Helgarpósturinn - 24.01.1985, Síða 7
Alþýðuflokkurinn eykur
fylgi sitt verulega
umsjón Halldór Halldórsson myndir Jim Smart
# Enn hallar undan fæti hjá
ríkisstjórninni
# Bandalag jafnaðarmanna og
Kvennalistinn staðfesta tilveru
sína
# Framsókn fengi ekki mann í
Reykjavík og á Reykjanesi
# Lausafylgið stœrsta
stjórnmálaafíið ?
Helgarpósturinn hefur í samstarfi við Skoðanakannanir á ís-
landi efnt til könnunar á fylgi stjórnmálaflokkanna og afstöðu
kjósenda til ríkisstjórnarinnar. Niðurstöður þessarar könnunar
koma ekki mjög á óvart. Skýrasta niðurstaðan er fylgisaukning
Alþýðuflokksins. Þá er orðið ljóst, að Bandalag jafnaðarmanna
og Samtök um kvennalista hafa fest sig í sessi í íslenzku stjórn-
málalífi. Þá er athyglisvert hversu fylgi Framsóknarflokksins í
þéttbýlustu kjördæmunum, Reykjavík og á Reykjanesi, er orðið
lítið. Samkvæmt könnun HP fengi Framsóknarflokkurinn ekki
mann kjörinn í Reykjavík né á Reykjanesi.
Þá staðfestir þessi könnun enn einu sinni hversu stór sá hóp-
ur manna er sem er óákveðinn og má segja að þessi hópur sé
stærsta stjórnmálaaflið á íslandi.
Um þetta fólk eiga stjórnmálaflokkarnir eftir að slást.
Hins vegar er fremur líklegt, að sá hópur sem neitar að svara
heyri ekki til lausafylginu svokallaða, heldur hafi að stærstum
hluta mótaðar skoðanir þótt ekki séu þær gefnar upp.
En við skulum láta könnunina tala fyrir sig sjálfa um leið og
við vísum í greinargerð framkvæmanda könnunarinnar, Skoðana-
kannana á íslandi. Hún birtist á næstu blaðsíðu.
HELGARPÓSTURINN 7