Helgarpósturinn - 24.01.1985, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjóri:
Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn: Jóhanna
Sveinsdóttir, Ómar Friöriks-
son Sigmundur Ernir
Rúnarsson og
Halldór Halldórsson
Útlit: Elín Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steen Johansson
Markaösmál:
Sigþór Hákonarson
Innheimta:
Garðar Jensson.
Afgreiðsla: Ásdís Bragadóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Ofbeldi barna
„íslendingar eru friðsöm og ró-
lynd þjóð. Á islandi er glæpatíðni
lág samanborið við aðrar nálæg-
ar þjóðir. Morð og alvarlegar
líkamsmeiðingar eru sjaldgæfir
viðburðir og því hafa erlendir
menn gjarnan þá sýn á þjóðlífið
og okkur að hér ríki fyrirmyndar-
ástand I þessum efnum."
Þessari mynd er oft á tíðum
brugðið upp þegar gerður er
samanburður á íslensku þjóðlífi
og öðrum Vesturlöndum. Hún
segir þó ekki nema hálfan sann-
leikann. Staðreyndin er nefnilega
sú að hér á landi hefur þróast
uggvænlegt ástand á seinustu ár-
um. Eiturlyfjanotkun fer vaxandi,
nýlega birtust fréttir þess efnis að
afbrotamálum hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins hafi fjölgað veru-
lega á síðasta ári, nýleg rannsókn
tannlæknis ber með sér að (s-
lenskir karlmenn misþyrmi kon-
um slnum og valdi þeim kjálka-
brotum í ríkari mæli en flestir aðr-
ir Evrópumenn. Fleira má tina til
sem sýnir að hér á landi er ekki
allt I þeim skorðum er réttlæti þá
lýsingu á landanum að hér búi
löghlýðin og friðsöm þjóð svo að
til fyrirmyndar sé.
Því er þetta tekið hér til um-
ræðu að I Helgarpóstinum í dag
er greint frá erindi konu nokkurrar
sem flutt var nýlega á fundi Sam-
taka áhugafólks um uppeldis- og
menntamál og fjallaði um ofbeldi
I skólum. Kona þessi, Hope
Knútsson, hefur kynnt sér vax-
andi ofbeldi meðal skólabarna á . r
Reykjavíkursvæðinu og víðar.
Heldur hún því fram að það fær-
ist verulega í aukana að börn
verði fyrir líkamsárásum skóla-
systkina sinna. „Þetta er handa-
hófskennt ofbeldi," segir hún.
„Þessi börn þekkja ekki einu
sinni hvert annað."
Það er einkenni á þeim upplýs-
ingum sem hún hefur aflað sér
og margir orðið til að staðfesta
það, að venjulega er ofbeldið
þannig að eldri krakkar ráðist á
sér yngri og minni máttar börn.
Hvað liggur hér að baki?
Ástæðurnar eru eflaust mýmarg-
ar og af ólikum toga spunnar, en
enginn kemst hjá því að líta á út-
breidda myndbandanotkun og
þá möguleika sem jafnvel yngstu
börnin hafa til að eyða löngum
stundum við ofbeldismyndir af
versta tagi. Ástæða er til að taka
aftur upp þá tillögu sem rædd var
á Alþingi fyrir ári að koma á frið-
arfræðslu í skólum landsins. Hún
getur einfaldlega falist I því sem
Hope Knútsson leggur til, „að
kenna mannleg samskipti. Kenna
börnum hvernig hægt sé að lifa I
sátt við sig og sína". Þetta er
alvarlegra og stærra mál en marg-
an grunar og beinlinis hrópar á at-
hygli, umræður og þó fyrst og
fremst tafarlausar aðgerðir. Sálar-
heill upprennandi kynslóðar er I
húfi.
BREF TIL RITSTJORNAR
Mjólkursamsalan og laxveiði
Til ritstjórnar Helgarpóstsins.
Vegna fréttar í Helgarpóstinum
17. þ.m. staðfestist hér með, að
Mjóikursamsalan hefur á undan-
gengnum árum engin veiðileyfi
keypt hjá Stangaveiðifélagi Reykja-
víkur á þeim vatnasvæðum, sem
það hefur á leigu.
Reykjavík, 22. janúar 1985.
f.h. Stangaveiðifélags Reykjavíkur
Friörik D. Slefánsson
framkoœmdastjóri
Í síðasta blaði varð okkur svolítið
á í messunni, þegar við héldum því
fram, að Mjólkursamsalan hefði haft
Norðurá á leigu í 14 daga síðastliðið
sumar. Sannleikur málsins er hins
vegar sá, að hér munu forsvars-
menn Tetra Pak hafa verið á ferðinni
með lið manna frá Frakklandi, Hol-
landi og Sviss. Þeir munu einmitt
hafa dvalist hér í hálfan mánuð. Eftir
því sem við vitum best, hefur Tetra
Pak fyrirtækið boðið góðum og gild-
um viðskiptavinum sínum hingað í
fjölda ára. Þannig mun það hafa
boðið frönskum viðskiptavinum sín-
um hingað reglulega á hverju sumri
síðustu 10 árin. I sumar voru Frakk-
arnir hér í eina viku, en menn af
öðru þjóðerni í aðra viku.
Annars er það að frétta af Tetra
Pak, að það hefur gert það nokkuð
gott hérlendis í samkeppninni við
Elo Pak, sem einnig selur umbúðir
hérlendis. Þannig kaupa 10 af 17
mjólkursamlögum á íslandi umbúð-
ir frá Tetra Pak og þar að auki hefur
svaladrykkjafyrirtæki Davíðs
Schevings Thorsteinssonar bæst í
hópinn. Ritstj.
ekamál Morgunblaðsins og
Steingríms Hermannssonar forsætis-
ráðherra hefur vakið kátínu margra
í blaðamannastétt og utan hennar.
Það þykir ekkert nýtt þótt „trún-
aðarmál" ríkisstjórnar eða ein-
stakra flokka leki út af þingflokks-
fundum og í málgögn viðkomandi
flokka. Yfirlýsingar Ólafs G. Ein-
arssonar formanns þingflokks
sjálfstæðismanna í Morgunblaðinu í
dag, fimmtudag, þóttu einkar
spaugilegar er hann hélt því fram að
vonlaust væri að trúnaðarskjal
Steingríms upp á 9 síður hefði lekið
frá þingflokksfundi sjálfstæðis-
manna í Moggann þar sem forsætis-
ráðherra sjálfur hafi safnað saman
umræddum gögnum eftir þing-
flokksfundinn. Þá varð einum góð-
um sjálfstæðismanni að orði: „Þótt
pappírarnir séu afhentir aftur, þá
gleymist ekki innihaldið."...
S.___________________________
samþykktar voru um daginn fela
m.a. í sér ýmsar breytingar á störf-
um ráða og nefnda. Þannig hefur
áfengismálanefnd verið innlimuð í
félagsmálaráð en umrædd áfengis-
málanefnd hefur ekki þótt leggja
neitt af mörkum frá því hún var sett
á laggirnar. Helsta verkefni áfengis-
málanefndar hefur verið að taka
fyrir ökuleyfissviptingar manna
sem teknir eru undir áhrifum
áfengis í umferðinni en þau mál
hafa iðulega verið afgreidd á öðrum
stöðum kerfisins. . .
v
^Rið höfum áður sagt frá þeirri
umræðu á sviði áfengismála að SÁÁ
tæki við starfsemi áfengisvarna-
deildar Reykjavíkurborgar en deild-
in hefur einkum séð um fjölskyldu-
hlið alkóhólisma og rekið starfsemi
sína í húsnæði SÁÁ í Síðumúla. Um-
raeður hafa verið lengi í gangi um að
SÁÁ tæki alfarið við þessari starf-
semi og var á síðasta ári skipuð
nefnd sem í sátu fulltrúar SÁÁ og
áfengisvarnadeildar borgarinnar.
Nú á föstudag í síðustu viku voru
niðurstöður nefndarinnar lagðar
fyrir heilbrigðisráð og kom í ljós að
einróma álit nefndarinnar var að
SÁA tæki við fjölskyldudeildinni
svonefndu alfarið. Heilbrigðisráð
hefur nú málið til umfjöllunar en
hefur fengið heimild heilbrigðis-
málaráðherra sem send var bréf-
leiðis til borgarlæknis til að Reykja-
víkurborg gæti afhent SÁÁ um-
rædda starfsemi. Hins vegar er óvíst
að SÁÁ taki að sér þessa starfsemi.
Enn er mikil mótstaða í borgarstjórn
við að áfengisvarnadeild leggi upp
laupana og SÁÁ taki við og eru það
einkum fulltrúar Alþýðubandalags-
ins, Kvennaframboðsins og Fram-
sóknar að hluta sem telja það eðli-
legt af prinsípástæðum að borgin
hafi virka starfsemi í áfengisvarna-
málum. Þá er einnig að myndast
tregða innan SÁA að taka við um-
ræddri starfsemi borgarinnar og
margir starfsmenn samtakanna
telja að slík breyting sé of viða-
mikil fyrir SÁÁ sem stendur. En mál-
ið er sem sagt hjá heilbrigðisráði og
verður væntanlega afgreitt á næsta
fundi...
LAUSN ÁSPILAÞRAUT
Þannig voru
S
H
T
L
S A-K-G-10
H Á-K
T G-7-3-2
L Á-K-2
S
H
T
L
öll spilin:
9-8-7-5-3
D-G-10-7-4-3
8
3
S D-2
H 6-5
T Á-D-5-4
L D-10-6-5-4
6-4
9-8-3
K-10-9-6
G-9-8-7
Eftir að hafa tekið á laufakóng-
inn, þá lætur vestur tígul og tekur
á ásinn í borði. Lætur lauf, sem
hann tekur á ásinn, en þá er norð-
ur laufalaus. (Annars væri spilið á
borðinu.) Tígli spilað á drottningu.
Ef þeir sídptast þrír-tveir, þá vinn-
ast tólf slagir. Sömuleiðis ef norður
á fjóra tígla með kónginum og tek-
ur slaginn. Þá er spilið unnið.
Norður verður því að gefa. Vestur
neyðist því til að afskrifa laufaslag.
Hafi suður fjóra tígla ásamt kóng-
inum, þá verður hann að taka
drottninguna. En nú tekur vestur á
spaðann sinn og við það lendir
suður í kastþröng í laufi og tígli.
Takið eftir því, að þá má alls ekki
reyna að svína tíglinum, því kóng-
urinn gæti verið blankur.
HP í ÁSKRIFT TIL NÁMSMANNA ERLENDIS
Kynningarverð: í dönskum krónum 104,- utan Evrópu í US$ 10,-
3ja mán. áskrift burðargjald 40,- burðargjald 6,-
Samtals 144,- Samtals 16,-
ÁSKRIFTARGJALD GREIÐIST í BYRJUN ÁSKRIFTARTÍMABILS
EINNIG ER HÆGT AÐ FÁ 6 og 12 MÁNAÐA ÁSKRIFT
UPPL. ÍSÍMA 81511
HELGARPÓSTIIRINN
10 HELGARPÓSTURINN