Helgarpósturinn - 12.04.1984, Page 28

Helgarpósturinn - 12.04.1984, Page 28
e sjarstjórn Sauðárkróks hefur gefið Hreini Sigurðssyni framkvæmdastjóra frest til 21, apríl til að leggja fram í bæjar- stjórn samning sinn um stórfelld- an útflutning á vatni. Telji bæjar- stjórn samkomulagið ekki halda vatni - að viðsemjandi Hreins í Vesturheimi sé ekki talinn nægi- lega traustur - missir Hreinn þau vatnsréttindi, sem hann hefur samið við bæjarfélagið um. Hreinn, sem í eina tíð vcir í gamni kallaður Hreinn gróði, hefur að sögn gert samning við það sem hann hefur nefnt „Alþjóðlegt verslunarfyrir- tæki með tvo stærstu banka Kan- ada á bakvið sig.“ Þetta fyrirtæki, Cannick Intemational, mun í raun rúmast svo tii allt í skjalatösku Vestur-íslendings að nafni Thor Nicolaisen, alias Guðni Þór Niku- lásson, sem flutti vestur um haf fyrir mörgum ámm. Vatnsbragð hefur líka þótt vera af samningn- um sem Hreinn hefur talað um. Reyndir viðskiptamenn botna t.d. ekki í því hvernig nokkur aðili get- ur skuldbundið sig í samningi til að kaupa milljónir lítra af vatni, hversu gott sem það er, 10 ár fram í tímann, og það áður en byrjað er að framleiða vömna... Þ ótt Islendingar séu einatt meistarar í að koma sér í klípu, em þeir ekki síður snillingcir í að redda sér út úr klípum. Þetta sannaðist á ráðagóðum Arnarflugsmönnum um daginn. Eins og fram hefur komið í fréttum urðu um tíu starfs- menn Amarflugs og ein cif vélum félagsins innlyksa í Nígeríu vegna skulda sem þarlendur leigutaki mun hafa átt að bera að mestu. Ekki hefur afturámóti komið fram með hvaða hætti Amarflugsmenn sluppu úr prísundinni. Það mun hafa verið sem hér segir: Eftir u.þ.b. þriggja vikna þóf var búið að gera upp málin nema hvað enn stóð eft- ir um 40,000 dollara hótelreikning- ur. Stendur í miklu stappi út af þessum reikningi og útlit fyrir að IslendingcU'nir verði að dvelja í Nígeríu um ófyrirsjáanlega fram- tíð. Þá dregur einn úrræðagóður starfsmaður félagsins upp tékk- hefti frá Landsbanka íslands - Vesturbæjarútibúi. Eins og ekkert sé eðlilegra skrifar hann ávísun upp á 40,000 dollara og ritar nafn Agn- ars Friðrikssonar, forstjóra Am- arflugs, undir (eftir að hafa fengið leyfi til þess áður) og annar starfs- maður skrifar svo nafnið sitt aftaná tékkann. Þetta tóku Nígeríumenn gott og gilt og Amarflugsmenn komust burt. Og nú er þessi ávísun komin til Landsbcmkans og brjóta menn þar nú mjög heilann um hvað í ósköpunum eigi að gera við hana... S, riglingamálastofnun hefur verið ákaflega mikið undir smásjá undanfarið vegna umræðunnar um sjálfvirkan sleppibúnað svo- kallaðan. Hefur stjóm stofnunar- innar m.a. sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekið þessi öryggismál föstum tökum. Sá maður sem til skamms tíma bar ábyrgð á stjóm- un stofnunarinnar hefur hins vegar verið fjarri þessari umræðu. Það er Hjálmar R. Bárðarson siglinga- málastjóri sem verið hefur í sex mánaða fríi. Nú er altalað að Hjálmar muni ekki snúa aftur úr þessu fríi og verði skipt um stjóm- anda Siglingamálastofnunar. Þykir Magnús Jóhannesson, settur siglingamálcistjóri, sem orðið hef- ur að svara fyrir hönd stofnunar- innar í deilunum að undcinfömu koma vel til álita sem arftaki HjálmcU-s... A kukin samkeppni og undir- boð á flugleiðinni yfir Norður-Atl- antshafið vom sögð einn helsti óvissuþátturinn í rekstri Flug- leiða í framtíðinni í grein HP um síðustu helgi. Nú heyrir blaðið að strax séu komnar blikur á loft í þessu efni. Og það er félagið sem Flugleiðir áttu sjálfar hlut í sem fyrir þessu stendur, - Cargolux. Heimildir HP herma að Cargolux hyggist verða með Júmbóþotu í ferðum á þessari leið í sumar. Verður vélinni skipt í tvennt, -* annars vegcir fcirþegcurými fyrir 300 farþega og hins vegcir fragtrými fyrir úm 50 - 60 tonn. Á hún síðan að fljúga tvisvar í viku á leiðinni Luxembourg - New York, einu sinni í viku Luxembourg-Miami og einu sinni í viku Luxembourg - Keflavík - San Fransisco - Keflavík - Luxembourg. Em Cargolux- menn núna á höttunum eftir far- kosti og spumingin er hvort þeir koma til með að undirbjóða Flug- leiðir á þessari mikilvægu flugleið í sumar.... I úsnæðismálastofnun er sögð nánast gjaldþrota um þessar mundir, þótt á henni sé hinsvegar „ríkisábyrgð". „Gatið“ í húsnæðis- málafjárlögum ríkisstjómarinnar er stærra en nokkum óraði fyrir. Tekjustofnar þeir sem gert var ráð fyrir að stæðu straum af þessum auknu útgjöldum ríkisins til hús- næðismála em langtum lægri en áætlað var. Þótt lögin um þessar fjárveitingar fáist samþykkt, sem er mikið metnaðarmál Alexand- ers Stefánssonar félagsmála- ráðherra þá herma heimildir HP að þau muni í reynd verða gagns- lítil. Enn sér því ekki fyrir endcinn á þrengingum húsbyggjenda, - þeir em fastir í gatasigti ríkisfjármál- anna... 'agskrárbreytinga er að vænta á Rás 2 innan tíðcir. For- stöðumaður hennar, Þorgeir Ást- valdsson, gengur á fund útvarps- ráðs á morgun þar sem hann mun leggja fram tillögur um útsending- ar rásarinnar á fimmtudagskvöld- um og laugardagseftirmiðdögum. Er gert ráð fyrir að þessi nýbreytni komist á frá og með næstu mán- aðamótum og falli síðar meir inn í sumardagskrá ráiscirinnar. í tillög- um Þorgeirs er kveðið á um að út- sending rásarinnar á fimmtudags- kvöldum verði frá 20 til 01 en út- sendingar á laugardagseftirmið- dögum frá 14 til 18. Ýmsar nýjung- ar munu vera á lofti innan rásar- innar um efnisvalið á þessum út- sendingartíma, meðal annars að Það miðist meira við „hlustun en heyrn" eins og það er orðað af starfsmönnum Rásar 2. Þar er átt við að meira verði um talmál en tónlist í þeim þáttum sem boðið verður upp á, en hressileikinn engu að síður í fyrimimi. En ekki er sopið kálið þótt og svo framvegis. Heimildir HP herma nefnilega að nokkur andstaða sé meðal gamal- gróinna starfsmanna á gömlu rás- inni gegn þessari útþenslu nýja- brumsins. Þeir telji, sumir hverjir, að ekki sé verjandi að útsendingar rásanna skarist meira en orðið sé, enda sé Rás 2 og eigi að vera bara lítill möskvi í annars þétt riðnu neti gamla gufuradíósins... w.w.w.w ••.•■yy.KW’.w Leitarþjónusta ANPRO leit- ar aö hinni réttu eign án allra skuldbindinga af þinni hálfu. 2JA HERBERGJA: Kambasel 70 ferm. Rétturtil að kaupa bílskúr. Verð 1400 þús. Hamrahlíð 50 ferm. Nýstandsett. Verð 1300 þús. Holtsgata Hafnarfirði 55 ferm rishæð, sama og ekkert undir súð. Verð 1200 þús. 3JA HERBERGJA: Blöndubakki Aukaherbergi í kjallara. Verð 1750 þús. Kaplaskjólsvegur 100 ferm 3ja herb. + inn- réttað ris. Verð 1500 þús. Lindarhvammur Hafnar- firði Risíbúð, mjög gott útsýni, gróið hverfi. Verð 1500 þús. Leirubakki 3ja herb. + aukah. í kjall- ara. Verð 1700 þús. 4RA HERBERGJA Lindarhvammur Hafnar- firði 110 ferm hæð í þríbýli - miðhæð, bílskúr. Verð 2 millj. SÉRHÆÐIR: Urðarstígur Lítil sérhæð í eldra húsi. Verð 1500 þús. Miðstræti 160 ferm íbúð á 2 hæðum í gömlu timburhúsi. Verð 2,5 millj. Mánastígur Hafnarfirði 110 ferm + ris. Verð 1900 þús. Ölduslóð Hafnarfirði 150 ferm sérhæð + bíl- skúr. Verð 2,5 millj. Ölduslóð Hafnarfirði 70 ferm. Stórgróinn garð- ur. Verð 1450 þús. Mánastígur Hafnarfirði 85 ferm. Verð 1450 þús. Rauðalækur 140ferm + bílskúr, gróinn garður, frágengin bíla- stæði. Verð 2600 þús. FASTEIGNASALAN Símar: 687520 32494 “ Bolholti 6, 687521 4. hæð o I z t 5 }S Takið sumarið snemm öll fjölskyldan til MALLORKA dTUKVT FERÐASKRIFSTOFA, IðnaÖarhúsinu Hailveigarstígl. Simar 28388 ■v

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.