Helgarpósturinn - 24.01.1985, Page 21

Helgarpósturinn - 24.01.1985, Page 21
aitalbUtðtð 1527277 tbl. 263. ára. Viðgangast miltur hérlendis? Skrifstofu skattmnnsóknar- stjóra færðir tólf pakkar af koffínlausu Bragakaffi! — Starfsmenn hafa sofnað á verðinum fyrr en ella. segir m.a. í leyniskýrslu RLR um málið Aðalblaðið hefur fengið í hendur ítarlega skýrslu rannsóknarlög- reglustjóra ríkisins, sem greinir frá því að rannsókn skattrannsóknar- stjóraembættisins á meintum skatt- svikum Sambandsins vegna kaffi- innflutnings hafi tekið óvænta og óheillavænlega stefnu á ailra síð- ustu dögum. Skýrslu þessa átti að senda með leynd til ríkissaksókn- ara, en hún komst fyrir tilviljun í hendur eins blaðamanna okkar (en þess má geta til skýringar að mamma hans ræstir hjá RLR fyrsta föstudagskvöld í mánuði hverjum; innsk. ritstj.). í þessari leyniskýrslu er þess getið að skrifstofu skattrannsóknarstjóra að Skúlagötu 57 í Reykjavík hafi verið sendur pakki án greiðslukvitt- unar síðastliðinn þriðjudag klukkan 13.51, og hafi hann verið merktur skrifstofunni c/o Garðar Valdimars- son skattrannsóknarstjóri, en þar undir hafi staðið skýrum stöfum; „Það hressir..." f skýrslunni er síðan vikið að innihaldi pakkans og sagt að þar hafi verið tólf pokar af koffín- lausu Bragakaffi, hver þeirra 250 gramma eða samanlagt 3000 grömm. Skýrslan tæpir síðan á því að fimm pakkanna hafi verið tómir og tveir hálftómir þegar RLR hafi komist í málið og er í framhaldi ýjað að því hvað starfsmenn hafi verið sofandalegir við vinnu sína frá því á þriðjudagssíðdegi. „Það er alveg rétt að við leyfðum okkur að smakka á þessari óvæntu sendingu neðan af Sölvhólsgötu," sagði Garðar Valdimarsson þegar blm. Aðalblaðsins innti hann álits á þessari æðislegu uppljóstrun blaðs- ins. „Og það má líka vel vera, að við þurfum eitthvað meiri svefn núna en áður, en ég get hinsvegar ekki séð hvað það hefur með rannsókn okkar á Bragakaffimálinu að gera. Þetta eru enda tvær alveg óskyldar kaffitegundir, Bragakaffi í ljósum pökkum sem við erum að rannsaka og þetta koffínlausa í rauðu pökkun- um. En því er svo sem ekki að neita, ef þú vilt vita það, að mér finnst það koffínlausa betra." verði bannað í sjónvarp- inu strax — Meöal ályktana á nýafstöönu þingi friöarhóps slökkviliösmanna sem haldiö var í Logalandi um helgina. Sjá bls. 11 og leiöara. Ríkisútvarp Sauöárkróks og nœstu bœja utan fjaröa tekur til starfa í haust: RÚVSKONBUF skal það heita Sjá viötal viö verölaunahafann t samkeppninni um nafn stöövarinn- ar á bls. 2. unni Dan. missti minniö í leiknum á laug- ardag — Leikur ekki meira meö Ulkern Durendorf í vetur. Sjá allt um íþróttir helgarinnar. segir Jóhannes Nordal sem stjórnaði könnuninni Eins og Aðalblaðið skýrði frá fyrir nokkru, ákvað stjórn Landsvirkjun- ar á aðalfundi sínum í fyrra að verja umtalsverðu fjármagni til viðamik- illar könnunar á kynlífsvenjum ís- lendinga með tilliti til búseturöskun- ar í landinu á síðustu fimm árum eða svo, en þetta skyldi vera fram- lag stofnunarinnar til „árs æskunn- Þrjóturínn náðist aftur á mynd! Þrjóturinn sem stal umtalsverðu fjármagni úr bönkun nú nýverið, en frekar óskýr ljósmynd náðist af í ein- um þeirra með þeim afleiðingum að hann hætti ósómanum í bili, hefur nú náðst aftur á ljósmynd, í þetta skipti við innbrot á skrifstofur Rann- sóknarlögregiu ríkisins í Kópavogi. Hann hafði þar á burt með sér ljós- myndina sem náðist af honum í bankanum hérna um daginn, þann- ig að nú hefur RLR bara undir hönd- um eina mynd af manninum sem enn hefur ekki náðst. Það má þó vera nokkur sárabót að sú mynd, sjá hér að ofan, er mun skýrari en sú fyrri. ar“ sem nú er rétt nýhafið. Tókst samkomulag milli Landsvirkjunar og Seðlabanka íslands um að síðar- nefnda stofnunin fjármagnaði könnunina og sæi um snittu- og vín- kaup fyrir uppskeruhátíð að niður- stöðunum fengnum. Blaðamaður Aðalblaðsins hitti Jó- hannes Nordal seðlabankastjóra og stjórnarformann Landsvirkjunar á hátíðinni í gærkveldi, en hann var þá á sjöttu snittu, nota bene; sú var með gröfnum laxi. „Þetta er ein- hver best grafni lax sem ég hef lengi smakkað," kvaðst Jóhannes ætla þegar hann var spurður út í niður- stöður kynlífskönnunarinnar sem kynntar höfðu verið fyrr um kvöld- ið, fyrir luktum dyrum. „Þetta minn- ir mig á að ég á Norðurána pantaða fyrripartinn í júní,“ sagði hann enn- fremur og taldi óvíst að Jónas vinur hans Haralz kæmist með í þá ferð. „Veistu hvað ég veiddi marga í fyrra?" spurði Jóhannes síðan, eftir að blaðamaður hafði ítrekað spurn- inguna um ■ niðurstöður kynlífs- könnunarinnar. „Einum fleiri en Jónas,“ og það tísti í seðlabanka- stjóra, „þessvegna er hann ekkert æstur að koma með mér í Norður- ána næsta sumar, he, hehe... En tal- andi um niðurstöður kynlífskönn- unarinnar: Tja, útkoman er mjög í anda þess sem ég hélt sjáifur," sagði Jóhannes að lokum og ítrekaði að hann hefði sjálfur stjórnað könnun- inni og myndi fylgjast náið með tölvukeyrslunni á endanlegum nið- urstöðum næstu daga. Vinna við kynlífskönnun Seðla- bankans og Landsvirkjunar fór þannig fram að spyrlar, 70 að tölu, heimsóttu fólk á aldrinum 18 ára til 62 ára, 600 að tölu og skiptust konur og karlar til helminga. A myndinni má sjá inn á heimili tveggja einstakl- inga í könnuninni, en innfellda myndin sýnir Jóhannes Nordal sem stjórnaði henni. Flugleiöir meó pakka- ferdir fyrir eigendur vídeóleiga — Uppselt í fyrstu feröina til Paraguay. Efni frá Norðurlöndunum * , ,(itkomai\ mjög í anda þess sem ég hélt sjálfur4 ‘ Seðlabankinn í samvinnu við Landsvirkjun kynnit niðuTstöður könnunar á kynlífsvenjum íslendinga: HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.