Helgarpósturinn - 27.09.1984, Side 24
lEins og fram hefur komið í HP
voru uppi hugmyndir í Framsókn-
arflokknum og Sjálfstæðisflokkn-
um um að skipta á stöðu lögreglu-
stjóra og útvarpsstjóra. Dóms-
málaráðherra (frcunsókncirmaður-
inn Jón Helgason) ræður lögreglu-
stjóra en menntamálciráðherra
(sjálfstæðismaJSurinn Ragnhildur
Helgadóttir) ræður útvarpsstjóra.
Sjálfstæðismenn lögðu mikla
áherslu á að ráða lögreglustjóra-
stöðunni og þá kom upp umrædd
hugmynd um að framsóknarmenn
fengju útvarpsstjórann en sjálf-
stæðismenn lögreglustjórcmn.
Framsóknarmenn undu þessum
skiptum vel en nú hafa sjálfstæðis-
menn snúist aftur og ljóst er orðið
að um slík hrossakaup verður ekki
að ræða. Ræður þar miklu eindreg-
in afstaða Ragnhildar Helgadóttur.
Er því næsta ljóst að Markús Öm
Antonsson verður næsti útvarps-
stjóri, svo framarlega sem það
strandar ekki á honum sjálfum.
Frcunsókncirmenn hafa leitað með
logcmdi ljósi að lögreglustjóra úr
sínum röðum, og þá einhverjum
sem sjálfstæðismenn gerðu ekki of
mikinn usla út af. Sá sem einna
sterkast kemur til greina mun vera
Böðvar Bragason, sýslumaður í
Rangárvallasýslu. Böðvar var áður
sjálfstæðismaður en snerist á
einni nóttu og bauð sig fram fyrir
Frcimsókncnflokkinn fyrir nokkrum
árum. Hamn er því „farsæll, hægri-
sinnaður framsóknarmaður" eins
og heimildamenn HP orða það.
Annar framsóknarmaður sem mun
verða hafður til vara í stöðu lög-
reglustjóra er Friðjón Guðröðar-
son, sýslumaður á Höfn í Homa-
firði...
D
H •^itstjóraskipti á Þjóðviljanum
eru í sjónmáli. Einar Karl Haralds-
son mun vera á förum frá blaðinu
og mun fullákveðið að hann taki við
framkvæmdastjórastarfi Alþýðu-
bandalagsins af Baldri Óskars-
syni. Óvíst er hver sest í ritstjóra-
stól Einars Karls, en víst er að Olaf-
ur Ragnar Grímsson mun ekki
tylla sér þar niður, enda þótt hann
hafi ritstýrt Þjóðviljanum undanfar-
in misseri. Óskar Guðmundsson,
blaðamaður á Þjóðviljanum, hefur
leynt og ljóst stefnt í ritstjórastöðu
málgagnsins en alls óvíst er að hann
hreppi stöðuna. Hins vegar nefna
margir Alþýðubandalagsmenn
nafn Össurar Skarphéðinssonar
sem þykir hress og dugandi blaða-
maður þótt nokkuð þyki óvíst um
flokkshollustu hans...
s
trætisvagnar í Reykjavík
aka um með auglýsingaborða á ut-
anverðum vögnunum og auglýs-
ingar þekja þá að innanverðu. Allt
frá árinu 1975 hefur auglýsinga-
stofan Argus tekið að sér umsjón
með þessum auglýsingamálum
SVR. Á fundi Strætisvagna Reykja-
víkur þriðjudaginn 18. sept. var
gerð fyrirspum um þessi augiýs-
ingamál vegna lítilla auglýsinga-
tekna á fjárhagsáætlun. í ljós kom
að auglýsingastofan Argus hafði
ekki sent neinar greiðslur til SVR
það sem af er þessu ári fyrir strætis-
vagnaauglýsingamar. Auk þess
hcifði 10% þóknun auglýsingastof-
unnar, sem staðfest var í upphaf-
36 HELGARPÓSTURINN
legum samningi milli Argusar og
SVR, verið breytt í 15%. Þessar
upplýsingar komu stjóm SVR í
gjörsamlega opna skjöldu: enginn
stjórnarmanna, né heldur forstjóri
SVR, vissi neitt um málið, né hafði
haft neitt eftirlit með auglýsingum
á strætisvagnana. Var þegar í stað
á sama fundi samþykkt að rifta
samningum við Argus og aðilum
mnan stjórncir SVR falið að ákveða
framhald auglýsingamálanna.
Verður að öllum líkindum sam-
þykkt að bjóða auglýsingamar út.
Þá var einnig samþykkt að SVR
myndi taka að sér auglýsingar í
biðskýlum SVR en einkaaðilar hafa
sóst eftir skýlunum undir auglýs-
ingastcirfsemi...
M
■ ^H ú er ákveðið hver hlýtur
aðalhlutverkið í leikritinu Edith Piaf
sem sett verður á svið hjá Leikfélagi
Akureyrar um áramótin. Það er
engin önnur en Edda Þórarins-
dóttir leikari og söngkona sem leik-
ur Piaf og Sigurður Pálsson mun
leikstýra.
s
^^^tarfsmenn ríkisins eiga sínar
unaðsstundir sem aðrir, ekki síst
þar sem yfirvofandi verkfall gæti
gert þeim lífið leitt innan tíðar. Fyrir
tæplega þremur vikum bauð Lands-
virkun 120 starfsmönnum sínum í
helgarferð til Noregs og leigði heila
þotu hjá Arnarflugi undir ferðina.
Starfsmenn stofnunarinnar voru þó
látnir borga dálítið upp í kostnað
eða tvö þúsund kall á kjaft. Kannski
að restin verði greidd með hækkuð-
um rafmagnsreikningum hjá okkur
hinum...
l fyrri viku var greitt úr verkfalls-
sjóði prentara í fyrsta sinn eins og
fram hefur komið í fréttum. Magn-
ús E. Sigurðsson, formaður Félags
bókagerðarmanna, vildi ekki skýra
frá upphæðinni, sem hver og einn
fékk fyrir tíu daga verkfall, en sagði
að reiknuð væri prósentutala á tekj-
ur prentara. Sannleikurinn er hins
vegar sá að hver og einn fékk
greiddar 1400 krónur. ..
A
fundi útvarpsráðs með
Þorgeiri Ástvaldssyni, forstöðu-
manni Rásar 2, í fyrri viku, var sam-
þykkt að veita rásinni leyfi til að
útvarpa á fimtudagskvöldum og á
öðrum helgardeginum og mun
sunnudagurinn að öllum líkindum
verða fyrir valinu. Hins vegar er
samþykkt útvcupsráðs háð grænu
ljósi útvarpsstjóra en Andrés
Björnsson útvarpsstjóri var ekki
til staðar á fundinum til að stað-
festa samþykktina...
••
enaðrirbankarbjjóða
Þaö er engin spurning, lönaöarbankinn býöur aörar sparnaöarleiöir.
Viö bjóðum þér BANKAREIKNINC
MEÐ BÓNUS í staö þess aö kaupa
skírteini.
Rú týnir ekki bankareikningi. Þú
þarft ekki aö endurnýja banka-
reikning. Rú skapar þér og þínum
lánstraust meö bankareikningi.
Iðnaðarbankinn
Fereigin leiðir - fyrir sparendur