Helgarpósturinn - 12.04.1984, Síða 16
ÞJOÐLEIKHUSI-Ð
Öskubuska
Fimmtudag kl. 20.
Gæjar og píur
(Guys and Dolls)
5. sýn. föstudag kl. 20. Uppselt.
6. sýn. sunnudag kl. 20.
Amma þó
Laugardag kl. 15.
Sunnudag kl. 15.
Sveyk í síðari
heimsstyrjöidinni
Laugardag kl. 20.
Litla sviðið:
Tómasarkvöld
með Ijóðum og söngvum.
Fimmtudag kl. 20.30.
Miðasala 13.15-20.
Sími11200.
KMflATA
Föstudag kl. 20.00
Miðvikudag 18. april kl. 20.00.
Síðustu sýningar.
J^akarinn
l&eiHUCL
Laugardag kl. 20.00.
Sunnudag kl. 20.00.
Miðasala er opin frá kl. 15 - 19 nema
sýningardagatil kl. 20.00. Sími 11475.
LEiKFÉLAG
REYKjAVÍKUR
SÍM116620
GÍSL
I kvöld Uppselt.
Sunnudag kl. 20.30.
BROS ÚR DJÚPiNU
2. sýn. föstudag.Uppselt.
Grá kort gilda.
3. sýn. þriðjudag kl. 20.30.
Rauð kort gilda.
GUÐGAFMÉREYRA
Laugardag kl. 20.30.
Miðvikudag kl. 20.30.
Þrjár sýningar ettir.
Miðasala i Iðnókl. 14-20.30.
AJþýðuleikhúsiA
á Hótel
Loftleiðum
Undir teppinu
hennar ömmu
Fimmtudagskvöld, uppselt.
Laugardag 14. apríl kl. 21.
Miðasala frá kl. 17.00 alladaga. Simi
22322.
Matur á hóflegu verði fyrir sýningar-
gesti í veitingabúð Hótels Loftleiða.
VARAHLUTIR
í ALLA JAPANSKA BÍLA
Honda, Mazda, Mitsubishi, Toyota og Datsun
NP VARAHLUTIR
Ármúla 22 — 105 Reykjavík. Sími 31919
Draupnisgötu 2, 600 Akureyri. Sími 26303.
Hvergi hagstæðara verð.
STRAUM,..
,LOKUR u"
Cut out
LANDSINS BESTA ÚRVAL
STRAUMLOKUR OG SPENNUSTILLAR
í nær allar gerðir bifreiða og vinnutækja
á mjög hagstæðu verði
éÉtt&i HABERC ht
Skeifunni 5a. sími 84788.
SÝNINGAR
Kjarvalsstaðir:
Laugard. 7. apríl voru opnaðar þrjár
sýningar á Kjarvalsstöðum. Baltasar
sýnir málverk í vestursal. Ragnhildur
Stefánsdóttir sýnir skúlptúr i v-forsal
og Borealis, norræn listasýning, hefur
verið sett upp í austursal og austurfor-
sölum.
Listasafn A.S.Í.:
Grafíksýning verður opnuð um helg-
ina. Að henni standa Valgerður
Hauksdöttir og Malcolm Kristhilf.
Vesturgata 17:
Þar sýna félagar úr Listmálarafélagi
íslands. Safnið er opið daglega kl. 9 -
17.
Ásgrímssafn:
Skólasýn. f. 9. bekk grunnskóla. Uppl.
gefa Sólveig og Bryndís á Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur, sími 28544.
Símatimarmánud. kl. 13.30- 16.00og
föstudaga kl. 9- 12.
Bogasalur - Þjóðminja-
safnið:
Félagið Germania heldur málverka-
sýningu á verkum eftir Gerdu
Schmidt-Panknin. Sýn. er opin dag-
lega kl. 14 - 19 fram til 15. april.
Gerðuberg:
Siöasta sýningarhelgi Andrésar
Magnússonar. Opið fimmtudag til kl.
22 og föstudag - sunnudags kl. 14 -
18. Aðgangur ókeypis.
Listmunahúsið
,,Leir og lín'' samsýning 11 lista-
kvenna verður opnuð laugardag 14.
april kl. 14 og stendur til 29. apríl. Til
sýnis og sölu eru leirmunir og textil-
verk. Listmunahúsið er opið kl. 14-22
um helgar, 10-22 virka daga. Lokað
verður 16. og 24. april.
Laugardaginn 14. apríl opnar Hanna
Gunnarsdóttir sýningu á vatnslita-
myndum í Ásmundarsal við Freyju-
götu. Sýningin verður opin alla daga
frá kl. 14-22. Henni lýkur 23. apríl.
LEIKHÚS
íslenska óperan:
Óperan vinsæla, La traviata eftir
Verdi, verður sýnd i kvöld I næstsið-
asta sinn. Siðustu sýningar verða á
laugardags- og sunnudagskvöld. Þar
sem sýningar féllu niður um siðustu
helgi vegna veikinda, gilda aðgöngu-
miðar stimplaðir 6.4. á sýninguna á
sunnudag en miðar stimplaðir 7.4. á
laugardagssýningu.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framsúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góö
★ þolanleg
O lóieg
Stjörnubíó
Snargeggjað **
Amerísk gamanmynd með Gene Wild-
er og Richard Pryor í aðalhlutverki.
Tempest ***
Leikstjóri: Paul Mazursky. Aðalleikar-
ar: John Cassavettes og Gena Row-
lands.
The Survivors*
Bandarisk. Árg. '82. Leikstjóri:
Michael Ritchie. Aðalhlutverk: Walt-
er Matthau, Robin Williams og Jerry
Reed.
Laugarásbíó
Smokey and the Bandit 3
Ný gamanmynd úr þessum vinsæla
gamanmyndaflokki, með Jackie
Gleason, Paul Williams, Pat McCor-
mick og Jerry Reed i aðalhlutverkum.
Regnboginn
Bryntrukkurinn
Ný bandarísk litmynd. 1944-oliulindir
i báli, borgir í rúst, óaldarflokkar herja
og þeirra verstur er 200 tonna ferliki -
BRYNTRUKKURINN Michael Beck,
James Wainwright - Annie Mc-
Enroe.
Týnda gullnáman
Spennandi, bandarisk litmynd um
hættulega leit að gamalli gullnámu,
með Charlton Heston, Nick Man-
cuso og Kim Basinger.
Skilningstréð
Margföld verðlaunamynd um skóla-
krakka sem eru að byrja að kynnast
alvöru lifsins. aðalhlutverk: EvaGram
Schjoldager - Jan Johansen. Leik-
stjóri: Nils Malmros.
Emmanuelle í Soho
Klámmynd af penu sortinni. Aðalleik-
arar: Mary Millington og Mandy Mull-
er.
Ég lifi
Bandarisk mynd byggð á örlagasögu
Martins Grey. Aðalhlutverk Michael
York og Birgitte Fossey.
Frances
Bandarísk. Árg. '82. Handrit. Christ-
opher DeVore, Eric Bergen. Leikstjóri:
Graeme Clifford. Aðalhlutverk: Jess-
ica Lange, Kim Stanley, Sam Shepard.
„Clifford leikstjóri þreytir hér frum-
raun sína eftir langan feril í ástralskri
auglýsingamyndagerð og lánast vel
sköpun tíðaranda og einstakar svið-
setningar, en framrás sögunnar hefði
mátt vera þéttari. Frances stendur og
fellur með leiknum í titilhlutverkinu og
þar bregst Jessica Lange hvergi. Okk-
ur þyki vænt um þessa konu, sem er
dæmd sjúk af samfélaginu en er þrátt
fyrir erfiða lund heilbrigðari en dómar-
ar hennar."
-ÁÞ
Tónabíó
í skjóli nætur (Still of the Night)
Leikstjóri: Robert Benton. Aðalleikar-
ar: Roy Scheider og Meryl Streep.
,,Þetta er alveg þokkaleg þriller-
æfing. Roy Scheider, þessi tálgaði,
skarpleiti leikari, er betri en hlutverkið
býður upp á, en Meryl Streep ætlar að
verða innlyksa i dularfullum, ólukku-
legum konum. Hún ætti aö reyna að
hafa hlutverkaskipti við Liv Ullmann á
næstu árum - þeim báðum og áhorf-
endum til tilbreytingar.'
-ÁÞ
Austurbæjarbíó
Atómstöðin
★ ★★
(sl. Árg. 84. Leikstjóri: Þorsteinn
Jónsson. Islenska stórmyndin byggð
á samnefndri skáldsögu Halldórs Lax-
ness.
Nýja bíó
Star Wars I
Leikstjóri: George Lucas.
Bíóhöllin
Óþokkarnir
New York-búar fá aldeilis að kenna á
því þegar rafmagnið fer af. Aðalhlut-
verk: Jim Mitchum, Robert Carra-
dine.
Háskólabió
Shogun **
Bandarísk. Árgerð 1982. Handrit: Eric
Bercovici, eftir skáldsögu James
Clavell. Leikstjóri. Jerry London.
Aðalhlutverk: Richard Chamberlain,
Toshiro Mifune.
„Þetta er tveggja tima samþjöppun
á frægri bandariskri sjónvarpsseríu,
en jafnframt með ofbeldisatriðum sem
aldrei hefðu fengið inni í ameríska
imbakassanum. Shogun segir frá
ævintýrum bresks stýrimanns sem
verður skiptbrotsmaður í Japan á mið-
öldum, þegar mikil átök eru milli
tveggja höfðingja um völdin i landinu.
Myndin er ágætlega spennandi og við-
burðarík framan af, með voldugum
leikmyndum og litrikum atriðum, en
verður svolitið þreytandi til lengdar.
Alveg frambærileg afþreying engu að
síður."
-ÁÞ
Bíóhöllin
Heiðurskonsúllinn -
The Honorary Consul
★ **
Bresk-bandarísk. Árgerð 1983. Hand-
rit: Christopher Hampton, eftir skáld-
sögu Grahame Greene. Leikstjóri.
John Mackenzie. Aðalhlutverk: Rich-
ard Gere, Michael Caine, Elpida
Carrillo, Bob Hoskins.
,,Þótt handritið hafi sogað talsverðan
heimspekilegan safa úr afbragðsgóðri
skáldsögu Greenes og alls konar
óþarfa hasaratriði sett i staðinn er
margt prýðisvel gert i Heiðurskonsúln-
um undir traustri en tilþrifalitilli stjórn
Mackenzies (The Long Good Friday).
Fyrst og fremst er það leikur Michael
Caines sem blifur. Hann leikur drykk-
felldan og sjúskaðan heiðurskonsúl
Breta í Argentinu, sem heldur meiri
reisn en aðrir, er ungur læknir (Gere)
rænir frá honum konunni og honum er
sjálfum rænt af skæruliðum frá Para-
guay i misgripum fyrir bandaríska
sendiherrann. Caine hefuraldrei leikið
betur, aumkunarverður og aðdáunar-
verður í senn, en það vantar talsvert
uppá aö persónusambönd og siðferði-
legar og pólitískar spurningar gangi
upp. Richard Gere er hvað mest trufl-
andi með allan sinn diskókynþokka, en
aðrir bæta fyrir það. Hvað sem öðru
líður, - vönduð mynd og meira en
Breiðholtsferðar virði, ef menn búa þar
þá ekki á annað borð."
-ÁÞ
Maraþon-maðurinn (Marathon Man)
Bandarísk mynd. Leikstjóri: John
Schlesinger. Aðalhlutverk: Dustin
Hoffman, Laurence Oliver, Roy
Scheider og Marthe Keller. Framleið-
andi: Robert Evans. Endursýndurþrill-
er um eltingaleik við gamlar eftirlegu-
kindur nasismans. Vel leikin og all-
spennandi.
Porkys 2
Geysivinsæl grínmynd með Dan
Monahan, Wyatt Knight og Mark
Herrier í aðalhlutverkum.
Palli leiftur
Gamanmynd með Alan Arkin og
Carol Burnett i aðalhlutverkum.
Goldfinger
James Bond i toppformi.
TÖNLIST
Norræna húsið:
Föstud. 13. apríl kl. 20.30 verða tón-
leikar á vegum Tónverks sf. Christian
Lindberg spilar á básúnu.
Sunnud. 15. april kl. 17.00 spilar
Gunnhild Donslund og Marianne
Granvig á pianó og fiðlu.
Langholtskirkja:
Langholtskórinn heldur tónleika 14.
apríl kl. 15.00 og 15. apríl kl. 16.00.
Flutt verður Jóhannesar-passian. Jón
Stefánsson stjórnar.
Bústaðakirkja:
Kammermúsikklubburinn flytur Sinn-
hofer-kvartettinn sunnudaginn 15.
april kl. 20.30.
Gerðuberg:
Hrim-flokkurinn er með barnatónleika
í Gerðubergi kl. 3.
Kópavogskirkja:
Vivaldi-tónleikar verða haldnir i Kópa-
vogskirkju sunnudaginn 15. apríl kl.
20.30. Kór Menntaskólans í Kópavoai
flytur.
VIÐBURÐIR
Norræna húsið:
Vikuna 14.4.-23.4. stenduryfirfriðar-
vika i Norræna húsinu.
Felagsstofnun stúdenta
Laugardaginn 14. apríl kl. 13.00
stendur menningarmáladeild Sam-
hygðar fyrir ráðstefnu í Félagsstofnun
stúdenta um: Manngildi, sjálfsþekk-
ingu og sjálfsstjórn á sviðum mennt-
unar, íþrótta og lista.
Veitingahúsið Ártún
Gömlu dansarnir föstud. og laugard.
Hljómsveitin Drekar leikur fyrir dansi.
Fríkirkjuvegur 11
Laugardaginn 14. april verður haldin
formlegur stofnfundur Félags for-
ræðislausra foreldra, að Frikirkjuvegi
11 kl. 15.30.
Á þessum fundi verður formlega
gengið frá stofnun Félags forræðis-
lausra foreldra, stefna þess og skipu-
lag mörkuð. Ástæða er til þess að
hvetja alla þá foreldra, sem ekki hafa
forræði barna sinna, til að mæta á
fundinum. Allar frekari upplýsingar um
væntanlega stofnun félagsins veita
Lárus S. Guðjónsson í síma 53597
og Sigmundur H. Guömundsson i
síma 38058.