Helgarpósturinn - 27.09.1984, Qupperneq 11
ú
lfar Þormóðsson, opinber
guðlastari og klámhundur, hefur nú
fengið bréf frá lögreglustjóra þar
sem honum er gert að greiða dóms-
sekt vegna Spegiimálsins í síðasta
lagi 3. október (fyrir lok skrifstofu-
tíma). Gangi Úlfar ekki að þessu ber
honum að mæta kl. 10 árdegis í
hegningarhúsið við Skólavörðustíg
þ. 5voktóber. HP hefur það fyrir satt
að Úlfar sé staðráðinn í að mæta til
fangelsunar og mun vistin bak við
múrana vara í 20 daga. Hins vegar
munu stuðningsmenn Úlfars og
áhugamenn um tjáningarfrelsi
halda mikla hátíð á meðan. Er þeg-
ar farið að koma saman skemmti-
nefnd en hátíðardagarnir munu
hljóta nafnið „Þórðargleði"...
D
■ óli
Y
■ m;
þeirra röðum getur sótt um þau án
þess að hljóta verulega kjaraskerð-
ingu af. Því mun Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra vera
að hugleiða alvarlega miklar lag-
færingar á launum helstu yfir-
manna ríkisstofnana og ríkisfyrir-
tækja svo hægt sé að koma réttum
mönnum að...
m
■vkafma
F
___ orlagið, hið nýja útgáfufélag
Jóhanns Páls Valdimarssonar
(sjá Listapóst) mun verða með ýmsa
spennandi titla á jólavertíðinni.
Meðal bóka Forlagsins er ný ljóða-
bók eftir Þórarin Eldjárn sem
nefnist „Ydd“, og er sérkennileg
fyrir þær sakir að þetta er fyrsta
ljóðabók Þórarins þar sem hann
beitir ekki hefðbundnum bragar-
háttum, heldur eru öll ljóðin í frjálsu
formi, án stuðla, höfuðstafa og ríms.
Önnur bók sem mun án efa vekja
mikla athygli og umtal er sagnabók
eftir Guðberg Bergsson sem heitir
„Hinsegin sögur". I sögunum fjallar
Guðbergur um leyndustu afkima
ástalífsins, eins og titillinn bendir
reyndar til, og þá þætti þess sem
fólk talar aldrei um. Við höfum
heyrt að þarna sé að finna þekktar
fyrirmyndir úr íslenskum samtíma í
djörfu samhengi.........
s
ólitískt óvissuástand síð-
ustu vikna hefur sem kunnugt er
hrundið af stað margvíslegum
þreifingum milli flokka um nýja
ríkisstjómarmöguleika. í síðustu
viku var það altalað í herbúðum
flokkanna að það hefði verið SÍS
sem losaði um fyrsta steininn í
þessum umræðum; að fyrirspum
hefði borist með vindinum úr SÍS-
áttinni til forystumanna Fram-
sóknarflokksins um það hvort
flokkurinn gæti ekki beitt sér fyrir
nýrri ríkisstjóm, þar sem byggða-
stefna áttunda áratugarins fengi
flugfjaðrimar á ný. Hugmyndin var
sú að stofnað yrði til þessarar rík-
isstjórnar án kosninga, og þá t.d.
með Alþýðubandalaginu, Alþýðu-
flokknum og e.t.v. Kvennalistan-
um. Eftir þetta laumuspil SÍS eiga
ungliðcir í Sjálfstæðisflokknum að
hafa tekið snarlega við sér og látið
óspart í það skína að flokkurinn
gæti hvenær sem væri sprengt nú-
verandi stjómarsamstarf, látið
kjósa og gengið af hólmi sem sigur-
vegari. Eftir fjömgar þreifingar í
byrjun, virðist nú sem stjómar-
flokkamir ætli að biða og sjá til
með 011 slík áform þangað til Ijóst
verður hvaða ástand skapast í
byrjun október þegar og ef BSRB
leggur niður vinnu...
________nagnsveitur Reykjavíkur
hafa ekki hækkað afnotagjald af
rafmagni undanfcima 13 mánuði og
mun það einsdæmi í sögu höfuð-
borgarinnar. Ef verðbólgan helst
niðri eins og verið hefur sem af er
þessu ári segja forráðamenn Raf-
magnsveitnanna að verð á raf-
magni í Reykjavík muni ekki hækka
í eitt ár í viðbót. Það em þó altént
gleðifréttir fyrir launapíndan al-
menning...
um og er talið að þcir hafi Þorsteinn
treyst sig mjög vemlega í sessi...
'teinar Berg og Sigurjón
Sighvatsson haifa stofnað nýtt
hlutafélag sem nefnist Stig h.f. Eins
og fram hefur komið í fréttum mun
félagið sjá um dreifingu á mynd-
bandaþáttum frá Bandaríkjunum
sem nefnast Dynasti og em af Dall-
as-gerðinni. Hið nýja í málinu er
hins vegar að þeir félagar hafa
keypt cúla þætti sem framleiddir
hafa verið, 86 talsins, og hyggjast
kaupa sjónvarpsréttinn að 26 nýj-
um þáttum sem em í framleiðslu í
USA. Dreifing þáttanna hérlendis
mun vera mikið á vegum Steina h.f.
en ennfremur hafa þeir kumpánar
fengið Hagkaup í lið með sér. Mun
Hagkaup koma á sérstöku áskrift-
arkerfi - eins þáttar spóla í viku -
svona um leið og þú kaupir helgar-
steikina...
______I ið skemmtilega í viðskipt-
um þeirra Steinars og Sigurjóns
er að hvomgur þeirra býr á íslandi.
Steinar er á þönum í plötuútgáfu í
London, eins og kemur fram ann-
ars staðar í fréttadálkum HP, og
Sigurjón framleiðir svonefndar B-
myndir í Los Angeles. B-myndir
em kvikmyndir gerðar með lágum
framleiðslukostnaði og komast
yfirleitt ekki í stóm dreifingarkerf-
in. Sigurjón hefur stofnað fyrirtæki
vestra ásamt bandarískum félaga
sínum og hafa þeir nýverið lokið
við upptökur á tveimur myndum.
önnur myndin er eins konar Rocky
Horror Show en hin er létt sexuð
gamanmynd í stíl við Skólafrí...
I msar toppstöður hjá því
opinbera em að losna og þarf að-
eins að nefna lögreglustjóra, fram-
kvæmdastjóra útvarps og útvarps-
stjóra. Það sem veldur stjómar-
flokkunum hve mestum áhyggjum
er að laun þessara toppstarfa em
svo lág að enginn hæfur maður úr
ftr,
largir spá í alþingiskosn-
ingar í haust. Þeir pólitísku sérfræð-
ingar sem HP hefur leitað til telja að
komi til kosninga muni Sjálfstæðis-
menn standa nokkurn veginn með
sömu þingmannatölu og jafnvel
auka hana, Framsókn bíða mikið af-
hroð og Alþýðubandalagið standa í
stað en kannski minnka við sig.
Kratar munu allt að því þurrkast út,
Bandalag jafnaðarmanna bæta lítil-
lega við sig (ekki síst vegna þess að
þeir bjóða nú fram í öllum kjördæm-
um) en stóru sigurvegararnir verði
Kvennaframboðið sem muni að öll-
um líkindum tvöfalda þingmanna-
tölu sína...
P
■ rentaraverkfallið hefur kall-
að á ýmsar ráðstafanir útgefenda.
DV hefur haldið uppi fjölrituðum
fréttum. Nú hafa DV-menn keypt
hálfs tonns fjölritunarpressu frá
Danmörku og kemst þá vonandi
meira fjör í verkfallið...
orsteinn Pálsson, hefur ver-
ið hálfgert vandræðabam Sjálf-
stæðisflokksins síðan hann var
kjörinn formaður hans. Hin hörðu
viðbrögð formanns BSRB og verka-
lýðsforystunnar eftir fréttaviðtal
sjónvcupsins við Þorstein á dögun-
um hefúr ekki gert nýja formannin-
um lífið léttara. Nú hefur Þorsteinn
hins vegar sótt í sig veðrið og lagt
mikla áherslu á að efla stöðu sína
innan flokksins. í fyrri viku var
flokksfundur í Valhöll þar sem Þor-
steinn hélt þrumuræðu og talaði
blaðalaust allcui tímann. Gamlar
kempur í Sjálfstæðisflokknum
munu haúa viknað og talað um
gömlu góðu dagana þegar þjóðar-
leiðtogamir veittu flokknum for-
ystu. Um 400 manns vom á fundin-
liklar hræringar eru nú
innan Alþýðubandalagsins. Ymsir
flokksmenn eygja fall ríkisstjórnar-
innar í kjölfar kjaradeilnanna og
nýjar kosningar þar með á næsta
leyti. Mikill glímuskjálfti mun vera
runninn á Ólaf Ragnar Grímsson
og stefnir hann ekki aðeins á þing-
sæti heldur ráðherrastól, því tals-
verðar líkur eru á nýrri viðreisn,
komi til alþingiskosninga í haust.
Með dyggri aðstoð nokkurra flokks-
félaga sinna vinnur Ólafur Ragnar
ötullega að því þessa dagana að ná
efsta sæti á lista Alþýðubandalags-
ins í Reykjaneskjördæmi. Svavar
Gestsson formaður mun vera þess-
ari hugmynd fylgjandi, því hann
mun óttast átök í Reykjavíkurfélag-
inu um persónu Ólafs. Hugmyndin
um að Ólafur skipi efsta sæti flokks-
ins í Reykjanesi hefur verið viðruð
í félögum Alþýðubandalagsins í
kjördæminu og fengið vægast sagt
dræmar undirtektir. í fyrsta lagi er
núverandi efsti maður listans, Geir
Gunnarsson, mjög vinsæll af
flokksmönnum og stendur sterkt. í
öðru lagi eru skiptar skoðanir um
Ólaf Ragnar Grímsson, ekki síst eftir
tillögu hans á miðstjórnarfundi
flokksins í vetur, er prófessorinn
lagði það til að leyfa NATÓ-her á ís-
landi ef hann væri ekki bandarískur
og stakk t.d. upp á norskum her eða
her frá öðrum Evrópulöndum. Þing-
manns- og ráðherraganga Ólafs
Ragnars mun því að öllum líkindum
verða þyngri en hann grunaði...
Ý
msar getgátur eru á lofti um
hve lengi prentaraverkfallið muni
standa. HP hefur það eftir áreiðan-
legum heimildum að stjórnarflokk-
arnir séu búnir að draga upp áætlun
að lausn deilunnar.'Umræddir tveir
flokkar óttast mjög að BSRB muni
fella sáttatillöguna og fara í verkfall
þ. 4. október. Verkfall BSRB-manna
mun að sjálfsögðu setja ríkisstjórn-
ina í lífshættu og ríður þá á að
stjórnarflokkarnir hafi pressu til að
„útskýra" fyrir almenningi ósann-
gjarnar kröfur opinberra starfs-
manna. Segja kunnugir menn um
þessi mál að áformað sé að semja í
deilu bókagerðarmanna og útgef-
enda viku eða tíu dögum eftir 4. okt-
óber svo að stjórnarblöðunum
Morgunblaðinu og NT ásamt stuðn-
ingsblaði ríkisstjórnarinnar DV geti
hafið fréttirnar. Útgáfa Þjóðviljans
og Alþýðublaðsins mun hins vegar
vega lítið á móti. ..
HcLUAHPOSTUHIiyiH 11
. it £ ) "C ‘; I:T f <•»: i i > 5.1 -\.i .:(,£■>