Helgarpósturinn - 12.04.1984, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar: Árni Þórarinsson
og Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn: Egill Helgason
og Sigmundur Emir Rúnarsson
Útlit: Björgvin Ólafsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Guðmundur H. Jóhannesson
Auglýsingar:
Áslaug G. Nielsen
Skrifstofustjóri:
Ingvar Halldórsson
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiðsla: Þóra Nielsen
Lausasöluverð kr. 30.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36. Sími
8-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprenth/f
Fimm ár frá
barnaári
Helgarpósturinn fæddist á
barnaári. Það var 1979. Og í
fyrsta tölublaðinu, þann 6. apríl
það ár, lögðu steini lostnir for-
eldrarnir út af þessu hér í sama
plássi og vörpuðu m.a. eftirfar-
andi spurningu út í framtíðina:
„Hvers konar krakki kemur
þetta eiginlega til með að
verða?“
Þarna spurðu þeir sem ekki
vissu. Nú hafa fimm ár svarað
spurningunni að nokkru leyti.
Þetta hefur verið fjörlegur
krakki, nokkuð óstýrilátur og
brokkgengur, en viljugur að
læra og ekki svo tiltakanlega
illa innrættur.
Fimm ár eru ekki að öðru
jöfnu stór hluti af mannsævi. En
í lífi blaðs er þetta nokkuð hár
aldur. Fæstum blöðum á is-
landi, sem stofnuð hafa verið
nú seinni hluta aldarinnar, hef-
ur orðið langra lífdaga auðið.
Blaðadauði er algengur hér á
landi, ekki síður en annars
staðar. Helgarpósturinn hefur
oft fengið pestir á þessum fimm
árum. Sumar hafa jafnvel
gengið verulega nærri honum.
En lífsseiglan hefur verið far-
sóttunum yfirsterkari.
Vísir menn hafa fyrir löngu
sett fram þá kenningu að um-
hverfi móti ekki síður ungviði en
upplag og uppeldi hinna nán-
ustu. Sama gildir um þetta af-
mælisbarn. Það er allt öðru vísi
umhorfs í íslensku þjóðfélagi
núna en vorið 1979. Þá voru
umrótstímar. Þá varmikiðtalað
um spillingu. Þá var mikið talað
um kerfi. Yfir þjóðmálum núna
er meiri lognmolla. Islenskt
þjóðfélag er orðið værukærara.
Það hefur ekki orðið betra. Því
stendur meira á sama núna.
Þegar foreldrar Helgarpósts-
ins láta hugann reika yfir fimm
ár fer þessi þróun, - afturför-,
ekki milli mála. Trúlega hefur
krakkinn orðið fyrir einhverjum
áhrifum af umhverfinu að
þessu leyti eins og öðru. Það
þýðir í raun aðeins eitt: Enn er
þörf íyrir Helgarpóst. Þessu
blaði var ætlað að veita um-
hverfinu aðhald, ekki síður en
skemmta og fræða. Þetta blað
hefur ennþá því hlutverki að
gegna, - að gagnrýna þjóð-
félag sem skortir marktæka
sjálfsgagnrýni; óumdeilanlega
eina blaðið sem slíkt getur gert
án ítaka stjórnmálaflokka eða
annarra stórra hagsmunaaðila
eða fjármagnsafla.
Fyrir þessi fimm ár þökkum
við. Lesendum, starfsmpnnum
og ekki síður óeigingjörnu starfi
þeirra fjölda lausráðinna
greinahöfunda sem lagt hafa
Helgarpóstinum lið. En fyrir
utan tilefni til að þakka sjálfum
sérog öðrum fyrirað veratil, þá
eru afmæli ekki til neins annars
brúkleg en fagnaðar. Þau eru
tilefni til að gera sér dagamun.
Föstudagurinn þrettándi þykir
ekki samkvæmt alþjóðatrú sér-
stakur lukkudagur. Það hentar
Helgarpóstinum vel: Á morgun,
föstudaginn 13. apríl, býður HP
öllum vinum og óvinum að
gleðjast eða gráta í afmælis-
boði á Hótel Borg. Hver veit
nema boðið verði til fermingar-
veislu á ári unglingsins. Sjá-
umst!
BRÍF TIL RITSTJÓRNAR
Lipur grein
með stílbroti
Ég hafði lúmskt gaman af að lesa
lipra grein Hallgríms Thorsteins-
sonéir um málefni Flugleiða í HP á
dögunum. Allt megin efni greinar-
innar viðist byggt á upplýsingum,
sem höfundur hefur ciflað sér úr
ýmsum áttum, frá ónafngreindum
heimildamönnum.
Vegna þess hvemig greinin er,
byggð upp kemur viðtal við Agnar
Friðriksson, forstjóra Amcirflugs,
inni í miðri grein heldur fiatt upp á
lesendur. Það stingur svo í stúf við
framsetningu greinzirinncir í heild.
Auk þess em það staðlausir stafir
hjá forstjóranum, að Flugleiðir
reyni að drepa Amarflug og mætti
nefna ýmis dæmi, sem hrekja þá
fullyrðingu. En það er ekkert nýtt
að kenna öðmm um eigin erfið-
leika. Hins vegar er eðlilegt að al-
menningur hrökkvi við þegar allt í
einu kemur í ljós að Amarflug á við
mikinn rekstrarvanda að etja. For-
ráðamenn félagsins hafa nefnilega
stöðugt verið að koma fram í fjöl-
miðlum með fjálglegar lýsingar á
velgengni félagsins. Svo kemur bara
í ljós að ósköp lítið er að marka
þær yfirlýsingar og fréttir, sem fé-
lagið hefur komið á frcimfæri við
almenning undanfama mánuði. En
ég ætla ekki að hafa fleiri orð um
þetta.
Nokkurt staðreyndabrengl er að
finna í grein Hallgríms og vildi ég
því gjarnan koma efirfarandi at-
hugasemdum á framfæri til léið-
réttingar:
1. Sigurður Helgason er ekki bæði
forstjóri og stjómarformaður FI.
Á fyrsta stjómarfundi eftir aðal-
fund 29. mars s.l. sagði hann
lausu starfi forstjóra, og var að
því loknu kosinn stjómarfor-
maður. Samkvæmt 49. gr. laga
um hlutafélög nr. 32/1978 er
r rFVCID Btlalolna U VjXj I O l IV Carrental
IMrT'IÍLiidgÍÍa j—r* ■
Borgartún 24 (hom Núatúns) Sími 11015, á kvöldin 22434.
Sækjum — Sendum — Aðeins að hringja — Nýir og sparneytnir bílar.
Tegund og argerð daggj. Kmgj.
Lada 1500 station árgerð 1984. 500 5,00
Opel Kadett (framdrif) árgerð 1983. 600 6,00
Lada Sþort jeppar árgerð 1984. 800 8,00
Allt verð er án söluskatts og bensins.
NOACK
RAFGEYMAR
FYRIR ALLA BÍLA 0G TÆKI
Sænsku bilalramleiðcndurnir VOLVO. SAAB og SCANIA
nola NOACK ralgeyma vegna kosta þeirra.
stjóm félags, af þeirri stærð sem
Flugleiðir em, skylt að ,yáða
einn eða fleiri framkvæmda-
stjóra". Hjá félaginu eru nú
starfandi fjórir framkvæmda-
stjórar, og stjóm félagsins hefur
falið þeim hverjum um sig af-
markað verksvið. Af hálfu
stjórnarinnar hefur stjómarfor-
manni verið fcilið að fylgjast
með og Scunræma störf fram-
kvæmdastjóranna eftir því sem
tilefni gefst til.
2. Hlutafé ríkisins er hvorki ,/úm-
lega 20%“ né gefur það rétt til
þriggja fulltrúa í 9 manna aðal-
stjóm félagsins. Hlutafé er 20%,
og gæfi því reikningslega rétt á
1,8 fulltrúa. Af hálfu ríkisins sitja
tveir fulltrúar í stjóm FÍ.
3. Samkomulag fjármálaráðherra
og F1 um takmörkun á atkvæð-
isrétti ríkisins á aðalfundi nær
eingöngu til stjómarkjörs. í stað
þess að ríkið taki þátt í kosn-
ingu, sem gæfi því rétt á tveim
kjömum fulltrúum, tilnefnir rík-
ið þessa tvo fuiltrúa án at-
kvæðagreiðslu, en aðrir hlut-
hafar, sem em handhafar 80%
hlutafjár, kjósa hina sjö. Við af-
greiðslu annarra mála á aðal-
fundi hafa fulltrúar ríkisins
óskertan atkvæðisrétt, og að
sjálfsögðu gildir hið seima varð-
andi réttindi fulltrúa ríkisins í
stjórn félagsins, og hafa þeir því
full og eðlileg áhrif á gang mála
þar.
4. Fjármálaráðuneytið hefur á
undanförnum árum falið ríkis-
endurskoðuninni að yfirfara
reikninga og bókhald FI. Það er
ekki fyrr en að lokinni þeirri út-
tekt að endanleg ákvörðun er
tekin um uppgjör þeirra lána, er
tengjast eftirgjöf ríkisins á þeim
gjöldum vegna N.-Atlantshaús-
flugs félagsins og millilending-
um á Keflavíkurflugvelli. Reikn-
ingar og bókhald félagsins er
jafnframt endurskoðað ná-
kvæmlega af kjömum endur-
skoðanda félagsins Endurskoð-
un hf., Rvk.
5. Við endanlega ákvörðun um
uppfærslu eða afskrift hluta-
bréfa í aðildarfélögum er ekki
aðeins höfð hliðsjón af bók-
haldslegri stöðu eiginfjár, held-
ur einnig litið á það hvort áætl-
að markaðsverð eigna gefi til
kynna að hlutabréfin haldi gildi
sínu. Þetta mat hefur ráðið
ákvörðunum Flugleiða um af-
skrift hlutabréfa félagsins í
Cargolux 1982 og í Amarflugi
1983. Þetta sjónsumið hefur
væntanlega einnig ráðið
ákvörðun Eimskipafélags ís-
icrnds um óbreytta skráningu
hlutabréfaeignar þess félags í
Flugleiðum.
Sœmundur Guðvinsson
fréttafulltrúi Flugleiða
Sumir feður
misnota
réttindi sín
í tilefni greinar HelgzirpósLsins
um réttindamál forræðislausra
feðra:
Já, víst finnst ykkur þetta órétt-
látt. Kannski eigið þið rétt á þessu,
en af hverju segir enginn ykkar þá
frá ástæðum þeim sem mæðumar
telja sig hafa fyrir því að neita ykk-
ur um umgengni við böm ykkar?
Við vitum að þið emð ekki allir
eins, hið sama gildir um kvenfólk-
ið. Þess vegna langar mig að benda
ykkur á nokkra hluti áður en þið
farið lengra. Hversu margir karl-
menn em ekki þannig, að þeir láta
bömin sig engu skipta, koma
kannski einu sinni annað hvert ár
(ekki af því þeir hafi ekki efni á því)
og þá vantar ekki hræsnina.
Oft eftir skilnað hefur faðirinn
fengið umgengnisrétt yfir baminu.
Sá réttur hefur verið misnotaður,
menn hafa komið til að angra móð-
urina, ekki til að sjá bamið. Þegar
einstæðar mæður eiga í hlut þá em
það þær sem bera ábyrgðina - ekki
þið. Þetta blessaða bamameðlag
ykkar nægir ekki fyrir helmingi
þess kostnaðar sem fylgir því að
ala upp bcirn. Það er alltaf bent á
móðurina ef eitthvað fer úrskeiðis,
t.d. í uppeldinu, - ekki ykkur.
Ábyrgðin verður aldrei metin til
fjár. Auðvitað viljum við að bömin
okkar fái það sem þau þurfa, enda
hafa margar konur lagt á sig mikla
vinnu til að hcilda heimilinu gcing-
andi - og ekki séð eftir því. Aftur á
móti mætti halda að margir ykkar
dauðsæju eftir þeim aurum sem
fara í barnameðlag; peningamir
skipti ykkur meira máli en bamið?
Éinn ykkar talar um að honum
hafi verið bent á að fara á loðnu-
vertíð þegar peninga hefur vantað.
Já, góði, ég held að þú sért ekkert of
góður til þess. Einnig talar þú um
að þú hafi ekki efni á að fara og sjá
bömin þín - þú kaupir ekki ást -
fallegt bréf gæti gert meira en
margt annað. Þú hlýtur þó að hafa
efni á því? Ég held að normal móð-
ir geri það sem hún telur best fyrir
barn sitt hverju sinni - það hlýtur
að vera ástæða fyrir því að neita
sumum ykkar - eða hvað? Dag-
sektir gera ekkert - við erum vanar
því að þurfa að þræla - smá auka-
vinna í viðbót - og bara borga
þessa skekt, þ.e.as. ef það bjargar
ríkinu eða ykkur frá gjaldþroti.
Ég vorkenni ykkur ekkert að
þurfa að vinna meira en 8 klst. á
dag, rétt eins og kvenfólkið. Betri
framkoma frá ykkar hendi gæti
gert mikið. Gangi ykkur vel, þeim
sem eiga það skilið.
Svona í lokin:
Hvað ef allar óléttar konur
slepptu því að feðra böm sín —
svona til vonar og vara - uppá það
að fá frið, vera lausar við sífelldar
hótanir?
Kristín Jóhannesdóttir.
(IftNluW
A. Karlsson h. f.
umDoös- og heildverslur
Grófinni 1, Reykjavík.
Sími 27444.
Sjálfvirkar kaffikönnur fyrir
veitingahús og fyrirtæki
Sænsk gæðafram-
leiðsla úr ryðfríu
stáli.
Lagar 1,8 lítra af
kaffi á 5 mínútum.
Sjálfvirk vatns-
áfylling.
Enginn forhitunar-
tími.
Nýtir kaffið til
fullnustu í uppá-
hellingu.
Fullkomin raf-
eindastýring.
Raka- og hitavarin.
Fáanleg 2ja og 4ra
hellna.
Til afgreiðslu strax.
Frá aðeins kr.
7.780.-
*
Otrúlega
hagstætt
verð
10 HELGARPÓSTURINN