«1SÍ.1MS ll1*82655