Helgarpósturinn - 27.09.1984, Qupperneq 19
HRINGBORÐ
í dag skrifar Heimir Pálsson
Lágmenntastefna eða láglaunastefna
eða bréfkorn til íslenskra foreldra
ÞEGAR ÞESSIORÐ eru fest á blað
stendur prentaraverkfcill, og guð
og Þorsteinn Pálsson vita einir
hvaða verkfall stendur þegar
pistillinn kemur fyrir sjónir Ies-
enda. Vonandi verður samt ekki
úrelt þá að minna menn á að
skólar hafa fyrir skemmstu hafið
störf eftir sumarhlé.
Ég hef oft áður — bæði á þess-
um vettvangi og öðrum — lýst
eftir því sem kalla mætti ábyrga
íslenska menntastefnu. Efni
þessa pistils fellur ekki langt frá
þeirri eik, en samt langar mig
einkum að beina orðum mínunr
til þeirra íslenskra foreldra sem
nú eiga börn og unglinga í skól-
um. Og mig langar að hefja bréf-
kornið til þessa hóps (er það um
helmingur þjöðarinnar?) með
einfaldri spumingu: „Hvaða
kröfur gerir þú til kennara barna
þinna?" Með því að svarið gæti
orðið ofurlítið mismunandi eftir
skólastigum, lcingar mig að byrja
á grunnskólakennaranum.
I fyrsta til sjötta bekk gmnn-
skólans (eða barnaskólanum)
eru iíkur til að bömin þín hafi
einkum einn kennara. Þá er nokk-
uð ljóst að hann er í flestum til-
vikum sú fullorðin manneskja
sem börnin hafa mest af að segja.
Þau em lengur samvistum við
hann en þig í vöku. Þá sýnist mér
fyrsta krafan hljóti að vera nokk-
uð augljós: Þú ætlast til að kenn-
arinn sé prúðmenni og umgang-
ist böm þín eins og mikilvæga
einstaklinga, sýni þeim með for-
dæmi sínu hvemig ábyrg og ljúf
manneskja hagcir sér.
í annan stað ætlast þú áreiðan-
lega til að kennari bamanna
þinna kunni skilgóð svör við
hverju því sem upp kann að
koma í kennslustofunni. Hann
hefur axlað megnið af frum-
fræðslunni, þeirri sem bænda-
samfélagið gamla dreifði á a.m.k.
tvær kynslóðir og stundum all-
marga einstaklinga af hverri kyn-
slóð.
í þriðja lagi verður kennarinn
að sjálfsögðu að vera þeim vanda
vaxinn að gerast „huggari" bam-
anna þinna í hverri þraut. Þú ert
ekki í kallfæri, því þú ert væntan-
lega að sinna framfærsluskyld-
unni.
í fjórða lagi verður kennarinn
vitanlega að búa yfir og geta
miðlað þeirri þekkingu sem
nauðsynleg er hverjum einstakl-
ingi í nútímascimfélcigi. Þama
taka gmnnskólalögin kröftuglega
undir við þig.
í fimmta lagi verður kennarinn
vitaskuld að ábyrgjast að sú
þekking sem hann er að miðla sé
í samræmi við nútíðina, ekki lið-
inn tíma. Úrelt þekking kemur
börnunum þínum að litlu haldi.
í sjötta lagi — og er þó reyndar
fólgið í því sem áður er sagt —
verður bekkjarkennarinn að
kunna skil á einum sex náms-
greinum skólans. Auk frumgrein-
anna þriggja, lesturs, skriftar og
reiknings, koma þar fög eins og
átthagafræði (þ.e. ajn.k. saga,
landafræði og náttúrufræði) og
Biblíusögur (það er undirstaða
allreir hugmyndafræði okkar).
í sjöunda Iagi kann náttúrlega
að vera að börnin þín eigi við
einhvern smávægilegan vanda
að stríða í hegðun eða líkams-
byggingu, og þá verður kennar-
inn vitanlega að vera starfi sínu
vaxinn og geta veitt hverjum ein-
staklingi þjónustu.
Við þennan lista getur hver og
einn bætt eftir efnum og ástæð-
um. En hvernig búum við nú að
kennaranurrt svo hann geti leyst
þessi smáræði fyrir okkur.
í fyrsta lagi fáum við honum
náttúrlega fullkomið húsnæði og
nýtískuleg kennslutæki. Flestir
skólanna eru að vísu mjög van-
búnir að tækjum og í marga
þeirra vantar alla aðstöðu
til kennslu í sumum greinum
(íþróttahúsið var kannski látið
bíða og hefur beðið í áratugi,
máski gleymdist að gera ráð
fyrir líffræðikennslunni, nú eða
heimilisfræðunum). En hvaða
kennslutæki og aðstöðu höfðu
eiginlega fcirkenncircimir í gamla
daga? Kennsla þeirra fullnægði
þörfum foreldra okkar.
í öðru lagi ætlumst við aðeins
til að kennarinn sinni að meðal-
tali tuttuguogsex nemendum.
Það merkir m.a. að margir bekkir
eru til muna stærri, svona um 30
nemendur. Hefurðu nokkum
tíma reiknað út að þetta merkir
það að bamið þitt fær einhvers
staðar í grennd við fjömtíu mín-
útna þjónustu hjá bekkjarkenn-
aranum á viku - þ.e.as. ef hann
getur skipt tíma sínum nákvæm-
lega jafnt milli nemenda?
I þriðja lagi leyfum við kennar-
anum að vinna af sér sumartím-
ann. Vinnuvika hans, samnings-
bundin, er því nærri fimmtí'u
klukkustundir á viku þá mánuði
sem skólinn starfcir, meðan aðrir
búa við fjömtíu stunda vinnu-
viku.
í fjórða lagi stöndum við þann-
ig að endurnýjun kennslugagna
og námsefnis og hver kennari með
sjálfsvirðingu notar kvöldin og
helgarnar til að búa til nýtt náms-
efni. Hefurðu nokkum tíma hug-
leitt að öll fjölritin sem bömin
þín koma með úr skólanum taki
tíma og kosti vinnu?
Og í framhaldi cif því: Hefurðu
hugsað um hvemig þér liði að
kvöldi dags eftir að hafa reynt að
skipta tíma þínum réttlátlega
milli tuttuguogsex bcurna?
Manstu hvemig var með þín tvö?
Þótti þér þau nokkum tíma kref j-
andi?
X
ÞEGAR OFAR KEMUR i skólakerfið
breytast kröfumar að sumu leyti,
en þó einkcmlega í þá áttina að
við gemm auknar kröfur til sér-
menntunar kennaranna í ein-
stökum greinum. Það léttir að
sumu leyti á þeim. en á móti kem-
ur þá að kennarinn getur þurft að
„stilla stig inn á“ allt að 100 nem-
endur á dag, því nú gengur hann
ekki aðeins í „bekkinn sinn“
heldur marga mismunandi bekki.
Hefurðu hugsað út í álagið sem
þessu fylgir?
Og vel á minnst: Þegar bömin
þín koma heim með leiðrétt verk-
efni í ýmsum greinum, hefurðu
hugsað út í hvenær kennarinn
muni hafa farið yfir verkefnin?
Væ það kvöldvinncm? Var það
næturvinnan? — Eða var það
helgin sem fór í stílabunkann að
þessu sinni?
x
ÉG HEF ÁTT ÞESS kost að kynnast
býsna mörgum kennurum um
ævina. Og ég get huggað þig með
því að flestailir hafa þeir hingað
til lagt líf og sál að veði til þess að
geta staðið undir kröfunum sem
þú gerir til þeirra. En ég verð að
vara þig við:
Hefurðu hugsað út í að þú
greiðir kenncira bamanna þinna
miklu lægri laun en þú myndir
greiða manni sem passaði tölv-
una þína?
Hefurðu gert þér grein fyrir að
kennarakaupið á íslandi er orðið
þannig að tala má um „vitsmuna-
flótta“ úr stéttinni?
Hefurðu gert þér grein fyrir
hvaða máli menntun þessarar
þjóðar skiptir fyrir afkomu fólks í
þessu landi - hlustaðirðu kannski
á Ingjald Hannibcilsson í sjón-
varpinu hér um daginn?
Hefurðu velt fyrir þér hvaða
frcUrttíð þú ætlar bömunum þín-
um? Væri ráð að hugsa um það
næst þegar þér gefst stund frá
brauðstritinu til að horfa í augu
þeirra? Geturðu þá sagt með
góðri samvisku að þú viljir þeim
aðeins hið besta?
Flugfrakt borgarsig
Fullkomin og fljótleg flutninga-
tœkni er nauðsynleg til þess að
ná œskilegum veltuhraða fjár-
magns, halda birgðum í lágmarki
og tryggja góða vörumeðferð.
Þessum markmiðum er auðvelt
að ná með FLUGFRAKT.
Áratuga reynsla og þekking á vöm-
flutningum milli landa ásamt teng-
ingu við flutninganet í lofti og á
landi um allan heim er grund-
völlur reglubundins áœtlunar-
flugs Flugleiða sem miðast við
óskir og þarfir viðskiptavina á
hverjum tíma.
Láttu FLUGFRAKT um flutninginn
fljótt og örugglega.
FLUGLEIDIR SZ FLUGFRAKT
® simi: 27800
HELGARPÓSTURINN 31