Helgarpósturinn - 27.09.1984, Side 7
OLIUÞRIVELDIÐ
HARÐIR
SAMKEPPNISAÐILAR
EÐA
FLOKKSPÓLITÍSK
SAMTRYGGING?
Hrikalegar veröhækkanabeiönir
á olíu liggja fyrir
Hagnaöur olíufélaganna og fjár-
festingar stinga í stúf viö tap á
sölu olíu
„Bláköld staðreynd vegna
gengishækkunar,“ segja tals-
menn olíufélaganna
Dagsbrúnarmenn viö sölu á
sígarettum og tóbaki
Sjávarútvegsráöherra segir
loforö um veröstöövun á
olíuverði til áramóta standa
eftir Ómar Friðriksson mynd Jim Smart
Gríðarlegar hœkkanabeiðnir frá olíufélögunum
þremur, á olíum og bensíni, bíða nú samþykkis hjá
Verðlagsráði. Þarna fara félögin fram á hœkkanir á
þessum vörum í prósentum talið frá 12% allt upp í
rúmlega 20%. Gangi þessar hœkkanir í gegn hlýtur að
verða um mjög alvarlegt ástand að ræða íþjóðfélaginu,
ekki síst fyrir útgerðina í landinu.
Þessar upplýsingar komu frám í athugun sem HP
hefur verið að gera á uppbyggingu olíurisanna í land-
inu, þríveldisins mikla, og nokkrum þáttum í olíuversl-
uninni. Samstaða þeirra eða samkeppni hefur verið til
mikillar umfjöllunar í tímans rás og deilur staðið um
það hvort hið þrefalda dreifingarkerfi olíuvara sýni ekki
bruðl og óhagkvœmni í olíuverslun á íslandi þar sem
t. d. bensínverð hér er með því hœsta sem þekkist. For-
mælendur félaganna segja þó samkeppni harða milli
þeirra hvað þjónustu varðar og víst er að umsvifin á því
sviði hafa aukist og fjárfesting félaganna verið veruleg
undanfarið. Olíufélögin komu öll út með hagnaði á
síðasta ári.
þeirra hafa mjög verið gagnrýndar
undanfarið og það stíngur í augu
að afkoma félaganna allra var m jög
góð á síðasta ári um leið og þau telja
sig geta sýnt fram á það á pappírum
að tap hafi verið á söiu fljótandi
eldsneytis, ss. á bensíni.
Hlutfall opinberra gjalda í bens-
ínverði er þó það sem þyngst veg-
ur. Það er nú tæp 60% og hefur ekki
verið. hærra í 10 ár. Dreifingar-
kostnaður hefur verið um 10-11%
(8 - 14% í öllum teg.) og miðað við
að sala á bensíni hafi verið um 90
þús. tonn á síðasta ári er dreifing-
arkostnaður félaganna um 228 millj-
ónir á ári sem neytendur borga en
félögin ráðstafa þó ekki hluta af
því fé til fjárfestínga í t.d. bensín-
stöðvum, heldur fjármagna það
með afskriftafé eða tekjuafgangi.
í rauninni hafa olíufélögin löng-
um gangrýnt verðlagsyfirvöld fyrir
að sjá til þess við framkvæmd síns
verðlagseftirlits að olíuverslun
skyldi eingöngu rekin á þann hátt
að olíufélögin fengju dreifingar-
kostnaðinn greiddan en héldu ekki
eftir neinum hagnaði.
Alhliða frelsi
í sumar voru þeir Georg Ólafs-
son verðlagsstjóri og Sveinn
Björnsson, skrifstofustjóri í við-
skiptaráðuneytinu, fengnir til þess
af viðskiptaráðherra að gera at-
hugun á leiðum til þess að lækka
olíuverð. Þetta var gert vegna
ákvörðunar ríkisstjómarinnar um
að endurskoða bæri verðlagningu
á oiíu. Bráðabirgðaskýrsla um mál-
ið mun hafa borist ráðherra fyrir
um það btiliþrem vikum og hefur
I t I » I I » * » * *
staðan í þessum málum gefið ýms-
um tilefni til að líta gagnrýnisaug-
um til olíufélaganna. HP hefur það
eftir mönnum sem velt hafa þess-
um málum fyrir sér að dreifingar-
kostnaður félaganna, þ.e.a.s.
álagning þeirra, og hvemig hcinn
er reiknaður, orki tvímælis. Félög-
unum þykir hann of lágur en aðrir
telja að hann hafi þær afleiðingar
að félögin sjái sér ekki hag í að
. i gæta. i spamaðar. - . Fjáríestingar .
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem HP hefur komist yfir munu
vera uppi hugmyndir um að olíu-
kaup verði gefin frjáls og ekki að-
eins dreifingin innanlands, því
vegna hlutfalls hennar í heildar-
verði veittist með því of lítíð svig-
rúm til að ráða bót á vandanum.
Hleypa þurfi fleiri aðilum að. En
vandinn er stór og virðist ekki
verða leystur á næstunni, þvi fyrir
nokkrum.dögura kom s«ndinefnd. .
I * * < | i'lVlV* 4
viðskiptaráðuneytísins og olíufé-
Iaganna heim frá Sovétríkjunum
þar sem samið var um olíukaup
fyrir næsta ár, eins og venja er á
þessum árstíma. Þaðan kaupum
við mestallt magn olíunnar skv.
föstum viðskiptasamningum, og
sitjum því uppi með þær birgðir og
Scima fyrirkomulag út næsta ár.
Olíuviðskiptin við Sovétríkin hafa
verið svipuð síðustu ár og nam
hlutfall af heiidarinnflutningi olíu-
vara á síðasta ári um 62.6%. Nú
mun hafa verið samið um svo til
sama magn.
Einokun
„Olíuverslun á íslandi er í alltof
föstum skorðum," segir maður
sem gagnrýnt hefur verulega þetta
fyrirkomulag. „Við erum með þre-
falt dreifingarkeríi, þrefalt skrif-
stofubákn og þrefaldan gróða fé-
laganna og þetta leggst allt ofan á
verð neytandans. Þetta er hlut-
fallslega miklu meira en í öðrum
löndum og fáránlegt einokunar-
kerfi því félögin eru að selja sömu
olíuna undir mismunandi nöfnum
og á sama verði. Þama er eingöngu
um gervifrelsi að ræða og ég er viss
um að ef bandarísk einokunarlög
giltu hér á landi væri fyrir löngu
búið að ganga í þessi mál. Hér hef-
ur þetta fengið að viðgangast
vegna pólitískra hagsmuna ákveð-
inna flokka.
Þarna hefur verið á ferðinni það
sama og á við um t.d. verktaka-
starfsemina á Keflavíkurflugvelli,
Grænmetiseinkasöluna og ATVR,
»íð. þessn ihefur.- verað .skiptt upp >
• i t t i 'i i j V t < írril1} í 'n /
pólitískt áratugum saman og sem
hluta af plottínu í helmingaskipta-
stjórnum Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokksins."
Áður en vikið er að hækkana-
beiðnum er rétt að líta á nokkra
meginþætti í þessu kerfi innflutn-
ings á olíu og verslunar.
Allt frá 1953 hefur mestur hluti
olíuinnflutningsins komið frá Sov-
étríkjunum samkvæmt viðskipta-
samningum milli lcmdanna. Ínn-
flutningsverð hefur á síðari árum
miðast við skráð markaðsverð í
Rotterdam en á ári hverju er samið
um fyrirfram ákveðið magn fyrir
næsta ár og eru kaupin byggð é 5
ára rammasamningum um heildar-
viðskipti milli landanna.
Það er viðskiptaráðuneytið sem
formlega sér um þessi innkaup en
olíufélögin tilnefna ætíð menn í
samninganefndirnar og að lokinni
samningsgerð hverju sinni fá þau
hann í hendur til ráðstöfunar.
Kaup frá Portúgal hafa einnig auk-
'ist nokkuð frá ‘77 en eru gerð á
sama grundvelli. Afgangurinn er
hins vegar keyptur frá öðrum aðil-
um á Vesturlöndum. Sáralítið hafa
olíufélögin svo sjálf fengið að
kaupa frjálst. Allar ríkisstjómir á
íslandi hafa talið að olíuviðskiptin
við Sovétríkin væru í samræmi við
viðskiptahagsmuni þjóðarinnar.
Þannig er ekki um samkeppni
milli olíufélaganna að ræða viðvíkj-
andi mismúnandi gæðum olíunn-
ar. Ekki heldur um innkaupsverð
né heldur söluverð innanlands
vegna verðlagsákvæða. Síðustu 7
■ ár hefur olíusala felagarwia.nainnk-
‘ " HELGARPÓSTURÍNN *7,